Morgunblaðið - 01.02.1975, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 01.02.1975, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. FEBRUAR 1975 27 Guðríður Guttorms- dóttir - Minningarorð Önundarfirði. Þegar Steinunn stóð á tvitugu var hún send af heimilinu til að leita sér frekari reynslu og menntunar. Hún hafði sjálf þá skoðun, að hver kona ætti að kunna að koma mjólk í mat og ull í fat. Það fyrra hafði hún þegar lært. Nú hóf hún nám i klæðskurði á Isafirði og settist þar jafnframt í kvöldskóla. Síðan dvaldi hún á nokkrum sveita- heimilum við lsafjarðardjúp, saumaði á sveitungana og gekk að öðrum störfum. Þegar hún sneri aftur i Hjarðardal var þar kominn ungur maður, Finnur . Torfi Guðmundsson. Finnur nam þá sjómannafræði hjá Kristjáni bróður Steinunnar og dvaldi í Hjarðardal á meðan. Þau Finnur og Steinunn felldu strax hugi saman. Þau giftust árið 1915 og hófu sama ár búskap að Kaldá i Öndundarfirði. Steinunn elskaði moldina og það sem i henni grær og allar lifandi skepnur. Búskapur var hennar óskastarf. A sama hátt unni Finnur sjónum. Þau höfðu með sér þá verkaskiptingu, að hún sá um búskapinn, en hann rak útgerð og stundaði sjó frá Flateyri og Görðum. Þau hjónin voru ólík um margt; Finnur glað- vær og skemmtinn, Steinunn skapföst og einörð. Þau áttu það þó sameiginlegt að þau unnu hvort öðru alla tíð. Ætíð var gest- kvæmt að Kaldá og húshald þar nýstárlegt um margt, enda var Finnur mikill framfarasinni. Hann var t.d. einn fyrsti íslenski bóndinn, sem lét raflýsa hjá sér. Sæludagarnir að Kaldá stóðu ekki mjög lengi. Steinunn tók að kenna sjúkdóms, sem hrjáði hana lengi síðan og 1930 fluttust fjöl- skyldan að Flateyri. Þau hjónin eignuðust fjögur börn að Kaldá, sem upp komust; Jóhannes, Jónínu, Garðar og Gróu og lifa þau öll móður sina, nema Jóhannes, sem lést i febrúar sið- astliðnum. Árið 1936 missti Steinunn mann sinn. Finnur drukknaði í sjó, en sá dauðdagi var ekki ný- næmi fyrir Vestfirðingum i þá daga. Það var mikið reiðarslag fyr ir Steinunni og barnahópinn, en enginn heyrði hana æðrast þá, frekar en endra nær. Steinunn bjó áfram með börnum sinu'm að Flateyri uns þau uxu upp og stofnuðu sin eigin heimili. Þá fluttist Steinunn frá Flateyri og bjó til skiptis hjá börnum sínum. Siðustu árin bjó hún hjá dóttur sinni Gróu og tengdasyni i Hafnarfirði, Steinunn Jóhannesdöttir var skapföst kona og hugrökk, sem trúði óhvikuit á lífsskoðanir sínar og fór eftir þeim. Fyrir það var hún virt. Vinum sínum sýndi hún Framhald á bls. 20 Fæddur 12. marz 1884 Dáinn 23. janúar 1975 Nú fækkar þeim óðum, sem áður fyrr voru búendur í hinu auða og yfirgefna Staðarhverfi i Grindavik. Siðastur féll í valinn Vilmundur i Löndum, sem með sinu stóra heimili setti svip sinn á hverfið í meira en 30 ár. Og hann setti líka sinn svip á samkomur Staðhverfingafélags- ins þar sem hann lét sig aldrei vanta þrátt fyrir háan aldur. Hann var einn af hinum trúu félögum, sem vildu halda hópinn, þótt hann væri dreifður eða horf- inn í fjöldann í þéttbýli Stór- Reykjavikur og bæjanna við sunnanverðan Faxaflóa. Vilmundur var aldursforseti Staðhverfingafélagsins og einn af heiðursfélögum þess og heiðri krýndur sat hann samkomur þess, umvafinn ást og virðingu barna sinna og annarra afkomenda og sinna mörgu vina. Hann gladdist yfir því að geta verið með í þeim glaða hópi á góðra vina fundi. En svo varð hann stundum eins og dálitið Fædd 30. april 1883. Dáin 27. janúar 1975. í dag, laugardaginn 1. febrúar, verður jarðsungin frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík frú Guðríð- ur Guttormsdóttir, en hún and- aðist að Hrafnistu aðfaranótt sl. mánudags, hátt á 92. aldursári. Guðríður var fædd að Svalbarði í Þistilfirði, dóttir prófastshjón- anna séra Guttorms Vigfússonar og seinni konu hans, Þórhildar Sigurðardóttur frá Harðbak á Sléttu. Þeim hjónum varð níu barna auðið og var Guðríður næst- elzt þeirra systkina, en nú eru á lífi tveir bræður úr þessum stóra systkinahópi, Sigurbjörn, fyrrum bóndi og kennari í Stöð i Stöðvar- firði, og Benedikt bankastjóri á Eskifirði og síðar bankafulltrúi í Reykjavik. Fimm ára gömul fluttist Guðríður með for- eldrum sínum á Stöð í Stövar- firði, þar sem faðir hennar síðan var prestur til ársins 1925. Að sjálfsögðu var ferð þessi farin á hestum og tók sá búferiaflutning- ur hálfan mánuð. Var búið um börnin i kistum á klyfjahestum og hefur sjálfsagt farið þar furðu vel um Guðriði litlu ásamt systkinum hennar. Þessi langferð lánaðist vel og má kannski skoða sem for- spá um langa og gæfuríka ævi- braut. Guðríður hlaut hið bezta upp- eldi á hinu fjölmenna og reglu- sama heimili foreldra sinna, en séra Guttormur var hinn mesti lærdómsmaður og tók oft efnilega sveina til náms og undirbúnings fyrir Lærða skólann og urðu ýmsir þeirra siðar þjóðkunnir menn. Að sjálfsögðu hefur verið góður bókakostur á prestsheimilinu, er börn þeirra hjóna hafa haft greiðan aðgang að þó að öðru leyti, væri lítið um skólagöngu á þeim tímum og átti það ekki hvað slzt við um stúlkurnar, þó á fyrir- myndarheimilum væri, þær nutu engan veginn jafnréttis við bræður sina á þeim tímum. En Guðriður mun hafa verið sérlega bókhneigð og snemma lesið mikið, enda var hún fróð og vel heima á ýmsum sviðum og þó sérstaklega i ættfræði, sem hún gaf sig mikið að, allt til efstu ára. Er Guðriður var 22 ára giftist hún Þorsteini Þorsteinssyni Mýr- mann, ættuðum úr Suðursveit, hugsi eða viðutan, þegar hann hvarf einn í heim minninganna, lifði sig inn í liðinn tíma þegar barist var hinni góðu sigursælu baráttu við að afla nauðsynja og lifsbjargar handa börnunum mörgu. Vilmundur var fæddur að Sperðli i Landeyjum 12. marz 1884 sonur hjónanna Vilborgar Guðmundsdóttur og Arna Jóns- sonar, er þar bjuggu, og síðar að Krísuvik. Fluttust þaðan 1907 að Húsatóftum, Staðarhverfi í Grindavik, en byggðu síðar Vind- heima í sama hverfi og bjuggu þar til 1919 er þau fluttust til Reykjavíkur. Vilmundur gekk að eiga Guð- rúnu Jónsdóttur, fædd 12. júlí 1891 — og hófu þau búskap að Löndum í Gindavík 1912. Guðrún andaðist 4. ágúst 1958. Þeim hjónum, Guðrúnu og Vil- mundi, varð þrettán barna auðið og eru þau þessi: Guðvarður, skipstjóri Reykja- vik, Árni, bifreiðastjóri Keflavik, Anna, húsfrú Keflavík, Magnús bifreiðastjóri Reykjavik, Borg- vel gefnum dugnaðar- og atorku- manni. Stundaði hann verzlun og útgerð í Stöðvarfirði til þess er þau hjónin byggðu nýbýlið Öseyri fyrir botni fjarðarins árið 1915, þar sem þau svo bjuggu til ársins 1943, er hún missti mann sinn, 69 ára að aldri, en hann var niu árum eldri. Þau hjónin eignuðust 7 börn og eru tveir synirnir dánir, Björn er andaðist 23 ára gamall 1939, og Skúli námstjóri dáinn 1973, elztur þeirra systkina, kvæntur Önnu Sigurðardóttur, Skólastjóra á Hvitárbakka. Önnur börn þeirra eru Pálina, gift Guðmundi Björnssyni kennara á Akranesi, Friðgeir, bankaútbússtjóri á Stöðvarfirði, kvæntur Elsu Sveinsdóttur, Halldór, vélvirki i Kópavogi, kvæntur Ruth Guð- mundsdóttur, Anna, gift séra Kristni Hóseassyni, Heydölum, og Pétur sýslumaður i Búðardal, kvæntur Björgu Rikarðsdóttur. Er þetta nú orðinn fjölmennur ættargarður, eftir því sem að ætt- liðum fjölgar, allt mannvænlegt fólk og vel af guði gefið. Eftir að Guðríður missti mann sinn, dvaldist hún lengstum hjá yngsta syni sínum Pétri og Björgu konu hans, er þá voru búsett í Mosfellssveit og átti þar hinu bezta atlæti að fagna, en fyrir tæpu ári fékk Guðríður samastað á Hrafnistu og dvaldi þar þangað til yfir lauk. Guðríður var frið kona sínum, hæglát í fasi og tíguleg i fram- göngu, svo að eftirtekt vakti. Hún hafði yndi af að vera vel klædd hinum tilkomumikla íslenzka búningi og ræða þannig við vini og vandamenn, svo og gesti er að garði bar. Munu margir minnast ánægjulegra samverustunda með þessari gáfuðu og fjölfróðu konu. Nú er langur og starfsamur ævi- dagur á enda runninn. Öþarfi er að benda á það, hversu mikið starf húsfreyjunnar var á Barn- mörgu sveitahimili á fyrstu tug- um þessarar aldar, svo lítið sem þá var um hin svokölluðu þæg- indi, sem nútíminn fær aldrei nóg af. Vegna umfangsmikilla opin- berra starf og umsvifa húsbónd- ans, utan heimilisins, kom barna- uppeldið mest i hlut hús- freyjunnar, eins og oft vill verða, en það þrekvirki hefur Guðríður leyst af hendi með mikilli prýði, svo sem hinn gjörvilegi barnahóp- ur þeirra hjóna bezt vottar, er öll hildur, húsfrú Reykjavík, Guðni, múrari Reykjavik, Sigriður, hús- frú Hjarðarbrekku, Rangár- völlum, Gisli, járnsmiður Kópa- vogi, Erlendur, sjómaður Njarð- vík, Eyjólfur sjómaður Njarðvík, Edvarð, sjómaður Keflavík, Krist- inn Jón, sem dó á bernskuskeiði og Hjálmar, starfsmaður vió kaupfélag Búðardals. Staðhverfingafélagið minnist þessa aldna og góða félaga sins með virðingu og þökk, og þakkar honum samfylgdina. Far þú i friði, friður Guðs þig blessi. hafa komizt vel til manns, sem kallað er og verið samfélaginu hinar styrkustu stoðir. Nú kveðjum við vinir og vanda- menn góða og göfuga konu hinztu kveðju, en geymum i huga og hjarta ljúfar minningar allt frá fyrstu kynnum og þar á ber engan skugga. Guðmundur Björnsson. I DAG verður til grafar borin hér í borg Guðríður Guttormsdóttir fyrrum húsfreyja að Óseyri í Stöðvarfirði. Guðriður var fædd að Svalbarði í Þistilfirði 30. apríl 1883. For- eldrar hennar voru Guttormur Vigfússon, sóknarprestur að Sval- barði, og Þórhildur Friðrikka Sigurðardóttir, siðari kona hans. Árið 1888 fékk Guttormur veit- ingu fyrir Stöð i Stöðvarfirði og fluttist Guðríður þangað með for- eidrum sínum þá um vorið rúm- lega fimm ára að aldri. Stöð stendur í dalnum inn af Stöóvarfirði og er rösklega einn kilómetri til sjávar. Dalurinn er grösugur mjög hið neðra, en i brekkum og hliðum er lyng, viðir og birkikjarr mikið, og er þarna búsældarlegt, fagurt og friðsælt. Þarna átti Guðríður heima alla sina bernsku og öll sin unglingsár í hópi margra systkina. Prests- hjönin voru fremur efnalítil, en höfðu þó löngum margt hjúa. Presturinn var lærdómsmaður mikill og frægur kennari og tók því oft efnilega pilta á heimili sitt til að búa þá undir skóla. Þarna var þvi lengstum fjölmenni á prestsetrinu og hlaut það að setja sitt mark á börnin. Þau kynntust mörgu fólki, oft fróðu og skemmtilegu og urðu því frjáls legri og veraldarvanari en gerist og gengur á afskekktum sveita- bæjum. Slik heimili voru löngum hinar ágætustu menntastofnanir og á þeim byggðist hinn marg- rómaða islenska sveitamenning. Börn, sem ólust upp á slíkum heimilum urðu oft hámenntaðar manneskjur, án þess að verða „igulker ótal skólabóka“. Náið samneyti við fagra og friðsæla náttúru, húsdýrin, dagleg störf og skemmtilegt fólk, þetta voru uppeldismeðulin, sem Guðríður og systkini hennar nutu í æsku. Guðríður bar líka uppeldi sinu fagurt vitni i daglegu lifi sínu, eins og síðar mun vikið að. Ekki veit ég til þess, að Guðriður nyti beinnar skólamenntunar i æsku eða á unglingsárum, en hún segist í blaðaviðtali hafa dvalist hjá Helgu Austmann, hálfsystur sinni, á Akureyri hátt í tvö ár, en ekki getur hún þess í viðtalinu, hvað hún hafi haft fyrir stafni þennan tíma. Arið 1904 verða þáttaskil i lifi Guðríðar. Hún kynnist ungum manni ættuðum úr Austur- Skaftafellssýslu, Þorsteini Þor steinssyni íSýrmann. Hann hafði nýlokið prófi frá Flensborgar- skólanum, flust til Stöðvarfjarðar og stofnað verslun og smábátaút- gerð í Kirkjubólsþorpi. Þau Guðríður og Þorsteinn felldu hugi saman og gengu i hjónaband 27. mai 1905. Heimili þeirra næstu 9 árin var i svokölluðu Þorsteins- húsi, sem stóð á bakkanum nærri miðja vega milli Andrésartanga og Seltanga, en þar fyrir neðan er núverandi Laufásvör. Þorsteinn fékk byggingu fyrir Flautagerði, sem var hjáleiga frá Stöð, árið 1914. Reisti hann fyrsta stein- steypta íbúðarhúsið i Stöðvarfirði i landareign þeirra jarðar á eink- ar fögrum stað norðan við ós Stöðvarár og kailaði Óseyri. Stofnaði hann þarna nýbýli og hóf ræktun á eyrinni, en nytjaði jafnframt túnið á Flautagerði. Löngu seinna keyptu þau hjón Flautagerði, og færðist þá nafnið Óseyri yfir á alla jörðina. Þarna bjuggu þau Guðríður og Þor- steinn uns hann lést árið 1943. Ekki voru þau hjón fjáð i sínum búskap, en þau voru vel sjálf- bjarga, þrátt fyrir mikla ómegð framan af árum. Þau eignuðust 7 börn, sem öll komust til fullor- ins ára og- voru þau þessi í réttri aldursröð: Skúli, Pálina, Friðgeir, Halldór, Anna, Björn og pétur. Björn dó fyrir aldur fram á þrítugs aldr . Hann var afbragðspiltur og hvers manns hugljúfi, var það þeim hjónum þung raun að missa hann i blóma lifsins. Skúli lést fyrir rúmlega tveimur árum, hin börnin eru öll á lifi. Er mér sagt, að afkomendur G uðríð- ar og Þorsteins séu farnir að nálg- ast hundrað. Er skemmst af þvi að segja, að sá ættbogi allur ber upp- runa sinum fagurt vitni. Mikill míns heimilisins á Kirkju bóli og Óseyrarheimilisins var mikill samgangur og góð vinátta, sem ég vissi aldrei til að skugga bæri á. Þorsteinn var skarp- greindur maður og skáldmæltur vel, skrafhreifinn og skemmti- legur i viðkynningu, allra manna gestrisnastur og í einu orði sagt drengur góður. Einkum er mér í minni, hvað hann var alúðlegur við ungmenni, sem komu á hans fund. Hann taldi sig síst of góðan eða mikinn mann til að skiptast á skoðunum við ungt og óupplýst fólk. Ekki var húsfreyjan siðri að sinu leyti. Broshýr og alúleg kom hún með þær veitingar, sem til- tækar voru, og hef ég oft um það hugsað, að samhentari hjón við að gera gestinum viðdvölina nota- lega muni erfitt að hugsa sér. Þau hjónin komu oft á heimili for- eldra minna og fundust mér þær heimsóknir sannkallaðar hátiðir. Þorsteinn og faðir minn spjölluðu um landsins gagn og nauðsynjar og voru oftast sammála, enda voru þeir báðir fremur ihaldssam- ir í skoðunum, og litt hrifnir af róttækni i þjóðmálum og þótti mér það góð latína í þá daga. Guðríður og mamma voru fermingarsystur, þótt eins árs aldursmunur væru á þeirn. Þær voru perluvinkonur alla sina ævi, skrifuðust löngum á, skiptust á gjöfum og heimsóttu hvor aðra, þegar þær máttu því við koma. Er mér til efs að hreinni, heil- brigðari og fegurri vinátta þekk- ist yfirleitt en milli þessara kvenna. Mamma hafði oft orð á því, hvað Guðriður hefói verið falleg ung stúlka, og svo bætti hún oftast við: „Hún er falleg enn í dag.“ Þetta var satt, Guðriður var falleg kona og hélt kvenlegum yndisþokka til elliára. En þó bar frá, hvað framkoman öll var fram úr skarandi fáguð og hófstillt. Þarna birtist hin innri fegurð, hin sanna menning mótuð af vönduðu uppeldi, menntandi andlegu andrúmslofti og heilbrigðu um- hverfi æskuáranna. Eftir að Guð- ríður missti mann sinn dvaldi hún til skiptis hjá börnum sínum, en lengst var hún hjá Pétri syni sín- um og seinni konu hans, Björgu Ríkharðsdóttur. Er mér tjáð af nákunnugum, að Björg hafi reynst henni frábærlega vel i öll- um þeirra samskiptum, og sé henni heiður og þökk. Guðríður hélt góðri heilsu fram á allra sið- ustu ár, nema hvaó heyrnardeyfa bagaði hana allmikið. Siðasta árið dvaldi hún á Hrafnistu og þar andaðist hún 27. janúar síðastlið- inn. Blessuð sé minning þessarar mætu höfóings konu. Björn Jónsson. Vilmundur Árnason frá Löndum - Minning Kveðja frá Staðhverfingafélaginu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.