Morgunblaðið - 28.04.1983, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.04.1983, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1983 Schola Cantorum Tónlist Jón Ásgeirsson „Söngskólinn" við háskól- ann í Osló dvelur hér á landi og hélt tónleika í Háteigs- kirkju (hvar ekki má klappa né láta í ljósi annan fögnuð) sl. þriðjudag og flutti marg- víslga kirkjutónlist. Schola Cantorum er mannaður nem- endum í tónlistardeild háskól- ans í Ósló, mjög vel þjálfaður kór undir leiðsögn Knut Nystedt, sem einnig stjórnar norska einsöngvarakórnum. Tónleikarnir hófust á Deo dic- amus gratias, eftir nemanda J.S. Bach, að nafni Gottfried August Homilius, er starfaði í Dresden sem orgelleikari og samdi m.a. yfir eitt hundrað kantötur. Þá söng kórinn 8-radda Crucifixus eftir Lotti. Karlsen, er hann kallar Missa brevis, mátti heyra Credo nærri því eins og miðaldasálm er Róbert A. Ottósson hefur raddsett og mikið er sungið hér á landi af kórum. Það sem einkennir flest norsku verkin, er flutt voru á þessum tónleik- um og svipar að því leiti til íslenskrar kórtónlistar, er það hversu verkin sveiflast milli þess að vera nútímaleg og hefðbundin í senn, og að kafla- skiptin markast af umskiptum í vinnuaðferðum, t.d. þrástefj- un eða gerð „effekta", og að hver þáttur er gerður aðeins upp úr einni hugmynd, þannig að þegar henni hefur verið gerð full skil tekur við ný hugmynd. Schola Contorum er mjög góður kór, hljómfagur og vel þjálfaður. Stjórnandinn Knut Nystedt, er afícastamikið tónskáld og frægur stjórnandi, en þrátt fyrir að kórinn er vel mannaður, var flutningurinn á Kórfélagarnir Schola Cantorum. Öll viðfangsefnin, utan áð- urtalin verk og Rejoice in the Lamb, eftir Britten, eru eftir norsk tónskáld, það elsta fætt 1915 og það yngsta 1947. Tvö orgelverk voru flutt af Vidar Fredheim, sem lék nokkuð vel í Resurrexit op. 68, eftir stjórnandann Knut Nystedt. í verki yngsta tónskáldsins, verki Brittens einum of Iinur. Það vantaði meiri skerpu og allt að því glens, þar sem Britten leikur sér með hljóð- fallið og þá hefðu einsöngs- þættirnir myndað fallegri að- stæðu við kórþættina, sem eru mjög leikandi og skemmtileg tónlist. Jón Asgeirsson Grýlurnar á fullu Hatturinn tekinn ofan Hljóm- plotur Sigurður Sverrisson Grýlurnar Mávastellið Spor/ Fet 2001 Ef ég gengi dags daglega með hatt á höfði léti ég mér ekki nægja að taka hann ofan fyrir Grýlunum — ég myndi éta hann líka! Það skal ég segja hreint út, að Mávastellið Grýlanna kom mér stórkostlega á óvart í alla staði. Vissulega hafði ég gert mér grein fyrir framförum þeirra, en á þessu átti ég aldrei von. Það mun hafa verið fyrir rétt rúmum tveimur árum, að þær komu fyrst fram opinberlega — í Austurbæjarbíói að mig minnir. Ég var þungorður í þeirra garð þá og ekki að ástæðulausu. Hljómsveitin var afskaplega lítt sannfærandi enda að koma fram í fyrsta sinn. Mér þótti einnig fremur lítið til fyrstu plötu þeirra, sem kom út í ársbyrjun í fyrra, koma. En nú kveður við annan tón. Mávastellið er fyrsta íslenska platan í nokkurn tíma sem fær mann til þess að slá fætinum í takt við tónlistina og hafa grimmt gaman að. Á plötunni eru ellefu lög og sum þeirra eru hreinustu perlur. Ber þar fyrst að nefna Sigmund kropp og þá Val og jarðarberjamaukið hans, en textinn í því lagi er með því skemmtilegasta sem ég hefi nokkru sinni lesið. Lögin Trölla- þvaður og Sísi höfða einnig sterkt til mín, einkum það fyrr- nefnda. Þar getur að heyra í fyrsta og eina sinn í lagi frá Grýlunum á plötu „röff“ git- arhljóm. Með meira af slíku fengi tónlistin enn meiri rokkblæ en ella. Hljóðfæraleikurinn er annars kapítuli út af fyrir sig. Allan tímann eru lögin leidd áfram af pottþéttum bassaleik Herdísar Hallvarðsdóttur með traustum stuðningi trommuleiks Lindu Bjarkar Hreiðarsdóttur. Það kemur ekki mjög svo fram á plötunni, en hún lemur stundum allt of fast á tónleikum, þ.e. gerir engan eðlismun á lögunum. Ann- ars fyrirgefst slíkt auðveldlega hjá henni á tónleikum því innlif- unin og ánægjan er slík hjá henni, að ekki er hægt annað en að hrífast með. Gítarleikur Ingu Rúnar Pálmadóttur er enn nokk- ur höfuðverkur þótt heldur sé farið að slá á hann. Ef marka má leik hennar á tvennum tónleik- um í Klúbbnum að undanförnu er hún á réttri leið en á enn talsvert langt í land. Hún sýnir t.d. góð tilþrif í laginu Trölla- þvaður, en sólóið í Þú ert of hvít er ekki aðeins slakt heldur pass- ar frámunalega illa inn í lagið. Þá er Ragnhildar Gísladóttur ógetið. Án hennar hefðu Grýl- urnar aldrei fæðst og án hennar væru þær ekki það veldi í ís- lenskri popptónlist, sem þær eru í dag. Söngur hennar á þessari plötu er frábær og hún skilar sínu snyrtilega í hljóðfæraleikn- um. Sviðsframkoma hennar kemst því miður ekki til skila á plötunni, en þar slær hún flest- um við. Vel hefur tekist til með hljóðblöndun á Mávastellinu, utan hvað bassinn er stundum óþarflega framarlega. Honum er augljóslega ætlað að vera mjög leiðandi, en stundum er þetta um of. Louis Austin og Ragga Gísla eiga í sameiningu heiðurinn af „sándinu" og geta vel við unað. E.t.v. kann einhverjum að þykja erfitt að ráða í inntak þessa plötudóms. Til þess að gera langt mál stutt er einfald- ast að segja, að Mávastellið á eftir að verða í fremstu röð á meðal íslenskra hljómplatna í ár. Ég segi kannski ekki sú besta, en í flokki með þeim allra, allra bestu. Bravó, Grýlur, bravó. Skúlptúr Þorbjargar Myndlist Valtýr Pétursson Þorbjörg Pálsdóttir sýnir verk sín á Kjarvalsstöðum þessa dag- ana, og má þar líta 19 verk henn- ar á vesturgangi. Á Kirkjulist- arsýningunni, sem nýlokið er á sama stað, átti Þorbjörg ris- mikla Kristsmynd á krossi, sem gerð var í hennar stíl og úr þeim efnum, sem hún notar við skúlptúr sinn. Sú mynd var all eftirminnileg. Nú eru það börn að leik, sem Þorbjörg sýnir okkur, og er þar að sjálfsögðu um ólíkt verkefni að ræða, sem varpar Ijósi á þá möguleika, sem finnast í þeirri aðferð, sem hún beitir og sem vissulega er okkur hérlendis nokkuð framandi. Eg væri ekki sjálfum mér samkvæmur, ef ég minntist ekki á þær tilfinningar, sem þessi verk vekja hjá mér. Það eru til- finningar, sem ekki eru þægi- legar, og það mætti segja, að þær jöðruðu við ónot. Það eru einhverjir eiginleikar í sjálfu efninu, sem Þorbjörg notar, sem koma manni í varðstöðu og verka heldur kuldalega. Einnig verður þess vart í forminu, og bendi ég á höfuðlagið á þessum börnum máli mínu til fulltingis. Það er svo annað mál, að oft á tíðum tekst Þorbjörgu að ná vissum hreyfingum og líflegum tilþrifum í þessi verk. Eins og hún sjálf segir, vill hún ekki hafa stöpla undir þessum mynd- um, þar sem þeir rjúfi samhengi verks og umhverfis. Þess vegna sitja þessi börn á gólfi eða í sandkassa, veifa rellu eða hafa Þorbjörg Pálsdóttir við eitt verka sinna á sýningunni. rauða fötu fyrir framan sig. Þetta gerir sambandið við áhorf- andann nánara, en eykur um leið á hin hrollvekjandi áhrif. Þorbjörg Pálsdóttir vinnur verk sin á þann veg, að hún hef- ur algera sérstöðu í skúlptúr hér á landi. Hún hefur sinn hátt á, og list hennar er persónuleg. Skúlptúr hennar er yfirleitt hrjúfur og laus við alla væmni. Hún hefur lag á að koma manni í opna skjöldu með verkum sín- um, og börn hennar hafa boð- skap að færa, sem manni virðist á engan hátt barnalegur. Eins og áður segir, er sýning Þorbjargar Pálsdóttur á Kjarvalsstöðum, á vesturgangi. Þar eru nú fjórar sýningar í gangi, og gefur það hugmynd um, hvernig nýta má plássið, ef vilji er fyrir hendi. Það er einnig verið að sýna skúlptúr í Lista- safni fslands um þessar mundir, og má með sanni segja, að tími hafi verið til kominn, að þessari listgrein væri haldið að fólki. Ég held, að meira mætti gera á þessu sviði til að örva högg- myndalistina hér á landi. Um tíma virtist vera að færast nýtt líf í skúlptúr hér á landi, síðan varð hlé á því, sem nú er vonandi lokið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.