Morgunblaðið - 01.10.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 1976
3
Úr lit og formsmidju
Hörður Ágústsson opnar sýningu í dag
HÖRÐUR Ágústsson listmálari
opnar i dag sýningu á verkum
sfnum á Kjarvalsstöðum. Verð-
ur hún dagana 1. — 12. október
að báðum dögunum meðtöld-
um. Sýning Harðar ber nafnið
Ur lit og formsmiðju og var
sfðasta sýning hans hér á landi
f Norræna búsinu f maf á sfð-
asta ári.
Á sýningu þessari er, eins og
nafnið bendir til, fjallað um liti
og form og sagði Hörður
Ágústsson að litbandamyndirn-
ar væru aðallega unnar síðustu
þrjú árin. Hefði honum ekki
gefizt mikill timi á undanförn-
um árum til að leggja stund á
myndlist vegna annarra starfa.
Hörður hefur sem kunnugt er
gegnt starfi skólastjóra Hand-
fða — og myndlistaskólans, og
kennt þar, lagt stund á rann-
sóknir um byggingarlist, staðið
að tímaritaútgáfu og fleiru. I
þessum verkum segist Hörður
fjalla um liti og sýna fram á
hver áhrif einn litur hefur á
annan og það eru aðeins grunn-
litirnir sem hann tekur til með-
ferðar og setur saman ólfkleg-
ustu form og liti. Hann „leggur
út af“ einu viðfangsefni á
marga vegu, ef svo mætti að
orði komast, setur fram ýmis
tilbrigði. Hörður Ágústsson
sagði að þessi verk hans væru
að miklu leyti ávöxtur kennslu
hans undánfarin ár, en hann
hefur aðallegd kennt form og
litfræði. Aðferðin sem hann
notar við gerð verkanna er
nokkuð nýstárleg og hefur að
sögn Harðar ekki verið notuð
áður. Myndirnar eru gerðar úr
litvöndum, lfmdum á grunnflöt.
Sýningarskráin er vönduð og
vel gerð og þar ritar Einar
Bragi um listamanninn. Þar
segir hann m.a. að Hörður
Ágústsson hafi áberandi sér-
stöðu vegna menntunar sinnar
Litabönd og annað sem lista
maðurinn notar við gerð
verka sinna.
og fjölhæfni og fágætrar verk-
kunnáttu. Telur Einar Bragi að
menntun Harðar sé megin skýr-
ingin á fjölhæfni hans. Siðan
segir hann: „Ur grunnformum
— punkti, línu, ferningi, þrí-
hyrningi, hring — byggir lista-
maðurinn heilan myndheim. í
samröðun þeirra hefur hann á
ekkert að treysta nema til-
finningu sfna fyrir formspili,
hrynjandi. En þetta er arkitekt-
úr, kann einhver að segja. Það
má til sanns vegar færa að vissu
marki, enda arkitektúr í aðra
röndina myndlist sé eitthvað f
hana spunnið. En þetta er
meira en arkitektúr. Mynd-
listarmaðurinn hefur óbundnar
hendur þar sem arkitektinn er
jafnaðarlega bundinn af hugs-
un um notagildi verks sfns sem
mannvirkis, húsnæðis... En
mestur fögnuður er að sýning-
unni vegna þess að hér leggur
mikill listamaður fyrir sitt fólk
svo stórbrotna niðurstöðu af
árastarfi við aflinn að frá þeim
degi er þjóðin hlutgengur aðili
að merkum þætti í evrópskri
myndlistarþróun á þessari öld,
segir að lokum f sýningarskrá
um listamanninn. Sýningin er
opin daglega frá klukkan 16 til
22 og henni lýkur 12. október.
Hörður Ágústsson við eitt verkanna á sýningunni.
Nú kostar 15 þúsund
að aka á rauðu ljósi
EINS OG skýrt var frá I Morgun-
blaðinu i gær hafa sektir sam-
kvæmt sektarheimild lögreglu-
stjðra verið hækkaðar talsvert,
svo og sektir samkvæmt sektar-
heimild lögreglumanna. Það kost-
ar nú ökumann að aka á rauðu
Ijðsi 15 þúsund krðnur og sé ekið
á hraða, sem er yfir 80 km á
klukkustund, þar sem aðeins er
leyfður 45 km hámarkshraði,
kostar það einnig 15 þúsund krðn-
ur. Sé öxulþungi 30% umfram
Ieyfilegt hámark er sekt 45 þús-
und krðnur.
Morgunblaðið fékk f gær skrá
yfir meginflokka brota, sem sekt-
arheimild lögreglustjóra nær til,
og leiðbeiningar um upphæðir
brota. Þar segir að sé ökutæki
stórlega áfátt sé heimilt að sekta
eiganda þess um allt að 30 þúsund
krónur. Ef helztu stjórntækjum,
svo sem stýrisbúnaði eða hemlum,
er áfátt er sektin 10 þúsund krón-
ur, handhemli áfátt, 5 þúsund
krónur, skráningarmerkjum
áfátt, 5 þúsund, merkjatækjum, 5
þúsund, Ijósabúnaði áfátt, 6.500
krónur, vantar hliðarspegil, 2 þús-
und o.s.frv.
Ef einn hjólbarði bifreiðar er
ónothæfur er sektin 3 þúsund
krónur og hækkar um 2 þúsund
við hvern þann hjólbarða til við-
bótar sem ónothæfur reynist.
Vanti nagladekk á sum hjól er
sektin 3 þúsund en sé nagladekk I
notkun utan lögboðins tíma er
sektin 7.500 krónur. Sé einum far-
þega ofaukið I bfl er sektin 4
þúsund krónur og sfðan 5 þúsund
fyrir hvern farþega sem við bæt-
ist. Ef vanrækt er að tilkynna
eigendaskipti á bfl er sektin 5
þúsund krónur og sé vanrækt að
umskrá ökutækið er sektin hin
sama. Sé ekið án réttinda er sekt-
in f fyrsta sinn 6.500 krónur, i
annað sinn 8 þúsund og í þriðja
sinn 15 þúsund krónur. Sé öku-
skirteini ekki meðferðis er sekt
eitt þúsund krónur og er það jafn-
framt minnsta sektin f áðurnefnd-
um lista.
I skrá yfir brot, sem sektar-
heimild lögreglumanna nær til,
eru einnig leiðbeiningar um upp-
hæðir sekta. Brot á ákvæðum um
____________Framhald á bls. 31
Dúfum stolid
AÐFARARNÓTT miðvikudags,
lfklegast um klukkan 05, var brot-
izt inn í dúfnakofa að Vogalandi
13 og þaðan stolið 7 dúfum, þar af
5 hvftum. Þeir, sem þarna voru að
verki, skildu eftir ófleygan unga
og eina fullorðna dúfu.
Dúfnakofinn var rammger og á
honum voru þrír lásar. Ef ein-
hverjir kynnu að verða var við
dúfurnar f meðförum barna eða
unglinga, eru þeir vinsamlegast
beðnir um að láta rannsóknarlög-
regluna vita. Dúfurnar voru eign
ungs drengs og má geta nærri að
söknuður hans vegna hvarfs
dúfnanna er mikill.
TilJóhann-
esar Helga
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
izt athugasemd frá biskupi ts-
lands, herra Sigurbirni Einars-
syni, varðandi skrif Jóhannesar
Helga f blaðinu f gær um út-
varp og sjónvarp:
I Morgunblaðinu í dag herm-
ir Jóhannes Helgi upp á mig
ummæli, sem ég hef aldrei um
munn haft. Hann skrifar:
„Biskupinn mun hafa sagt ein-
hvern tíma á kirkjuþingi að ef
kirkjan giftist tíðarandanum,
yrði hún f eilífu ekkjustandi."
Ég á því ekki að venjast að
málgir menn hafi sérlega
trausta heyrn eða minni og
þessi skáldskapur er meinlítill
miðað við margan verri. En
hvort sem það verður skáldinu
að liði eða ekki, þegar það yrkir
næst út frá því sem það hefur
„heyrt og séð“, þá finnst mér
samt rétt að benda á orð mfn
eins og þau féllu, þau eru til á
prenti (Kirkjurit 1971) og voru
þannig: Kirkjan skyldi ekki
giftast tíðarandanum, þá lendir
hún í ekkjustandi með næstu
kynslóð.
Skal svo hvor búa að sfnu
hvað skilning snertir eða mis-
skilning.
30.9.1976.
Sigurbjörn Einarsson.
v -s* t
■
2T-Allsherjar
\ rýmingar- og
bútasala
vegna fyrirhugaös flutnings
verzlunarinnar bjóðum við nú margar
gerðir gólfteppa á stórlækkuðu verði.
Gólfteppabútar á gjafverði.
Allt á aö seljast.
afs/áttur.
einstakt tækifæri
Opid ti! hádegis á laugardag.
|
Grensásvegi 3 - Sími 83430