Morgunblaðið - 07.05.1983, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 07.05.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAl 1983 5 m Hafsteinn Austmann sýnir í Listasafni ASÍ í DAG, laugardaginn 7. maí, opnar Hafsteinn Austmann sýn- ingu á fjörutíu og einni vatnslita- mynd í Listasafni ASÍ. Hafsteinn fæddist á Vopnafirði 1934, stund- aði myndlistarnám í Reykjavík og síðar í París, auk þess sem hann hefur farið fjölda námsferða víða erlendis. Verk eftir Hafstein eru víða á söfnum, hér á landi og er- lendis. Hann hefur aðallega unnið með olíuliti, en á þessari sýningu sýnir hann eingöngu vatnslita- myndir. Sýning Hafsteins Austmann stendur yfir dagana 7.-22. maí og er opin alla virka daga nema mánudaga kl. 14.00—19.00 og um helgar kl. 14.00—22.00. Sveinn Björnsson sýnir á Kjarvals- stöðum „ÞAÐ ERU engin stórstökk í listinni hjá mér, ég reyni að halda mínum stíl,“ sagði Sveinn Björnsson listmálari og yfirmaður rannsóknar- lögreglunnar í Hafnarfirði, sem opnar sýningu á Kjar- valsstöðum klukkan 14 í dag. Sveinn Björnsson við eitt verka sinna. Morgunbladid/RAX. Á sýningunni hjá Sveini að þessu sinni eru 100 myndir, iang- flest olíumálverk. Sýningin er í austursal, þ.e. Kjarvalssal Kjarvalstaða. Hún stendur til 24. maí nk. og verður opin dag- lega frá klukkan 14 til 22. Síð- asta sýning Sveins var einnig á Kjarvalsstöðum, árið 1980. Sveinn er einn örfárra ís- lenzkra málara í dag, sem mála risastór olíumálverk og eru nokkur slík verk á sýningunni. Karl Erlendsson Þeiamerkurskóli: Karl Erlends- son skipaður skólastjóri Akureyri, 3. maí. Menntamálaráðhcrra, Ingvar Gíslason, hefur skipað Karl Er- lendsson í stöðu skólastjóra Þela- merkurskóla. Skólanefnd Þelamerkuskóla klofnaði í afstöðu sinni til umsækj- enda um stöðu skólastjóra við skól- ann. Þrír af sjö mæltu með að Hall- dór Gunnarsson, skolastjóri í Lundi í Öxarfirði, yrði skipaður í stöðuna, en tveir mæltu með Karli Erlends- syni, sem tók við stöðunni um sl. áramót, eftir að þáverandi skóla- stjóra, Sturlu Kristjánssyni, hafði verið sagt upp störfum. Tveir mæltu síðan með við ráðherra, að hann skipaði í stöðuna Magna Hjálmars- son, sem verið hefur við framhalds- nám í Danmörku, en var um skeið kennari við skólann. Karl Brlendsson er fæddur 1. september 1949. Foreldrar hans eru Erlendur Konráðsson, læknir á Akureyri, og Kristjana Jóns- dóttir. Karl varð stúdent frá MA 1970, stundaði nám í landafræði og jarðfræði við HÍ 1972—75. Hann mun ljúka prófi frá Kenn- araháskóla fslands i uppeldis- og kennslufræðum nú í vor. Karl var kennari við Dalvíkurskóla 1970—71. Skólastjóri Barna- og unglingaskóla Borgarfjarðar eystra 1971—72. Kennari við Garðaskóla í Garðabæ 1974—77. Skólastjóri í Skjöldólfsstaðaskóla á Jökuldal 1977—79. Var síðan kennari við Gagnfræðaskóla Ak- ureyrar frá 1979 til 1. des. 1982, að hann var settur skólastjóri á Þela- mörk. Eiginkona Karls er Ragnhildur Skjaldardóttir, kennari, og eiga þau eitt barn, 13 ára. GBerg Fegurðardrottning íslands 1983 Fegurðardrottning Reykjavíkur - Ljósmyndafyrirsæta ársins Kynning og skoðanakönnun fer fram á Broadway föstudagskvöld 13. maí nk. og hefst með borðhaldi kl. 19.00. t * CMiP Þátttakendur eru: Anna María Pétursdóttir, Hulda Lárusdóttir, Ingibjörg Valsdóttir, Katrín Hall, Kristín Ingvadóttir, Lilja Hrönn Hauksdóttir, Steinunn Bergmann, Stella Skúladóttir, Unnur Steinsson. Þær koma fram í sundfötum frá _ » 'Jriumjih | og einnig í síöum kjólum. ^KARNABÆR sýnir glæsilega vor- og sumartísku meö úrvals módelum undir stjórn Heiðars Jónssonar. Forsala aðgöngumiða og borðapantanir í dag í Broadway kl. 2—4 og á niorgun, sunnudag. á sama tíma. Leggið ykkar af mörkum til aö velja fulltrúa íslands í erlendar keppnir. I^! LANCOME.4*> PARIS ' "V LOREAL MISS EUROPE & MISS /VORLD MISS UNIVfRSI Tkt Msrk «/ Brmmly •

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.