Morgunblaðið - 16.03.1975, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 1975
29
Tvö umferðar-
slys á Akureyri
Akureyri 14. marz.
TVÖ umferðarslys urðu á götum
Akureyrar í dag. Hið fyrra varð á
Höfðahlíð rétt um hádegisbil. Þar
varð 11 ára stúlka fyrir bíl og
hlaut áverka á höfði, en var ekki
talin alvarlega meidd.
Þá varð fimmtán ára piltur á
vélhjóli fyrir bíl á Hjalteyrargötu
um kl. 17.20. Pilturinn hlaut opið
fótbrot og er ef til vill eitthvað
meira meiddur.
Sv.P.
Sjötugsafmæli
Sjötug verdur í dag frú Jó-
hanna Erlendsdóttir, Akri. Hún
tekur á móti gestum f dag, eftir
klukkan 3, að heimili dóttur
sinnar að Drápuhlfð 33.
Sýning á
verkum
Guðmundar
frá Miðdal
Þór Magnússon þjóðminjavörður og hluti munanna á sýningunni. Á
borðinu eru ýmsir hlutir, sem eiga það sameiginlegt að hafa það fram
yfir notagildið, að vera fagurlega skreyttir. A þeim tíma, sem Sigurður
málari safnaði gömlum gripum var lftið sótzt eftir öðru en því, sem
eitthvað hafði verið í borið.
Sýning á verkum og safn-
gripum Sigurðar málara
SÝNING á verkum Sigurðar Guð-
mundssonar málara, minjum um
hann og gripum, sem hann safn-
aði, var opnuð í Bogasal Þjóð-
minjasafnsins i gær.
í fyrra var 100 ára ártíð Sigurð-
ar málara og er sýningin haldin i
tilefni hennar. I Þjóðminjasafn-
inu er mikið af ýmiss konar grip-
um, sem Sigurður safnaði á sinni
Tveir harðir
árekstrar
TVEIR mjög harðir árekstrar
urðu f Reykjavík og nágrenni á
fimmtudaginn. 1 báðum tilfellun-
um urðu mjög miklar skemmdir á
ökutækjum en slys ekki teljandi,
utan að kona mjaðmargrindar-
brotnaði.
Fyrri áreksturinn varð við
Rauðavatn um klukkan 18. Slysið
vildi til með þeim hætti, að leigu-
bíll ók í áttina til Reykjavíkur og
skammt á eftir honum kom stór
amerískur fólksbíll. Leigubifreið-
in ætlaði aó beygja inn á af-
leggjara rétt austan við vatnið og
hægði því á sér. Fólksbíllinn ætl-
aði að smeygja sér framhjá en
rann mjög snögglega til og lenti
afturendi bifreiðarinnar á Hvera-
gerðisrútunni sem kom á móti, á
leið til Hveragerðis. Varð árekst-
urinn gífurlega harður og má
segja, að afturhluti fólksbílsins
hafi hreinlega fokið út í buskann.
Þannig lágu benzíntankur og
fleiri hlutar úr bílnum úti á
Rauðavatni í 50—60 metra fjar-
lægð frá þeim stað sem árekstur-
inn varð. Einnig urðu miklar
skemmdir á rútunni. Tveir menn
voru i bílnum og skárust þeir
töluvert í andliti en sluppu að
öðru leyti merkilega vel út úr
þessum mikla árekstri.
tíð, en hann lagði fyrstur manna
grundvöll að forngripasafni hér á
landi.
A sýningunni er m.a. sýnishorn
uppdrátta og vinnuskjala Sigurð-
ar málara, en hann gerði t.d.
teikningu að „sund-dokk", upp-
drátt af útivistarsvæði við Elliða-
árnar og teiknaði Skólavörðuna.
Þá getur að líta safn bóka hans og
handrita, myndir eftir hann og
uppdrætti af búningum á sýning-
unni.
Meðal nterkilegra gripa, sem
Sigurður safnaði, er á sýningunni
smeltur kross frá upphafi 13. ald-
ar. Þar er um að ræða franska
smíð og hefur krossinn verið hér í
kirkju. Þarna er einnig gamall
prédikunarstóll, en Þór Magnús-
son þjóóminjavörður sagði, að
Sigurður , Guðmundsson hefði
ekki lagt mikil kapp á að ná i
kirkjumuni. Á sýningunni er mik-
ið af útskornum munum, ýmist
húsgögnum eða hlutum úr hús-
gögnum og innréttingum, m.a.
hluti úr rúmi, þar sem Þórhallur
Bjarnason biskup mun fyrst hafa
séð dagsins ljós, og þýzkur, útskor
inn skápur, sem hefur verið í eigu
Staðarhóls-Páls.
Sýningin verður næsta hálfa
mánuð á þeim tíma, sem safnið er
opið á, nema á laugardögum og
sunnudögum, en þá er opið til 6.
SYNING á verkuni Guðmundar
Einarssonar frá Miðdal var opnuð
á Kjarvalsstöðum í gær. Sýnd eru
alls 133 verk, olíumyndir, vatns-
litamyndir, eirstungur, teikn-
ingar, höggmyndir og leirmunir.
Guðmundur Einarsson frá Mið-
dal var fæddur árið 1895 og lézt
árið 1963. Hann hóf myndlistar-
nám hjá Stefáni Eiríkssyni árið
1911. Hann stundaði nám í Kon-
unglega fagurlistaskólanum í
Kaupmannahöfn og var við Lista-
akademíuna i Múnchen
1921—1925. Guðmundur lagði
jafna stund á málaralist, högg-
myndageró og eirstungu.
Guðmundur var brautryðjandi í
leirmunageró hér á landi og not-
aði íslenzkt efni við þá iðju. List-
vinahúsið stofnaði Guðmundur
árið 1917. Það var fyrsta verk-
stæði sinnar tegundar á Islandi og
er starfrækt enn.
Mörg verka listamannsins eru á
opinberum stöðum hér og erlend-
is. Má þar nefna minnismerki um
Sibelius, sem er í Helsingfors, og
minnismerki um Jón Arason
biskup og Skúla landfógeta. Hann
gerði lágmyndir í Austurstræti og
á húsi Landspítalans, hvelfingar í
Háskóla íslands og Þjóðleikhúsió
og steinda glugga i Bessastaða-
kirkju og Akureyrarkirkju, svo
dæmi séu nefnd.
Það eru ekkja og börn
Guðmundar Einarssonar frá Mið-
dal, sem standa að sýningunni,
sem haldin er f tilefni af því, að
Guðmundur hefði orðið áttræður
á þessu ári.
Nokkrar eirstungumyndir og
örfáar myndir aðrar verða til sölu
á sýningunni, en langflestar
myndanna eru annaðhvort í eigu
opinberra aðila eða einkaeign.
Sýningin verður opin daglega
frá kl. 16—22.
A fimmtudagskvöldið kl. 21
varð mjög harður árekstur á mót-
um Grensásvegar og Fellsmúla.
Bifreið sem ók norður Grensásveg
beygði til vinstri inn á Fellsmúla,
i veg fyrir bíl sem ók suður Grens-
ásveg. Varð áreksturinn mjög
harður. Þrennt var flutt á slysa-
deildina. Maður og kona sluppu
án teljandi meiðsla en kona hlaut
mjaðmargrindarbrot. Bílarnir eru
mikið skemmdir.
Synir Guömundar frá Miðdal, talið frá vinstri: Ari, Einar, Egill og
Yngvi. Á myndinni sjást nokkur verkanna á sýningunni.
Fríkirkjusöfnuðurinn
í Reykjavík
Aðalfundur safnaðarins verður haldinn sunnu-
daginn 23. mars n.k., eftir messu kl. 3. e.h.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál.
Safnaðarstjórnin.
Litljósmyndir til sölu
Stærð 50x60 cm. og 30x40 cm. Innrammaðar
í gyllta, fallega ramma. Myndirnar eru af:
Ólafsvík, ísafirði, Grundarfirði, Hellissandi, 3
gerðir af Borgarnesi. Get útvegað Bíldudal,
Þingeyri, Flateyri, Suðureyri og Stykkishólm.
Tek einnig við pöntunum í litljósmynd af Þing-
völlum.
Myndin var tekin við hátíðarhöldin 1974.
Stærð ca. 27 X 58 cm.
Uppl. í síma 93-1346 kl. 12 — 13:30 og á
kvöldin. Vilmundur Jónsson.
Zimsen
við Suðurlandsbraut
erflutl
að Ármúla 42
STÆRRI VERSLUN. BETRI ÞJÓNUSTA
HAFNARSTRÆTI 21, ÁRMÚLA 42