Morgunblaðið - 28.09.1975, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 28.09.1975, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1975 „Orkugjafi málara er lífiö í kringum Pétur FriSrik fyrir framan nokkrar hraunmynda sinna ásamt Katrínu dóttur sinni og Sólveigu konu sinni. Ljósmyndir Mbl. RAX. „Litir og form íslenzkrar náttúru er okkar klassik” Pótur Friðrik listmálari heldur um þessar mund- ir sýningu á verkum sfnum í Kjarvalsstöðum og sýnir þar um 90 myndir. Mikil aðsókn hefur verið að sýningu Péturs Friðriks, og hafa á fjórða þúsund gestir séð hana og milli 30 og 40 málverk hafa selzt. Við röbbuðum við Pétur Friðrik um myndir hans og helztu hræringar í myndlistinni. Sýningin verður opin í Kjarvalsstöðum til 5. okt. „Þessar myndir eru málaðar í hraununum hér í kring,“ sagði Pétur Friðrik í rabbi okkar, „þær eru víða að, á leiðinni til Krísuvíkur, við Kleifárvatn, frá Þingvöllum, Hafnarfirði, Reykjavík, Keflavik og Heiðmörk. Yfirleitt eru þetta myndir frá síðustu tveimur ár- um, en þó eru nokkrar eldri málaðar í Suður-Þýzkalandi og í Bandaríkjunum. „Hvað finnst þér um hrær- ingar í íslenzkri myndlist i dag?“ „Mér finnst sumt af því sem reynt er að telja nýjungar í islenzkri myndlist vera orðið gamaldags þegar það kemur fram á sjónarsviðið hér heima, enda hefur flest af þessu verið gert erlendis og er þvier því gamalt innflutt. Megnið af því er áhrif frá einhverjum útlendum stefnum sem eru jafnvel að líða undir lok í útlöndum vegna þess að þær eru aðeins tízkufyrirbrigði. Annars er stefnan ekki aðal- atriðið, heldur að myndin sé vel gerð, vel unnin og gott málverk. Margir hinna ungu stráka hafa hamrað á því undanfarin ár að landslagsmálverkið sé útdautt, en þeir sem mest hömruðu á því fyrir 15—20 árum eru jafn- vel farnir að mála landslag, portret og figurativar myndir, en fyrrum mátti fólk ekki koma fyrir í myndum, engar per- sónur, aðeins litir í formum. Þetta afturhvarf bendir til að lífið i kring um okkur sé orku- gjafi fyrir málara og að hjá því sé ekki hægt að sneiða ef menn ætla að taka á þessu í alvöru. Þó finnst mér eiginlega ekkert hafa komið fram á seinni árum, sem hefur tekið fram Ásgrími, Kjarval og Jóni Stefánssyni. Að mínu mati hafa engir náð því sem þeir voru-búnir að ná, nema þá helzt Scheving og Snorri Arinbjarnar." „Áhugi fólks á myndlist?" „Mér finnst áhugi fólks hafa aukizt mjög á seinni árum, hann hefur alltaf verið mikill, en er lfklega hvergi í heiminum Rabbað við Pétur Friðrik um málverk og listhrœringar eins mikill almennt og hjá Is- lendingum." „Hvað finnst þér um deilu FlM við Kjarvalsstaði?“ „Það er margt sem kemur upp í listaheiminum, en ég held að málarar eigi ekki að dæma hver annan, það er fyrst og fremst timinn, sem flokkar það niður með árunum hvað lifir af í listinni ef svo má segja. Sagan hefur sýnt okkur að það er líka hægt að gera menn heimsfræga ef aðstaðan er fyrir hendi, en eftir einhverja ára- tugi og jafnvel miklu styttri tíma eru þessir sömu menn gleymdir í listasögunni. Það er fullt af svona á þessum vett- yangi. Erlendis eru t.d. sýn- ingarsalir sem hafa hreinlega auglýst ákveðna. málara upp, spilað á fólk sem snobbar fyrir þessu af því að það heldur að það sé fínt. Dæmi eru um að þessir málarar, heimsfrægu, sem ég er að tala um, hafa málað kolsvartar myndir með venjulegri húsamálningu og málningarrúllu, en áhorfendur hafa ekki getað haldið vatni af hrifningu yfir þessari stórkost- legu list. Á hinu þekkta TATE- gallery í London sá ég mynd eftir þekktan mann, það var auður málarastrigi með einni hnifristu og þetta var innrammað í gullramma. Það er mikið snobb í kring um þetta, en ekki býst ég við að þessir menn verði viðurkenndir til lengdar. Hins vegar hefur maður Iíka séð frábær abstrakt málverk, en það er bara svo oft í þessum bransa að málverkið virðist ekki skipta málij heldur alls kyns furðuleg uppátæki málarans og skringilegheit og það er hreint ótrúlegt hvað kemst inn í þekkt söfn erlendis. Framhald á bls. 37

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.