Morgunblaðið - 09.03.1977, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 09.03.1977, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9, MARZ 1977 „Alltaf fengur að slíkum hlutum” GRIPIR þeir sem ferðafólk með Útivist fann í Þórsmörk í siðustu viku eru nú komnir i hendur þjóðminjavarðar. Sagði Gisli Gestsson i samtali við Morgunblaðið i gær, að sér virtist sem gripir þessir væru frá 11. eða 12. öld og væri vissulega alltaf mikill fengur að þessum hlutum. Var hér um að ræða brot ofan af snældusnúð og prjón, sem sennilega hefur verið notaður til að krækja saman hempur. —1 Prjónninn er nokkuð algengur og eigum við nokkra slíka á Þjóðminjasafninu, sagði Gísli. — Þetta er sennilega hversdagshlutur, en einnig eru til prjónar sem voru notaðir með betri klæðum. Um brotið af snældusnúðnum er það hins vegar að segja að það er fyrst og fremst merkilegt vegna skreytingarinnar sem er á því, en það er mjög sjaldgæft og áttum við ekki fyrir slíkan hlut, sagði Gísli. Um 1500 manns hafa séð sýningu Hrings á Kjarvalsstöðum IIRINGUR Jóhannesson, listmálari sýnir nú á Kjarvalsstöóum verk sfn og eru þart eingönt;u olfumálverk og teikmnnar. Sýningu Hrings lýkur um næstu helgi og nú hafa um 1500 manns sért hana, en hann sýnir 51 olfumálverk og 4.1 teikningar. í virttali virt Mbl. sagrtist Hringur vera mjög ánægrtur mert artsóknina, og hafa nú 40 mvndir selzt. — Kg er ánægrtur mert artsóknina, sagrti llringur, og hefur sýningin mvndir selzt og þart er meira en ártur gengirt mjög vel. Nú hafa um 40 hjá mér, ég hef venjulega selt um Hringur Jóhannesson hélt sína fyrstu sýningu árið 1962, fyrir 15 árum, í Bogasal Þjóðminjasafns- ins og voru það artallega teikning- ar. Hann var kennari virt Mynd- lista- og handírtaskóla íslands 1959 — 1962 og hefur hann kennt við Myndlistarskólann 1 Reykja- vík, Ásmundarsal, síðan 1962, Einnig hefur hann unnið við keramikmálun hjá Glit 1962 — •66. — Þetta hefur artallega verið kvöldkennsla hjá mér hin síðari ár, sagði Hringur, og mér finnst gaman að halda þannig samhandi við ungt fólk. Það koma fram ým- is sjónarmið og þannig heldur maður sambandi við tilveruna, en það er ómögulegt að loka sig úti frá því, mér finnst gott að vera í sambandi við þetta góða fólk sem ég kenni. Er meiri áhugi á myndlist með- al ungs fólks nú en áður? — Ekki held ég það endilega, þetta er áhugafólk, það sem ég kenni og þar er góður efniviður — mörg góð efni og spennandi. Það er óhætt að segja að áhugi á þrirtjung mvndanna á sýningum. myndlist sé mjög almennur hér- lendis, og meiri en víða erlendis, hafa menn sagt mér, því ég þekki ekki svo mjög til erlendis. Það eru til myndir á hverju heimili, mun meira en gerist víða annars stað- ar. — Menn eru ekki bundnir við eitt eða neitt — umburðarlyndi er mjög mikið hér og það hefur auk- izt. Það er heldur ekki hægt að dæma listir eftir stefnu, hver tími þróar vissa tegund af list og marg- breytilegt líferni þróar marg- breytilega list. Hringur Jóhannesson sagði einnig að hann ynni mest á sumr- in en hann hefur vinnustofu í Haga í Aðaldal og þangað sækir hann mörg mótíf. — Þar er friður fyrir síma og öðru kvabbi, sagði hann. Nokkuð sérstakt framundan? Nei, ekki held ég þart, engin heljarstökk að minnsta kosti, ég ætla að vinna áfram að þessum einföldu mótífum í sterkri mynd- byggingu eins og ég kalla þau og hef verið að vinna að undanfarin ár, sagði Hringur Jóhannesson að lokum. Hringur Jóhannesson virt eitt verka sinna ásamt svni sfnum. (Ljósm. OI.K.M.) (Ijósm.ágás) Þessari mynd var smellt af Pétri Salómonssyni f Austurstrætinu einn góðviðrisdaginn I sfrtustu viku, en þar var hann sem aðra góðviðrisdaga á hásumri að bjóða mönnum til sölu frfmerki og mynt. „Aldrei svo snemma á ferðinni í Austurstrœti” ■„JÚ, jú, það er alveg rétt. Eg hef aldrei byrjart svona snemma árs að bjóða fólki frfmerki, bankasertla og minnispeninga hér fyrir utan hankann ef undanskilin er útgáfa nokkurra fyrstadagsum- slaga. Það gerir hlessuð tfðin. Aður hef ég ekki byrjart fyrr en á krossmessu. Ég var nú reyndar búinn að segja fyrir um hvernig veturinn yrði, ef undan eru skildir nokkrir dagar, þar sem ekki hefur allt staðizt sem ég hafrti fyrir spáð. Ég á veðurspá mfna á segulbandi, svo það getur hver reynt hvort ég hafi ekki séð fyrir þetta górta vertur. Ég skal segja þér þart vinur, art ég er býsna górtur verturfræðingur, en óskólagenginn þó.“ Þannig mælti Pétur Hoff- mann Salómonsson er við dok- uðum við hjá honum i góða veðrinu einn daginn í síðustu viku. Pétur var þá búinn að koma sér fyrir utan við Utvegs- bankann, með umslögin sfn og peninga, og ekki verður annað sagt en að hann setji skemmti- legan svip á bæinn. Pétur sægarpur sagðist vera nokkuð vel friskur, og að lítið sæi á honum, þótt hann hefði nýlega orðið áttræður. Ekki vit- um við hvernig salan gekk hjá Pétri i þetta sinn, þar sem mest var spjallað um veðurfarið. Sagði Pétur 1 því tilfelli að hér hefði eiginlega ekki verið nokk- ur vetur að ráði í rúm 50 ár, og ekkert jafnaðist á við veturinn 1907. „Þá hefðu bifreiðar staðið um kyrrt fram á fyrsta sumar- dag, en sem betur fer voru öngvar bifreiðar í þá daga,“ sagði Pétur. Ekki var sægarpur- inn bjartsýnn á að veðurfar yröi hagstætt 1 sumar, en kvað þó öllum, jafnvel landkröbbum, óhætt að fara í Eyrarbakka- bugtina á næstunni. Undir lok spjalls okkar vatt miðaldra frú sér að Pétri og spurrti hann hvort hann gæti nú ekki orðið fullorðna fólkinu til liðsinnis og komið því i kring að eitthvað örlítið yrði spilað af klassískri tónlist í stað alls þessa popps sem dyndi yfir veg- farendum í Austurstræti úr nærliggjandi tízkubúðum. Við þessa bón konunnar virtist koma hálfgert hík á Pétur, sem virðist meta poppið. En kemp- an hafði svar á höndum, og sagði því von bráðar: „Ja, ég yrði ögn feginn, og þætti vel við eiga, að öðru hverju færu þeir með Andrarimur hinar fornu i gegnum þetta þarna.“ Afmœlisfundur Kvenréttindafélagsins LJÓSMYNDARI Morgunblartsins Ieit inn á hádegisfund hjá stjórn og varastjórn Kvenréttindafélags Islands, að Ilallveigar- stöðum vegna 70 ára afmælis félagsins 27. janúar s.l., en þann dag efndi K.R.F.Í. til almenns fundar um skattamál. i tilefni afmælisins hárust félaginu kveðjur og blóm vfrta að, m.a. frá ríkisstjórpinni, Alþýrtu- sambandi íslands, Bandalagi starfsmanna rfkis og bæja, Kven- félagasambandi íslands, þingflokki Alþýðuflokksins og fleirum. Stjórnin færrti félaginu gestabók að gjöf og afrártið var að safna fé og gefa f Menningar- og minningarsjóð kvenna til minningar um stofn- anda K.R.F.Í. Bríetu Bjarnhértinsdóttur og dóttur hennar Laufeyju Valdimarsdóttur. Söfnunin mun aðallega fara fram á aðalfundi félagsins að Hallveigar- stöðum mirtvikudaginn 16. mars n.k. — á þeim fundi verður auk venju- legra artalfundarstarfa sérstök dagskrá f tilefni afmælisins. Á myndinni eru talirt frá vinstri Áslaug Frirtriksdóttir, Guðrún Gfsladóttir, Valborg Bentsdóttir, Kristfn Gurtmundsdóttir, Stein- unn Finnbogadóttir, Signý Gunnarsdóttir, Björg Éinarsdóttir, Jóhanna Valdimars- dóttir, Sólveig Ólafs- dóttir, Þóra Brynjólfs- dóttir, Liljá Ólafsdóttir, Margrét Einarsdóttir, Brynhildur Kjartans- dóttir, Unnur Jóhannes- dóttir og Lára Sigur- björnsdóttir. AIIs eru 20 manns f stjórn og varastjórn og vantar á myndina Aðalheiði Bjarnfreðsdóttur, Fannýu Long, Gerrti Steinþórsdóttur, Lísbet Bergsveinsdóttur og Sigrfði Önnu Valdi- marsdóttur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.