Morgunblaðið - 26.03.1982, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 26.03.1982, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1982 31 wm hi. H H pt -njr/r 0 m fZhpHTr 1 , Cbfe'e if i mkým * ■ É Fram vann sinn fyrsta stórsigur í körfuknattleik — en KR veitti mikla mótspyrnu undir lokin FRAM SIGRAÐI KR 68—66 í úrslitum bikarkeppni KKÍ í gærkvöldi, tryggði sér þannig bikarinn, mikil sárabót eftir aö Njarðvikingar tóku Islandsbikar- inn, en Fram veitti liðinu lengst af geysilega keppni og var að marga mati ekki síðra lið, jafnvel betra. En úrslitaleikurinn í gærkvöldi var hörkuspenn- andi, nákvæmlega eins og úrslitaleikir eiga að vera. Hið lága skor undirstrik- ar hina stórkostiegu baráttu sem fór fram inni á vellinum, en KK-ingar náðu að breyta nánast gertapaðri stöðu í góða sigurstöðu. Var geysileg spenna allan síðari hálfleikinn, en KR vantaði ávallt herslumuninn. Staðan í hálfleik var 38—26 fyrir Fram. í fyrri hálfleik leit ekki út fyrir mikla spennu, Framarar höfðu gífurlega yfirburði og náðu mest 21 stigs forystu, 35—14, er fimm- tán mínútur voru liðnar af leikn- um. Léku þeir KR-inga afar grátt þennan fyrsta stundarfjórðung og gerðu hverja körfuna aðra glæsi- legri á sama tíma og allt mistókst hjá KR-ingum. En síðustu fimm mínútur hálfleiksins tóku KR-ingar sig saman í andlitinu og fóru að síga á brattann. Náðu þeir að minnka muninn í 12 stig og voru raunar óheppnir að minnka hann enn meira gegn dofnandi Fram-liði. Framarar skoruðu fyrstu körfu síðari hálfleiks, en síðan tóku KR-ingar upp þráðinn að nýju og minnkuðu muninn jafnt og þétt. Nærri miðjum hálfleiknum mun- aði aðeins fjórum stigum, 44—40, en góður kippur Framara endur- nýjaði forystuna í 52—43. Þá voru 10 mínútur eftir, en Símon Ólafs- son hins vegar kominn með 4 vill- ur. Fór baráttan nú harðandi og undir lok leiksins hófu KR-ingar að leika maður á mann í vörninni þegar staðan var 64—59 fyrir Fram. KR-ingar skoruðu, 64—61, er 1,14 var eftir. Framarar misstu knöttinn í næstu sókn sinni og Páll Kolbeinsson brunaði upp og skoraði, auk þess sem hann fiskaði vítaskot, möguleika á að jafna. En skotið geigaði og nokkrum sek- úndum síðar fékk hann sína fimmtu villu. En spennan var enn gífurleg, allt gat enn gerst. Og það sem gerðist var, að Val Bracey fékk frábæra sendingu undir körfu KR og innsiglaði sigur sinna manna, því aðeins 19 sekúndur lifðu af leiknum er hann skoraði og breytti stöðunni í 66—63. Jón Sig. fékk tvö vítaskot, hitti bara úr einu og Símon átti lokaorðið í leiknum er hann skoraði síðustu körfuna fyrir Fram. Lið Fram var eftir atvikum vel að sigrinum komið, virkaði ívið heilsteyptara, auk þess sem körfu- knattleikur sá er liðið leikur er áferðarfallegri en hjá KR. Val Bracy fór á kostum. Framan af hefði hann mátt hitta aðeins bet- ur, en undir lokin er mikið lá við fóru skot hans á réttan stað. En Fram-liðið var allt mjög jafnt, all- ir lögðust á eitt og eiga allir hrós I>AÐ VAR mikil stemmning inn í búningsklefa Fram eftir að sigurinn á KR var í höfn. Leikmenn skáluðu í kampavini og iéku við hvern sinn fingur. Fyrsti stóri sigur körfuknatt- leiksdeildar Fram var i höfn. Kolheinn Kristinsson, þjálf- ari Fram sagði eftir leikinn: — Ég var alltaf hræddur við að við myndum fá bakslag í leiknum eftir það stóra for- skot sem við náðum í fyrri hálfleiknum. En sem betur fer réði það nú ekki úrslitum. Ég tel að Fram sé með sterkasta lið á íslandi i dag í körfuknattleik og strákarnir eru vel að sigrinum komnir. Það er sérlega gott að vinna með þeim. Við getum verið SVISSNESKA stulkan Erika Hess hefur forystu í stigakeppni heims- bikarkeppninnar á skíðum, en hún hefur 297 stig. Vestur-þýska stúlkan Irene Epple er í öðru sæti með 278 stig, en ('hristine Cooper frá Banda- rikjunum er í þriðja sætinu með 183 stig. skilið, þó er helst að geta Símons og Þorvalds. Stu Johnson var at- kvæðamestur hjá KR, en hittni hans var ekki góð nema á köflum. STIG FRAM: Val Bracey 24, Sím- on Ólafsson 16, Þorvaldur Geirs- son 10, Viðar Þorkelsson 8, Ómar Þráinsson 6, Guðsteinn Ingi- marsson og Björn Magnússon 2 stig hvor. STIG KR: Stu Johnson 25, Jón Sigurðsson 13, Birgir Mikaelsson 10, Garðar Jóhannsson, Kristján Oddsson og Páll Kolbeinsson 6 hver. — gg- ánægðir með vetunnn. Að mínum dómi á að hvíla er- lenda leikmenn alveg á næsta keppnistímabili. Þeir eru alltof dýrir fyrir félögin. Símon Olafsson, hinn sterki leikmaður Fram sagði: — Það hefði allt getað gerst í lokin á leiknum. Ég var alveg logandi hræddur um að KR myndi jafna og taka foryst- una af okkur. KR-ingar gef- ast aldrei upp í svona leikj- um. Það var orðin mikil pressa á okkur. Leikmenn okkar vantar meiri reynslu í svona leiki. Persónulega tel ég að við séum með sterkasta liðið í dag í körfunni þrátt fyrir að við sigruðum. Eftir stórsvigskeppnina í Sans- icario í vikunni er Irene Epple hins vegar með forystu í stiga- keppni stórsvigsins, hún hefur 120 stig, en systir hennar Marie Epple er í 2. sæti með 110 stig. Erika Hess kemur þar í þriðja sætinu með 105 stig. „Leikmenn KR gefast aldrei upp í svona leik“ — sagði Símon Ólafsson Fram - ÞR Erika Hess leiðir enn stigakeppnina Bikarkeppni HSÍ: Þróttur gegn Víkingi í Höllinni í TVEIK leikir fóru fram i 2. deild íslandsmótsins í handknattleik í gærkvöldi. Týr sigraði Þór í Vest- mannaeyjum 21 — 18, staóan í hálf- leik 12—10. Sigurlás var markhæst- ur hjá Tý með 7 mörk, Karl Jónsson skoraði 5 mörk fyrir Þór. Þá sigraði ÍR lið UBK 16—15 að Varmá, staðan í hálfleik var 10—9 fyrir ÍR. kvöld í kvöld fer fram stórleikur í bik- arkeppni HSÍ, Þróttur og Vikingur eigast við í Laugardalshöllinni og hefst leikurinn eftir því sem Mbl. kemst næst klukkan 20. Þróttur er bikarhafinn, Víkingur hins vegar Ís- landsmeistari og liðið sem tapaði i úrslitunum gegn Þrótti í fyrra. KR bikarmeistari í kvennaflokki KR VARÐ bikarmeistari í körfu- I knattleik kvenna í gærkvöldi er liðið sigraði ÍS í frekar jöfnum og spenn- andi úrslitaleik. Lokatölur leiksins urðu 58—51 fyrir KR, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 17—15 fyrir KR. KR varð fyrir skömmu íslands- meistari og hefur liðið því unnið tvö- falt á þessu keppnistímabili. Mikil taugaspenna einkenndi leik beggja liða í fyrri hálfleik, en ÍS byrjaði þó betur, komst í 4—0. En hittni beggja liða var afar slæm og um miðjan hálfleikinn var staðan aðeins 6—6. KR-ingar sigu hins vegar fram úr næstu mínúturnar, náðu þokkalegum kafla og breyttu stöðunni í 13—8. IS náði hins vegar að rétta aðeins úr kútnum fyrir leikhlé, minnkaði muninn niður í tvö stig, hálfleiks- tölur 17-15. IS byrjaði síðari hálfleikinn vel, náði að jafna í 17—17 og síðan var jafnt allt upp í 21—21, en þá sigu KR-stúlkurnar fram úr á nýjan leik og um miðjan hálfleikinn var staðan orðin 36—27. ÍS-stúlkurnar gáfust ekki upp, náðu að minnka muninn talsvert, niður í þetta 4—6 stig, en fyrir stórleik Emilíu héldu KR-stúlkurnar fengnum hlut og tryggðu sér eftir atvikum sanngjarnan sigur, 58—51. Emilía og Linda báru mjög af í liði KR og voru reyndar bestar á vellinum. Einnig átti Björg ágæta spretti í síöari hálfleik. Hjá ÍS bar Guðríður af. Stig KR: Emilía 25, Linda 17, Björg 6, Erna og Sigrún 4 hvor og Gunnhildur 2. Stig ÍS: Guðríður 17, Guðný og Þórdís 9 hvor, Kolbrún J. 6, Kol- brún L. og Þórunn 4 hvor og Mar- grét 2 stig. Leikinn dæmdu Kristbjörn Al- bertsson og Gunnar Valgeirsson. Aðalsteinn Thorarensen og Valur Árnason í starfs- fræðslu hjá Mbl. Einar Bollason: „Forskotið náði var of - FORSKOTIÐ sem Fram náði í fyrri hálfleik var of stórt. Við veðjuð- um á vitlausan hest þegar við hófum að leika „maður á mann“-vörn í fyrri hálfleiknum. Hún gekk ekki nægilega vel, sagði Kolbeinn Páis- son, liðsstjóri KR-inga. — Við komum betur út með svæðisvörn. l>essi leikur hefði getað endað á hvorn veginn sem var, úr því sem komið var undir lokin. Að mínum dómi undirstrikar þessi leik- ur líka vel, að dómarar okkar eru ekki hæfir til þess að dæma svona úrslitalciki svo vel fari. Þeir hafa hreinlega ekki hæfileika til þess. Það er of mikið ósamræmi í dómum þeirra. Páll Kolbeinsson, yngsti leik- maður KR, sagði eftir leikinn: — Leikmenn Fram voru þrælgóðir framan af og þá réðum við ekkert við þá. En svo jafnaðist leikurinn og við áttum að geta jafnað. Það var mikill taugaæsingur í leikn- um. Þetta var minn fyrsti stór- leikur og hann gefur mér mikla reynslu. Einar Bollason landsliðsþjálfari var að sjálfsögðu mættur til þess að horfa á leikinn og við fengum álit hans á leiknum. — Það sem gerði öðru fremur útslagið í leiknum var hið stóra sem Fram stórtM forskot sem leikmenn Fram náðu í fyrri hálfleiknum. Það var of stórt. En KR-ingar voru næstum búnir að gera það ómögulega, að vinna það upp og jafna metin. Það vantaði aðeins eitt stig um tíma. Það var mikil spenna í þessu í lok- in. Svona eiga bikarleikir að vera. Ég myndi velja lið Fram sem besta lið keppnistímabilsins. Þeir hafa unnið Reykjavíkurmótið, annað sætið í íslandsmótinu og nú bikarinn. Þeir eru vel að sigrinum komnir. _ þR. Álafoss- hlaupið Alafosshlaupið árlega fer fram á sunnudaginn og hefst það klukkan 14.00 við íþróttahúsið að Varmá. Þar eiga keppendur að mæta til skrán- ingar klukkan 13.00. Verður síðan hlaupið eftir ýmsum krókum, en endastöðin er við verksmiðjuhúsin að Álafossi. Aldursflokkarnir eru flokkaðir með sama hætti og skóla- bekkir, 6. bekkur og yngri hlaupa 2 km, 7.—9. bekkur hlaupa 3 km og karlaflokkur 7 km. Kvennaflokkur- inn hleypur 3 km. Aðalfundur Aðalfundur Sparisjóðs vélstjóra veröur haldinn að Borgartúni 18, laugardaginn 27. marz nk. kl. 14.00. Dagskrá: Venjuleg aöalfundarstörf. Aðgöngumiöar að fundinum veröa afhentir ábyrgöar- mönnum eöa umboösmönnum þeirra föstudaginn 26. marz í afgreiöslu sparisjóösins aö Borgartúni 18 og viö innganginn. Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.