Morgunblaðið - 29.09.1979, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 29.09.1979, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1979 37 Minning: Kristrún Sveinsdóttir frá Hrafnkelsstöðum Ég velt hestlnn minn traustan og mig heimvonin gleður það er bjart fyrir austan þar er blfðskaparveður. Þessar ljóðlínur Eiríks Einars- sonar frá Hæli koma mér í hug, þegar ég sest niður og reyni að festa á blað nokkrar línur um vinkonu mína, Kristrúnu Sveins- dóttur. Hún var fædd að Hrafnkelsstöð- um í Hrunamannahreppi, Árnes- sýslu, 2. september 1930, dóttir hjónanna Sigríðar Haraldsdóttur og Sveins Sveinssonar, sem þar bjuggu myndarbúi en Sveinn lést árið 1954. Rúna, eins og við kölluðum hana, ólst upp í foreldrahúsum í glöðum systkinahópi. Hún gekk í barnaskólann á Flúðum og einn vetur var hún við nám í Hús- mæðraskóla Suðurlands að Laug- arvatni. Skólaveru sinnar minnt- ist hún ætíð með gleði enda mun hún hafa átt létt með nám. Örlög- in höguðu því þannig að þar sem hún hafði ekki heilsu til sveita- vinnu, lá leið hennar til Reykja- víkur, þar sem hún vann við ýmis störf en lengst af þó eða í 17 ár í prentsmiðjunni Hilmi. Við Rúna höfðum í raun þekkst eða vitað hvor af annarri frá því við vorum smátelpur þó við bytt- umst ekki vináttuböndum fyrr en á fullorðinsárum, þegar hún fór að koma á heimili okkar hjónanna og varð brátt ein af fjölskyldunni. Hún var aufúsugestur hvenær sem var og alltaf sjálfsögð við öll meiriháttar tækifæri í fjölskyld- unni. Það var alltaf bjart og glatt í kringum Rúnu og við hér í Siglu- voginum eigum svo óteljandi góð- ar og skemmtilegar minningar um hana — um vináttu hennar, hjálp- fýsi og ljúfmennsku. Hún var víðlesin og fróðleiksfús — hún var svo mikill ljóðaunnandi og kunni svo mikið af ljóðum, að ég minnist ekki að hafa kynnst öðru eins. Ef það stóð í manni vísupartur eða Ijóðahending var kallað í Rúnu og hún kunni oftast ekki aðeins framhaldið heldur vissi líka hver höfundurinn var. Hún hafði mikið gaman af leiklist og var tíður gestur í leikhúsum og þó hún væri ekki söngmanneskja sjálf hafði hún yndi af fallegum söng og var mikil smekkmanneskja á hvort- tveggja. Rúna unni sveitinni sinni af heilum hug. Ég býst við að slík átthagatryggð finnist vart meiri. Hún bar hag alls síns fólks fyrir austan mikið fyrir brjósti og ekki aðeins fjölskyldu sinnar heldur allra sveitunga sinna. Hún elskaði sannarlega nafn Árnesþings og þangað stefndi hugur hennar alla tíð. Hún fór heim að Hrafnkels- stöðum hvenær sem hún gat. Rúna giftist ekki og eignaðist ekki börn, en hún breiddi sig yfir systkinabörn sín og börn vina sinna, þar á meðal mín börn, og svo aftur börn þeirra. Hún hændi að sér börnin og ekki síst ungling- ana. Þegar foreldrar þurfa að bregða sér út í heim er ekki alltaf auðvelt að fara frá fólki á ungl- ingsárum einum í heimahúsum og ekki er hægt að senda þau í fóstur eins og smábörn — þá er gott að eiga góða vinkonu, sem leysir vandann með því að koma og búa á heimilinu á meðan. Þennan vanda leysti Rúna oftar en einu sinni fyrir okkur hjónin. Enginn ungl- inganna hér hafði á móti að hafa hana hjá sér — síður en svo. Og ekki var hún Rúna síðri við gamla fólkið, sem á vegi hennar varð og ólöt að heimsækja þá sem lítt áttu heimangegnt vegna aldurs og sjúkleika. Fyrir nokkrum árum gerðist Rúna félagi í Góðtemplararegl- unni. Þar bættist Reglunni góður liðsmaður því hún var góð félags- manneskja. Hún hafði mikla ánægju af störfum sínum í stúk- unni sinni, „Einingunni", og ann- ars staðar í Reglunni. Rúna var upplesari af guðs náð — framsögn hennar skýr og málfarið svo hreint og fallegt. Hún tók líka þátt í leikstarfsemi á skemmti- kvöldum en hún vann einnig að heill brautargengi Reglunnar út á við sem inn á við. Það er gott. fyrir hvaða félagsskap sem er að eign- ast slíkan liðsmann enda var hún metin að verðleikum innan vé- banda félagsskaparins. Rúnu þótti ákaflega gaman að ferðast — hafði næmt auga fyrir fegurð náttúrunnar og áhuga fyrir mannlífinu almennt. Hún ferðað- ist þó nokkuð um landið okkar og eina ógleymanlega ferð fór hún til Norðurlandanna. Þetta er í stórum dráttum ævi- saga Rúnu vinkonu minnar. Saga farsællar ævi sem lauk of snemma. Fyrir hálfu ári kenndi hún þess sjúkdóms, sem síðar dró hana til dauða. — Það eru hörð örlög að þurfa að hverfa burt á miðjum aldri og okkur óskiljan- legt, sem eftir stöndum, hvers vegna þetta þurfti að henda hana. Að horfa á vini sína berjast vonlausri baráttu er mörgum of- viða — maður fyllist fyrst mátt- vana reiði og sárindum. En þegar svo er komið að ekkert er eftir nema þetta eina og þreytan er að buga hetjulund sjúklingsins, þá fer maður að óska eftir að hvíldin komi sem fyrst. Þannig sættir lífið mann við dauðann. En Rúna var ekki ein — öldruð móðir hennar vék varla frá sjúkrabeði hennar síðustu mánuð- ina og vikurnar — hvorki nótt né dag. Hún veitti dóttur sinni ómet- anlegan styrk. Það eru margar hetjusögur úr hversdagslífinu, sem hvergi eru skráðar — sögur um fórnarlund, sem hvergi á sinn líka. Ég vil flytja öllu starfsliði deildar A-6 á Borgarspítalanum, þar sem Rúna dvaldi frá upphafi veikinda sinna til endaloka, hjart- ans þakkir fjölskyldu hennar og okkar vina hennar. Sú frábæra hjúkrun og aðhlynning, sem hún hlaut þar, yljaði okkur um hjarta- rætur og mun aldrei gleymast. Rúna verður jarðsett að Hruna í dag — heima í sveitinni sinni, sem hún unni svo mjög. Ég vildi óska sveitinni hennar og þjóðinni allri að hún eignaðist sem flestar slíkar dætur. Að leiðarlokum vottum við ég og mín fjölskylda og allir vinir henn- ar hér í Reykjavík móður hennar, systkinum og öðru skylduliði okk- ar dýpstu og innilegustu samúð. Minningin um hana mun lifa björt og falleg í hjörtum okkar og við þökkum henni samfylgdina öll þessi góðu ár og biðjum henni fararheilla og blessunar á ókomn- um stigum. Ásgerður Ingimarsdóttir Hún Rúna frá Hrafnkelsstöðum er dáin aðeins 49 ára gömul. Með þakklátum huga ætla ég að minn- ast hennar með nokkrum orðum. Við áttum saman indælar og ógleymanlegar stundir á ferðalög- um um landið okkar. Fullu nafni hét hún Kristrún Sveinsdóttir. Fædd 2. september 1930, dáin 24. september 1979. Hún fæddist á Hrafnkelsstöðum í Hrunamannahreppi — dóttir hjónanna Sigríðar Haraldsdóttur og Sveins Sveinssonar, sem þar bjuggu. Hún ólst þar upp við bókalestur og sögufróðleik ásamt ríkri átthagatryggð. Okkar góðu kynni byrjuðu með þeim hætti að fyrir meira en tveimur áratugum vorum við á afmælismóti Ung- mennafélags Islands á Þingvöllum og varð okkur reikað upp á syðri barm Almannagjár við Öxarár- foss, sitt í hvoru lagi, því báðar vorum við einar. Þar hittumst við og tókum tal saman og var okkur það sama í hug að njóta þarna í Minning: Guðmundur Jónsson Asbjarnarstöðum kvöldkyrrðinni þessa dásamlega og stórbrotna landslags á okkar kæra sögustað og ekki spillti það, að íþróttafólkið sýndi þrótt sinn og getu á völlunum ásamt fjöl- menni og tilheyrandi tjaldborg. Seinna ferðuðumst við Rúna saman bæði í lofti og á landi og alltaf var hún sami glaði og góði félaginn. Ég minnist þess, þegar ég ætlaði að hrósa henni fyrir að taka mig með sem ferðafélaga, þó ég væri heilli kynslóð eldri: „Ekkert þvaður," sagði hún og bandaði hendinni góðlátlega til mín. Stundum minnti hún mig á sinn sögufróða og frásagnarglaða móðurbróður, Helga á Hrafnkels- stöðum, þegar við fórum framhjá einhverjum sögustað. Þá rakti hún fyrir okkur atburði úr sögunni eða sagði okkur að á þessum bæ bjó þetta skáldið. Hún Rúna hafði marga hæfi- leika þó hún lifði kyrrlátu lífi og bæri kannski ekki mikið á henni. Ég minnist, ásamt fleiru, þegar hún bauð mér á kvöldvöku í stúkunni sinni. Þá sýndi hún, að hún átti leikhæfileika á senunni eins og hennar fólk. En nú er hún horfin okkur í bili. Hún háði langa og stranga bar- áttu við hinn banvæna sjúkdóm — en þar var hún ekki einstæðingur. Hin aldraða móðir hennar með sinn heita móðurfaðm sat hjá henni síðustu mánuðina með smá- hvíldum frá dóttur og tengda- dætrum og margar vinkonur Rúnu sýndu góðleik og tryggð í veikind- um hennar. Ég votta þessu fólki samúð mína. Veri svo góð vina sæl að sinni, sjáumst bráðum og njótum fegurðar guðs í öðrum heimi. Margrét Sigurðardóttir Miðfelli Fæddur 27. desember 1896. Dáinn 16. september 1979. Þegar Kviröðull rennur rökkvar fyrir sjónum þér. Hræðstu eigt, Hel er förtjaid, hlnum megin blrtan er. Höndin sem þig hingað leiddi hlmina til þlg aftur ber. Drottinn eiakar, drottinn vakir daga og nœtur yfir þér. S.Kr.P. Guðmundur Jónsson er lagður af stað í ferðina löngu. Eins og alltaf þegar dauðinn heggur sitt skarð, eru öll orð svo fátækleg, þó langar okkur að minnast lítillega þessa gamla manns, sem dvalist hefur hér á Ásbjarnarstöðum lengur en við munum. Guðmundur var fæddur að Kringlu í Austur-Húnavatnssýslu 27. desember 1896, Ekki erum við nógu fróð um hans æviferil fram- an af til að geta rakið hann, vitum þó að foreldrar hans fluttust um aldamótin vestur um haf með öll sín börn nema hann, sem einn varð eftir. Systkini hans héldu bréflegu sambandi við hann og langaði þau til að fá hann til sín í heimsókn, sem þó aldrei varð af, líklegt að honum hafi þótt í heldur mikið ráðist að taka sér ferð á hendur til annarra landa. Á þeim tímum sem Guðmundur var ungur maður var mjög erfitt uppdráttar og víst ekki á meðfæri okkar, sem alist höfum upp við allsnægtir, að skrifa um það basl, sem fólk þeirra tíma varð að takast á við, en víst er að fátækt- in, ásamt mörgum öðrum erfið- leikum, fór ekki fram hjá Guð- mundi. Hann vann ýmiss konar störf bæði sunnanlands og norðan og mun aðbúnaður vinnumanna á þeim tímum ekki alltaf hafa verið sem ákjósanlegastur. Að Ásbjarnarstöðum kom hann árið 1933 og um vorið 1936 keypti okkar fólk jörðina og hóf hér búskap. Dvaldist hann þá hér áfram og hefur ekki gert víðreist um dagana. í dalnum kunni hann vel við sig og vildi vera, búskapur- inn og sveitastörfin áttu hug hans allan. Hann var sívinnandi og sannast sagna ekki hálfur maður eins og sagt er, ef hann hafði ekki ávallt næg verkefni. Guðmundur átti alltaf nokkrar skepnur, og um þær annaðist hann af mikilli vandvirkni. Frekar lét hann bíða að hugsa um sjálfan sig ef hann vissi ferfætlingana sína vera þar sem ekki fór nógu vel um þá. Snyrtimaður var hann í um- gengni, trúr í verkum sínum og vildi allt vel gera sem hann kom nálægt. Það verða mörg handtökin ógerð nú, þegar hann er hættur að ganga í þau verk sem hann sá að sinna þurfti. Ósköpin öll af vísum, rímum og kvæðum kunni hann, en margt af því fer því miður með honum. Mikið yndi hafði hann ennfremur af söng og tók sjálfur þátt í honum ávallt er hann hafði tæki- færi til. Ekki var Guðmundur allra, en tryggur vinur þar sem hann tók því. Barngóður var hann einnig, því kynntumst við í æsku, e.t.v. bezt allra. Okkar börnum var hann alltaf mjög góður, og þakka þau honum nú samfylgdina. Guðmundur var fluttur á Borg- arspítalann 30. ágúst s.l. Áður var hann búinn að dvelja á sjúkrahús- inu á Hvammstanga um nokkurn tíma. Hann lést á Borgarspítalan- um 16. september s.l. og þakklát erum við öll fyrir að hann þurfti ekki að þjást lengur af þeim sjúkdómi sem herjaði á hann, heldur fékk hvíldina svo fljótt. Mun það líka hafa verið hans eigin ósk að svo færi. Nú er einum færra í dalnum og gamli bærinn auður. Og er við í dag fylgjum Guðmundi síðasta spölinn kveðjum við hann með einlægri þökk fyrir allt og allt. Megi guð blessa minningu hans. Systkinin Ásbjarnarstöðum BOSCH rafmagns-handverkfæri KYNNING í DAG KL. 14—18 Kynnir hr. Voser frá Bosch meðferö Bosch-handverkfæra Sýnt verður „BLÁA LÍNAN“ fyrir iðnaðarmenn „GRÆNA LÍNAN“ fyrir áhugamenn í VOLVOSALNUM, SUÐURLANDSBRAUT16 Sýningargestum verður gefinn kostur á að taka ókeypis þátt í HAPPDRÆTTI 8 VINNINGAR: • Bosch verkfæri. • Sjónvarpsleiktæki \mnai SfygeiMon h.f Suöurlandsbraut 16 Sími 35200

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.