Morgunblaðið - 20.11.1976, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 20.11.1976, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1976 BRAGI ÁSGEIRSSON skrrfar um sýningu VETURLIÐA að Kjarvalsstöóum — ERLENDUR JÓNSSON skrtfar um bókina „Þaó rís úr djúpinu" og JÓHANN Bókmenntlr eftir ERLEND JONSSON______________ Guðbergur Bergsson: ÞAÐ RÍS UR DJUPINU. 231 bls. Helga- fell 1976. Þessi bók skiptist í tvo hluta. „Sönn saga af sálarlífi systra“ heitir fyrri hlutinn og er sem hver önnur frásögn með at- burðarás, söguþræði; kvenna- fari t.d. sem aldrei má vanta í sögu eigi hún að rísa undir nafni. Við fyrstu sýn kann að virðast sem höfundur fari troðnar slóðir, skrifi hefðbund- ið og skikkanlega og leiki ekki þess konar sjónhverfingar sem gert hafa margan lesandann tvílráðan andspænis fyrri bók- um hans. Meira að segja eldhús- Guðbergur Bergsson. Umhverfi og innhverfi reyfarastíl bregður fyrir, t.d. eftirfarandi: „Gunna var ljóshærð. Auk þess að vera snotur, hafði hún alltaf þótt tignarleg, bæði í fasi og framgöngu. Hún átti ekki til hætis hót af feimni." Og nokkru síðar: .J'agurskapaðir kálfarnir fóru ekki framhjá neinum fyrir ofan nettan fót- inn. Gunna var reglulegt pilta- gull.“ Hvað er hér á ferðinni? Hjúkrunarkona í leit að ham- ingju? Heimasæta utan af landi að freista gæfunnar f borginni? Bók handa draumlyndu fólki að lesa undir svefninn? Satt er það, litur textans er fljótt á litið rósrauður. Fljótt á litið — en varlega skyldi treysta að sá sé grunnliturinn. Guðbergur hef- ur oft gengið á það lagið að bregða ýmiss konar grimu fyrir andlit sögupersóna sinna og varpa annarlegu ljósi yfir svið það sem þær hrærast á. Ætli hann geti ekki sett saman æsi- spennandi ástarsögu eins og hver annar? Þegar líður á þessa “sönnu sögu af sálarlífi systra“ staldrar höfundur við og ætlast til að lesandi nemi líka staðar og leyfi spennunni af lestrinum að hríslast þægilega um taug- arnar og spyrji sjálfan sig: ,JIvað kemst Friðþjófur langt með Tótu?“ Kannski hittir höf- undur þarna naglann á höfuðið. Flestar skáldsögur snúast ein- mitt um það — hvað kemst hann langt með hana? Þetta ætlar að verða heilmikil saga með „innlifun" og hverju einu sem segja má slíkri sögu til lofs. En söguna þrýtur áður en bók- in er hálfnuð; höfundur lætur hana enda á auðri sfðu svo les- andinn geti botnað. Þá tekur við seinni partur- inn. Þar eru aftur komin á vett- vang Anna, Már og fleiri gamal- kunnar persónur, allt frá Tóm- asi Jónssyni metsölubók. Anna, þessi gustmikli kvenmaður, gerður af anda meir en efni, stendur aftur f sfnu flöktandi sviðsljósi. Hver er Anna? Hún stendur á þröskuldi milli raun- veruleika og draumóra og skyggnist til beggja átta: „Persónulega finnst mér allt koma hvort tveggja f senn frá umhverfinu og innhverfinu, og því er mér bæði skiljanlegt og óskiljanlegt í senn.“ Gróskan f hugarlandi önnu er líkt og jarðargróðinn ef hann er ekki flokkaður í kerfi — þar kennir margra grasa, alltaf seg- ir Anna eitthvað nýtt sem þó lfkist flestu sem hún hefur áður sagt; hún er sannarlega heil- steypt persóna eins og sagt var um atkvæðamiklar söguhetjur f gamla daga. Hún hefur orðið viðskila við bæði raunveruleik- ann og vanann, hún er að hálfu mennsk en að hálfu draumur. Lýsingin á henni er þvf engin „sálarlífslýsing“ f venjulegum skilningi, lesandinn stendur ekki eftir með sundurliðun og skilgreining á duttlungum hennar; úr geðflækjum hennar verður trauðla greitt. „Flestir menn eru útlendingar í eigin lfkama og sálin erlend og mælir á framandi tungu“ — þannig er Anna, framandi sjálfri sér, um- hverfi sínu og lesanda. Hún er persóna búin til af orðum og ætlar sér ekki stærra hlut. Eftir allar þær furður sem gerst hafa f kringum hana — og í henni sjálfri — lýkur bókinni á þess- ari hagnýtu skáldspeki: „Bústaðir orðsins eru ótelj- andi. Vegir orðsins eru órann- sakanlegir, en samt er ekkert til án þess. öll orð eru sönn, en það sem ég hef sagt og hugsað er hverju orði sannara." Ég hygg að sá verði nýtastur mælikvarðinn sem lagður verði á þessa bók eins og fyrri bækur Guðbergs að litið verði á þær sem texta byggðan upp af orð- um fremur en eftirmynd af raunveruleikanum ef hugtakið raunveruleiki er mælt á hefð- bundinn raunsæismælikvarða. Þær eru að talsverðu leyti abstraktmyndir úr lffinu; engin spegilmynd af þvf, heldur skír- skotun til þess, eins konar villi- gróður undirvitundarinnar. Guðbergur getur hermt eftir, er gæddur þeim hæfileika í rík- um mæli. Skopstælingum bregður fyrir í flestum bókum hans, einnig þessari. Með sfnu næma auga hefur hann fest sér í minni fínlegu drættina í svip- móti mannlffsins. Jafnframt er hann uppreisnarmaður gegn viðteknum ritunarhefðum. Skopstælingunum, sem svo víða gægjast fram í texta hans, sýn- ist ekki beitt til skemmtunar einnar heldur til að koma upp um fyrri ritanarhefðir; sýna fram á að það, sem lesendur hafa trúað, viljað trúa eða verið látnir trúa, stenst ekki alltaf próf raunveruleikans fremur en hugarórar önnu. Þó Guðbergur komi ekki fram endurnýjaður með þessari bók er hún vissulega góð viðþót við fyrra safn hans um Önnu Katrfnu og stórfjölskyldu þá sem hún hefur safnað um sig. Eldhúsreyfarinn um sálarlff systranna er líka spennandi — á sfna vfsu. Skopskyn Guðbergs spannar alla tfðni mannlífsins. Og hug- kvæmnin bregst honum ekki. Jc /u y/icti VETURLIÐI Gunnarsson er dugmikill á vettvangi sýninga á myndverkum sínum og jafnframt áleit- inn athafnamaður á sviði myndsköpunar. Ekki er langt síðan hann sýndi að Kjarvalsstöðum og nýtti þá meirihluta af rými Vestur- salarins, og er nú aftur kominn þangað og leggur að þessu sinni allan salinn undir myndverk sín. Hugðist hann jafnvel taka allt húsið fyrir mikla yfir- litssýningu á verkum sínum, og mun það vafa- lítið hafa átt að vera í tengslum við þann merkis- áfanga ævi hans að fylla fimmta áratuginn, — en einungis annar salurinn var honum falur. Líkast til mun af sú góða og gagn- merka venja F.élags íslenzkra myndlistar- manna er lengi tíðkaðist að bjóða félögum sínum að gangast fyrir sýningu á verkum þeirra í tilefni þessa áfanga í lífi félaga sinna. Sýning Veturliða ber þrátt fyrir allt nokkurn svip yfirlitssýningar, þótt engan veginn sé að þvf stefnt, — en eins og listamaður- inn hefur látið orð falla um þá hefur hann tfnt til myndir frá ýmsum tímaskeiðum, sem eru flestar í eigu hans sjálfs. Nokkrar hefur hann fengið að láni.it.d. tvær stórar myndir er voru á fyrstu sýningu hans haustið 1952, er mikla athygli vakti þá og mikið var skrifað um vegna hressilegra tiltekta, en hér verður ekki fjallað um. Ekki eru þetta þó elztu myndirnar á sýningunni með því að listamaðurinn hefur hengt hér upp málverk á vegg við inngang sýningarinnar og er hún sögð máluð árið 1944 og viðfangsefnið frá Bolungavfk. Gefur sú mynd til kynna ótvfræða listamannshæfi- leika og , að snemma hafa honum verið hugleikin viðfangsefni, sem tengjast smáþorpum við sjávar- síðuna og umhverfi þeirra, en slfkt gengur f ýmsum myndum lfkt og rauður þráður f gegnum listferil Veturliða, með nokkrum frávikum þó. Umbúðalaus óhlutlæg mynd- Mynðír frá fmsnm tímnm sköpun tók hug Veturliða á tfma- bili, „action painting" og „tassismi", en þar var hann þó alltaf með hugann við fyrri hug- hrif af viðfangsefnum sjávar- þorpa, landslags, skipa f höfn, að ógleymdum fuglinum og sjálfum manninum. — Hér er um viðamikla sýningu að ræða svo sem ráða má af tölu mynda, en þær eru 134 á syningarskrá, margar þeirra stór- ar en einnig minni myndir, og hanga þær sumsstaðar f tveimur röðum, auk þess að skilrúmin eru nýtt eftir fremsta megni. Fer því ekki hjá því, að þröngt sé um myndir á sýningunni, og er hér til baga að tfmabil eru ekki af- mörkuð, heldur myndum dreift óþarflega mikið án tillits til tíma- skila. Augljós er viðleitni lista- mannsins til nokkurar úttektar á listferli sínum, en takmarkað hús- rými hefur sennilega staðið hér á vegi rökvísrar yfirlitssýningar, — og hann þvf brugðið á það ráð að stokka upp tímabilin og sýna myndirnar fremur eftir þvf hvernig honum hefur fundist þær fara saman á vegg. Þetta gerir skoðendum óþarflega erfitt fyrir í fyrstu, en við aðra heimsókn er sem maður sé kominn á nýja sýningu, svo mikil er breytingin, a.m.k. var það reynsla mfn. Veturliði hefur orðið þeirrar reynslu aðnjótandi að vera um- deildur listamaður f gegnum tfðina, og hressilega atyrtur á þeim tfma er beinar lfnur, hvöss og flöt form voru útópfa framúr- stefnulistamanna höfuðborgar- innar, er illa þoldu að sjá hlutlægt form koma fram i myndverki. Sem betur fer er sá tími liðinn, og þeir landslagsmálarar og iðkendur hlutveruleikans er árum saman pfndu sig við tilraun- ir f óhlutlæga átt eru aftur farnir að mála hlutlægt, hressilega óþvingaðir, enda hafa sumir þeirra sjaldan eða aldrei málað betur. Ætti þetta að gefa auga leið um það, hve opin og víðsýn viðhorf gagnvart möguleikum listarinnar eru heilbrigðari en uppgötvun fallvalts fullkomleika sérgildra viðhorfa. Það er rétt stefna hjá Veturliða að draga fram gamlar myndir og kynna yngri kynslóðinni, sem væntanlega kann slfkt að meta. Eftirsjá er að þvf, að ekki varð af skipulegri yfirlitssýningu Vetur- liða, með þvf að þetta form hentar naumast sama listamanni, svo skammt sem hér er á milli svip- lfkra sýninga. Svo dugmikill lista- maður sem Veturliði Gunnarsson ætti að geta efnt til sýninga með nýjum myndum einungis og hafa af þvf mikinn ávinning. Veturliði er rómantíker fram í fingurgóma, örgeðja og viðkvæm sál er finnur samsemd með öllu þvf sem lifir og hrærist, föru- maður er klífur fjöll og firnindi f leit að sjaldgæfum steina- tegundum, nýju viðhorfi og ferskum hughrifum, — einlægur unnandi boðaslóða, öræfa og út- nesja. Hann leitar fróðleiks í nýlistum jafnt sem verkum eldri meistara. — Þann veg kenni ég þennan listamann. Allt þetta speglast f myndum hans á sýningunni í Vestursal Kjarvalsstaða f mögnuðum vatns- lita- og pastelmyndum, svo sem nr. 2, 4, 16, 41, 44 og 48, og málverkum nr. 76, 89, (er Lista- safnið falaði, og valdi hér vel) 93, 121, 127, 128 og 134, — ásamt í myndum „action painting" og „tassisma" nr. 87, 85, 113, 126 og 133. Ekki er gerlegt að greina þetta nánar hér að sinni, en þetta voru þau verk er einkum vöktu athygli mína að loknum þrem heim- sóknum á sýninguna. Bragi Ásgeirsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.