Morgunblaðið - 20.01.1979, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1979
11
„dance-beat-
hash“ númer
341 á sýning-
unni. Dansaö
undir berum
himni í Frank-
furt. Ljós-
myndari: Erika
Sulzer-Klein-
finni Aðalsteinn til vanmáttar og
skilningsleysis á einhverri þeirra,
þá hlýtur hún að vera ómerkileg,
jafnvel alls ekki list. Og þessa
hefur ljósmyndalistin orðið að
gjalda.
Rúnar Gunnarsson:
En hvernig stendur eiginlega á
þeim lágkúruskilningi og niður-
lægingu sem ljósmyndun þarf að
búa við hér á landi? Er skýringin
kannski sú, að ljósmyndablöðin,
sem móta stefnuna og viðhorfin
hjá svo mörgum, eru gefin út af
myndavélaframleiðendum, sem
samkvæmt nákvæmum markaðs
rannsóknum hafa komist að því,
að 90% kaupenda eru viðvaningar
á fyrsta og öðru ári, með nær
engan myndrænan þroska, og
blöðin verði því að haga myndavali
í samræmi við það? Eða er
skýringin sú, að íslenskir ljós-
myndarar eru iðnaðarmenn, sem
fá sömu grunnkennslu í myndlist
og dúklagningamenn og múrarar?
Spurningarnar eru margar og
ein er brennandi: Hvers vegna í
ósköpunum er ljósmyndun kennd :
iðnskólum, en ekki í myndlista-
skólum, þar sem hæfir kennarar
gætu gefið þá sjálfsögðu grund-
vallarmyndmenntun sem öllum
myndlistamönnum er nauðsynleg?
Nokkur ár af góðri ljósmynda-
kennslu kæmu þá í veg fyrir aö
fréttamyndir yrðu hér fram boðn-
ar og kynntar sem list „Á leið í
paradís".
Sýndareinlœgni
á Kjarvalsstöðum
Þýska vikuritið STERN hefur
dembt yfir okkur heimsljósmynda-
sýningu, hinni þriðju, og fengið
inni fyrir hana á sundurtættum
vígvelli listabardagans mikla, að
Kjarvalsstöðum. „Á leið í paradís"
er nafnið á þessar grófgerðu
fréttamyndasyrpu. Og dapurlegt
verður það þegar þessi ruddalega
samsetning blaðamynda rekur á
fjörur menningarfjölvita Dag-
blaðsins og gefur honum enn eitt
tækifærið til að reisa ljósmynda-
listinni níðstöng — því að bæði
Aðalsteinn Ingólfsson og STERN
gera því skóna, að hér sé komið
dýrindis sýnishorn hinnar svo-
nefndu ljósmyndalistar.
Það var von mín, að þeir aðilar
sem fást við listgagnrýni bentu
rækilega á, að hér væri á ferðinni
sýning sem ekkert á skylt við það
sem er að gerast í ljósmyndalist,
og fjölluðu um hana eins og
hverjar aðrar óvenju hrottalegar
fréttamyndir, smekklausar nær-
myndir af líkum og dæmigerða
sýndareinlægni. Þessi von mín
brást. Og í stað þess að hlæja
góðlátlega, eins og ég geri þegar ég
les ballettgagnrýni eftir Jónas
stýrimann, þá fann ég einhvern
verk fyrir brjóstinu er ég sá að
yfirmenningargagnrýnandi Dag-
blaðsins, Aðalsteinn Ingólfsson
hafði notað þessa sýningu til að
villa um fyrir lesendum Dagblaðs-
ins, og gefa nokkrar aulafullyrð-
ingar um ljósmyndun, sem engin
sómakær listfræðingur léti frá sér
fara, jafnvel ekki meðal spaug-
samra kunningja. En látum dæm-
in tala (dagbl. 13. jan. A.I.)
Dæmi L „Ljósmynd hefur verið
tekin. Hversu mjög sem ljósmynd-
arinn reynir að færa til eða
skrumskæla, þá gengur ofangreind
atburðarás fyrir sig næstum
sjálfkrafa...“
Dæmi 2i „Góð ljósmynd er eins
konar list, mikil ósköp — en hún
er fyrst og fremst ljósmynd...“
Dæmi 3i „En í eðli sínu er
ljósmyndin hlutlaus miðill."
Þessi þrjú dæmi eru tekin af
handahófi úr umfjöllun Aðalsteins
og virðist mér grein hans öll sýna,
Myndlist
að hann sé á því þroskastigi, hvað
viðkemur skilning á ljósmyndun
sem listformi, að álíka erfitt muni
vera að opna honum heim ljós-
myndalistarinnar og að ræða um
liti við blindan mann. Sannleikur-
inn er sá, að STERN sýningin er
viðlíka fulltrúi fyrir ljósmyndalist
og Dagblaðið er sem sýnisrit
bókmennta. Nú er Aðalsteinn
Ingólfsson vitanlega ekki einn um
það á þessu landi, að þenja sig yfir
svið sem hann ber lítið skynbragð
á. Það væri svo sem hægur vandi
að brosa bara í kampinn þegar
ritræpan hrífur hann á vald sitt og
fyllir síður Dagblaðsins af
derringslegu og yfirborðskenndu
menningarslúðri, en hér er ekki
um gamanmál að ræða. Viðhorf
Aðalsteins til ljósmyndalistarinn-
ar er nefnilega ekki einungis
óskammfeilið og menningarfjand-
samlegt, heldur einnig skaðlegt.
Það verður ekki lengur þverfótað
fyrir þessum eina manni, þegar
listir og menning eru annars
vegar; flest eða allt er sagt og
skrifað af óþolandi hroka og
yfirdrepsskap og það er nú svo
komið að sveittar hendur hans
grúfa yfir menningarlífi þjóðar-
innar. Engin grein lista getur
lengur verið óhult fyrir honum, og
STERN-mynd númer 293, tekin af Perry Krets. Fórnarlömb næturinnar Ijósmynduð i líkhúsinu af lögreglunni
New York.
nvn HúsnnÐþ Ldcmún 5
nvn símnnúmER: 835 33
Ábyrgö hf. hefur flutt skrifstofur sínar frá Skúlagötu 63 í nýtt
eigið húsnæöi á 6. hæö Lágmúla 5, Reykjavík.
Betri þjónustn
Ábyrgö hf. hefur nú í 18 ár leitast viö aö veita bindindisfólki
fullkomna þjónustu meö ýmsum trygginganýjungum og
hagstæöari kjörum en annars bjóöast. Meö bættum
húsakynnum eigum viö hægar meö aö veita viöskiptavinum
okkar enn betri þjónustu.
Veriö velkomin í Lágmúla 5.
ÁBYRGDP
TRYGGINGAFÉLAG FYRIR BINDINDISMENN
Umboðsfélag ANSVAR INTERNATIONAL LTD.