Morgunblaðið - 15.06.1983, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 15.06.1983, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1983 17 Prófessor Gösta Hólm, forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir og Aðalsteinn Davíósson, cand. mag. Mb./Guðjón. Forseta afhent eintak sænsk-ís- lenskrar orðabókar FORSETA íslands, frú Vigdísi Finnbogadóttur, var í gær aflient á heimili sænska sendifulltrúans á ís- landi, eintak af nýútkominni sænsk-íslenskri orðabók. Ritstjórar bókarinnar eru tveir, Gösta Hólm, prófessor í Lundi, og Aðalsteinn Davíðsson, cand. mag., en þeir hafa unnið að gerð bókarinnar undanfar- in 13 ár. f bókinni, sem var gefin úr í Sví- þjóð í desember sl. og hlaut þar mjög góða dóma, eru um 45.000 orð. Að bókinni vann auk ristjór- anna fjöldi Svía og íslendinga og er í henni að finna ýmsan fróðleik auk orðasafnsins, s.s. skammstaf- anir, staðanöfn og yfirlit á sænskri málfræði. Sænsk-íslenska orðabókin er unnin og prentuð með styrk frá Statens humanistiska forsknings- rád og Norræna menningarsjóðn- um. Hún er gefin út af Almenna bókafélaginu hér á landi og Walt- er Ekstrand Bokförlag í Svíþjóð. Jónsmessugleði í Laugardalshöll BANDALAG íslenskra listamanna og samtökin Líf og land munu standa fyrir óvenjulegri skemmtun í Laugardalshöll föstudaginn 24. júní á jónsmessu. Þar mun verða boðið upp á ýmsar skemmtanir í formi dans og tónlist- ar auk þess sem eitt sölutjaldið mun bjóða upp á nýbakaðar pizzur og létt vín. Gestir munu því eiga þess kost að setjast niður og njóta veitinga um leið og þeir hlýða á suðræna tónlist. Þá verður boðið upp á leik- þætti og fslenski dansflokkurinn sýnir þjóðdansa. Einnig verður þarna hljómsveit sem mun leika jazz og létt danslög og jafnframt geta þeir sem að snæðingi sitja átt von á að fá í heimsókn að borði sínu mann er strýkur strengi fiðlu sinn- ar, líkt og engill er slær á hörpu- strengi. Reynt verður að láta samkomuna vera með suðrænu yfirbragði og með leikjum og uppákomum verður reynt að tryggja svonefnda torg- stemmningu. Þeir sem að Jónsmessugleðinni standa, talið f.v.: Jóhanna Norðfjörð, leikkona, Þórunn Hafstein, Kristinn Ragnarsson, arkitekt, Ragnhildur Hjaltadóttir, lög- fræðingur, Herdís Þorvaldsdóttir, leikkona og Sigríður Ingvarsdóttir, nemi. Þrír íslenzkir listamenn með verk á norrænni landslagsmyndasýningu í MAÍ sl. var opnuð sumarsýning á norrænum landslagsmyndum „Nord- iskt Landskab" í norrænu listamiðstöðinni Sveaborg í Finnlandi. Sýningin er á vegum lista- miðstöðvarinnar í Svea- borg. Þrír þátttakendur eru frá hverju Norður- landanna, íslenzku þátt- takendurnir eru Edda Jónsdóttir, Eiríkur Smith og Þórður Hall. Gefin hefur verið út vönduð sýningarskrá í tengslum við sýninguna. Á svipuðum tíma og sýn- ingin opnaði var haldið í Helsinki alþjóðlegt myndlistarþing og alþjóð- leg ráðstefna list- gagnrýnenda. Sýningin stendur til 14. ágúst nk. Listamennirnir Þórður Hall, Edda Jónsdóttir og Eiríkur Smith. Frásögnum finnsku blaðanna Huvudstadsbladet og Helsinki Sudmat fylgdu myndir af verkum Eddu Jónsdóttur og Eiríks Smith. Nokkrir af listmálurunum sem að sýningunni standa. Talið frá vinstri: Einar Hákonarson, Einar Þorláksson, Sigurður Sigurðsson, Valtýr Pétursson, Jóhannes Jóhannesson og Hafsteinn Austmann. Listmálarafélagið sýn- ir að Kjarvalsstöðum LISTMÁLARAFÉLAGIÐ opnar sýn- ingu að Kjarvalsstöðum 16. júní nk. Þetta er önnur sýningin sem List- málaraféjagið heldur, en í því eru 22 félagar. Á sýningunni verða 66 verk eftir 17 meðlirai félagsins. Eru það olíumálverk, vatnslitamyndir og grafíkmyndir. Listamennirnir sem taka þátt í þessari sýningu eru Arni Peder- sen, Björn Birnir, Bragi Ásgeirs- son, Elías B. Halldórsson, Einar Hákonarson, Einar G. Baldvins- son, Einar Þorláksson, Guðmunda Andrésdóttir, Hafsteinn Aust- mann, Hrólfur Sigurðsson, Jó- hannes Geir, Jóhannes Jóhannes- son, Kjartan Guðjónsson, Kristján Davíðsson, Sigurður Sigurðsson, Þorvaldur Skúlason og Valtýr Pét- ursson. Mestur hluti sýningarverkanna er til sölu og eru það flest nýjar eða nýlegar myndir. Eins og áður segir opnar sýningin fimmtudag- inn 16. júní en henni lýkur 10. júlí.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.