Morgunblaðið - 22.11.1980, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 22.11.1980, Blaðsíða 30
3 0 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1980 ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ: „Könnusteypir inn pólitískV6 I KVÖLI) sýnir ÞjóðleikhúsiA leikritið „Konnusteypirinn poli- tiski“ eftir norsk-danska háðfuKl- inn Ludvig HolberK- Bessi Bjarnason, Guðrún Þ. Stephensen ok Þórhallur Sigurðs- son eru í aðalhlutverkum í þessum gamanleik um pólitíska draum- óramanninn sem stendur okkur Islendingum svo nærri. Við sjáum i leiknum hvernig stjórnmála- frami getur farið með ágætustu menn, einkum þá ef þeir huga einungis að vegsemdinni en aldrei að vandanum sem fylgir. Aðrir leikendur eru m.a. Arni Tryggvason, Sigríður Þorvalds- dóttir, Baldvin Halldórsson, Sig- urður Skúlason, Þráinn Karlsson, Viðar Eggertsson, Þorsteinn Ö. Stephensen, Þórunn Magnea Magnúsdóttir, Þóra Friðriksdótt- ir, Sigmundur Örn Arngrímsson, Edda Þórarinsdóttir o.fl. Leik- stjóri er Hallmar Sigurðsson og leikmyndin er eftir Björn G. Björnsson. Þá sýnir Þjóðleikhúsið annað kvöld Smalastúlkuna og útlagana og eru nú aðeins fáar sýningar eftir á því vinsæla leikriti; og kl. 15.00 á morgun verður ein af síðustu sýningunum á barnaleik- riti Guðrúnar Helgadóttur, Óvit- um. Bessi Bjarnason. Þórhallur Sigurðsson og Guðrún Þ. Stephensen í hlutverkum sínum i „Könnusteypinum pólitíska“. Textilhópurinn sýnir í Epal Á FIMMTUDAGINN var opnuð sýning á tauþrykki í húsakynnum verzlunarinnar Kpal að Síðumúla 20. Það er Textilhópurinn, sem stendur að þessari sýningu. en hann hefur verið starfandi i um það bil hálft ár. og er þetta jafnframt fyrsta sýning hans. Félagar í þessum hópi eru þær Anna Matthildur Hlöðversdóttir, Heiða Björk V'ignisdóttir, Hjördís Bergsdóttir, María Hauksdóttir, Ólöf Ingibjörg Einarsdóttir, Rann- veig Gylfadóttir og Valgerður Torfadóttir. Þær hafa allar stundað 4—5 ára nám við Myndlista- og handíðaskóla Islands og lokið burt- fararprófum frá textildeild og vefn- aðarkennaradeild. Tauþrykkið, sem er sérgrein þeirra allra, er um þessar mundir að ryðja sér mjög til rúms sem nytjalist, enda þykja handþrykkt verk lífga mjög upp á umhverfi manna, hvort sem er á heimili eða vinnustað. Á sýningunni gefst gestum tæki- færi að panta handþrykktar gard- ínur, rúllugardínur, sængurverasett eða lengjur, en Textilhópurinn hef- ur yfir að ráða fullkomnu og vel tækjum búnu verkstæði að Grettis- götu 16—18. Ennfremur verða verk þau, sem sýnd eru á sýningunni, til sölu gegn ívið lægra verði en ella. Sýningin stendur a.m.k. fram yfir mánaðamót. Frá sýningu Textilhópsins í versluninni Epal Siðumúla 20. Guðmundur Björgvinsson við tvær mynda sinna á sýningunni i vestursal Kjarvalsstaða. Myndefni hans i þeim báðum er sótt til tviburabræðranna sem túlka i kvöld með hreyfilist myndverk á sýningu Guðmundar og sagt er frá annars staðar hér á opnunni. KJARVALSSTAÐIR: Guömundur Björgvins- son opnar sýningu í DAG opnar Guðmundur Björgvinsson myndlistarsýn- ingu i vestursal Kjarvalsstaða. Þar sýnir hann u.þ.b. 100 mynd- ir. annars vegar 55 pastelteikn- ingar og hins vegar 45 prent- lita- og tússmyndir. Guðmundur Björgvinsson er fæddur í Reykjavík 1954. Vet- urna 1974—76 var hann í Kali- forníu og stundaði nám í Univer- sity of Redlands, jöfnum hönd- um í mannfræði, sálarfræði og myndlist. Þar fyrir utan hefur Guðmundur ekki stundað myndlistarnám, en veturinn 1977—78 sótti hann tíma í lista- sögu hjá Birni Th. Björnssyni í Háskóla íslands. Guðmundur hefur áður haldið tvær einka- sýningar í Reykjavík, 1976 í sal Arkitektafélagsins og 1978 í kjallara Norræna hússins. Hann hefur einnig haldið sýningar úti á landi og tekið þátt í samsýn- ingum FÍM 1977, 79 og 80. Stærstur hluti sýningarinnar í vestursal Kjarvalsstaða sam- anstendur af pastelteikningum af raunsæjum toga, þar sem viðfangsefnið er maðurinn í hin- um margvíslegustu myndum, nakinn og klæddur. Prentlita- og tússmyndirnar eru meira í ætt við abstrakt, en þó má greina fígúrur í flestum þeirra. — Þau vinnuþrögð sem ég beiti í pastelmyndunum hafði ég þegar mótað er ég sýndi í Norræna húsinu í desember 1978, sagði Guðmundur. Þó má e.t.v. greina þar hægfara þróun í átt til nákvæmari og fínlegri vinnubragða. Prentlitamyndirn- ar komu hins vegar ekki fram hjá mér fyrr en á þessu ári þegar ég sýndi nokkrar slíkar á síðustu haustsýningu FÍM. Jean Simmons leikur Dominique, sem óttast að hún sé að missa vitið. Cliff Robertson leikur David. sem sér alls konar sýnir eftir dauða konu sinnar og þykist þess fullviss að hún sé afturgengin. NÝJA BÍÓ: Sýnir „Dominiqueu í GÆR frumsýndi Nýja bíó bandarísku kvikmyndina Dom- inique, með Cliff Robertson og Jean Simmons í aðalhlutverk- um. Leikstjóri er Micael And- erson. Handrit eftir Edward og Valerie Abraham. Tónlist eftir David Whitaker. Þvingandi andrúmsloft ríkir á heimili Ballard-hjónanna. Dominique Ballard er ekki sterk á taugum og maður hennar, David, gerir lítið til þess að bæta ástandið. Hann fer ekki í launkofa með ávirðingar henn- ar en hún vill ekkert við þær kannast. Dominique heldur því fram að hann sé að reyna að telja henni trú um að hún sé að missa minnið — og jafnvel vitið. David segir hins vegar við hálfsystur sína, Ann, sem er listakona og býr í litlu húsi á lóðinni, að Dominique verði að öðlast sjálfstraust á ný, það hafi beðið hnekki er hún varð fyrir því slysi árið áður að detta niður stiga. David býður gestum til kvöld- verðar á afmælisdegi Domin- ique til að gleðja hana og hressa. Það fer þó ekki alveg eins vel og David hafði gert sér vonir um. Dominique verður sífellt taugaóstyrkari og dag nokkurn fyrirfer hún sér í músíkher- berginu, þar sem hún hafði einkum fundið frið í píanóleik. En nú er sagan rétt að byrja: David hefur ekki lengið verið einn á báti, þegar hann þykist þess fullviss, að Dominique liggi ekki kyrr. TÓNLIST: Inger Wik- ström í Nor- rœna húsinu IIINN þekkti sænski pianóleikari Inger Wikström heldur tónleika í Norræna húsinu á mánudagskvöld 24. nóvember og hefjast þeir kl. 20.30. Inger Wikström stundaði nám í píanóleik í Stokkhólmi, Vínarborg og Lundúnum. Aðeins sextán ára að aldri kom hún fyrst fram með Fílharmóníuhljómsveit Stokkhólms, og kusu áheyrendur hana einleikara ársins 1961. Hún kom fyrst fram í London 1959 og í New York 1963 við góðan orðstír. Síðan hefur hún farið í langar hljómleikaferðir til flestra Evrópulanda, Bandarikjanna, Sov- étríkjanna, Suður-Ameríku, Israels og Kína. Hún hefur leikið á tónlist- arhátíðum í Stokkhólmi, Dubrovnik, Spoleto og Vín. Árið 1977 stofnaði hún norrænan tónlistarskóla í Öst- erkár, utan við Stokkhólm. Þetta er í fyrsta skipti, sem Inger Wikström kemur fram á íslandi, og á tónleikunum í Norræna húsinu leikur hún sónatínu eftir sænska tónskáldið Erland v. Koch og verk eftir Grieg og Sjostakovitsj og eftir hlé leikur hún ýmis þekktustu verk Chopins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.