Morgunblaðið - 08.11.1980, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 08.11.1980, Blaðsíða 30
GALLERÍIIÁIIÓLL OG KJARVALSSTAÐIR: 30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1980 Sýningar um helgina Kjarvalsstaðir: Kjartan Guðjóns- son sýnir olíumálverk, vatnslita- myndir og teikningar í vestursal. Heimilisiðnaðarfélagið sýnir muni á vesturgangi. Frímerkjasýning. Listasafn tslands: Yfirlitssýning á verkum Svavars Guðnasonar. Sýn- ingin stendur til mánaðamóta. Listmunahúsið: Sigríður Björns- dóttir sýnir 70 landslagsmyndir og 7 afstraktmyndir. Opið frá kl. 14 — 18 í dag og á morgun en þá lýkur sýningunni. Listaskáli ASÍ, Grensásvegi 16: Sigurður Thoroddsen verkfræðing- ur sýnir vatnslitamyndir. Opið frá kl. 14—22. Sýningunni lýkur annað kvöld. Nýlistasafnið, Vatnsstíg 3: Hol- lensk myndlistasýning, Vídd á pappír. Opið frá kl. 16—20 á virkum dögum en 14—20 um helgar. Sýn- ingin stendur til 16. þ.m. Norræna húsið: Finninn Pentti Kaskipuro sýnir grafíkmyndir í anddyri. Sýningin stendur til mán- aðamóta. Kirkjustræti 10: Sigrún Gísladóttir sýnir collage-myndir. Sýningin stendur til 18. þ.m. Galleri Iláhóll: Kjartan Guðjóns- son sýnir olíumálverk, vatnslita- myndir og teikningar. Eden, Hveragerði: José Luis Lopez Ayala sýnir málverk og vatnslita- myndir. Sýningin stendur til 16. þ.m. FÍM-salurinn. Laugarnesvegi 112: Gunnlaugur Stefán Gíslason sýnir vatnslitamyndir. Sýningin er opin frá kl. 14—22 um helgar, en 14—20 virka daga og stendur til 23. þ.m. Safnahúsið á Selfossi: Páll S. Pálsson sýnir 30 myndir gerðar með blandaðri tækni. Sýningin er opin frá kl. 14—22 og stendur til 16. þ.m. Galleri Landlyst: Tryggvi Ólafsson sýnir akríl- og klippimyndir. Sýn- ingin er opin frá kl. 14—22 og lýkur annað kvöld. Ásmundarsalur: ívar Valgarðsson sýnir skúlptúra og málverk. Sýn- ingin er opin frá kl. 16—21 og stendur til 17. þ.m. Húsgagnaverslun Ifafnarfjarðar. Reykjavíkurvegi 64: Bjarni Jónsson sýnir olíumálverk, vatnslitamyndir, teikningar og málaðan rekavið. Um helgina lýkur sýningu Sigríðar Björnsdóttur i Listmunahúsinu. Þar sýnir hún 70 landslagsmyndir og 7 afstraktsmyndir. Aðsókn hefur verið góð og margar myndir selst. MYNDLIST: Bjarni Jónsson opnar sýningu í Hafnarfirði í DAG opnar Bjarni Jónsson sýningu í Húsgagnaverslun Hafnarfjarðar, Reykjavíkurvegi 64, Hafnarfirði. Á sýningunni eru 100 verk, oliumálverk, vatns- litamyndir, teikningar og málað- ur rekaviður, unnin á sl. tveimur árum. Bjarni Jónsson er fæddur í Reykjavík 1934 og kom ungur á vinnustofur Ásgríms Jónssonar og Jóhannesar Kjarvals. Hann nam hjá Ásgeiri Bjarnþórssyni í Hand- íða- og myndlistaskólanum og hefur farið í námsferðir til út- landa. Bjarni hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum bæði hér heima og erlendis. Þá hefur Bjarni mikið unnið að myndskreytingum fyrir Ríkisútgáfu námsbóka og nýlega kom út bókin íslenskir sjávar- hættir eftir Lúðvík Kristjánsson með myndskreytingum Bjarna. Málverk hans hafa verið á farand- sýningu í Bandaríkjunum á vegum American People Encyclopedia og hann hefur tekið þátt í biennal- sýningum í París. — Eg hef kosið það síðari árin að sýna fremur úti á landi en í höfuðborginni sagði Bjarni. — Fólk er yfirleitt miklu þakklátara þar og sækir sýningar mjög vel. Ég hef unnið mikið af þjóðlífs- myndum og er nú raunsæismaður í listinni, en var áður i afstrakt- inu. Kjartan Guðjónsson sýnir olíumálverk vatnslitamyndir og teikningar „Sjórinn og þorpið“ nefnist sýning sem Kjartan Guðjónsson opnar í dag í vestursal Kjarvals- staða. Á sýningunni eru 32 oliumyndir, 20 teikningar og 23 vatnslitamyndir. Hluti af þess- ari sömu sýningu verður í Gall- eri Iláhól á Akureyri og opnar einnig i dag. Þar sýnir Kjartan 30 myndir. Kjartan Guðjónsson er fæddur í Reykjavík árið 1921. Hann stundaði listnám í Chicago í Bandaríkjunum 1943—45 en hafði áður verið einn vetur í Handíða- og myndlistaskólanum. Hann hefur haldið fjölmargar einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga bæði hérlendis og erlendis. Kjarninn sá sami — Ég málaði afstrakt í 45 ár, en hann Jón úr Vör breytti þessu, sagði Kjartan. — Ég mynd- skreytti ljóðabókina hans, Þorp- ið, sem Helgafell gaf út fyrir jólin í fyrra og það gerði útslagið. Það vildi svo til að ég átti minningar frá svipuðu þorpi, Þingeyri í Dýrafirði, einmitt frá þessum sömu árum, milli stríða. Það hafði mikil áhrif á mig að vinna þetta verk, má segja að alger þáttaskil hafi orðið hjá mér. Og framhaldið varð þetta sem þú sérð hérna. í framhaldi af þessu fór ég á sjó, á togaranum Ársæli Sigurðs- Kjartan Guðjónsson á sýningu sinni „Sjórinn og þorpið“ á Kjarvalsstöðum. syni frá Hafnarfirði, sem er okkar næstsíðasti síðutogari. Þá gerði ég mikið af skissum, m.a. þessar andlitsmyndir af áhöfn- inni á Ársæli, og hef verið að vinna úr þessum skissum síðan. Sumar af þessum þorpsmynd- um eru nátengdar Jóni úr Vör, framhald af bókinni, en annað er prjónað út frá eigin minningum frá Þingeyri. Þetta er víst ein- hvers konar expressionismi, en það er mikið afstrakt í þessu. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á myndbyggingu, og hún er mjög sterkur þáttur í mínum myndum. Það má segja að kjarninn hafi ekki mikið breyst hjá mér, aðeins yfirborðið. Byggðasteínan í íramkvæmd Það má vissulega segja að það sé byggðastefnan í framkvæmd að opna þessa sýningu á tveimur stöðum samtímis, hér á Kjarvals- stöðum og í Gallerí Háhól á Akureyri. Fyrir norðan sýni ég 30 myndir, bæði olíu- og vatnslita- myndir og teikningar. Mér finnst ekkert réttlæti í því að lands- byggðin fái alltaf afganginn, það á að gera henni jafn hátt undir höfði og höfuðborginni. Ég er nú kominn á þann aldur, þegar menn þurfa endilega að fara að skrá æviminningar sínar, en það er mitt lán að ég get málað þær. Mikið um að vera í Þjóðleikhúsinu ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sýnir fimm leikrit um þessar mundir og verða fjögur þeirra á dagskrá um helgina. í kvöld verður sýning á gaman- leik Holbergs, Könnusteypinum pólitiska. sem sýningar eru ný- hafnar á með Bessa Bjarnasyni, Guðrúnu Þ. Stephensen og Þór- halli Sigurðssyni í aðalhlutverk- um. Á morgun kl. 15.00 er svo sýning á óvitum Guðrúnar Helga- dóttur og eru aðeins fáar sýningar eftir á þessu vinsæla barnaleikriti. Ennfremur verður á Litla svið- inu á morgun kl. 15 síðasta aukasýningin á leikriti Jökuls Jakobssonar, í öruggri borg. — Annað kvöld er síðan sýning á leikriti Kjartans Ragnarssonar, Snjó. Á því eru einnig aðeins fáar sýningar eftir. Bessi Bjarnason er i eldlínunni i „Könnusteypinum pólitlska“. sem Þjóðleikhúsið sýnir í kvöld. IÆIKFELAG REYKJAVIKUR: Gamanleiknum Rommí afburða vel tekið ANNAÐ kvöld verður 20. sýning á gamanleiknum Rommi eftir D.L. Coburn, en fyrir þetta leikrit fékk hófundurinn Pulitzer-verðlaunin bandarísku árið 1978. Leikurinn gerist á elliheimili í Bandaríkjunum þar sem roskinn maður og roskin kona hittast úti á verönd. Hann er ákafur spilamaður en hún hefur ekki snert á spilum í áratugi. Hann tekur því að sér að hressa upp á spilakunnáttu hennar, og þau byrja að spila rommí. Þrjár helgar í röð spila þau látlaust, spauga og rífast, og eftir því sem á líður, opinbera þau sig æ betur hvort fyrir öðru, og áhorfandanum verður ljóst að undir yfirborðsgrín- inu búa alvarlegir undirtónar. Sýningu Leikfélagsins hefur ver- ið afburða vel tekið í leikstjórn Jóns Sigurbjörnssonar, og þau Sigríður Hagalín og Gísli Halldórsson þykja bæði fara á kostum í hlutverkum Sigríður Hagalin og Gísli Halldórsson þykja bæði fara á kostum i sínum. i 141» /<i> inil-l hlutverkum sinum i Rommi.» i> l\i -1-1 t'i H'p ntJtni ;leIÓ .blövji ðsPRt. I jjo £‘S—11 wmm m *- • I tsm

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.