Morgunblaðið - 07.06.1977, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 07.06.1977, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JUNÍ 1977 17 Menn Amins myrtu Doru Bloch í sjúkrahúsinu Lundúnum, 6. júnf. AP. HENRY Kyemba, heil- brigðismálaráðherra í stjórn Idi Amins, hefur óskað eftir landvistarleyfi í Bretlandi, að því er skýrt var frá í Lundúnum um helgina. í The Sunday Ti- mes birtist ýtarlegt viðtal við ráðherrann um ógnar- öldina í (Jganda. Kyemba segir þar meðal annars, að aðeins hafi verið tíma- spurning hvenær hann yrði ráðinn af dögum. Hafi hann viljað forða sér með- an tími var til og sjá til þess að sú vitneskja, sem hann hefði um ástandið í Úganda hyrfi ekki með honum í gröfina. Kyemba segir, að menn Amins hafi gert út af við Doru Bloch, Dora Bloch sagt: „Gleymdu henni, búnir að drepa hana.“ • þeir eru Kyemba segist hafa séð með eigin augum sundurskotin lík Janani Luwum erkibiskups og tveggja ráðherra í stjórn Amins. Þá segir hann, að fyrstu vikurnar eftir að ísraelsmenn frelsuðu gísl- ana á Entebbe-flugvelli hafi ríkt mjög hættulegt ástand í Úganda. Hefði fólk jafnvel ekki þorað að brosa á almannafæri af ótta við að menn Amins teldu að það væri forsetinn sem orsakaði slík við- brögð vegna auðmýkingarinnar, sem hann varð fyrir er ísraels- menn gerðu árásina á Entebbe. Þá birti The Observer viðtal við ítalskan lækni um helgina þar sem hann lýsir ævilokum Doru Bloch. Læknirinn, Bonnini að nafni, starfaði um tveggja ára skeið í Mulago-sjúkrahúsinu í Kampala og segist hafa talað við Doru Bloch daginn áður en hún var myrt. Hefði hann sagt henni frá árásinni á flugvöllinn og hefði sú frétt glatt hana mjög. Hefðu þau síðan komið sér saman um að Bonnini reyndi að koma því til leiðar, að henni yrði sleppt úr sjúkrahúsinu næsta morgun. Þeg- ar hann hefði svo komið í sjúkra- stofu hennar um morguninn hefði hann gripið í tómt, en indverskur læknir, sem stundaði hana hefði tjáð sér að kvöldið áður hefðu fjórir óeinkennisklæddir menn þust inn í sjúkrastofuna og dregið hana fram úr rúminu. Hefði hún sýnt mótþróa og hefðu mennirnir því kyrkt hana er komið var að lyftu. Hafi Dora Bloch því verið látin er farið var með hana út úr sjúkrahúsbyggingunni. Uganda-útvarpið hafði eftir Idi Amin um helgina, að hann hefði ekki í hyggju að fara til samveld- isráðstefnunnar í Lundúnum i þessari viku. Var hins vegar haft eftir Amin að Uganda mundi senda fulltrúa til næstu samveld- isráðstefnu, sem haldin verður eftir tvö ár. y , Kenya X Tanzanía Somalía Seychelle -eyjar .?»• Mosambique Madagascar 65 þúsund manna paradis Lundúnum, 6. júnf AP Á Seychelle-eyjum búa um 65 þúsund manns. Eyjarnar voru brezk nýlenda þar til fyrir einu ári, að þar var stofnað lýðveldi. Um 90 af hundraði fbúanna búa á Mahe sem er stærsta eyjan f eyjaklasanum. Helzti atvinnuvegur eyjaskeggja er kryddrækt og flytja þeir út mikið af kanel og vanillu. Á undanförnum árum hefur ferðamanna- straumur til eyjanna mjög aukizt og er þjónusta við ferðamenn orðin drjúg tekjulind. Við eyjarnar eru auðug fiskimið. Náttúrufegurð er mikil á Seycelle-eyjum. Makaríos erkibiskup á Kýpur dvaldist þar eitt sinn í ársútlegð, og sagði að dvölinni lokinni, að enda þótt hann hefði viða farið um fögur lönd, þá væru það ekki ýkjur að segja, að eyjarnar væru fegursti staður sem hann hefði komið til. Idi Amin sem var einn gíslanna á Entebbe flugvelli fyrir tæpu ári. Er hún hafi verið i sjúkrahúsi i Kampala í nokkra daga hafi menn Amins dregið hana niður af sjöttu hæð byggingarinnar og hafi henni síð- an verið ekið á braut. Skömmu siðar segir Kyemba, að Amin hafi spurt sig hvort hann hefði átt orðastað við frú Blosh, en Kyemba var um þessar mundir starfandi læknir í umræddu sjúkrahúsi. Kyemba kveðst hafa tjáð Amin, að hann hefði orðið var við konuna, og hafi Amin þá Drottning í aldarfjórðung í DAG cru liðin tuttugu og fimm ár frá því Elisabet Breta- drottning tók við þjóðhöfð- ingjahlutverki að föður slnum látnum, og er þess minnzt með viðhöfn vlða um heim, þó aðal- lega f London. Er talið að þang- að hafi streymt um helgina um fimm milljónir ferðamanna í tilefni þessara tímamóta, sem er mun meira mannfjöldi en búizt hafði verið við, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Til að sem flestir geti tekið þátt í hátíðahöldunum, fá Bretar fjögurra daga frí frá störfum frá og með laugardegi, og síðdegis á mánudag höfðu menn þegar tekið að safnazt saman meðfram leið þeirri, sem Elisabet drottning ekur frá Buckingham-höll til St. Páls dómkirkjunnar á þriðjudags- morgun, þar sem sérstök þakkargjörð verður flutt í til- efni dagsins. Elisabet drottning ekur til messunnar í 200 ára gömlum skrautvagni, sem ekki hefur verið notaður síðan hún var krýnd I Westminster- kapellunni árið 1953. Skraut- vagn þennan lét Georg III smiða, og vegur hann fjögur tonn, enda þarf átta hesta til að draga hann. Auk þess sem drottning verður í fylgd skraut- búinna riddara úr lífverðinum, verða einnig hundruð lögreglu- manna í varðstöðu meðfram leiðinni, og vegna ástandsins i heiminum í dag verða lögreglu- mennirnir látnir snúa sér að mannfjöldanum, ekki að vegin- urn, sem drottning ekur um. Fleiri öryggisráðstafanir hafa verið gerðar. Til dæmis hafa sveitir frá Scotland Yard heim- sótt hvert einasta hús meðfram leiðinni, og þeir vinnustaðir, Framhald á bls. 24. Meó kmkkana til Kaupmannahafiiar Fáar borgir bjóöa jafn marga möguleika á skemmtun fyrir alla fjöl- skylduna. Tívolí — dýragaröur — sjódýrasafn — sirkus — strönd — skemmtigarður á Bakkanum — og svo er líka hægt aö skreppa og skoöa Legoland — eöa yfir til Svíþjóöar. Kaupmannahöfn — einn fjölmargra staða í áætlunarflugi okkar. fwcfílac iofwIBIR ÍSLAJVDS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.