Morgunblaðið - 06.02.1980, Blaðsíða 1
32 SIÐUR
30. tbl. 67. árg.
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 1980 . Prentsmiðja Morgunblaðsins.
F óstrið
bylti sér er
faðir þess
stappaði
London. 5. febrúar. AP.
LÍTIÐ stúlkubarn. scm nú er
þriggja vikna. tók í móðurkviði
þátt í merkilegum tilraunum
lækna. sem beindust að þvi að
kanna það hvort hún heíði eðli-
lega heyrn u.þ.b. 20 vikum eftir
að getnaður hafði átt sér stað.
Foreldrar stúlkunnar, hjónin
Rosemary og James Slasor í
Englandi, voru hrædd um það á
síðasta ári, að barn það, sem
Rosemary gekk með, væri heyrn-
arlaust, þar sem fimm ára gamall
sonur þeirra hjóna hafði verið
heyrnarlaus frá fæðingu. Vildu
hjónin ganga úr skugga um þetta
og láta eyða fóstrinu væri það
ekki heilbrigt að þessu leyti.
Slasor-hjónin leituðu til dr.
Michelle Clements, sem hefur
unnið að því að þróa tæki til að
kanna heyrn fóstra. Dr. Clements
fékk föður barnsins til að stappa
niður fæti, þar sem hann stóð við
hlið konu sinnar, og kvað síðan
upp þann úrskurð með hjálp
tækja sinna, að fóstrið hefði bylt
sér við vegna stappsins. Hjónin
ákváðu þá að barnið skyldi fæðast
og eins og fyrr segir fæddist
stúlkan litla fyrir þremur vikum
og er að öllu leyti heilbrigð.
Dr. Clements styðst við tæki,
sem nemur viðbrögð fósturs við
hávaða og færir þau á sérstakt
línurit. Prófanir með tæki þetta
hafa gefizt vel og er vonast til
þess að tækið geti síðar meir
einnig greint hvort viðkomandi
fóstur á við öndunarerfiðleika eða
hjartagalla að stríða.
Zbigniev Brzezinski. öryggismálaráðgjafi Bandaríkjaforseta. og Saud al Faisal. prins og
utanríkisráðherra Saudi-Arabíu. á tali í Riyad í gær. Brzezinski kom við í Saudi-Arabíu á leið sinni frá
Pakistan. þar sem hann hefur átt viðræður undanfarna daga. (Simamynd \P)
Brzezinski í Saudi-Arabiu:
Fjármagnar Saudi-Arabía
hergagnakaup Pakistana?
Riyad. 5. febúar. AP.
BRZEZINSKI öryggismálaráðgjafi Carters Bandaríkjaforseta og
ráðamenn í Saudi-Arabíu ræddust við í dag og voru á einu máli um þá
hættu. sem ríkjunum við Persaflóa stafaði af hernaðaríhlutun
Sovétmanna í Afganistan. að því er talsmaður Brzezinskis sagði í dag.
Leiðtogar Saudi-Arabíu og Brzezinski voru einnig sammála um að
ófriðarhætta stafaði af því að deilumál ísraelsmanna og Araba og
vandamál Palestínumanna eru enn óleyst.
Brzezinski dvaldi tvo daga í
Saudi-Arabíu á- leið sinni frá
Pakistan til Bandaríkjannna.
Heimildir í Riyad herma, að
Saudi-Arabar hafi fallizt á að
fjármagna mikil hergagnakaup
Pakistana í Bandaríkjunum á
næstunni.
Fregnir bárust af því í kvöld að
ókunn orrustuþota hefði flogið
upp að flugvél Brzezinskis, þegar
hann var á leið frá Saudi-Arabíu.
Þota frá flugmóðurskipinu Nim-
itz, sem ekki var langt undan, var
send á vettvang, en fann ekkert
grunsamlegt. Grunur leikur á að
ókunna þotan hafi verið frá Iran,
„Sendu iarðýtu yfir líkin“
Islamabad. 5. íebrúar. AP
FLÓTTAMENN frá Afganistan,
sem nú hafast við i Pakistan. hafa
skýrt vestrænum fréttamönnum
frá því, að sovézkir hernaðar-
ráðgjafar hafi framið grimmileg
fjöldamorð í þorpi einu i Afgan-
istan á síðasta ári.
Samkvæmt frásögn flóttamann-
anna komu 30 skriðdrekar til
þorpsins Kerala, skammt frá
landamærunum við Pakistan 20.
apríl sl., en þar bjuggu þá um 5000
manns. Með þeim voru 200 afg-
anskir hermenn og 20 sovézkir
Myrtu Sovétmenn 1000 Afgani?
ráðgjafar. Öllum karlmönnum í
þorpinu, sem náðist í, var safnað
saman á einn stað í miðju þorpinu,
þar sem var umsvifalaust hafin á
þá skothríð að fyrirmælum Sovét-
mannanna og lífið murrkað úr
þeim.
Jafnskjótt og skothríðinni lauk
kom jarðýta á vettvang og hóf að
ryðja líkunum burt í augsýn
kvenna og barna þeirra, sem
drepnir höfðu verið. Sagt er að
lífsmark hafi verið með einhverj-
um fórnarlambanna, þegar ýtan
kom á vettvang, og sumir mann-
anna getað hreyft sig. Alls munu
um 1000 menn hafa verið drepnir.
Að sögn flóttamannanna sneri
einn Sovétmannanna sér að einni,
konunni sem stóð grátandi hjá og
sagði við hana að búast mætti við
góðri kartöfluuppskeru á næsta ári
eftir þetta.
Því næst fóru Sovétmennirnir og
hinir afgönsku samherjar þeirra
um allt þorpið og skutu niður
hvern þann karlmann sem til sást.
Um 400 fjölskyldur úr þorpinu
flýðu til Pakistans eftir þennan
atburð.
Sovézka fréttastofan Tass and-
mælti því mjög harðlega í dag að
fréttir um þessa atburði, sem fyrst
birtust í stórblaðinu Christian
Science Monitor í Bandaríkjunum í
gær, hefðu við nokkur rök að
styðjast. Sagði Tass að hér væri á
ferðinni grimmúðlegur áróður,
sem væri byggður á lygum og
uppspuna frá rótum.
E1 Salvador:
Spænska
sendiráðið
hertekið
San Salvador. 5. íebrúar. AP.
IIÓPIJR vinstri sinna náði í dag á
sitt vald sendiráði Spánar í San
Salvador og hafa þeir þar 6 gísla á
valdi sínu. þ.á m. spænska sendi-
herrann.
Stjórn E1 Salvador hefur fullviss-
að spænsku stjórnina um að ekki
verið gripið til aðgerða gegn þeim,
sem hafa hertekið sendiráðið, nema í
samráði við stjórnina í Madrid.
Þrjátíu og sjö menn -fórust sl.
fimmtudag, þegar öryggissveitir í
Guatemala réðust til inngöngu í
spænska sendiráðið þar, er herskáir
bændur höfðu það á valdi sínu.
KamhódíuKanKan hafin:
Ginzburg,
Ullman,
Churchill
og Baez
meðal þátttakenda
Jody Powell
Han^kok. 5. íebrúar. AP.
UM 120 evrópskir og bandarískir
listamenn og stjórnmálamenn
komu í dag til flóttamannabúð-
anna í Sa Kaew í Thailandi við
upphaf þriggja daga göngu til
stuðnings íbúum Kambódíu. í
hópnum eru m.a. norska leikkon-
an Liv Ullman. bandaríska söng-
konan Joan Baez. rússneski and-
ófsmaðurinn Alexander Ginz-
burg og brezki þingmaðurinn
Winston Churchill III.
Við komuna til Sa Kaew gáfu
um 40 í hópnum um hálfan lítra af
blóði í sjúkraskýli flóttamanna-
búðanna og var Liv Ullman í þeim
hópi.
Göngufólkið vill með ferð sinni
vekja athygli þjóða heims á þeint
geigvænlega vanda, sem við blasir
i Kambódíu og hvetja til aukinnar
aðstoðar við fólkið í landinu. Er
fyrirhugað að þátttakendur í
göngunni verði í þrjá daga á
slóðum flóttafólksins frá Kambó-
díu og kynni sér aðbúnað þess og
frásagnir af ástandinu í Kambó-
díu.
Upphaflega var fyrirhugað, að
gengið yrði yfir landamærin inn í
Kambódíu og þar afhent táknrænt
merki um þá aðstoð, sem láta þarf
í té, en við þetta hefur verið hætt
vegna andstöðu núverandi ráða-
mann í Kambódíu.
Göngufólkið hefur meðferðis 20
vörubíla hlaðna matvælum og
lyfjum og verða þeir afhentir
Rauða krossinum í Thailandi til
dreifingar meðal flóttamannanna
í Thailandi.
Blaðafulltrúi Bandaríkjaforseta um slökunarstefnuna:
Verður að ná til
allra heimshluta
Washinjíton. ö. fcbrúar. AP
JODY Powell. blaðafulltrúi
Bandaríkjaforseta. sagði i dag.
að framtíð spennuslökunarstefn-
unnar. „detente". byggðist að
verulegu leyti á Sovétrikjunum.
„Við höfum gert það ljóst. að við
viljum draga úr framleiðslu ger-
eyðingarvopna. en við höfum líka
lýst því yfir. að slökunarstefnan
verður að ná til allra heimshluta.
en ekki bara sumra." sagði Pow-
ell. Hann kallaði blaðamenn á
sinn fund til að svara því er fram
kom í ræðu. sem Brezhnev forseti
Sovétríkjanna flutti i veizlu í
Kreml á mánudagskvöld.
Brezhnev lét svo um mælt í
ræðu sinni, að brýna nauðsyn bæri
til að halda fast við slökunarstefn-
una og þróa hana frekar. Jafn-
framt sagði Brezhnev, að árangur
yrði að nást milli stórveldanna í
því að uppræta átök í Miðaustur-
löndum, Suðaustur-Asíu og á
svæðinu við Indlandshaf.
Ræða Brezhnevs kemur í kjöl-
farið á yfirlýsingum margra ann-
arra ráðamanna í Kreml, þar sem
lögð er áherzla á nauðsyn þess að
bæta sainbúð austurs og vestur,
þrátt fyrir ágreining vegna inn-
rásarinnar í Afganistan.
Powell gerði það ljóst á blaða-
mannafundi sínum í dag, að Cart-
er hefði ekki í hyggju að falla frá
áætlunum sínum um aukna her-
væðingu Bandaríkjanna, þrátt
fyrir friðartal Sovétmanna nú.