Morgunblaðið - 05.05.1981, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 05.05.1981, Blaðsíða 12
ERLENDAR BÆKUR 12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1981 Einkennilegar sumar bækur sem hefjast til vegs á metsölulist- unum í útlöndum. Sophia’s Choice kom út í Bandaríkjunum fyrir fjórum árum og var þar í efsta og efri sætum metsölulistanna svo mánuðum skipti. Vegna þess hve stór hún er og umfangsmikil lagði ég ekki í að lesa haná fyrr en nú að bókaútgáfan Lindhardt og Ring- hof í Danmörku taldi ástæðu til að gefa hana út þar í landi og sendi til umsagnar. Bókin hefur af ýmsum gagnrýn- endum verið hafin til skýja, þeir segja þetta sé ein helzta skáldsaga áttunda áratugsins, ekki aðeins hvað varðar texta hennar heldur varðandi boðskapinn um vald hins illa og hvernig valdið brýtur niður einstaklinginn, sagt er að bókin sé vitnisburður um sök og ábyrgð mannsins. Aðrir tala um hversu máttug hún sé og hún sé í reynd tilraun sem gangi út á það hvað skáldsagan sem form geti borið og boðið og víst tefli höfundurinn djarft — tilfinningalega, siðfræði- lega og ég veit ekki hvað. Að þessu sögðu er rétt að víkja að því að sögusviðið er ódýrt pensjónat í Brooklyn. Árið er 1947. Stingo er ungur og bjartsýnn höfundur, ættaður frá Virginiu, hann er að reyna að skrifa sína fyrstu bók. Hugmyndaflug hans hlýtur verulega örvun þegar hann kemst í kynni við Sophie, fallega pólska stúlku sem býr með banda- rískum vini sínum, Nathan, á hæðinni fyrir ofan. Þegar þau elskast ekki svo að allt ætlar um koll að keyra, rífast þau og slást svo að allt ætlar um koll að keyra. Rifrildin eru jafnan vakin af því hinu sama, sektarkennd, sem bæði bera í sér: Sophie finnur til sektar vegna þess að hún komst lifandi af úr útrýmingarbúðum nazista í Birkenau og Auschwitz (hún er reyndar ekki Gyðingur) og Natan vegna þess að hann sem banda- rískur Gyðingur hefur lifað góðu lífi í Bandaríkjunum samtíma því að milljónum Gyðinga var útrýmt, Gagnkvæmar ásakanir þeirra verða til þess eins að auka á samvizkukvöl þeirra og rekur þau að lokum til sameiginlegrar af- drifaríkrar ákvörðunar. Það er þessa sögu sem Stingo er að segja í bók sinni sem er upp á á sjötta hundrað blaðsíðna með smáu letri og ég þurfti að hafa óendanlega mikið fyrir að klöngr- ast í gegnum þetta meistara- stykki. Jóhanna Kristjónsdóttir Val, Soffíu eftir William Styron Krufning bandarískra lífshátta Dodge (Steindór Hjörleifsson). LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR: BARN í GARÐINUM. Höfundur: Sam Shepard. Þýðing: Birgir Sigurðsson. Lýsing: Daníel Williamsson. Leikmynd og húningar: Þórunn S. I>orgrím.sdóttir. Leikstjórn: Stefán Baldursson. Sam Shepard mun hafa mótast af lífsviðhorfum og skáldskap beatkynslóðarinnar: skáldsögum Jacks Kerouacs sem skrifaði On the Road (1958) og ljóðum Allens Ginsbergs. Kunnasta ljóð Gins- bergs: Howl (1956) hefst á orðun- um: I saw the best minds of my generation destroyed by madness, starving hysterical naked. Shepard hefur gengið í skóla utangarðsmanna með tilheyrandi flökkulífi. Það er því engin tilvilj- un að efni leikrita hans er oft sótt í nöturlegustu hliðar bandarísks samfélags. Með sýningu Leikfélags Reykja- vtkur á Barn í garðinum, Buried Child (1979) er stigið markvert spor í þá átt að halda áfram kynningu nútímaleikritunar. Leikritið fékk hin eftirsóttu Pul- itzerverðlaun sem besta leikrit eftir Bandaríkjamann 1979. Að mínu viti sameinar Sam Shepard eftirminnilega ýmsar evrópskar hneigðir absúrdleikrit- unar og leikritun sem er í eðli sínu ákaflega bandarísk þótt efnið hafi verið fyrirferðarmeira í skáldsögum, til ;.ð mynda hjá John Steinbeck og Erskine Cald- well, samanber leikgerð eftir sögu hins síðarnefnda: Tobacco Road. Eftir Barni í garðinum að dæma verður Shepard naumast kallaður ádeiluhöfundur, en verk hans er krufning bandarískra lífshátta og spegilmynd þess hvernig mann- legt eðli birtist í umhverfi sem er fyrst og fremst bandarískt. Barn í garðinum gefur nokkra vísbendingu um leikritagerð Shepards. Leikrit hans eru frem- ur lauslega hnýtt saman, byggja einkum á orðum og stemmningu. Upphaf Barns í garðinum sýnir Dodge einan á sviðinu, ósjálf- bjarga liggjandi í sófa. Að ofan berst rödd Halie konu hans. Sá gamli hefur meiri áhuga á viskí- inu sínu en orðræðum við konu sína. í þessu atriði er kyrrstaða, lítil hreyfing. En í því er inngang- ur verksins, áhorfandinn getur byrjað að geta í eyðurnar sem eru margar í verkinu. Shepard leitast við að vekja ímyndunarafl fólks, fá það til að raða saman brotum og mynda heild. Menn geta verið ósammála um hvernig honum tekst þetta, en eins og mörg Ijóðskáld gætir hann þess að segja ekki of mikið. Bókmenntlr eftir JÓHANN HJÁLMARSSON Dodge, kona hans og synir eru dæmigerð hnignunarfjölskylda. Halie lifir að vísu enn í blekking- unni um forna dýrðardaga þegar synir hennar voru afreksmenn í íþróttum, en innst inni veit hún hvernig komið er og hefur líka gefist upp. Óvænt heimsókn son- arsonar þeirra hjóna og fylgikonu hans verður til þess að fjöiskyldu- leyndarmál er opinberað, en það snýst um greftrun barns svo ekki sé meira sagt. Tilden, elsti sonurinn, er orðinn ruglaður af einhverjum ástæðum og er sífellt að grafa í garðinum í óþökk foreldra sinna og Bradleys bróður síns sem er fatlað rusta- menni. Vince sonur hans, þ.e.a.s. glataði sonurinn, virðist í fyrstu venjulegur ungur maður sem lagst hefur í flakk, en það kemur á daginn að hann er hold af holdi og blóð af blóði þessarar úrkynj- uðu fjölskyldu og reiðubúinn til að taka upp ónytjungshátt afa síns að honum látnum. Shelly, vinkona Vince, er af öðru sauðarhúsi en hann, enda flýr hún eftir stutt kynni af fjölskyldunni. Séra Dewis er per- sóna sem kemur dálítið við sögu, en frá höfundarins hendi fremur veikgerð og alltof hefðbundin í slíku verki. Samvinna þeirra Stefáns Bald- urssonar og Þórunnar S. Þor- grímsdóttur er löngu kunn og hefur verið árangursrík. Þau bregðast ekki frekar en endranær. Ég hefði að vísu kosið að leik- stjórinn hefði tamið sér meiri hnitmiðun, sumt er einum of laust í böndum þótt kenna megi höf- undinum um það. Leikmynd Þór- unnar S. Þorgrímsdóttur er ekki jafn fjölbreytileg eins og oft áður hjá henni, en undirstrikar firrtan og vonlausan heim persónanna undir merkjum einfaldleikans. Ég veit ekki hvort stiginn er ein- göngu hennar verk, bilið milli þess sem er uppi og niðri, en óneitanlega er sú lausn snjöll. Birgir Sigurðsspn hefur þýtt Barn í garðinum. Án samanburð- ar við frumgerð er hér um að ræða góðan lífrænan texta sem er sýningunni styrkur. Það er með ólíkindum hve Steindóri Hjörleifssyni tekst vel að túlka Dodge, einkum í niður- lægingu hans og sjúkleika. Engu að síður verður túlkun Margrétar Ólafsdóttur á Halie það sem maður man einna best, tvíbentri persónunni gerir hún slík skil. Þorsteinn Gunnarsson sést ekki nógu oft á sviði, en nú stjórnar hann Leikfélagi Reykjavíkur ásamt Stefáni Baldurssyni. Tilden Þorsteins var óhugnanlegur í geggjun sinni, vitnisburður um mann sem glatað hefur öllu og æðir um eins og hrætt, en um leið grimmt dýr. Annar góður leikari sem engan svíkur er Sigurður Karlsson í hlutverki Bradleys. Hann hefði samt mátt gretta sig minna. Hjalti Rögnvaldsson túlkar Vince og sýnir okkur undir yfir- borð persónunnar sem er afinn Dodge endurborinn. I hlutverki Shelly er Hanna María Karlsdóttir. Ekki verður annað sagt en hún nái æskilegum tökum á þessari stúlku, afkvæmi hippatímabilsins. Hljómlítil rödd háði henni að vísu lítillega. Guðmundur Pálsson er oft lag- inn við hlutverk sem ekki eru stór í sniðum. Prestinn Dewis túlkaði hann á sinn ísmeygilega hátt og gerði raunverulega meira úr hon- um en ætlast mátti til sé persónu- sköpun höfundar með í dæminu. Sýningin naut lýsingar Daníels Williamssonar. Svo að þess sé getið sem vel er gert skal að lokum minnt á leikskrá. Páll Baldvin Baldvins- son gerir grein fyrir Sam Shepard og leikritum hans í fróðlegri grein, en af henni er því miður þýðingarkeimur, málfarið stirt. Kaflarnir úr Rolling Thunder Logbook eftir Sam Shepard sem fjalla um hljómleikaferðalag um Bandaríkin með Bob Dylan, Joan Baez, Allen Ginsberg o.fl. eru skemmtilegir, en hefðu þurft á betri íslenskun að halda. Dæmi er þýðing á Ijóði Sam Shepards um fæðingarbæ Jacks Kerouacs: Low- ell. En viðleitnin til að kynna rækilega Sam Shepard er góðra gjalda verð. Sýning Eiríks Smith Það var eitthvað óvenjulegt, merkilegt og mikið að gerast, er mig bar að garði á opnun sýn- ingar Kiriks Smith að Kjarvals- stöðum á dögunum. Liðin var þá rúm klukkustund frá því að listamaður lauk upp dyrunum inn á sýninguna, og þó var þar ennþá múgur og margmenni og löng biðröð ákafra kaupenda við af- greiðsluborðið. Mér tókst með erfiðismunum að mjaka mér einn skoðunarhring og var þá sannast mála búinn að fá nóg. Kann mig lítt í margmenni á sýningum og er því sjaldan viðstaddur opnanir þeirra enda fær maður þá rétt nasasjón af því, er til sýnis er hverju sinni. Þykir mér farsælla að koma á þeim tímum er fæstir eru gestirnir og helst vera einn með myndunum. Ég hélt því fljótlega á brott en kom aftur um kvöldmatarleytið, er. viti menn, ennþá var töluvert af fólki í Kjarvalssal þar sem sýningin er uppi, sem er mjög óvenjulegt á þeim tíma, jafnvel á fyrsta degi. Var mér tjáð, að stöðugur straumur hafi verið á sýninguna allan daginn. Rauðir miðar undir fjölda mynda báru vott um vel- gengni sýningarinnar enda mun hér hafa verið sett met hvað myndasölu snertir á fyrsta degi. Ekki þó hvað fjölda mynda snert- ir því að Guðmundur Erró mun hafa selt 74 myndir við opnun fyrstu sýningar sinnar í Lista- mannaskálanum við Kirkju- stræti. En þá var að miklum hluta um smámyndir að ræða, en slíkum er ekki til að dreifa á sýningu Eiríks Smith. Verður því að telja, að Eiríkur standi með pálmann í höndunum og er þetta jafnvel hliðstæða hinnar frægu Kjarvalssýningar í Listamannaskálanum í febrúar árið 1945 er slegist var um myndir hans. En myndir Kjar- vals voru stórum færri enda seldust þær allar sem ein. í báðum tilvikum líktist það einna helst sprengingu er dyr voru opnaðar og fólk ruddist inn og var líkast því sem stífla hefði brostið. Þegar slíkt skeður grípur fólk þvílíkt æði, að það festir sér myndir eftir fyrsta augnakast og án nokkurrar yfirvegunar enda telur það mikið í húfi. Það er vissulega ástæða til að óska Eiríki til hamingju með viðtök- urnar. Ýmsar spurningar sækja ann- ars stíft á er slík ósköp gerast, sem ekki er mögulegt að skil- greina né svara í stuttu máli. Þó er eitt alveg víst og það er, að íslenzkur listaverkamarkaður lýtur allt öðrum lögmálum en gerist erlendis og er mikil spurn hvort hér sé um nokkur lögmál að ræða. Ég hef t.d. orðið var við það á uppboðum, að ágætar teikn- ingar umrædds listamanns hafa selst á því er nemur 10—20% af eðlilegu markaðsverði og grafík- myndir eftir Erró hafa selst á þreföldu verði þess sem hægt var á sama tíma að fá þær á hjá útgefanda myndanna hér í borg, Konráði Axelssyni í „Myndkynn- ingu“. Slík hringavitleysa er nær óhugsandi erlendis. Þá virðast góðir listdómar og umsagnir um einstaka listamenn hér- og er- lendis hafa næsta lítið að segja, alveg andstætt því sem var í gamla daga er menn urðu heims- frægir hér heima ef vinsamleg smáklausa birtist um þá í erlendu blaði. En hið síðastnefnda er að vissu marki framför og ber vott um aukið traust almennings á eigin dómgreind. Áður en vikið er að sjálfri sýningunni er ekki úr vegi að minnast lítilsháttar á frumraun Eiríks á sýningarvettvangi, en það var í Listamannaskálanum gamla árið 1952. Hann fyllti skálann í hólf og gólf enda jafnan verið mjög atorkusamur og hugs- að stórt — en hér var um Myndllst eftir BRAGA ÁSGEIRSSON óhlutlægar myndir að ræða er menn skildu lítt í þá daga. Afraksturinn var sá, að Eiríkur seldi eina ofurlitla mynd og varð svo að slá lán fyrir vörubíl með myndirnar aftur til Hafnarfjarð- ar að sýningunni lokinni! Samkvæmt öllum lögmálum heimsmarkaðarins, ættu þessar gömlu myndir Eiríks að vera mjög verðmætar í dag en mér er stórlega til efs að svo sé á vettvangi íslenzks myndlistar- markaðar, a.m.k hvað peninga- fejald áhrærir. Þá væri í hæsta máta eðlilegt ef að verðgildi þekktustu mynda gömlu meistar- anna, Ásgríms, Jóns Stefánsson- ar og Kjarvals, væri svipað og

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.