Tíminn - 10.08.1965, Blaðsíða 12

Tíminn - 10.08.1965, Blaðsíða 12
12 ÍÞRÓTTIR TÍMINN ÍÞRÓTTIR ÞRIÐJUDAGUR 10. ágúst 1965 „Sættí mif mikiy bet- ur við að hætta núna'7 - sagði Helgi Daníelsson, sem lék í 25. sinn í íslenzka landsliðinu í knattspyrnu. Hsím—Reykjavík, mánudag. — „Eg er mjög óánægður fyrir mína hönd meö landsleikinn", sagði fyrirliði íslenzka lands- liðsins, RÍKHARÐUR JÓNSSON eftir landsleikinn við íra í kvöld. „Eg bjóst við að geta gert miklu meira sjálfur, en mér fannst eins og ég kæmist aldrei í gang. Vörnin hjá okkur var góð, en hins vegar náði framlínan aldrei saman, þótt svo tækifæri sköpuðust, en það var meira fyrir tilviljun en vel uppbyggðan leik. Mér fannst írarnir vera frískari — léttari í leik sínum, og samleikur þeirra jákvæðari, en hins vegar mega bæði liðin vel una úrslitunum. Æfing íranna er betri, og fyrirliði þeirra, miðvörðurinn Browne, var sterk- asti maður liðsins." Hvernig var að stjórna liðinu? Það var ágætt og andinn hjá leikmönnum var góður bæði fyr- ir og í leiknum. Og hvað er nú framundan hjá þér? Eg leik með Akraness-liðinu í fslandsmótinu, en síðan legg ég knattspyrnuskóna á hilluna fyr- ir fullt og allt. Bjöngvin Schram, formaður KSÍ var í búningsherbergjum leik- manna og þakkaði þeim fyrir leik-. inn og sagði: „íslenzka liðið var sterkara í fyrri hálfleik og hefði átt að hafa 2—3 mörk yfir í hálf- leik, en írska liðið náði sér vel á strik í síðari hálfleik og úrslitin sem slík eru ekki ósanngjöm.“ Helgi Daníelssion, Akranesi, lék síðustu mínútur leiksins í marki í stað Heimis og náði þar með merkum áfanga á knattspyrnuferli sínum, 25 landsleikjum og er eini leikmaðurinn, auk Ríkharðs, sem náð hefur þeim leikjafjölda. Helgi sagði: „Eg hefði verið ánægðari að ná þessum 25. leik með því að vera valinn sem aðalmarkvörður liðs- ins, — en það var ánægjulegt að fá að vera með þessar mínútur og ná þar með þessum áfanga. Eg sætti mig miklu betur við að hætta núna.“ Heimir Guðjónsson, markvörður sat á bekkjunum og nuddaði bak- ið og við spurðum, hvort meiðsl- in væru slæm. Bandaríkjamenn sigruðu Pól verja í landskeppni í frjálsum íþróttum í Varsjá um helgina — bæði í karla- og kvenna- greinum. Irena Kirsenstein setti nýtt heimsmet í 200 m. hlaupi kvenna, hljóp á 22.7 sek. — og hún sigraði einnig Ól- ympíumeistarann Wyomia Ty- us og Klobukowska í 100 m. hlaupi, en allar þessar stúlkur hafa hlaupið 100 m. á 11.1 sek. í sumar, sem er heimsmet. Nánar verður sagt frá keppn- inni í blaðinu á morgun. Belgíski Ólympíumeistarinn Gaston Roelants setti nýtt heimsmet í 3000 m. hindrunar- hlaupi á belgíska meistaramót- inu í Briissel á laugardag. Hann hljóp vegalengdina á 8:26.4 mín. og bætti eldra heimsmet sitt um rúmar þrjár sekúndur. „Nei, ég vona ekki, — ég er alltaf slæmur í bakinu og fékk vont „stuð” í fyrri hálfleik, og verkurinn ágerðist, þegar leið á leikinn. Annars var þetta ekki erf- iður leikur fyrir mig, og mér fannst við mjög óheppnir að vinna ekki leikinn". Árni Njálsson, hægri bakvörður varð að yfirgefa leikvanginn snemrna í fyrri hálfleik, og hann hafði þegar klætt sig, með plástur um nefið og talsvert blóðugur. Þetta hefur verið slæmt, Árni? „Já, en ég vona nú samt, að það sé ekkert alvarlegt, ég er að fara niður á slysavarðstofu núna — ég vona, að ég eigi ekki lengi í þessu.” . Þorsteinn Friðþjófsson, félagi Áma í Val, tók stöðu hans sem bakvörður og lék þar með sinn fyrsta landsleik. Var þetta erfiður leikur, Þor- steinn? „Já, mér fannst þetta mjög erfiður leikur — og var reyndar taugaóstyrkur í byrjun. Það er ekki gott að koma svona óvænt inn í leik. Mér fannst framlínu- mennimir okkar ekki koma nógu mikið aftur til að 'aðstoða vörnina og gerði það leikinn miklu erfiðari fyrir okkur varnarleákmennina. Annars er ég frekar ánægður með leikinn, þótt skemmtilegra hefði verið að sigra. Willie Browne, fyrirliði írska liðsins, sagði: „Þetta var góður, harður leik- ur, og mér fannst, að við hefðum átt að sigra — ekki þó svo að ég sé óánægður beint með úrslitin. Vinstri framvörðurinn ykkar, Ell ert Schram, var bezti maður liðs ins, og fleiri voru einnig góðir í liðinu“. Nokkuð í atvinnumennsku í knattspymu? „Nei, ég er orðinn of gamall til þess, 29 ára, og hef reyndar aldrei haft áhuga á að leika með ensku atvinnumannaliðunum, þótt tækifæri hafi boðizt. Eg leik á- fram með áhugamannaliðinu og þessi hugmynd með leiki milli á- hugamannaiiða Evrópu er ágæt.“ Hefurðu leikið marga lands- leiki? „Þetta er í þrettánda sinn, sem ég leik í landsliðinu. Eg hef leik- ið gegn íslendingum áður, 1958.“ Helgi Daníelsson — náði merkum áfanga á knatt- spyrnuferli sínum í gærkveldi. Landsliösnefnd ábyrg Útúrsnúningi og ósannindum Mbl. og Vísis svarað Það er ekki alltaf sársauka- laust fyrir blaðamenn að missa af fréttum. Þannig ráku íþrótta ritstjórar Morgunblaðsins og Vísis upp sársaukakvein, þegar þeim varð ljóst, að þeir höfðu misst af því, að Ríkharður Jónsson hafði verið skipaður landsliðsþjálfari — og Ellert Schram sagt af sér fyrirliða- stöðu í landsliðinu. Hvort tveggja voru þetta fréttir, sem g viðkomandi íþróttaritstjórar gátu lesið á íþróttasíðu Tím- ans. Það er kannski ekki nema mannlegt, að þessir tveir í- þróttafréttamenn skyldu veina, en að minni hyggju var ekki skynsamlega gert af þeim að gera það svo hátt, að öll al- þjóð mátti heyra. Báðir reyna þeir að klóra í bakkann með fáránlegum útúrsnúningi og vilja halda því fram, að íþrótta síða Tímans hafi með skrifum sínum um þessi mál viljað skapa óeiningu meðal lands- liðsmanna, en rökstyðja hvor- ugur á hvern hátt íþróttasíða Tímans hafi reynt að skapa óeiningu. Öngþveiti Morgunblaðsins Það er greinilegt, að íþrótta- ritstj. Mbl. hefur varla vitað sitt rjúkandi ráð, þegar hann skrifar greinarstúf í sunnudags blaðið undir fyrirsögninni „öng þveiti", en þar reynir hann með hreinum ósannindum að snúa út úr fréttum Tímans. Hann segir m. a., að eitt dagbl. í Rvík. (þ. e. Tíminn) hafi blásið það upp, að Ríkharður væri þjálfari landsliðsins og látið að því liggja, að sem slíkum bæri honum fyrirliða- staða. Enn fremur segir Mbl.: „Eftir þau ummæli mun Ellert Schram, sem verið hefur fyrir- liði landsliðsins síðan í fyrra, óskað þess, að vera leystur frá störfum.“ f þessu sambandi er rétt að benda íþróttaritstj. Mbl. á það, að íþróttasíða Tímans hefur á engan hátt reynt að gera óeðli- lega mikið úr því, að Ríkharð- ur skyldi hafa verið skipaður landsliðsþjálfari. Og enn frem- ur, að það var Ríkharður sjálf- ur, sem tjáði blaðinu (þegar hringt var í hann) að búið væri að skipa hann sem þjálf- ara landsliðsins. Um það atriði Mbl., að Tím- inn hafi látið liggja að því, að Ríkharður ætti að gegna fyrirliðastöðu (hér er átt við viðtalið við Ríkharð), væri gam an, ef íþróttaritstj. Mbl. gæti bent á hvar í viðtalinu slíkt sé gefið í skyn. Hér fer hann með lirein ósannindi og víst er, að Ellert Schram sagði ekki af sér fyrirliðastöðu í landsliði vegna ummæla Tímans. Þá skal það tekið fram, að í viðtali, sem Tíminn átti við Ellert síðar, var sú skoðun lát- in í ljós, að eðlilegast væri, að sá leikmaður, sem gengdi þjálfarastöðu, gegndi einnig fyrirliðastöðu. Þegar það var skrifað, var Ellert búinn að af- sala sér fyrirliðastöðunni. Vísir tekur undir Víst er, að skrif Mbl. á sunnu daginn hafa fallið íþróttaritstj. Vísis vel í geð, því í Vísi í gær, er að finna alls kyns upp- hrópanir, og er greinilegt, að Vsir vill ekki vera eftirbátur stóra bróður. —mw—m*mi BssÐMwninfm mh íþróttaritstj. Vísis segir: „Blað eitt í Reykjavík sló því heldur ósmekklega upp, að Rík harður væri orðinn þjálfari landsliðsins og spurði i viðtali þannig, að Ríkharður varð að segja sem var, að hann hefði gjarnan viljað stjórna liðinu á leikvelli." (!!!) Enn fremur segir hann: „í sjálfu sér er hér ekki um neitt stórmál að ræða, enda engin börn, sem hér um ræðir, held- ur hugsandi menn. Hins vegar verður að fordæma skrif þau, sem dagblað þetta hefur haft frammi í málinu. Verður ekki betur séð en þar hafi verið gerð tilraun til að koma af stað moldviðri vegna fyrirliða- stöðunnar, eins og varð fyrir nokkrum árum.“ Ef íþróttaritstj. Vísis rann- sakaði niður í kjölinn það sem hann skrifaði, kemst hann e. t. v. að raun um, að skeytum hans er ekki beint gegn íþrótta síðu Tímans, heldur gegn Rík- harði sjálfum — og er það ómaklegt gagnvart þessum elzta og reynslumesta knatt- spyrnumanni okkar. En það er kannski ekki von, að íþrótta- ritstj. Vísis skilji það. Mergur málsins Fyrst umræður hafa skapazt um skipan Ríkharðs, sem lands- liðsþjálfara, og Ellert Schram, sem af þeim sökum afsalaði sér fyrirliðastöðunni, liggur beinast að ræða þessi mál út. Þótt bæði Mbl. og Vísir séu af bezta vilja gerð til að kenna íþróttasíðu Tímans um gang þessara mála, geta þau aldrei staðið fast á slíkri vitleysu, ein faldlega vegna þess, að það var ekki íþróttasíða Tímans, sem skipaði Ríkharð landsliðsþjálf- ara og umsjónarmann liðsins — og það var ekki íþróttasíða Tímans sem sá til þess, að Ell- ert afsalaði sér fyrirliðastöð- unni. Sé við einhvern að sakast, þá er það við landsliðsnefnd KSÍ, sem satt að segja hefur g hagað sér mjög óskynsamlega. [f Allir hljóta að sjá hvflík regin j| firra það er, að skipa einn s| leikmann fyrirliða og annan 'I þjálfara. Það skiptir engu máli | hvort hér á í hlut Ellert I Schram, Ríkharður Jónsson eða 'I einhver annar. Ellert hefði t. á d. alveg eins getað tekið við g þjálfarastöðunni. Það sein máli i skiptir, undir svona kringum- stæðum, er það, að sami mað- urinn gegni báðum stöðunum, annað væri hlægilegt. Annars felast mestu mistök landsliðs- nefndar í því, að vera að skipa leikmann þjálfara og umsjónar ' mann landsliðsins. Fyrst Karl Guðmundsson, starfsmaður KS í er fjarverandi, var þá ekki hægt að leita til annarra þjálf ara, t. d. Óla B. eða Guðbjöms Jónssonar? Skrif íþróttasíðu Tímans um þessi mál urðu til þess að bjarga því sem bjargað varð. Það hefði ekki verið betra að halda leynd yfir ákvörðun landsliðsnefndar fram til síð- ustu stundar, en þá hefði get- að átt sér stað sprenging með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Og að endingu: Megi lands- liðsnefnd læra af mistökunum 1 — og vonandi ná íþróttarit | stjórar Mbl. og Vísis sér fljótt íf eftir „fréttamissinn.“ -alf. |

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.