Morgunblaðið - 19.12.1980, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 19.12.1980, Blaðsíða 30
62 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1980 Októberbíl Happdrættis DAS OKTÓBER-bíllinn í Happdrætti DAS, Peugeot 305, kom á miða númer 27430 í eigu Aðalheiðar Jónsdóttur, Hjarðar- haga 60. Á myndinni sést hún ásamt dóttur sinni, taka við bíllyklinum úr hendi framkvæmdastjóra happdrættisins, Baldvins Jónssonar. Kjarvalsstaðir: Sýning á tillögu að skipulagi Grjótaþorps AÐ KJARVALSSTÖÐUM hefur verið opnuð sýninK á nýrri tillögu að skipulagi Grjótaþorps, sem Hjörleifur Stefánsson og Peter Ottósson eru höfundar að, en tillagan miðar að verndun og endurnýjun Grjótaþorps i núverandi mynd þess. Borgarskipulag Reykjavíkur stendur að sýningunni en tillagan var unnin á vegum þess. Tillagan hefur verið rædd lítillega af viðkomandi yfirvöldum en tilgang- urinn með sýningunni er sá að gefa sem flestum kost á að kynna sér tillöguna og koma með ábendingar um það sem betur mætti fara áður en ákvarðanir eru teknar. Sigurður Harðarson, formaður skipulagsnefndar sagði í ræðu við opnun sýningarinnar, að fyrstu tillög- una að skipulagi Grjótaþorps hefði Guðjón Samúelsson, húsameistari ríkisins, gert árið 1925 og hefði þar verið gert ráð fyrir að öll húsin í Grjótaþorpinu yrðu rifin og ný sam- felld randþygging kæmi í þeirra stað. Árið 1975 hefði hins vegar mátt sjá fyrstu merki þess að mat manna á gildi gamalla húsa væri tekið að breytast því það ár kom fram tillaga sem gerði ráð fyrir að fjögur gömlu húsanna yrðu varðveitt. Hann sagði að í almennri umræðu um þá tillögu hefði komið fram greinilegur vilji til að gengið yrði mun lengra í varð- veislu húsanna og að lokinni itarlegri könnun á sögu og ástandi húsanna, sem framkvæmd var af borgarminja- verði, hafi sú skoðun orðið ofaná að varðveita bæri megnið af húsum Grjótaþorps vegna menningarsögu- legs gildis þeirra. Skipulagsnefnd samþykkti svo í apríl 1979 að gerð skyldi skipulagstillaga um verndun og endurnýjun Grjótaþorps í núver- andi mynd. Megin hugmyndin að baki skipu- lagstiilögunni er sú, að skipulags- ákvæðum verði beitt til að stuðla að því að sem flest húsin standi áfram og þeim komið i sómasamlegt horf. Á Ljósmynd: Kristinn Opnunargestir á sýningunni að Kjarvalsstöðum virða fyrir sér likan af tillögu um skipuiag Grjótaþorps. auðum lóðum verði byggð ný hús, sem taki mið af þeim sem umhverfis eru að formi til og efnisnotkun. í tillögunni er gert ráð fyrir sömu götustæðum og nú eru nema hvað Mjóstræti lengist í boga til norðurs og út á Vesturgötu. Gert er ráð fyrir einstefnuakstri frá Vesturgötu eftir Mjóstræti til suðurs og niður Fischer- sund, Bröttugötu og Grjótagötu til austurs. Yfirborð gatna í Grjótaþorpi verður valið til að undirstrika rétt gangandi vegfarenda gagnvart ak- andi umferð og stuðla að hægum akstri bíla. Tryggt verði með búnaði gatnanna að íbúar Grjótaþorps verði ekki fyrir ónæði af akandi umferð eins og stundum hefur verið seinustu árin. í tillögunni er hvatt til þess að borgaryfirvöld geri verulegt átak til þess að ganga endanlega og snyrti- lega frá öllum opinberum svæðum í Grjótaþorpi, þ.e.a.s. götum, stígum, leiksvæði, almenningsgarði o.s.frv. Jafnframt verði hafist handa um endurbætur á húsum í eigu borgar- sjóðs í Grjótaþorpi, eða ef þau verða seld, þá verði það með kvöðum sem tryggja varðveislu þeirra og viðhald um ókomin ár. Þau markmið, sem stefnt er að með tillögunni eru í meginatriðum þau að skapa heillegt hverfi, þar sem gömlu húsin skapi tóninn sem þau nýju fylgja. Gömlu húsin verði ráðandi i heildarmynd Grjótaþorpsins og að nýbyggingar verði að stærð og lögun í samræmi við þau sem fyrir eru, til þess að stuðla að þeim hlýleika sem oft einkennir gömul hverfi. Frá starfí Hjálparstofnunar norsku kirkjunnar: Um 1.600 starfs- menn annast þró- unarhjálp í Súdan í SUÐUR-SÍJDAN rekur Hjálparstofnun norsku kirkjunnar umfangsmikla þróunarhjálp, en þar hefur stofnunin verið að verki í ein 6 ár. Hjálparstofn- unin rekur þróunar- og neyðarhjálp i 17 löndum og kostaði starfsemi stofnunarinnar á síðasta ári yfir 80 milljónir norskra króna. í Súdan vinna um 1.600 manns hjá Kirkens Nödhjelp eins og stofnunin heitir á norskunni, KN, Norðmenn eru sjálfir um 40 og aðrir eru úr hópi innfæddra. Hjúkrunarfólkið heimsækir reglulega hin ýmsu þorp og er mikil áherzla lögð á bólusetningarherferðir meðai barna. Morgunblaðinu var boðið að kynnast starfsemi KN í Suður- Súdan, en Hjálparstofnun kirkj- unnar á íslandi hefur um árabil lagt fram sinn skerf til ýmis konar þróunarhjálpar víða um heim, nú síðast með Hjálparstofnun norsku kirkjunnar. Guðmundur Einars- son framkvæmdastjóri og Sigur- jón Heiðarsson skrifstofustjóri Hjálparstofnunarinnar héldu til fundar við Norðmennina fyrir nokkru og kynntu sér starfsemi þeirra og í framhaldi af ferð þeirra hefur nú verið ákveðið að Hjálparstofnunin leggi Norð- mönnum lið. Hér á eftir verður lýst nokkuð starfi Norðmannanna og glefsum úr ferð íslendinganna til Afríkulandsins. Þróunarhjálp er erfið — Við reynum að koma til hjálpar á sem flestum sviðum og er hlutverk okkar að reyna að betrumbæta lífskjör fólksins, benda því á að það sé ekki sama hvernig farið er að við ræktun kornsins, að það sé ekki sama hvernig vatn það drekkur o.s.frv., segir Per Westborg stjórnandi starfs Norðmanna í Suður-Súdan. — Þróunarhjálp er alltaf erfið og við þurfum sífellt að vega og meta hvar og hvernig við getum hjálp- að. Fólkið býr við aldagamlar hefðir og allar venjur og trúar- brögð sníða lífskjörum oft nokkuð þröngan stakk. Við þurfum að fara varlega í að breyta hugmynd- um fólksins, en það sem við leggjum áherzlu á er, að sýna fram á hvað ákveðin kunnátta í kornrækt til dæmis getur gefið mun meiri uppskeru og hvernig ákveðið hreinlæti getur fækkað sjúkdómum og veikindum. Smám saman sjá menn hvernig þessi atriði skipta máli, en það geta liðið áratugir áður en við fáum að sjá árangur af starfi okkar. Með þessum orðum yfirmanns- ins er þróunarhjálp Norömanna í Súdan sennilega bezt lýst. Þeir sjá að landið gefur ýmsa möguleika, fleiri möguleika til lífsviðurværis en innfæddir kannski hafa vitað um. Aðalbækistöðin er við þorpið Torit og hafa Norðmenn komið sér upp vistarverum fyrir starfsmenn og fjölskyldur þeirra, verkstæðum og reka sjálfir skóla fyrir börn sín, en bækistöðin heitir Hilieu. En hver eru helztu verkefni Norð- manna í Súdan? Áherzla á matvæla- framleiðslu — Síaukin áherzla er lögð á aukna matvælaframleiðslu, efl- ingu heilsugæzlu t.d. með bólu- setningarherferðum einkum með- al barna, unnið er að vatnsöflun og vegagerð og íbúunum öfluð frekari atvinnutækifæri með stofnun búgarða og iðnaðar eftir því sem við verður komið, en með þessu er hugmyndin að fólk verði sjálfu sér nógt með matvörur og annan nauðsynjavarning og þjón- ustu, segir Jon Kristian Oiestad einn starfsmanna KN í Osló, en hann var í nokkur ár starfandi í Suður-Súdan. Og til þess að sinna þessum verkefnum reka Norðmennirnir sem fyrr segir búgarða, trésmíða- verkstæði, bílaverkstæði, prent- smiðju, radíóverkstæði og fleira og fer þessi starfsemi fram bæði í Hilieu og í nokkrum þorpum í kring. Liggur starfssvæði KN syðst í landinu, austan við Níl, allt austur að landamærum Kenya og suður að landamærum Uganda. Búa um 400 þúsund manns á þessu svæði. Per Westborg rekur í nokkrum orðum aðdraganda starfsemi KN í Súdan: — Súdan verkefnið er að sumu leyti líkt öðrum verkefnum stofn- unarinnar, það byrjaði sem neyð- arhjálp og hélt síðan áfram og var skipulagt sem langtímaverkefni, en á slík verkefni höfum við viljað leggja sífellt meiri áherzlu. Á Cessna Conquest-vélin, suðurhluta Súdan. sem flutti ferðaiangana frá Nairobi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.