Morgunblaðið - 23.05.1970, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. MAÍ »70
O
T
Varnir
gegn
félagslegum
vandamálum
og viðhald óspilltra
náttúrugæða.
Rætt við Markús Örn
Antonsson, sem
skipar 6. sætið á lista
S j álf stæðisf lokksins
MARKÚS Örn Antonsson er yngsti
frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í
borgarstjómarkosningunum. Hann hef-
ur ekki tekið virkan þátt í pólitísku
starfi flokksins áður.
— Hveraig stóð á því, að þú gafst kost
á þér í framboð?
— Ef prófkjörið hefði ekki farið fram,
væri ég ekki í fraimboði nú. Það var
hópur ungra manna, sem hvatti mig til
þess að gefa kost á mér í þetta. Ég var
reiðubúinn að gefa kost á mér vegna
þess, að ég taldi eins og ungt fólk ai-
mennt, að endurnýjun þyrfti að eiga sér
stað í stjórnimálaflokkunum. Því taldi
ég eðlilegt, að ungt fólk sýndi það í
verki, að það vildi vinna að eðlilegri
endurnýjun og gæfi kost á sér til þess.
Margt af því fólki, sem hefur í orði
kveðnu viljað breytingar og meira
áhrifavald á stjómmálasviðinu, hefur í
reynd sýnt því lítinn áhuga. Það trúir
því ef til vill, að stjórnmál séu myrkra-
verk, sem heiðarlegt fólk eigi ekki að
koma nálægt.
— Það var haft á orði, að þú hefðir
notað óvanalegar aðferðir í prófkjörs-
baráttunni. Nú ert þú þekktur úr sjón-
varpi, þurftirðu á frekari auglýsingu að
halda?
— Eftir að hafa tekið þá ákvörðun
að verða við þessum áskorunum, var ég
sannfærður um, fyrst á hólminn var
komið, að ég yrði að sækja þetta af
fulílri alvöru. Við vitum, að allir stjó.cn-
málaflökkar hafa lagt á það áherzlu að
fá kunnugleg andlit eða nöfn til þess
að prýða fraimboðslista sína með. Mér
fannst ég verða að gera grein fyrir því,
að ég væri ekki kominn í prófkjörið
sem slikur, heldur myndi ég vinna að
því að ná sæti á endanlegum framboðs-
lista. Mín skoðun er sú, að það sama
eigi að gilda um prófkjör og sjálfa
kosningabaráttuna. Frambjóðendur eiga
sjálfir að vinna upp á sínar eigin spýt-
ur að sínu kjöri. Ekki sitja auðum hönd-
um og treysta eimmgis á hina svoköll-
uðu flokksvél og blaðamennina. Fram-
bjóðendur eiga ekki að setjast í helgan
stein og láta aðra vinna fyrir sig.
— Hvert er þitt álit á yfirlýsingu
Geirs Hallgrímssonar?
— Það hefur sem kunnugt er skapazt
sú hefð hjá Sjálfstæðisflokknum, að
borgarstjóraefni flokksins skipaði efsta
sæti á framboðslistanum. Við tvennar
undanfarnar borgarstjórnarkosningar
hefur Geir Hallgrimsson skipað þetta
forystusæti. í bæði Skiptin lýstu Reyk-
víkingar yfir stuðningi við hann með
því að endurkjósa meirihlutastjóm
Sjálfstæðismanna. Þeir hafa tvisvar
sýnt Geir Hallgrímssyni þetta traust í
almennum kosningum; bæði Sjálfstæðis-
menn og ótal andstæðingar Sjálfstæðis-
flokksins í landsmálum. Borgarstjórinn
hefur nú ákveðið að víkja, komi það í
ljós, að Reyikvíkingar beri ekki traust
til hans eins og þeir hafa áður gert. Eru
þetta ekki einmitt þau viðbrögð, sem
við ætlumst til af kjörnum fulltrúum
okkar? Með tilliti til þessa, tel ég það
mjög eðlillegt, að Geir Hallgrímsson
gefi ekki kost á sér sem borgarstjóri í
samstarfi margra flokka, ef meirihlut-
inn tapast.
Að mínum dómi er það þvert á móti
mjög lýðræðisleg afstaða að gefa hin-
um almenna kjósanda kost á að velja
sig áfram eða hafna sér. Víða erlendis
eru borgarstjórar kosnir sérstaklega.
Starf borgarstjóra í Reykjavík er það
veigamikið starf og trúnaðarstaða, að
mjög eðlilegt er, að kjósendur fái sjálfir
að leggja dóm á það, hvern þeir vilja
fá til þess að gegna þessu embætti.
Prófkjörið og yfirlýsing Geirs er
hvort tveggja svar við háværum kröfum
ungs fólks um aukið lýðræði í störfum
stj órnmálafloíkka.
— Hver eru brýnustu verkefni borg-
arstjórnar að mati ungs frambjóðanda?
— Borgin verður hér eftir sem hingað
til að búa í haginn fyrir aukinn fjölda
borgarbúa, veita ungu fólki tækifæri
tij að eignast þak yfir höfuðið. Víðast
hvar eru nú í borginni malbikaðar göt-
ur og hitaveita, nægilegt Skólahúsnæði,
verzlanir og tíðar strætisvagnaferðir.
Einmitt fyrir það hvað margt hefur
áunnizt á síðustu árum, mun það taka
skemmri tima að gera nýju hverfin vel
Framhald á bls. 20
3 þotum
grandað
Tel Avív, Kaíró, Beirút,
15. maí. AP.
ÍSRAELSMENN segjast hafa
skotið niður þrjár egypzkar
MIG-þotur í loftbardögum
yfir Súezskurði í dag.
Skömmu síðar sögðust Egypt-
ar hafa valdið miklu tjóni
með loftárásum á ísraelskar
stöðvar við norðurenda Súez-
skurðar.
f Beirút var því formlega
neitað í dag að sveitir úr
fastaiheir Sýrlands hefðu sótt
iran í Líbanon, en margt þyk-
ir benda til þess að nýjar
sveitir skæruliða hafi sótt
yfir landamærin frá stöðvum
í Sýrlandi. Fréttir herma að
mörg þúsund ma-nna vel vopn
að lið hafi tekið sér stöðu á
svæði þvi í Suður-Líbanon,
sem ísraelsmeran gerðu kröft-
ugar árásdr á fyrr í vikunni.
Tveimuir möramm hefur ver
ið bjargað af áhöfn ísraelsks
togara sem egypzkur flug-
slkeytabátur sökfcti undan
norðurströnd Sinai-skaga í
gærkvöld, að því er tilkynnt
var í Tel Aviv í dag, Fjögurra
mamna áhöfn var á bátnum.
Nú fást
Kóróna fötin líka í
Herrabúðinni
við Lœkjartorg