Morgunblaðið - 19.01.1982, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 19.01.1982, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1982 35 ÞARFTU AÐ KAUPA? ÆTLARÐU AÐ SELJA? Þl AIGLYSIR L'M ALLT I.AND ÞF.GAR Þl AI GLYSIR I MORGI NBLADINI Svanur Laurence Herbertsson - Kveöja Fæddur 27. nóvember 1950 Dáinn 7. janúar 1982 Mig langar með nokkrum orðum að minnast vinar okkar hjónanna, Svans Herbertssonar. Okkur setti hljóð þegar okkur barst sú harma- fregn að vinur okkar, Svanur, hefði látist af slysförum þann 7. jan. Hann var góður drengur og vinur vina sinna. Við kynntumst honum fyrst þegar þau hjónin fluttu í sama stigagang og við í Hraunbæ. Hann var alltaf kátur og hress. Síðan lá leið okkar hjón- anna til Keflavíkur og fluttust Svanur og Magga u.þ.b. hálfu ári seinna hingað til Keflavíkur og var þá mikill samgangur á milli. Alltaf var Svanur reiðubúinn að hjálpa ef hann var beðinn. Elsku Magga mín, Patrick litli, Sirrý, Eva Lísa, Jenny og Herbert, megi Guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg. „Jesús, hróóir vor og frt-lsari, þu þekkir dánarheiminn. Kylgdu vini vorum, þegar vér getum ekki fylgst mt*d honum lengur. Miskunnsami andi, tak á móti honum vertu meó oss. Amen." Gulla og Villi Gunnar Kristinsson frá Múla — Minning Fæddur 23. september 1913 Dáinn ll.janúar 1982 Við kveðjum í dag Gunnar Kristinsson, fyrrverandi fanga- vörð frá Múla við Suðurlands- braut, við það býli var hann ætíð kenndur þó svo að hin síðustu ár hafi hann búið að Sunnuvegi 15 hér í borg. Gunnar var fæddur í Grímstungu í Vatnsdal og voru foreldrar hans Kristinn Bjarna- son og Kristín Sölvadóttir. Á uppvaxtarárum sínum vann Gunnar við öll venjuleg störf til sjávar og sveita, bæði við sjósókn í Vestmannaeyjum og landbúnað- arstörf á Korpúlfsstöðum hjá Thor Jensen, einnig um eitthvert skeið í Danmörku. Síðar gerðist hann starfsmaður og verkstjóri hjá Vitamálastofnuninni og vöru- flutningabílstjóri í Reykjavík, en síðast, 1953, gerðist hann fanga- vörður við Hegningarhúsið í Reykjavík og vorum við þar sam- starfsmenn í 23 ár. Frá þeim árum lifa í huga mínum margar góðar og hlýjar minningar um góðan dreng, sem ævinlega var léttur og kátur í viðmóti, en þó ákveðinn og öruggur í starfi. Gunnar var mörgum góðum eig- inleikum gæddur, skarpgreindur maður, víðlesinn og minnugur með afbrigðum, hann var skáldmæltur vel eins og faðir hans og systkini, og hélt þeirri náðargáfu allt til hinstu stundar. Við fyrstu kynni virtist Gunnar vera heldur þurr á manninn, en hann leyfði engum að ná vinskap sínum nema þeim, sem hann vildi eiga fyrir vini, en hann var vin- margur, ráðhollur og hjálpsamur er þvi var að skipta. Hinn 30. okt. 1937 var sérstakur hamingjudagur í lífi Gunnars, en þá gekk hann að eiga eftirlifandi konu sína, Svan- hildi Guðmundsdóttur frá Múla, sérstaka myndar- og mannkosta- konu, sem alla tíð reyndist honum hinn sanni og tryggi lífsförunaut- ur, og nú hin síðustu ár, sýndi honum í veikindum hans alveg sérstaka umhyggju og ástúð, þeg- ar heilsunni var orðið þannig farið að hann tæplega komst hjálpar- laust á milli herbergja, þá var það Svanhildur, sem hann batt allar sínar vonir við; gæfudrottningin, eins og hann sjálfur nefndi hana í sinni síðustu vísu, sem hann orti til hennar 4. janúar, en hún ber einmitt vott um þakklæti hans fyrir þá umönnun, sem hún sýndi honum í hverju sem var. Við þig allar vonir bind, s< m vakna í lilverunni. (■eymi í hjarla gullna mynd af jræfudrottnin^unni. Já, Svanhildur var hans gæfu- drottning, þau voru mjög samrýnd og samhent um alla hluti og bar aldrei neitt þar á milli, sem ekki var jafnað. Þeim varð 4 barna auðið, sem öll eru hin mannvæn- legustu og bera foreldrum sínum fagurt vitni. Dauða Gunnars bar að með þeim hætti, að hann varð bráð- kvaddur við hlið konu sinnar, þar sem þau voru á ferð í borginni í bíl sínum, fyrirvaralaust kom skiln- aðarstundin og batt endi á sam- ræður þeirra um þá hluti, sem fyrir augun bar á leið þeirra, já, svo fyrirvaralaust stóð sæmdar- maðurinn Gunnar Kristinsson á mótum tveggja heima, jarðneskri vegferð var lokið í þeirri andrá sem ný veröld opnaðist, ósýnileg veröld bak við það fortjald, sem heimana skilur. Nú að leiðarlokum, þegar ég kveð vin minn Gunnar Kristins- son, vil ég þakka honum alla hans tryggð og þann vinskap, sem hann sýndi mér, allt frá fyrstu kynnum, og ég bið algóðan Guð að styrkja hann og leiða í þeirri veröld, sem honum hefur nú opnast. Konunni hans, börnum og öðrum ástvinum votta ég mína dýpstu samúð og bið þeim allrar blessunar Guðs og handleiðslu. Yaldemar Guðmundsson Birting afmœlis- og minningar- greina ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðst- ætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendi- bréfsformi. Þess skal einnig get- ið, af marggefnu tilefni, að frum- ort Ijóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum Morgunblaðsins. Ilandrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.