Morgunblaðið - 29.03.1981, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.03.1981, Blaðsíða 2
42 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MARZ 1981 Guðrún Svava og Þorbjörg Höskuldsdóttir Undanfarið hafa þær stöllur Guðrún Svava Svav- arsdóttir og Þorbjörg Hösk- uldsdóttir verið með sameig- inlega myndverkasýningu í vestri sal Kjarvalsstaða og lýkur henni nú um helgina. Þær stöllur eru mjög virk- ar í listsköpun sinni og koma víða við, mála, teikna, gera leiktjöld og búninga ásamt því að a.m.k. Þorbjörg er einn af aðstandendum brúðuleikhússins. Þetta eru þannig röskleika valkyrjur sem gefa karlpeningnum ekkert eftir nema að síður væri. — Það er stutt síðan ég skrifaði um myndir Guðrún- ar Svövu er til sýnis voru í Listmunahúsinu við Lækjar- götu og gæti sumt af mynd- um hennar á þessari sýningu rímað við þá umsögn mína og þá einkum olíumálverk í hlutbundnum stíl. Þó má merkja töluverða tæknilega framför í ýmsum myndanna og vil ég þá helst nefna myndina „Börnin okkar" (12), þar sem fram kemur falleg en dálítið köld grá- tónaheild á móti óranslitum handleggjum, sem taka full mikið í, þ.e. liturinn er of sterkur eða öllu heldur hrár á móti grátónaheildinni þannig að augað leitar of mikið til handleggjanna í stað þess að nema myndina í heild. En fyrirtækið er mjög djarft og sem slíkt virð- ingarvert. A sýningunni eru nokkrar myndraðir í olíu á striga og teikningum er listakonan nefnir „Myndraðir um frelsi". Þar kemur það fram er ég hefi áður látið hafa eftir mér um þessa listakonu að hin fíngerðu kvenlegu blæbrigði eru sterkasta hlið hennar. Það er t.d. miklu meiri fínleiki og samræmi í myndum nr. 15 og 16 en t.d. 17 og 18, sem virka mun hrárri í útfærslu allri. Þetta sama kemur fram í teikningum nr. 19 og 21, sem mér þykja fíngerðastar, blæ- brigðaríkastar og um leið áhrifamestar teikninganna. — Það er auðséð að Guð- rún Svava er í sókn sem málari en hún mætti gjarnan fara sér hægar og þraut- vinna myndirnar, — treysta á köflum meir á eigin augu og hendur en myndvörpuna. — Þorbjörg Höskulds- dóttir er traustur málari, sem hefur haslað sér völl á dálítið óvenjulegu sviði og myndsvið hennar virðist komið í full fastar skorður, má vera að hún dreifi kröft- um sínum um of. Teiknari er hún líka ágætur og í heild bera myndir hennar þess vitni, að hún er mun meira skóluð en stallsystir hennar og mega menn meta það og skilja svo sem þeir vilja. Tíglar einkenna mjög myndir Þorbjargar enda seg- ist hún vera að flísaleggja náttúruna(I), einnig eru myndir hennar mjög arki- tektónískar í byggingu og hugsun, enda mun hún njóta aðdáunar í röðum húsa- meistara er festa sér vísast óspart myndir hennar. I málverki sínu „Öng- þveiti" (11) virðist hún vera Myndllst eftir BRAGA ÁSGEIRSSON að reyna fyrir sér á nýju myndsviði og ferst það vel úr hendi, myndin er kröftug, vel uppbyggð og skemmtilega klassísk í myndhugsun. Myndir Þorbjargar í blandaðri tækni þóttu mér hrifmestar, t.d. myndirnar „Út“ (12), „Fjallagólf" (15), „Eldfjallið" (21), „Jökullinn“ (22) og „Frumdrög“ 22—25. Myndin „Eldfjallið" er mjög skemmtilega uppbyggð mynd þar sem bestu eðliskostir listakonunnar fá notið sín og gaman væri ef hún útfærði hana í málverki af sömu nákvæmni þótt ekki þori ég að spá um árangurinn, því að það breytist svo margt við stækkun forma. — Dregið saman í hnot- skurn þá hefði mátt vera meiri slagkraftur í sýning- unni í heild og má það sumpart skrifast á kostnað upphengingarinnar, sem er full eintóna og bragðdauf. Það er líkast sem sumir forðist hið óvænta sem heit- an eld, — allt á að vera opið, rétt og slétt. — Þetta er sýning sem fyllilega á það skilið að vera skoðuð og vonandi fjölmenn- ir fólk á Kjarvalsstaði um helgina því þar er margt að skoða um þessar mundir. Bjóðum stoltir PENTAX Landsins mesta úrval af Ijós- myndavörum. MX, MV, ME, ME Super og loksins PENTAX LX. Greiöslukjör Versliö hjá fag- manninum LJOSMYNDAÞJONUSTAN S.F. LAUGAVEGI 178 REYKJAVIK SIMI85811 Vilja lögleiðingu bílbelta NÝLEGA hélt klúbburinn ör- uggur akstur i Reykjavik 15. umferðarmálafund sinn frá ár- inu 1966. Var hann haldinn i Súlnasal Hótel Söjíu ojí sóttur af rétt um 250 manns. Að loknu ávarpi formanns klúbbsins, Gísla Björnssonar lög- reglufulltrúa, fór fram hefðbundin verðlaunamerkjaafhending Sam- vinnutrygginga fyrir öruggan akstur. Arið 1980 hlutu 312 bif- reiðaeigendur 5 ára viðurkenn- ingu, en 97 10 ára verðlaun, 34 20 ára og 2 30 ára verðlaun að þessu sinni. Geta má þess, að 10 ára áföngunum fylgir iðgjaldsfrí ábyrgðartrygging viðkomandi ökutækis 11. árið. Aðal umræðuefni fundarins var svo umræða um bílbeltin eða öryggisbelti, eins og sumir nefna þau, kosti þeirra og hugsanlega galla. Fór málflutningur aðallega fram í formi spurninga og svara. Að loknum umræðum var eftir- farandi tillaga frá stjórn klúbbs- ins samþykkt einróma gegn 2 mótatkvæðum: „Almennur umferðamálafundur á vegum klúbbsins öruggur akst- ur í Reykjavík, haldinn að Hótel Sögu 18. marz 1981, skorar á dómsmálaráðherra að beita sér fyrir því, að notkun bílbelta verði lögfest á yfirstandandi þingi.“ Stjórn klúbbsins var öll endur- kjörin, og skipa hana þessir: Gísli Björnsson, lögreglufulltrúi, for- maður, Gísli Kárason, bifreiða- stjóri og Guðmundur Höskulds- son, tryggingafulltrúi. Varamenn eru: Ulfur Markússon, fram- kvæmdastjóri og Ólafur Einars- son, kennari. Fundarstjóri þessa fundar var Baldvin Þ. Kristjánsson, en fund- arritari Guðmundur Höskuldsson. Stykkishólmur: W kaupmenn- verslunarstjórar AVEXTIR IKUKKAR Epll rauö - Epli græn - Epll dönsk - Appelsínur - Blóö appelsínur - Srtrónur - Greipaldin - Vínber græn - Vínber blá - Perur - Melónur - Plómur - Pomelos - Jaröarber - Kiwi - Ananas - Bananar - Klementfnur Jaffa ERT KRISTJAIMSSON HF 4, sími 85300 Isinn á för- um og allir bátar á sjó Stykkishólmi. 27. marz. í DAG hefur verið hér sól og blíða og hið bezta veður eftir hina löngu tíð umhleypinga. ísinn er nú að gisna mjög í höfninni og er hann á förum af firðinum. Allir bátar fóru á sjó og vonum við nú að sumarið sé í nánd. Ættu bátar þá að geta farið að stunda róðra daglega og vitja neta. Fréttaritari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.