Morgunblaðið - 06.02.1979, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 06.02.1979, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1979 25 :völdi egari eftir igan leik Njarðvíkingar áttu nær allir góðan dag. Ted Bee var að venju góður og er ekki gott að segja hvernig farið hefði, ef hann hefði leikið út allan leikinn. Guðsteinn Ingimarsson lék sennilega sinn besta leik í vetur og leikur nú eins og hann best gerir. Einnig áttu þeir Geir Þorsteinsson og Gunnar V Guðbjörnsson 2, Einar Bollason 3, íóakimsson 2, Jón Sigurðsson 4, 1, Geir Þorsteinsson 3, Guðjón sson 3, Gunnar Þorvaröarson 3, Jón :on 1, Jónas Jóhannesson 2, Stefán Þorvarðarson góðan ieik. Njarð- víkurliðið er mun jafnara lið en KR og liggur styrkur þeirra ein- mitt í þeirri staðreynd. Stigin fyrir KR: John Hudson 48, Jón Sigurðsson 25, Einar Bolla- son 16, Garðar Jóhannsson 14, Arni Guðmundsson 7, Gunnar Jóakimsson 10, Birgir Guðbjörns- son og Kolbeinn Pálsson 2 hvor. Stigin fyrir UMFN: Ted Bee 37, Guðsteinn Ingimarsson 19, Geir Þorsteinsson 17, Gunnar Þorvarðarson 16, Stefán Bjarka- son 12, Jón V. Matthíasson og Júlíus Valgeirsson 4 hvor, Brynjar Sigmundsson, Guðjón Þorsteins- son og Jónas Jóhannesson 2 hver. Dómarar voru Erlendur Eysteins- son og Guðbrandur Sigurðsson. - GI. gur hjá KR að vísu mikinn kipp við þetta og komust í 98-90, en ónákvæmni á síðustu mínútu leiksins var nærri búin að kosta þá sigurinn. En sem fyrr sagði hafðist þetta og lokatöl- ur urðu 102-103 KR í vil. Lið KR og ÍR virtust mjög áþekk í þessum leik. Bæði liðin hafa mjög sterka einstaklinga, en breiddin er ekki eins mikil og hjá liðum eins og t.d. UMFN og Val. KR-ingar eiga að vísu nokkra efnilega ein- staklinga, en einhvern veginn virð- ast þeir ætla að verða efnilegir einum of lengi. ÍR-inga bestir í þessum leik voru þeir Paul Stewart og Jón Jörunds- son, en einnig var Kristinn Jörundsson drjúgur að vanda. Reyndar bregðast þeir bræður aldrei, en athygli vekur í IR-liðinu að Kolbeinn Kristinsson ætlar ekki að ná sér almennilega á strik í vetur. John Hudson og Jón Sigurðsson voru yfirburðamenn í KR-liðinu sem svo oft áður, en gegn ÍR átti einnig Einar Bollason góðan leik. Einar barðist hressilega í vörninni og gekk eins langt og dómararnir leyfðu, en auk þess skoraði hann nokkur þýðingarmikil stig. Aðrir KR-ingar stóðu þessum þremur að baki. Stig ÍR: Paul Stewart og Jón Jörundsson 31 stig hvor, Kristinn Jörundsson 23, Kolbeinn Kristins- son 11 og Stefán Kristjánsson, Kristján Sigurðsson og Erlendur Markússon 2 stig hver. Stig KR: Hudson 36, Jón Sig. 30, Einar Bollason 16, Gunnar Jóakimsson 8, Garðar Jóhannsson 5, Árni Guðmundsson 4 og Ásgeir Hallgrímsson og Kolbeinn Pálsson 2 stig. Dómarar yoru þeir Þráinn Skúlason og Guðbrandur Sigurðs- son. Dæmdu þeir fyrri hálfleikinn mjög vel, en misstu aðeins tökin á leiknum í seinni hálfleiknum þótt ekki verði sagt að þeir hafi dæmt hann illa. - gíg. Línurnar skýrast í 1. deild IBK 64-85 KFÍ - (29-39) Á laugardaginn léku Isfirðingar á heimavelli sínum í Hagaskólan- um gegn Keflavíkingum. Kefl- víkingar höfðu frumkvæðið í fyrri hálfleik eftir jafna byrjun, en í hálfleik höfðu Keflvíkingar tíu stig yfir, 39—29. I seinni hálfleik tóku Kefl- víkingar leikinn í sínar hendur og um miðjan seinni hálfleik var staða Keflvíkinga tryggð, en loka tölur urðu hins vegar 85—64. Bestir Keflvíkinga voru Björn V. Skúlason og Einar Ó. Steinsson. Skoraði Björn 36 stig með hinum fjölbreytilegasta hætti. Einar skoraði 17 stig. Þá átti Ágúst Líndal góðan leik . að vanda og skoraði hann 19 stig. Hjá ísfirðingum voru þeir Óli Ingimarsson og Guðmundur Jóhannsson bestir. Skoraði Óli 15 stig, en Guðmundur 12. Þá átti Kristinn Kristjánsson ágætan leik og skoraði hann 10 stig. Ármann—KFÍ 79—63 (36-31) Fram undir miðjan fyrri hálf- leikinn var ieikur Ármenninga gegn ísfirðingum býsna jafn, enda höfðu Ármenningar nær eingöngu notað yngri mennina sína, en hvílt þá eldri og leikreyndari. Er greini- legt að Ármenningum er mikið í mun að gefa þessum ungu mönn- um sínum tækifæri og er það vel. Mun raunar Stewart Johnson þjálfari þeirra hafa haft á orði þegar hann var inntur eftir því af hverju hann beitti sér ekki meir en raun bæri vitni og léti aðra um mesta erfiðið: „Nú, hver á þá að gera þetta næsta vetur." Ár- menningar náðu nokkru forskoti um miðjan fyrri hálfleikinn og bættu síðan við það í þeim síðari, en leiknum lyktaði með sigri þeirra, 79—63. I liði Isfirðinga eru margir leiknir leikmenn, sem ættu að geta náð langt ef vel er á málum haldið. Má þar nefna t.d. Ómar Torfason, Gunnar Pétursson og Óla Ingimarsson. Ómar var stigahæst- ur í leiknum með 24 stig. Atli Arason og hinn bráðefni- legri Jón Steingrímsson voru best- ir Ármenninga og einnig stiga- hæstir; Atli með 24, en Jón með 20 stig. Fram— Snæfell: 104-57 (46-28) Eins og lokatölur þessa leiks gefa ljóslega til kynna var hann mjög ójafn og voru yfirburðir Framara miklir. Þjálfari þeirra Framara, John Johnson, var í miklu stuði í leiknum og voru stigin hans orðin 48 áður en yfir lauk. Mataði hann félaga sína að auki á glæsilegum sendingum og var með öllu óstöðvandi. Þorvaldur Geirsson átti einnig góðan leik og skoraði 17 stig. • Isfirðingar urðu heim að hverfa án stiga eftir leiki helgarinnar og & myndinni að ofan má sjá Einar ó. Steinsson ÍBK (t.v.) skora fram hjá Einari Matthíassyni KFÍ (t.h.). ísfirðingurinn er ein fyrsta stórskytta íslenzks körfuknattleiks, en Keflvíkingurinn var í unglingalandsliðinu, sem fór til Finnlands í vetur, þannig að segja má að þarna hafi gamli og nýi tíminn mættst. (Ijósm. gíg). Eins og áður hefur verið getið hér í blaðinu hefur Snæfellingum gengið afar erfiðlega að ná saman liði í vetur. Til þessa leiks mættu þeir með tvo leikmenn, sem ekki hafa leikið með þeim fyrr í vetur, þá Lárus Svanlaugsson og Lárentsínus Ágústson (bróður Kristjáns í Val). Stóðu þeir sig báðir ágætlega. Einar Sigfússon lék einnig vel og var stigahæstur Hólmara með 19 stig. Bjartmar Bjarnason kom næstur honum með 15 stig, en Lárentsínus skoraði einnig 15. ÍV-UMFG 66-88 (23-34) Grindvíkingar settu merkilegt fordæmi nú um helgina er þeir héldu til Vestmannaeyja til að leika þar á laugardaginn. Þar sem flugsamgöngur eru orðnar mjög óöruggar, bæði vegna vinnudeilna og veðráttu, þá héldu Grind- víkingar til eyja í bát og ekki nóg með það heldur létu þeir sem ekkert væri og hirtu bæði stigin af heimamönnum, svo að óhætt er að segja að þarna hafi Grindvíkingar gert strandhögg hið mesta. Grindvíkingar tóku leikinn strax í sínar hendur og þrátt fyrir að þeir hafi misst Ólaf Jóhannes- son útaf á fyrstu mínútunum vegna meiðsla og Mark Holmes með 5 villur snemma í seinni hálfleik, þá var sigur þeirra aldrei í hættu. Flest stig Grindvíkinga skoruðu: Mark Holmes 30, Eyjólfur Guðlaugsson 22 og Magnús Valgeirsson 14. Flest stig Eyjamanna skoruðu: Hreinn Þorkelsson 24, Haraldur Hlöðversson 14 og Sigurður Daníelsson 12. Leikur þessi verður þó vart lengi í minnum hafður, en hitt er eftir- tektarvert á hvern hátt Grind- víkingar komust til leiks og eiga þeir mikið hrós skilið. Ættu önnur lið að taka þá til fyrirmyndar en ekki bera fyrir sig þá afsökun að ekki sé flogið. Staðan í úrvalsdeildinni er nú sú að Framarar eru einir ósigraðir, en Ármenningar eru næstir með tvö töp ásamt Grindvíkingum og IBK. Á botninum berjast hins vegar Vestmannaeyingar, Snæfell og Tindastóll. gíg/GI KR sigraði IS KR sigraði ÍS í mfl. kvenna í íslandsmótinu í körfuknattleik á iaugardaginn með 48 stigum gegn 45 og tók þar með forystu í mótinu. Möguleikar fS á að halda fslandsmeistaratitlinum eru hins vegar orðnir hverfandi litlir, ÍS-stúlkurnar þurfa að vinna þá 3 leiki, sem þær eiga eftir og ÍR að vinna KR til þess að IS eigi nokkra von. En svo við víkjum að leik KR og ÍS þá voru KR-stúlkurnar heldur ákveðnari í upphafi og höfðu til að mynda yfir um miðjan fyrri hálf- leik, 14:9. ÍS háði þó brátt að minnka muninn og í leikhléi hafði ÍS forystu, 26:25. KR býrjaði síðari hálfleikinn vel, en er staðan var 31:30 KR í vil hrökk allt í baklás hjá KR-stúlkunum og þær skoruðu aðeins 1 stig á næstu 7 mínútum. IS-stúlkurnar notuðu tækifærið og sigu framúr og komust 8 stig yfir, 40:32 og 42:34. KR hafði hins vegar ekki sagt sitt síðasta orð, liðið lék mjög vel lokakaflann og skoraði þá 14 stig gegn aðeins 3 stigum ÍS og tryggði sér sigur eins og áður sagði 48:45. Hjá KR var María Guðnadóttir langbest, en einnig voru Björg Kristjánsdóttir og Linda Jónsdótt- ir góðar. IS, sem lék nú í fyrsta sinn undir stjórn nýja þjálfarans Trent Smock, hefur valdið vonbrigðum í vetur, en sem kunnugt er sigráði liðið í öllum mótum á síðasta keppnistímabili. Að þessu sinni voru bestar þær Þórunn Rafnar og Guðný Eiríksdóttir, en Anna Björg Aradóttir átti einnig ágætan leik. STIGIN FYRIR KR: María 26, Linda 10, Björg 8, Kriatjana og Salfna 2 hvor. STIGIN FYRIR ÍS: Wrunn 18. Guðný 14, Anna Björg 5, Hanna 4, Þórdfs 2, Margrét og Kolbrún 1 hvor. , — ÁG.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.