Morgunblaðið - 27.04.1979, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.04.1979, Blaðsíða 2
2 Nefnd kanní öryggisútbún- að við Reykjavíkurhöfn FARIÐ hafa fram viðraeður milli forráðamanna Eimskipafélags íslands og Verkamannafélagsins Dagsbrúnar um tíð slys við Reykjavíkurhöfn og hefur orðið að samkomulagi að báðir aðilar skipuðu tvo menn í nefnd, sem kannaði hvaða úrbóta væri helzt þörf á hinum margþættu verksviðum við höfnina. Verkefni nefndarinnar er að gera ráðstafanir tii úrbóta og auka öryggi þeirra manna, sem starfa við höfnina. í nefndina hafa verið tilnefndir frá Dagsbrún Jóhann Geirharðsson og Guðmundur J. Guðmundsson og frá Eimskip Viggó Maack skipa- verkfræðingur og Guðni Sigurþórs- son, yfirverkstjóri. Jafnframt lá bréf frá Dagsbrún fyrir hafnar- stjórnarfundi í gær, þar sem óskað var eftir að sérfróður maður frá Reykjavíkurhöfn tæki þátt í þessari könnun. Var þar tilnefndur Hannes Valdimarsson, verkfræðingur Reykj avíkurhaf nar. Þessar upplýsingar fékk Morgun- blaðið hjá Guðmundi J. Guðmunds- syni. Hann kvað starf nefndarinnar ekki myndu einskorðast við vinnu- aðstöðu í afgreiðslu Eimskipa- félagsins, heldur myndu skipaaf- greiðslur annarra félaga teknar fyrir á sama hátt. Kvaðst hann gera ráð fyrir að þá vikju fulltrúar Eimskips úr nefndinni og í stað þeirra kæmu fulltrúar viðkomandi félaga. Þá sagði Guðmundur að forstjóri Eimskipafélagsins hefði tilkynnt að hann myndi ráða sér- staklega þegar í stað öryggisfull- trúa, sem hefði ekki annan starfa en líta eftir öryggistækjum og öryggi við vinnu. Jafnframt hafa verið gefin út fyrirmæli til allra skip- stjóra félagsins um að þeir láti fara fram sérstaka aukaskoðun á öryggistækjum og búnaði skipanna og tiikynni niðurstöður, þegar komið er í höfn. Er hér um að ræða sérstaka aukaskoðun. Varð bráðkvaddur í erfidrykkju bróður síns Á SKÍRDAG varð bráðkvaddur í Grenivíkurkirkju organisti kirkjunnar, Baldur Jónsson bóndi á Grýtubakka, 62 ára gam- all. Útför Baldurs var gerð frá Grenivíkurkirkju laugardaginn 21. apríl s.l. og í erfidrykkju að lokinni útförinni varð Karl Jónsson, bróð- ir Baldurs, bráðkvaddur. Hann var 77 ára gamall og elztur 9 systkina, sem ættuð voru frá Mýri í Bárðar- dal. Baldur Jónsson. Karl Jónsson bjó lengi á Mýri og þar bjó Baldur einnig um nokkurra ára skeið, en hann flutti síðar að Grýtubakka og bjó þar til dauðadags. kona Bald- urs er Arnbjörg Aradóttir og varð þeim 9 barna auðið. Eftirlifandi kona Karls er Björg Haraldsdóttir og varð þeim fjögurra barna auðið. Útför Karls verður gerð í dag, föstudag, frá Akureyrarkirkju. Karl Jónsson. FIDE til iðs við iorchnoi Alþjóðaskáksambandið hvatti í dag til þess, að einstök skáksam- bönd í heiminum hættu tilraunum til að koma í veg fyrir þátttöku einstakra skákmanna. Hvatningin birtist eftir að sovézka útlaganum Viktor Korchnoi hafði verið til- kynnt að hans væri ekki óskað á skákmóti f Júgósiavíu sem ráðgert er í næsta mánuði. Friðrik Olafsson skýrði frá því á blaðamannafundi í Amsterdam í dag, að áskorun Alþjóðaskáksam- bandsins yrði send öllum skáksam- böndum allra þjóða á næstu dögum. Friðrik sagði: „Hvað svo sem Rússar kunna að hafa á móti Korchnoi, og þrátt fyrir að ég taki ekki sjálfur undir með þeim, get ég skilið afstöðu þeirra, en það er skoðun mín, að skáksambönd eigi að hafa í huga hag sjálfrar skáklistarinnar". Bátarnir losnuðu ÞÓRSHAFNARBÁTARNIR Litla- nes og Fagranes, sem setið hafa fastir í ís á Þistilfirði undanfarna daga, losnuðu af sjálfsdáðum úr ísnum um hálf fjögur-leytið í gær og komust til hafnar. Grásleppuhrogn flutt út fyrir 912 milljónir í fyrra: Aðeins búið að salta í um800tunnur, en4000á sama tíma á síðasta ári í BYRJUN þessarar viku voru aðeins komnar á land um 800 tunnur af grásleppuhrognum, en á sama tíma í fyrra var það magn orðið hátt í 4000 tunnur. í fyrra voru fluttar út rúmlega 13 þúsund tunnur af hrognum og heildar útflutningsverðmætið nam 912 milljónum króna. Að auki voru um 1400 tunnur unnar hérlendis, m.a. í kavíar. Brúttóverð fyrir hverja tunnu af hrognum er nú tæplega 99 þúsund krónur. Til skamms tíma höfðu íslend- ingar mikla sérstöðu í útflutningi á grásleppuhrognum og réðu þá um 80% markaðarins. Á síðustu árum hefur orðið breyting á þessu og einkum vegna þess hve Kanada- menn hafa stóraukið hrognafram- leiðslu sína. Áætla þeir að fram- leiða um 12 þúsund tunnur í ár, en 1977 veiddu þeir aðeins í um 2300 tunnur. Markaðsstaðan hefur því versnað mjög og verðið hefur ekki hækkað í samræmi við kostnaðar- hækkanir samfara veiðunum að sögn Guðmundar Lýðssonar framkvæmdastjóra Samtaka grá- sleppuhrognaframleiðenda. Norður- og Austurland hafa undanfarin ár verið mikilvægust í framleiðslu grásleppuhrogna, en á mörgum staðanna hefur ekkert verið hægt að róa það sem af er þessari vertíð. Á Austfjörðum voru t.d. í byrjun vikunnar aðeins komnar á land innan við 10 tunn- ur. Frá Ströndum hefur ekki verið Landsfundur Sjálfstæðisflokksins: Enn óákveðið, hvort Albert og Matthías verða í kjöri LANDSFUNDUR Sjálfstæðisflokksins verður haldinn dagana 3. til 6. maí næstkomandi og verður þar kjörin forysta flokksins. Nokkrir menn hafa verið nefndir til forystu og hefur alla tíð verið ljóst, að Geir Hallgríms- son formaður flokksins er í kjöri áfram og í gær sagði Gunnar Thoroddsen varaformaður flokksins í samtali við Mbl., að hann yrði áfram í kjöri sem varaformaður. Þá hafa verið nefndir Albert Guðmundsson og Matthías Bjarnason og leitaði Morgunblaðið í gær til þeirra til þess að spyrja um fyrirætlanir þeirra í framboðsmálum. Bæði Albert og Matthías lýstu því, að þeir hefðu ekki gert upp sinn hug. Matthías Bjarnason, alþingismaður, kvaðst ekki hafa tekið ákvörðun um það, hvort hann yrði í framboði til varafor- manns. Aðspurður um, hvað gæti haft áhrif á það, að hann tæki ákvörðun, sagði Matthías: „Það er skoðun mín, að það eigi að vera víðtækt samstarf við kjör forystumanna og ég tel að það eigi að vera náið sam- starf milli formanns og varafor- manns Sjálfstæðisflokksins. Ég tel það með tilliti til þess að Sjálfstæðisflokkurinn er i öruggri sókn með þjóðinni og nýtur vaxandi trausts. Hann hefur mótað nýja efnahags- stefnu, sem er í samræmi við grundvallarstefnumið flokksins og leiðir til stóraukins frjáls- lyndis, sem bezt sannast á því, að andstæðingarnir óttast hana og reyna að rangtúlka hana. I framhaldi af því tel ég að flokkurinn eigi fyrst og fremst að standa traustan og tryggan vörð um formann sinn og ég mun hiklaust styðja hann með öllu því, sem ég fæ áorkað. Fyrsta skilyrði til þess að flokkur geti notað hagstæðan byr og unnið stóran sigur í næstu kosningum, er að flokks- menn standi fast með formanni sínum og láti vera að vega að honum, enda er það að verða ánægjuefni nokkurra and- stæðingablaða. Það ætti að minnsta kosti að sannfæra sjálfstæðismenn um að þegar andstæðingarnir láta svo við forystu í einum flokki, þá er það vegna þess að þeir óttast hana. Það var á sínum tíma vegið að Bjarna heitnum Benediktssyni og þá var tekin upp sterk bar- átta gegn honum, sérstaklega af kommúnistum. Hann stóð allt slíkt af sér og var viðurkenndur þjóðarleiðtogi síðustu árin, sem hann lifði. Það var líka vegið að Stefáni Jóhanni Stefánssyni í Alþýðuflokknum á sínum tíma af kommúnistum. Þeir fengu því ráðið að honum var ýtt úr formannsstarfinu. Þess vegna skulum við láta þessi víti verða okkur til varnaðar sjálfstæðis- mönnum og byggja upp sterka forystu. Morgunblaðið spurði Albert Guðmundsson, alþingismann, hvort hann væri búinn að taka um það ákvörðun, hvor hann bjóði sig fram á landsfundi í formannssæti í Sjálfstæðis- flokknum. Albert svaraði: „Ég get ekki svarað öðru til en ég sagði í Vísi á dögunum. Ég hef aldrei verið nær því að taka ákvörðun um að fara í framboð- ið. Lengra er það ekki komið, því að ég hef verið upptekinn við aðra hluti.“ Þá var Albert spurður, hvort hann myndi styðja einhverja ákveðna menn til annarra em- bætta innan flokksins. Um það sagðist Albert ekkert hafa hugsað og hann kvaðst ekki hafa haft tíma til að velta lands- fundinum mikið fyrir sér, fram yfir það starf, sem hann hefði innt af hendi í framkvæmda- stjórn flokksins. Morgunblaðið spurði Albert um samvinnu forystumanna flokksins og kvað hann samvinnu sína og Gunnars Thoroddsen ávallt hafa verið góða og eðlilega. Hins vegar kvaðst hann harma, að sam- vinna almennt milli forystu- mannanra skyldi ekki vera víðtækari. að ræða um neina vertíð vegna íssins og það er aðeins í Siglufirði, sem eitthvað magn hefur komið á land. Á mörgum minni staðanna úti á landi er grásleppuvertíðinni snar þáttur í atvinnulífinu og þar er víða ekki annarri atvinnu til að dreifa á þessum árstíma. Er því tjónið mikið á þessum stöðum og hver dagur dýrmætur úr þessu að hægt verði að komast á sjó. Að auki hafa margir misst mikið af netum undir ísinn. Á að gizka 700 manns hafa haft atvinnu af grá- sleppunni undanfarnar vertíðar, en það er ýmist að þessar veiðar eru stundaðar sem tómstunda- gaman eða full atvinna. Grá- sleppuvertíð er nýbyrjuð suðvest- anlands og lofar byrjunin góðu. Garðabær: Samþykktu hlutafjárkaup í Olíumöl hf. BÆJARSTJÓRN Garðabæjar samþykkti á fundi í gær með atkvæðum allra bæjarfulltrúa að bæjarsjóður tæki þátt í hlutafjár- aukningu fyrirtækisins Olíumal- ar hf. Verður hlutur Garðabæjar í hlutafjáraukningunni 13 milljón- ir króna. Fjárhagsnefnd bæjarins var fal- ið að ganga frá kaupum á hluta- bréfunum að því tilskildu að þessi hlutafjáraukning, sem stendur fyrir dyrum hjá fyrirtækinu, leysti fjárhagsvandræði þess.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.