Morgunblaðið - 22.03.1983, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 22.03.1983, Blaðsíða 45
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1983 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1983 25 Kristín sigraði í öllum greinum: Jónas og Kristín urðu öruggir sigurvegarar MEISTARAMÓT íslands í fimleikum fór fram um síðustu helgi. Jónas Tryggvason varð íslandsmeistari í karlaflokki, og Kristín Gísladóttir í kvennaflokki. Keppendur í mótinu voru 15. Tíu konur og fimm karlar. Kristín Gísladóttir, Gerplu, sigraöi í öllum æfingunum og varð ör- uggur sigurvegari. Gerði Kristín æfingar sínar mjög vel. Hún sýndi yfirvegun og rósemi jafnframt sem henni hefur farið mjög verulega fram í tæknilegum atriðum. Sérstaklega var gaman að sjá til Kristínar í gólfæfingunum og þegar hún gerði æfingarnar á slánni. í öðru sæti í kvennaflokki varð Rannveig Guömundsdóttir, Björk. Rannveig varð í ööru sæti i öllum æfingunum og í tveim þeirra var ekki mikil munur á henni og Krist- inu. Rannveig á án efa eftir aö geta gert enn betur því að þar fer efni- leg fimleikakona. Þá vakti Esther Jóhannsdóttir, ung að árum, mikla athygli á mótinu. Heildarúrslit í kvennaflokki urðu þessi: íslandsmeistari, stúlkur. Kristín Gísladóttir G 62,35 Rannveig Guðmundsdóttir B56.40 Esther Jóhannsdóttir B 42,85 Dóra Sif Óskarsdóttir B 40,80 Hlín Bjarnadóttir G 38,50 Bára Guðmundsdóttir B 37,45 Bryndís Ólafsdóttir G 36,60 Sigurborg Sigurðardóttir G 34,50 Úrslit í einstökum greinum í kvennaflokki urðu þessi: Stökk, stúlkur Kristín Gísladóttir G 16,00 Rannveig Guömundsdóttir B 15,15 Dóra Sif Óskarsdóttir B 7,20 Slá, stúlkur Kristín Gísladóttir G 15,85 Rannveig Guðmundsdóttir B 13,80 Esther Jóhannsdóttir B 12,45 Tvíslá, stúlkur Kristín Gísladóttir G 13,55 Rannveig Guömundsdóttir B 12,30 Esther Jóhannsdóttir B 11,60 Gólf, stúlkur Kristín Gísladóttir G 16,95 Rannveig Guömundsdóttir B 15,15 Dóra Sif Óskarsdóttir B 13,25 Jónas Tryggvason, Ármanni, sem undanfarin ár hefur stundaö nám við íþróttaháskólann í Moskvu, varð hinn öruggi sigur- vegari í karlaflokki. Jónas var aö vinna sinn fyrsta íslandsmeistara- titil í fimleikum og sjálfsagt eiga þeir eftir að verða margir titlarnir sem hann á eftir að bæta viö sig ef hann heldur áfram á sömu braut. Jónas hafði nokkra yfirburði í flest- um æfingunum og sigraöi í þeim öllum nema í stökki. Þar sigraöi Davið Ingason, Ármanni. Jónas sýndi mikla hæfni í hring- unum og á tvíslánni, jafnframt sem hann var í sérflokki í gólfæfingun- um. Jónas hefur tekið ótrúlega miklum framförum og eru æfingar hans mjög stílhreinar og oft var giæsilegt aö sjá til hans. Lokaúrslit i karlaflokki urðu þessi: íslandsmeistari Jónas Tryggvason Á 102,70 Davíð Ingason Á 93,20 Guöjón Gíslason Á 79,65 Aöalgeir Sigurösson 38,90 hann keppti ekki í öllum áhöld- um. Úrslit í einstökum greinum á mótinu í karlaflokki urðu þessi: Bogahestur Jónas Tryggvason Á 15,60 Atli Thorarensen Á 14,20 Davíð Ingason Á, 11,95 Stökk Davíð Ingason Á 17,25 Jónas Tryggvason Á 17,05 Guðjón Gíslason Á 14,25 Gólf Jónas Tryggvason Á 17,45 Davíö Ingason Á 15,95 Guðjón Gíslason Á 15,15 Hringir Jónas Tryggvason Á 17,10 Davíö Ingason Á 16,30 Guöjón Gíslason Á 13,95 Tvíslá Jónas Tryggvason Á 17,85 Davíð Ingason Á 15,00 Guðjón Gíslason Á 11,40 Svifrá Jónas Tryggvason Á 17,65 Davíð Ingason Á 16,75 Guðjón Gíslason Á 13,40 Davíð Ingason, Ármani, sýndi líka góö tilþrif á mótinu og geröi margar æfingarnar mjög laglega. í heild fór mótið mjög vel fram og var því vel stjórnað. — ÞR. Haukar og KA efst — eftir aðra umferð úrslitakeppni efri liða 2. deildar ÖNNUR umferð úrslitakeppni 2. deildar — efri riðils — fór fram að Varmá um helgina. Haukar fengu fjögur stig út úr keppn- inni, KA og UBK þrjú og Grótta tvö. Haukar eru nú komnir í efsta sætið, en KA sigraöi í deildarkeppninni sjálfri. Renn- um nú yfir leikina. KA — Grótta 19—18 Leikurinn var hnífjafn frá upp- hafi til enda og mikil barátta á báöa bóga. Grótta hafði frum- kvæðið í fyrri hálfleiknum, komst mest í tveggja marka forystu, en KA var ekki langt undan og oftast var jafnt. Staðan í hálfleik var 10—10. Gróttumenn mættu ákveðnir í seinni hálfleikinn og breyttu stööunni snarlega í 12—10. Það stóð hins vegar ekki lengi því fyrr en varði höföu KA- menn jafnaö. Eftir þaö mátti vart á milli sjá hvor aöilinn hefði bet- ur. Friöjón Jónsson, besti maður KA, tryggöi Akureyringum hins vegar sigurinn með marki sem hann skoraði rétt fyrir leikslok. Mörk KA: Friðjón Jónsson 7, Erlendur Hermansson og Flemming 4, Þorleifur 2 og Guö- mundur og Jakob eitt hvor. Mörk Gróttu: Sverrir Sverris- son 10, Jón Hróbjartsson 3, Ax- el, Jóhannes, Svavar, Siguröur og Gunnar eitt mark hver. UBK — Haukar 27—17 Það var tjóst strax í upphafi að UBK færi meö sigur af hólml í þessum leik, því fljótlega komust þeir í 5—0. í leikhléi höfðu Blik- arnir yfir, 14—10. I seinni hálf- leiknum hélt UBK áfram að bæta við forskot sitt, og virtist sem Haukarnir væru að hugsa um allt annaö en leikinn, enda þegar blásiö var til leiksloka var stór- sigur UBK staöreynd, 27—17. Liö UBK var mjög jafnt í þess- um leik, en bestur var þó mark- maðurinn, Óskar Friöbjarnarson. Hjá Haukunum bar enginn af, og eitt er víst aö þetta var ekki þeirra dagur. Mörk UBK: Þóröur Davíösson 8, Aöalsteinn Jónsson 5, Björn Jónsson, Brynjar Björnsson og Kristján Halldórsson 3 hver, Sig- urjón Rúnarsson 2, Stefán, Hilm- ar og Gísli eitt mark hver. Mörk Hauka: Þórir Gíslason 5, Höröur Sigmarsson 4, Jón Hauksson og Snorri Leifsson 2, Ingimar, Stefán, Sigurgeir og Árni eitt mark hver. Grótta — UBK 19—17 Sigur Gróttu var nokkuö ör- uggur — og öruggari en tölurnar segja. Þeir höfðu vel yfir mest allan tímann, voru t.d. með 19—14-forystu er skammt var til leiksloka, en UBK skoraöi þrjú síöustu mörkin. Hjörtur Hjartarson skoraöi 10 mörk fyrir Gróttu, Sverrir Sverr- isson, Jóhann Pétursson og Jó- hannes þrjú mörk hver. Björn Jónsson var markahæstur hjá Blikunum, geröi 10 mörk. KA — Haukar 20—28 Haukar náðu strax góðri for- ystu i leiknum og var staöan 13—6 þeim í hag í leikhléi. Öll spenna var því á bak og burt og nánast formsatriöi að Ijúka leikn- um. Munurinn jókst um eitt mark í síðari hálfleiknum. Þórir geröi 8 mörk fyrir Hauka, Höröur og Ingi- mar fimm hvor og Jón Hauksson fjögur. Erlendur gerði 4 fyrir KA, Friðjón, Jakob og Guðmundur þrjú hver. Haukar — Grótta 30—22 Haukar fóru þarna með örugg- an sigur af hólmi og eins og gegn KA var það góöur leikur þeirra í fyrri hálfleiknum sem geröi út- slagið — staöan i hálfleik var orðin 16—5, og Grótta átti sér ekki viðreisnar von. Hörður Sig- marsson geröi átta mörk fyrir Hauka, Þórir Gísla sex, Ingimar fjögur. Sverrir var markahæstur hjá Gróttu, geröi sex, Jóhann var með fjögur, Siguröur og Svavar meö þrjú hvor. UBK — KA 20—20 Síöasti leikurinn í gær. Breiöa- blik haföi góða forystu lengst af, en KA náði að jafna áður en yfir lauk. Þetta var mikill baráttu- leikur og hasarinn full miklll á köflum. Pétur Jóhannsson, þjálf- ari UBK, Óskar Friöbjarnarson, markvöröur liösins, og Guö- mundur Lárusson, liðsstjóri KA, voru allir útilokaðir. Staöan er nú þessi: Hauka 20 12 3 5 478—434 27 KA 20 11 5 4 464—436 27 Breiðab.20 9 5 6 403—368 23 Grótta 20 9 0 11 441—468 18 Þannig var lokakafli frábærs leiks Vals og ÍBK í Laugardalshöll í gærkvöldi. Síðasti leikur mótsins og alger úrslitaleikur. Liöin jöfn að stigum fyrir leikinn. Þaö fór vel á þvt að þessi tvö liö léku síðasta leikinn í mótinu því þau hafa haft nokkra yfirburöi í vetur. Keflvík- ingar komu upp úr 1. deildinni á síðasta keppnistímabili og geta því vel við unað. Að vísu skiljanlega sárt að tapa tveimur stórleikjum gegn Val á örfáum dögum. Þeir töpuðu í undanúrslitum bikarsins síðasta þriðjudag. Ljó.sm. Kristján Einarsson. • Þrír efstu í flokki karla á íslandameistaramótinu í fimleikum. Davíð Ingason (t.v.) Ármanni varð annar með 93,2 stig samanlagt. Jónas Tryggvason varö íslandsmeistari, hlaut 102,70 stig og Guðjón Gíslason varð þriöji með 79,65 stig. Þeir eru allir í Ármanni. Fimm sekúndur eftir. Valsarar með boltann, Keflvíkingar ná honum og sent er á Brad Miley inni á teig. Hann veður í átt að körfunni en Tim Dwyer brýtur á honum. Þrír fingur dómarans á lofti — þrjú vítaskot. Nei! Dómararnir hafa dæmt þrjár sekúndur á Miley er hann fékk boltann. Dómur sem fáir skildu. Staðan er 88:87 fyrir Val og tíminn að renna út. Dwyer fær boltann úr innkastinu og flauta tímavarðar gellur. Leiknum lokið og Valur er íslandsmeistari í körfuknattleik 1983. Sögulegar lokamínútur Liðin léku mjög vel í gær. Vals- arar fóru þó með sanngjarnan sig- ur af hólmi þvi þeir leiddu nær all- an tímann — Keflvíkingum tókst tvívegis að jafna í fyrri hálfleik, 39:39 og 41:41, en aldrei að kom- ast yfir. Lokamínúturnar voru sögulegar. Er þrjár mín. voru eftir skoraði Torfi 86:78 og útlítiö var svart fyrir ÍBK. Miley skorar tvö stig en Torfi svarar í hvelli úr tveimur vítaskot- um. Síðan fékk Björn Víkingur, fyrirliði ÍBK, tvö víti — hitti úr öðru — staðan þá 88:81, og Miley skor- aði rétt á eftir 88:83 úr hraðaupp- hlaupi og þá var ein mín. og fimm sek. eftir. Jón Kr. Gíslason skoraði síðan 88:85 og allt brjálað í Höll- inni. Er 22 sek. voru eftir gerðist umdeilt atvik. Ríkharður skoraði körfu en dæmdur var á hann ruðningur. Eft- ir mikið þóf kom í Ijós að karfan var ekki gild — dæmt var tvívíti — villa á Axel og Rikka. Valur náöi boltanum úr uppkastinu, en Jón Kr. komst inn í sendingu, brotiö var á honum í dauöafæri í hraðaupphlaupi og hanri fékk þrjú víti. Sextán sek. eftir og hann skor- aði úr tveimur skotum, Staðan 88:87. Lokasekúndurnar eins og áöur var lýst og fögnuður Valsmanna aö vonum mjög mikill. Þeir eiga nú möguleika á að vinna tvöfalt — leika til úrslita um bikarinn gegn ÍR í Höllinni á fimmtudag. Skammt stórra högga á milli hjá Völsurum. Valur leiddi allan tímann Eins og áður sagði leiddi Valur allan tímann — mestur varð mun- urinn 14 stig nokkrum sinnum í seinni hálfleiknum. Keflvíkingar náðu þó að minnka muninn með frábærri baráttu og litlu munaöi í lokin. Leikreynsla Valsara vó þungt á metunum — þeir voru yfir- vegaðri en Keflvíkingar og það skipti miklu máli í leik sem þess- um. Kristján Ágústsson byrjaði frá- bærlega í leiknum — skoraði sex fyrstu stig Vals og hélt síðan upp- teknum hætti — hvert skot hans af öðru rataði rétta leið. Tim Dwyer stjórnaöi liðinu eins og herforingi og lék mjög vel þó hann lenti í villuvandræðum. Fékk sína 4. villu er tæpar 15 mín. voru eftir. Rík- haröur náði sér ekki á strik í fyrri hálfleik en raðaði svo í körfuna í þeim seinni. Annars var Valsliðið jafnt — Tim, Rikki, Kristján, Jón og Torfi — og síðan fylltu Tómas og Leifur upp í er á þurfti aö halda. Brad Miley var mjög góður — sérstaklega í vörninni. Hann hirti 15 fráköst í leiknum og skoraði 17 stig. Jón Kr. var frábær — gerði stórkostlega hluti, og Þorsteinn Bjarna og Axel voru einnig góöir. Stigin: Valur. Kristján Ágústsson 26, Rikharður 20, Dwyer 16, Torfi 16, Jón Steingríms. 10. ÍBK: Axel 24, Jón Kr. 21, Miley 17, Þorsteinn Bjarna. 16, Björn Víkingur 5, Einar 5- — SH. Á þessari skemmtilegu mynd KÖE skorar Brad Miley eftir aó hafa lent í samstuöi vió Torfa Magnússon. Torfi líggur, Miley er aó falla á gólfið og Tim Dwyer fylgist spenntur meö. Hin tvítuga Tamara McKinney, Bandaríkjunum, sigurvegari í saman- lagðri stigakeppni heimsbikarsins í alpagreinum kvenna, sigraöi á sunnu- daginn í svigi í Furano í Japan. Þetta var síðasta keppni heimsbikarsins, en Tamara hafði þegar tryggt sér heims- bikarinn áöur en keppnin hófst á sunnudag. Hún hefur einnig tryggt sér sigur í stórsvigskeppni heimsbikars- ins. Erika Hess, Sviss, haföl forystu eftir fyrri ferðina á sunnudaginn, fór á 38.18 sek., en McKinney hafði sex hundruö- ustu úr sek. lakari tíma. Hún keyrði síö- an mjög örugglega í síðari feröinni og fékk tímann 33.62 sek., þannig aö sam- Staðan Úrslit leikja ( A-riöli úrslitakeppn- innar í 1. deild handboltans uröu þessi um helgina: Víkingur — Stjarnan 22—19 FH — KR 23—23 KR — Víkingur 23—18 FH — Stjarnan 19—16 KR — Stjarnan 22—18 FH — Víkingur 29—24 Eftir þessa fyrstu umferö er staðan því þannig: KR 3 2 1 0 68—59 5 FH 3 2 1 0 71—63 5 Víkingur 3 1 0 2 64—71 2 Stjarnan 3 0 0 3 53—63 2 Kristján Arason, FH, er markahæst- ur með 30 mörk (11 úr vítum), Sigurö- ur Gunnarsson, Víkingi, er meó 20 (5 víti) og Gunnar Gíslason KR 20 (9 víti). • Phil Mahre varö aó gera sér sjötta sætiö aö góöu um helgina. Heimsbikarhalinn varð sjötti Svíinn Stig Strand sigraði í síöustu keppni heimsbikarsins, svigkeppni ( Hokkaido í Japan, um helgina. Sam- anlagöur tími hans var 1:32.31, en Andreaz Wenzel, Liechtenstein, varö annar. Tími Wenzel var 1:32.81, Júgóslavinn Bojan Krizaj varö þriöji á 1:33.32, fjórði ítalinn Paolo de Chiesa á 1:33.67 og fimmti Franz Gruber, Austurríki, á 1:34.39. Hinn nýbakaði heimsmeistari, Phil Mahre, varð sjötti á 1:34.49. Ingemar Stenmark datt og náði ekki aö Ijúka keppni. anlagöur tími hennar var 1:11.80. Hin 21 árs gamla Hess, sem í síöasta mán- uöi tryggöi sér sigur í svigi heimsbikars- ins, fékk samanlagöa tímann 1:12.00, og lenti í öðru sæti. „Ég vissi aö ég þurfti að leggja mig alla fram í síöari ferðinni ef ég ætti aö sigra," sagði McKinney eftir mótiö. Hún sagði um frammistöðu sína í vetur: „Ég er mjög ánægö og einnig mjög ánægö meö aö enda tímabiliö meö sigri í þessu svigmóti. Það er góöur endir á tímabil- inu," sagði hún. McKinney er fyrsta stúlkan frá Bandaríkjunum sem sigrar í heimsbik- arnum á skíöum í 17 ára sögu keppn- innar, og Bandaríkjamenn eiga því sig- Mahre vann einnig stórsvigið Á laugardaginn sigraði Phil Mahre ( storsvigi í Furano, og sigraöi hann þv( í stigakeppninni í þeirri grein — haföi áóur tryggt sér sigur í samanlögóu keppninní. Mahre fékk samanlagða tímann 2:35.20, Max Julen, Sviss, varð annar á 2:35.21, og Ingemar Stenmark þriðji á 2:35.27. Mahre fékk 107 stig í stórsvig- inu, Julen og Stenmark 100 hvor. Stenmark skipar annaö sætiö þar sem hann sigraöi í fleiri stórsvigsmótum. urvegara í karla- og kvennaflokki í ár. Phil Mahre sigraöi ( karlaflokki sem kunnugt er. Erika Hess, sem varö þriöja í samanlögöu keppninni, sagöi aö hún myndi reyna að sigra næsta ár, og sagöi hún aö minniháttar skuröaögerö á hné sem hún gekkst undir fyrir jól, hefði haft „lítilsháttar áhrif" á frammi- stööu hennar i vetur. Efstu keppendur í sviginu uröu þessir: Tamara McKinney, Bandaríkjunum 1:11.80 Erika Hees, Sviaa 1:12.00 Malgorzata Tlaka, Póllandi 1:12.12 Hanni Wenzel, Liechtenatein 1:12.25 Hrehla Konzett, Liechtenatein 1:12.94 Roawitha Steiner, Auaturrfki 1:12.97 Dorota Tlaka, Póllandi 1:13.15 Paotott* Magoni, itallu 1:13.36 Daniola Zinl, Italiu 1:13.60 Anní Kronbichler, Austurríki 1:14.03 Valsmenn íslandsmeistarar Torfi Magnússon: „Ég var aldrei hræddur um að tapa þessum leik" Björn Víkingur: „Munurinn gat ekki verið minni — eitt stig ÞAÐ ríkti mikil gleði í herbúöum Valsmanna eftir aö íslandsmeist- aratitillinn var í höfn. Heyra mátti hátt og snjallt innan úr bún- ingsklefa Valsmanna: „Hverjir eru bestir“ og þá gall stór kór leik- manna og stuðningsmanna: „Val- ur“, „Valur“. Skélaö var í kampa- víni og klefi Valsmanna var fullur af stuðningsmönnum sem voru að óska leikmönnum til ham- ingju. Já, þaö er alltaf gaman aö vinna Islandsmeistaratitil. Þegar mesta gleöin var um garö gengin tókst aö ni tali af Torfa Magnússyni, fyrirliöa Vals og inna hann eftir leiknum. — Ég var aldrei hræddur um að við myndum tapa þessum leik, við erum með betra liö en þeir og átt- um sigurinn fyllilega skilið. Það er ánægjulegt aö titillinn er nú kom- inn í höfn. Viö höfum lagt mikiö erfiöi á okkur i vetur og erum nú að uppskera þaö, sagði Torfi. — Mótið var í heild skemmti- legt og ég tel aö liö Keflavíkur geti vel við unaö aö hafa leikiö til úr- slita í mótinu viö okkur. Þeir hafa staðiö sig vel í vetur. En erfiöustu mótherjar okkar voru þá UMFN. — Við munum nú leika án nokkurrar pressu í úrslitaleik bik- arkeppninnar og að sjálfsögðu stefnum við aö sigri í þeim leik. Þaö yrði góöur bónus að vinna bikarinn líka. Þjálfari Valsmanna, Tim Dwyer hefur gert góöa hluti meö liðiö í vetur. Hann sagði í uþphafi móts- Torfi hampar fslandsbikarnum ( gærkvöldi. Ljó,m. köe ins aö hann myndi stefna að því aö liöiö sigraði í öllum mótum vetrar- ins og hann viröist ætla aö standa viö orð sín. Eftir leikinn sagöi Tim: — Við erum 15 stigum betri en þeir. Við erum með 10 manna heil- steypt lið. Og allir leikmenn okkar geta leikið stórkostlega vel. Þaö ööru fremur hefur skapaö sigur okkar í mótinu í vetur. Við gáfumst aldrei upp þó að illa gengi um tíma í vet- ur. Leikurinn í kvöld var góður. Keflavík er meö sterka liðsheild og eru næstbestir íslenskra liöa í dag. Þeir eiga framtíðina fyrir sér. Þeir eru með ungt lið. Ég er viss um að við vinnum ÍR-inga í bikarleiknum á fimmtudaginn. Viö erum bestir. Það er bara verst hvað áhorfendur hafa misst af mörgum góöum leikj- um í vetur. Mæta fyrst núna í lokin verulega vel, sagði Tim. — ÞR. BJÖRN Víkingur, fyrirliði Kefla- víkurliðsins, haföi þetta að segja eftir úrslitaleikinn. — Þaö voru aö sjálfsögðu mik- il vonbrigöi aö tapa þessum lcik. Ég vil meina að dómararnir hafi gert mikil miatök í lokin þegar þeir dæmdu 3 sekúndur á Miley. Sá dómur var út í hött. Viö áttum aö fá víti, á þvi var enginn vafi. En ég vil nota tækifærið og óska Valsmönnum til hamingju meö sigurinn og titilinn. Munurinn gat varla verið minni á liðunum, eitt stig í lokin. Þeir léku drengilegan leik. Þá vil ég koma á framfæri þökkum frá leikmönnum Kefla- víkurliösins til áhorfenda. Þeir hafa stutt dyggilega viö bakiö á Sigurður Valur: „Vil ekkert segja um dóminn“ „ÉG VIL ekkert segja um dóm minn á lokasekúndum leiksins, frekar en aóra dóma mína í hon- um. Ég vil ekkert láta hafa eftir mér um dómgæsluna eöa leik- inn,“ sagöi Siguröur Valur Hall- dórsson, dómari, er hann var inntur eftir því af hverju hann dæmdi 3 sekúndur á Miley é hin- um örlagaríku lokasekúndum leiksins í gær. _ Þp Kðrfuknattlelkur L ______, okkur í allan vetur, og veitt okkur ómetanlegan stuðning. — ÞR Framarar unnu kæruna Sem kunnugt er mættu Fram- arar ekki til leiks vió Stjörnuna í bikarkeppni HSf á dögunum í Ásgarði og var leikurinn flautaöur é og af. Þeir kæröu þar sem völl- urinn er ólöglegur og hefur dóm- stóll HSÍ nú dæmt í málinu. Á leikurinn að fara fram á löglegum velli á næstunni. — SH. McKinney endaði tíma- bilið með sigri í svigi — unnu ÍBK með einu stigi í æsispennandi úrslitaleik Fram féll í 2. deild — tapaói fyrir ÍR EFTIR leik UMFN og KR á föstudaginn var Ijóst að Fram átti enga möguleika á að halda sár uppi ( úrvalsdeildinni. Það vissu leikmenn liósins er þeir gengu til leiks viö ÍR á sunnudags- kvöldiö, og sást þaö greinilega á leik liösins. Framarar lóku alls ekki vel og virtust annars hugar mest allan t(m- ann. ÍR vann öruggan aigur, 105—89, en liðið haföi yfir, 55—35, í leikhléi. Allt annaö var aö sjá til iR-inga en Framra, og var fyrri hálfleikurinn sér- staklega góöur hjá þeim. Þá léku þeir á alls oddi og Framarar réðu ekki neitt við neitt. Seinni hálfleikurinn var hlns vegar ekki góöur hjá ÍR, enda öruggur sigur í höfn, en kæruleysi leikmanna var engu að síöur fullmikiö. ÍR-ingar mæta Val í í síðasta leiknum úrslitum bikarkeppninnar á fimmtu- dagskvöldið, og þá veröa þeir aö leika á fullri ferö allan tímann ef þeir ætla aö eiga möguleika. Þeir hafa sýnt aö þeir geta leikiö mjög vel, en liöiö hefur und- anfarið átt ansi slaka kafla, eins og síö- ari hálfleikinn gegn Fram. Pétur Guömundsson var yfirburöa- maöur í liði ÍR, og skoraði 50 stig í leiknum. Næstir honum komu Hreinn Þorkelsson og Ragnar Torfason meö 12 stig hvor og Gylfi Þorkelsson meö 10 stig. Val Brazy var stigahæstur hjá Fram, skoraði 21 stig, Viðar Þorkelsson geröi 20. Þeir voru einna bestir; einnig átti Þorvaldur Geirsson nokkuð góöan leik. Aðrir voru þó nokkuð frá sínu besta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.