Morgunblaðið - 22.06.1979, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.06.1979, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1979 FFSÍ segist ekki eiga hlut ad yfirvinnubanni Forseti FFSI lýsir allri ábyrgð á hendur sér FARMANNA- og íiskimannasamband íslands eða fram- kvæmdastjórn þess hefur ritað Vinnuveitendasambandi íslands bréf, sem svar við bréfi VSÍ um yfirvinnubann yfirmanna á farskipum. Þar heldur VSÍ því fram að um lagabrot og samningsbrot sé að ræða. í bréfi Farmannasambandsins segir að framkvæmdastjórn sambandsins láti staðhæfingum VSÍ ósvarað, en bendir á að yfirvinnubannið og þær aðgerðir, sem farmenn hafi gripið til séu „án tilhlutunar framkvæmda- stjórnar sambandsins“. Morgunblaðið Ieitaði í gær skýr- inga á þessu hjá Ingólfi Ingólfs- syni, forseta FFSÍ. Ingólfur sagði að bréf Vinnuveitendasambands- ins hafi verið formleg mótmæli þeirra til FFSI vegna þessara aðgerða. „Þessar aðgerðir eru ekki að formi til, né heldur að efni gerðar að tilhlutan samtakanna, hvorki Farmanna- og fiskimanna- sambandsins, né heldur einstakra aðildarfélaga sambandsins, stjórna þeirra eða stofnana. Þar af leiðandi er svar okkar eins stutt og mótmæli VSI, því að þar er einungis um að ræða formlegt svar en ekki efnislegt. I fyrsta lagi mótmælir VSÍ þessu sem broti á kjarasamningi og í öðru lagi sem broti á lögum. Við hljótum að svara þar sem skírskotað er til stjórnar sambandsins þannig að við leggjum ekki dóm á eða mat á þá staðhæfingu að um lagabrot sé að ræða eða samningsbrot. Sam- bandið er ekki beinn aðili að samningnum sem slíkt og ber því ekki að eiga við það um þá hluti.“ Morgunblaðið spurði Ingólf hver sá aðili það væri, sem þá bæri ábyrgð á samþykkt fundar farmanna. Hann svaraði: „Ég er formlegur aðili þar að. Ég boðaði til fundarins, sem formaður samn- inganefndar og fundurinn er boð- aður að ákvörðun samninganefnd- arinnar og ég mælti fyrir hennar hönd á fundinum. Fundurinn er boðaður öllum þessara 5 félaga, en þær ályktanir, sem þar eru gerðar eru tillögur sem fram koma á fundinum. Við engan er að sakast nema þá menn sem sátu fundinn, hvern og einn eða saman alla og hafi einhver til saka unnið í Lézt af völdum reykeitrunar LÁTINN er á gjörgæzludeild Borgarspítalans Hilmar J. Lúthersson, sem hiaut alvarlega reykeitrun þegar eldur kom upp í íbúðarherbergi hans að Biöndu- bakka 3, Reykjavík, að morgni 2. júní s.l. Hann komst aldrei til meðvitundar. Hilmar heitinn var 58 ára gamall, fæddur 3. janúar 1921. málinu með því að efna til fundar- ins, þá er það ég. Ég lýsi mig því ábyrgan fyrir því að fundurinn skyldi haldinn, sem ályktunina gerði." „Ber þá að stefna þér fyrir Félagsdóm og er hægt að stefna einstaklingi fyrir þann dóm?“ spurði Morgunblaðið. „Já það ber að stefna mér,“ sagði Ingólfur, „og það mega þeir auðvitað reyna og hefur hver sinn rétt til að halda fram sínum rétti á þeim stað sem honum ber, en Félagsdómur hefur ekki það hlutverk að skera úr um þennan ágreining. Þar brestur allt til. En verði einhver ábyrgur fyrir fund- inum, þá er það ég fyrir það að hafa til hans boðað." Ingólfur kvað aðgerðir far- manna hafa sem betur fer gengið árekstralaust, en „merkilegt er það, af því að mjög hefur verið um það rætt hvílíkur bagi og ógn verkfall okkar væri, fyrir útflutn- ingsmarkaði, því hef jafnvel ég trúað, að nú eru meira að segja frystiskipin send til útlanda tóm til þess að sækja bíla. Fer t.d. Hofsjökull á morgun tómur utan til Evrópu til þess að sækja bíla. Þá eru ekki útflutningsmarkaðir í stórhættu, heldur einhver annar markaður, sem hefur meiri þarfir. Öll þau skip, sem farin eru frá landinu, hafa farið tóm til þess að færa varning heim, en ekkert þeirra til að færa það frá landinu, sem okkur var sagt að þyrfti svo brýnan flutning." Karl Kvaran við verk sem hann nefnir „Hjartavernd“ KarlKvaran áKjarvalsstöðum KARL Kvaran opnar málverka- sýningu að Kjarvalsstöðum laugardaginn 23. júní klukkan 14. Á sýningunni eru 39 olíu- málverk og 2 vatnslitamyndir. Karl hefur sýnt víða erlendis á samsýningum, en einkasýningar hans hérlendis eru nú orðnar tíu talsins. Síðasta einkasýning hans var fyrir 5 árum í Norræna húsinu, og eru myndirnar á þessari sýningu málaðar á síð- ustu 5 árum. Karl stundaði nám við Lista- akademíuna í Kaupmannahöfn árin ‘45—‘48, og var hér á árun- um áður meðlimur í hópi þeim sem stóð fyrir svonefndum Sep- tembersýningum, og var þess vegna nefndur Septemberhópur- inn. Eða eins og Karl sagði sjálfur: „Þá var maður skamm- aður, og það er alltaf verið að skamma mann — annars væri ekkert gaman að þessu.“ Sýningin er í vestursal Kjar- valsstaða og er opin frá kl. 2 til 10 alla daga. Sýningunni lýkur sunnudaginn 1. júlí. Ríkisstjórnin rædir tekjuöflunarmöguieika: Hátekjuskattur ekki inni í myndinni fyrr en um áramót OLIUMÁLIN voru rædd á ríkisstjórnaríundi í gær á mjög breiðum grundvelli, að sögn Magnúsar H. Magnússonar, félagsmála- ráðherra. Hins vegar voru engar ákvarðanir teknar á fundinum og sagði Magn- ús að áfram yrði haldið umræðu um þessi mál á ríkisstjórnarfundi á mánudag. Menn munu vera að reyna að gera sér grein fyrir því hve stór vandinn er og hvað væri helzt til úrbóta. Magnús kvað bæði rætt um að afla fjár til niður- greiðslu á olíuverði með tveimur nýjum söluskatt- stigum, gjaldi af innflutn- ingi og fleiri fjáröflun- armöguleikum, en engin ákvörðun liggur fyrir um hvaða leið skuli valin. Þá hefur og verið rætt um hugsanlega breytingu á innkaupum. Þá kvað ráðherra talsvert hafa verið rætt um hátekju- skatt, en hann kvaÖ alla vera Olíukaupin frá Sovét: Venjulegar vid- rædur í gangi VIÐRÆÐUR haía verið í gangi milli viðskiptaráðuneytisins og viðskiptafulltrúa Sovétríkjanna sem hefur aðsetur hér á landi, um olíukaup íslendinga frá Sovét- ríkjunum, að því er Þórhallur Ásgeirsson ráðuneytisstjóri í við- skiptaráðuneytinu sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gær. Sagði Þórhallur að viðræður af þessu tagi um verslunarmál, ættu sér mjög oft stað, og þar af leiðandi um olíumál líka. Sagði Þórhallur að þetta vandamál hefði marg oft verið rætt, og væri ekkert sérstakt um það að segja núna. Sagði Þórhallur aðeins að þetta væri mál sem alltaf væri til umræðu, ekki hvaö síst þegar einhverjir erfiðleikar kæmu upp. En þær viðræður sem að undan- förnu hafa farið fram eru aðeins venjulegar viðræður, og eðlileg samskipti viðskiptaráðuneytisins og viðskiptafulltrúans. Vildi Þór- hallur ekkert annað um málið segja, ekki um hvað hefði verið rætt, né hvort viðskiptaráðherra, Svavar Gestsson, hefði tekið þátt í viðræðunum. orðna sammála um að til hans yrði ekki gripið fyrr en um áramót og hann gæti ekki gengið í gildi fyrr. Því kvað hann hátekjuskatt og hátekjuútsvar vera út úr myndinni í sumar. Yrði tekin ákvörðun um að leggja á hátekjuskatta, myndu þeir því ekki taka gildi fyrr en frá áramótum. Miklubrautarm álið: Dæmduríl6 ára fangelsi .'■£ ær í „Viðskiptaráðherra fari tafarlaust til Rússlands” — segir Sighvatur B jörgvinsson „MÉR ER nú ekki kunnugt um málið, en mér finnst það vera orðið eitt af þýðingarmestu viðfangsefnum ríkis- stjórnarinnar, að menn þar taki upp þá reglu að hugsa áður en þeir tala,“ sagði Sighvatur Björgvinsson formaður þingflokks Alþýðuflokksins í samtali við Morgunblaðið í gær, er hann var spurður um þær viðræður er verið hafa í gangi milli viðskiptaráðuneytis- ins og sovéska sendiráðsins um olíukaup. „Þessi munnræpa manna þar er glamurgangur ekki farin að ná nokkurri átt lengur," sagði Sighvatur enn- fremur. „Menn eru nú nýkomnir úr bráðabirgðalagasetningu með stórkostlegar yfirlýsingar í blöðum um hluti sem eru algjör- lega óræddir og á frumathugunar- stigi. Menn eru að hlaupa með stóryrtar yfirlýsingar í blöð um að þetta þurfi að afgreiðast á næstu dögum, þannig að þessi óstöðvandi monnum er orðinn alveg óþolandi." Með þessu kvaðst Sighvatur meðal annars eiga við þær yfir- lýsingar sem gat að líta í síðdegis- blöðunum í gær, um „þessar stór- felldu skattaálögur sem menn eru að tala um að tillögur séu um að setja og binda með bráðabirgða- lögum fyrir mánaðamótin," eins og Sighvatur komst að orði. „Um þetta vil ég segja það,“ sagði Sighvatur ennfremur, „að áður en menn fara að ræða um að leggja stórkostlegar byrðar á þjóðina með einhvers konar skatt- lagningu, eða með öðrum hætti, þá eiga menn að ganga úr skugga um það fyrst, í mikilli aivöru, hvort ekki sé hægt að komast hjá því. Við núverandi aðstæður held ég að ekki sé um annað að ræða en viöskiptaráðherra’ sé beðinn að fara umsvifalaust til Rússlands og óska eftir því, að fá svör við því frá Rússum, hvort þeir séu ekki reiðubúnir tii að endurskoða oliu- samninginn við okkur þannig að getum notið sambærilegra við- skiptakjara í þessum efnum og önnur ríki á vesturhveli jarðar. Hitt vil ég einnig segja, að ég er mjög ánægður með það frum- kvæöi sem utanríkisráðherra hefur tekið í málinu. Nú það má einnig bæta því við, að menn hafa verið að ræða um það, að ferðir af því tagi sem ég nefni aö viðskiptaráðherra takist á hendur, verði árangurslausar, vegna þess að Rússar séu ekki reiðubúnir til að endurskoða samninginn. Ég hef hins vegar ekki nokkra ástæðu til að halda annað en það fáist í gegn, verði það reynt, því eiga menn ekki að vera með fullyrðingar um þessi mál, heldur eiga staðreyndirnar að tala. Ég fæ ekki séð annað en ríkisstjórnin og viðskiptaráðherra verði að leggja sig í framkróka um öll önnur ráð en að leggja auknar byrðar á þjóðina. Eitt af þeim ráðum er að fá úr því skorið hvort Rússar séu ekki reiðubúnir til að láta okkur njóta eðlilegra við- skiptakjara í sambandi við olíu- kaupin. Til þess á viðskiptaráð- herra að fara tafarlaust til Moskvu,“ sagði Sighvatur Björgvinsson að lokum í samtali við blaðamenn Morgunblaðsins síðdegis í gær. HÆSTIRÉTTUR dæmdi máli ákæruvaldsins gegn Asgeiri Ingólfssyni, sem varð Lovísu Krist- jánsdóttur að bana í húsinu Mikla* braut 26 í Reykjavík hinn 26. ágúst 1976. Voru ákvæði héraðsdóms um refsingu ákærða staðfest, en hann hafði verið dæmdur í 16 ára fang- elsi í sakadómi Reykjavíkur. Ás- geiri var ennfremur gefið að sök að hafa brotist inn í skrifstofu Vél- smiðjunnar Héðins hf. í nóvember 1975 og haft þaðan á brott með sér umtalsverð verðmæti. Samkvæmt áfrýjunarstefnu 20. apríl 1977 var dómi í málinu áfrýjað til Hæstaréttar af hálfu ákæru- valdsins til þyngingar á dómnum, þ.e. ævilangs fangelsis en síðar fyrir Hæstarétti krafðist ríkissaksóknari þess að dómur sakadóms yrði stað- festur. Dóminn kváðu upp hæstaréttar- dómararnir Björn Sveinbjörnsson, Benedikt Sigurjónsson, Logi Ein- arsson, Magnús Þ. Torfason og Þór Vilhjálmsson. Dómsorð Hæstaréttar voru þessi: „Ákvæði héraðsdóms um refsingu ákærða, Ásgeirs Ingólfssonar, á að vera óraskað. Gæsluvarðhaldsvist hans frá 28. ágúst 1976 skal koma refsingu hans til frádráttar. Ákvæði héraðsdóms um greiðslu skaðabóta og sakarkostnaðar eiga að vera óröskuð. Ákærði greiði allan áfrýjunar- kostnað sakarinnar, þar með talin saksóknaralaun til ríkissjóðs, 300.000 krónur og máisvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Sveins Snorrasonar hæstaréttarlögmanns, 500.000 krónur. Dómi þessum ber að fullnægja með aðför að lögum."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.