Morgunblaðið - 08.02.1984, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.02.1984, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 31. tbl. 71. árg.__________________________________MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1984________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Sprengja springur í vesturhluta Beirút í gsrmorgun. Sá hluti borgarinnar er nú nær alfarið á valdi shíta. Simamynd AP Hlutverk gæsluliðsins í Líbanon gæti breyst Beirút, Tel Aviv, Washington. London og Hang, 7. febrúar. AP. GEORGE SHULTZ, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, gaf í dag i skyn, að hlutverk gæsluliðsins i Líbanon gsti breyst ef harðnandi bardagar yrðu til þess að ógna stjórn Amin Gemayel enn frekar. Shultz, sem var á leið frá Brasilfu til Grenada, ræddi við fréttamenn um borð í flugvél. Sagði hann, að Bandaríkin væru í stöðugu sam- bandi við hinar þjóðirnar sem aðild eiga að gæsluliðinu, Bretland, ítaliu og Frakkland. „Hvort hægt er að leysa þann hnút, sem einkennir ástandið i Lib- anon um þessar mundir, er nokkuð, sem við hðfum rætt ítarlega um án þess að komast að niðurstöðu. Stöð- ugt er verið að reyna að vinna að lausn þeirra vandamála, sem við er að glíma,“ sagði Shultz. Margaret Thatcher, forsætisráð- herra Bretlands, boðaði ríkisstjórn sína tvivegis til neyöarfunda f dag vegna ástandsins í Líbanon. Enn hefur ekkert frést um efni fund- anna, né heldur hvort Bretar hygg- ist kalla lið sitt heim vegna sivax- andi spennu fyrir botni Miðjarðar- hafs. Bettino Craxi, forsætisráðherra Ítalíu, fór þess á leit við Bretland, Frakkland og Bandaríkin i kvöld, að þjóðirnar boðuðu þegar i stað til fundar um gæslulið þjóðanna i Lib- anon. Ýmislegt er talið benda til þess, að þrjár fyrsttöldu þjóðirnar hafi fullan hug á að kalla lið sitt heim, en engin vilji hafa frumkvæð- ið. Mitterrand, Frakklandsforseti, sem nú er í opinberri heimsókn i Hollandi, sagði í kvöld, að hann hefði ekki ætlað frönsku gæslulið- unum að vera í Lfbanon „um alla eilífð" eins og hann orðaði það. í skoðanakönnun, sem framkvæmd var f Frakklandi nýverið, kom fram, að 47% vilja að gæsluliðarnir verði kallaðir heim. Vopnahlé var samið á hádegi i Beirút i dag eftir að stöðug skothrið hafði verið frá því fyrir sólarupp- rás. Hafa forvígismenn shita nefnt þetta „siðasta vopnahléið". Banda- ríska herskipið New Jersey hleypti m.a. af fallbyssum sinum í morgun til þess að verja búðir bandarfsku gæsluliðanna við alþjóðaflugvöllinn i Beirút eftir að þær höfðu orðið fyrir skothríð. Einn gæsluliði særð- ist i árásinni. Vitað er til þess að sendiráð V-Þýskalands varð fyrir talsverð- um skemmdum þegar lætin voru hvað mest i morgunsárið. Einn starfsmanna þess meiddist er grjót úr byggingunni hrundi á hann. Þá hefur nær allt starfslið bandariska sendiráðsins i Beirút, alls 41 maður, verið flutt á brott i öryggisskyni. Skáru íbúana á háls l.slamabad, PakLstan, 7. febrúar. AP. FRETTIR frá Afganistan, sem bárust til Pakistan í dag, herma, að stjórnarherinn hafi farið aðra gereyðingarherferð um borgina Istaelef, skammt norður af höfuðborginni Kabúl, á fimmtudag. Talið er að fórn- arlömbin hafí skipt hundruö- um. Er árásinni líkt við árás á borgina í nóvember. Þá var talið, að nær helmingur allra bygginga hefði verið jafnaður við jörðu og lífið murkað úr hundruðum manna. Erfitt hefur reynst að fá skýra mynd af því sem gerð- ist en eftir því sem næst verð- ur komist kom stjórnarher- inn borgarbúum gersamlega í opna skjöldu. Beið hann átekta og gerði síðan snöggt áhlaup. Var sveðjum og byssustingjum beitt til þess að síður yrði vart við áhlaup- ið á útjaðar borgarinnar. Engum var eirt, hvorki börnum, konum né gamal- mennum, þótt megináherslan hafi verið lögð á að' koma meðlimum frelsissveitanna fyrir kattarnef. Fjöldi manna úr frelsissveitunum var leidd- ur út úr bænum ásamt fjöl- skyldum þeirra og allur hóp- urinn skorinn á háls. „Slátrarinn frá Teheran“ myrtur í gær Parfe, 7. febrúar. AP. GHOLAM ALI Oveissi, 65 ára gamall fyrrum hershöfðingi frá valdatíma íranskeisara, var í dag veginn á götu úti í París ásamt bróður sínum, Gholan Hosein. Að sögn lögreglu voru bræð- urnir báðir skotnir í höfuðið. Árásarmennirnir, sem talið er að hafi verið þrir saman, flýðu á bifreið. Oveissi var á sínum tíma yfir- maður íranska hersins á valda- tíma Reza Pahlavi, keisara. Hafði hann orð a sér fyrir að vera einstakt hörkutól, sem fylgdi fyrirskipunum keisarans út í ystu æsar. Hlaut hann viður- nefnið „slátrarinn frá Teheran“ fyrir vikið. Þá gegndi Oveissi stöðu yfir- manns gæsluliðs keisarafjöl- skyldunnar og er talinn hafa verið maðurinn að baki fjölda- morðunum í Teheran í septem- ber 1978 þegar herinn hóf fyrir- varalaust skothríð á mannfjölda, sem safnast hafði saman í mið- borginni. „Hann var maður, sem allir hötuðu," sagði íranskur frammá- maður í París. „Það er ógjörn- ingur að geta sér til hver varð honum að bana, óvinir hans voru svo margir." Fyrsta geimgangan án öryggistaugar: „Þetta var risastökk“ — sagði Bruce McCandless að göngunni lokinni ( anaveral-höfða, Flórída, 7. febrúar. AP. GEIMFARINN Bruce McCandless braut í dag blad í bandarískri geimferöa- sögu er hann fór fyrstur þarlendra geimfara f göngu úti í geimnum án þess að vera tengdur með öryggislínu við geimferjuna Challenger. McCandless fór nákvæmlega 97 metra vegalengd frá ferjunni áður en hann sneri aftur. Gangan tók hann 90 mínútur. Á bakinu bar hann sérstakan búnað, sem gerði honum kleift að komast ferða sinna. Þótt ekki fari mikið fyrir kassanum, sem hýsir búnaðinn, kostar hann 10 milljónir Banda- ríkjadala, eða tæpar 300 millj. fsl króna. „Það getur verið að Neil hafi fundist hann stíga stórt skref fyrir 15 árum, en fyrir mér var þetta risastökk," sagði geimfarinn í sam- tali við fjarskiptastöðina á Cana- » veral-höfða. Vísaði hann þá til lendingar fyrsta mannaða banda- ríska geimfarsins á tunglinu 1969 og ummæla Neil Armstrong er hann steig út úr fari sínu. Er McCandless kom aftur að geimferjunni í dag fór Robert Stewart að dæmi hans og fór í stutta gönguferð í geimnum án ör- yggistaugar. Það, að gönguferð þeirra félaga skyldi ganga að óskum; var banda- rísku geimferðastofnuninni, NASA, mikið gleðiefni eftir að tveir gervihnettir höfðu tapast í ferð Challenger. Símamynd AP. Maður og jörð. Söguleg mynd frá fyrstu geimgöngu geimfara án öryggistaug- ar við geimfarið. Bruce McCandless er þarna á „heimleið" eftir að hafa gengið 100 metra spöl frá geimferjunni Challenger. Ljósi hlutinn í forgrunni myndarinnar er jörðin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.