Morgunblaðið - 17.03.1984, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1984
Sæmundur Valdimarsson hjá verkum sínum á sýningunni á Kjarvals-
stöðum. Ljósm. Mbl./KEE.
Kjarvalsstaðir:
Verk Sæmundar Valdimars-
sonar úr steinum og rekavið
SÆMUNDUR Vaidimarsson, lista-
maður, opnar sýningu á verkum sín-
um á Kjarvalsstöðum kl. 14.00 í dag.
Verkin, sem eru 18 talsins, hefur
Sæmundur unnið úr rekavið og
steinum á síðastliðnum tíu árum.
Sæmundur er fæddur á Krossi á
Barðaströnd 2. ágúst 1918 og bjó
hann þar til ársins 1948 er hann
fluttist til Reykjavíkur. Hann
starfaði lengi jafnt til sjós og
lands og síðustu 30 árin hefur
hann unnið í Áburðarverksmiðj-
unni í Gufunesi. Um 1970 hóf
Sæmundur að setja saman myndir
úr steinum og rekavið og fjórum
árum síðar sýndi hann verk sín á
alþýðulistarsýningu í Gallerí
SUM. Um svipað leyti hóf hann að
gera höggmyndir úr rekavið og
sýndi tvær slíkar myndir á
Kjarvalsstöðum 1982. Fyrstu
einkasýningu sína hélt Sæmundur
sl. haust, þegar nýr matsalur var
tekinn í notkun í Áburðarverk-
smiðjunni.
Talía:
„Aðlaðandi er veröldin ánægð“
TALÍA, leiklistarsvið Menntaskól-
ans við Sund, sýnir um þessar mund-
ir gamanleik Antons Helga Jónsson-
ar „Aðlaðandi er veröldin ánægð“.
Leikritið skrifaði Anton Helgi f sam-
vinnu við leikhópinn og leikstjórann,
Hlín Agnarsdóttur. Verður næsta
sýning í kvöld í MS.
Talía hefur áður unnið undir
stjórn Hlínar Agnarsdóttur, en
hún leikstýrði uppfærslu hópsins
á Galdra-Lofti á liðnum vetri.
Sýningum á „Aðlaðandi er veröld-
in ánægð" fer nú fækkandi, en auk
sýningarinnar í kvöld verður leik-
ritið sýnt á morgun, sunnudag og
á mánudagskvöld.
„Vorkonuru Alþýðuleikhússins:
„Undir tepp-
inu hennar ömmu“
— nýtt verk
eftir Nfnu
Björk
*
Arnadóttur
„Vorkonur“ Aiþýðuleikhúss-
ins frumsýna nýtt verk, „Undir
teppinu hennar ömmu“, eftir
Nínu Björk Árnadóttur, á Hót-
el Loftleiðum þriðjudaginn 20.
mars. Þetta er fjórða frumsýn-
ing Alþýðuleikhússins í vetur
en leikhúsið hefur starfað á
þremur stöðum í bænum auk
þess sem ferðast hefur verið
með eina sýningu í skóla. Hóp-
urinn Vorkonur var stofnaður
síðastliðið vor og skrifaði Nína
Björk verkið í sumar, sérstak-
lega fyrir hópinn.
„Þetta er þrískipt leikhús-
verk,“ sagði Nína Björk á
blaðamannafundi sem Vor-
konur boðuðu til í tilefni
frumsýningarinnar. „Inn-
gangurinn er eintal konu úr
fortíðinni, síðan hefst ein-
þáttungur um konur dagsins
í dag og verkið endar á ljóða-
flokki sem allur er eintal
kvenna eða samtöl tveggja
kvenna."
En hversvegna aðeins kon-
ur? Inga Bjarnason, sem er
fremst í flokki Vorkvenna og
jafnframt leikstjóri verksins,
svarar því: „Meirihluti leik-
rita er skrifaður af karl-
mönnum og 80% hlutverka í
leikritum eru skrifuð fyrir
karlmenn. Þessvegna langaði
mig að gera þessa tilraun,
setja upp leikrit eftir konu og
leikið af konum, til að sjá
hvernig kona upplifir sjálfa
sig, tilveru sína og aðrar kon-
ur. Því þó karlmenn skrifi vel
fyrir konur þá eru hlutverkin
samt sem áður alltaf túlkun
karlmanns á konu.“
Vorkonurnar sem taka þátt
í sýningunni eru Kristín
Bjarnadóttir, Sigurjóna
Sverrisdóttir, Sigurveig
Jónsdóttir, Sigrún Edda
Björnsdóttir, Anna Einars-
dóttir, Margrét Ákadóttir og
Sólveg Haldórsdóttir.
Karlraddir af böndum túlka
Hákon Leifsson, Guðmundur
Ólafsson og Þórhallur Sig-
urðsson. Tónlist við leik-
verkið samdi Mist Þorkels-
dóttir, leikmynd og búninga
Inga Bjarnason og Nína Björk Árnadóttir glað- hannaði Guðrún Svava Svav-
beittar úti í vorinu sem er að koma. arsdóttir og lýsingu annast
Ljósmynd Mbi./KOE. Árni Baldvinsson.
Sdladtí
í Hafnarstraeti
VIÐ HJÁ SÓLBAÐSTOFUNNI SÆLAN í Ingólfsstræti
tókum okkur til og fluttum okkur um set, í nýtt og
glæsilegt húsnæöi Hafnarstræti 7, 2 hæö. Aö auki
breyttum viö nafninu SÆLAN í SÓL og SÆLU.
Við hjá SÓL og SÆLU munum reyna aö bjóöa
sömu góöu þjónustuna og áður, takmarkið er:
Meira rými
Aukin þægindi
Ánægjuleg viðskipti.
Sjálfstæðisfélagid
Njarðvíkingur 30 ára
SJÁLFHTÆÐISFÉLAGIÐ Njarðvíkingur er 30 ára um þessar mundir. Hinn
8. febrúar 1954 komu átta menn saman á fund og ákváðu að stofna félag
sjálfstæðismanna í Njarðvíkum. Stofnfundurinn var haldinn 7. mars sama
ár, en þá hafði 161 maður skráð sig í félagið. Þennan dag var félagið
formlega stofnað og lög voru samþykkt.
Fyrsti formaður og helsti
hvatamaður að stofnun félagsins
var Karvel Ögmundsson.
Félagar Njarðvíkings eru nú um
250 manns, en félag ungra sjálf-
stæðismanna er nú einnig starf-
andi í bænum.
Þessara tímamóta verður
minnst í húsi félagsins á morgun,
sunnudag, og hefst kaffisamsæti
þar kl. 15. í fréttatilkynningu frá
félaginu segir að á boðstólum
verði vandaðar veitingar og sitt-
hvað til skemmtunar. Þar segir og
að félagar og allt stuðningsfólk sé
hvatt til að sækja afmælishófið.
Héraðsbókasafn Borgarfjarðar:
35 þúsund útlán
á árinu 1983
Borgarnegi, 15. mars.
ÚR HÉRAÐSBOKASAFNI Borgarfjarðar voru á síöastliðnu ári lánaðar rúm-
lega 35 þúsund bækur, sem samsvarar 16,72 bindum á íbúa þeirra hreppa
héraðsins sem í safninu eru. Er þetta hlutfall með því allra hæsta sem gerist
á landinu.
I ársskýrslu Héraðsbókasafns-
ins fyrir árið 1983 sem nýlega kom
út kemur einnig fram að bókaeign
safnsins í árslok var 21.563 bækur
og hafði fjölgað um 761 bók á ár-
inu, þar af voru 368 bækur gefnar
safninu.
Stærstu bókagjöfina færði
Ragnar Pálsson í Árbæ í Álfta-
neshreppi safninu, 326 bækur.
Skráðir lánþegar í safnið eru 586
og á síðasta ári komu lánþegar
alls 8.970 sinnum í safnið. í
skýrslu Bjarna Bachmann safn-
varðar kemur einnig fram að mik-
ið er um fyrirspurnir og fyrir-
greiðslu við ýmsa aðila og sér-
staklega hefur fyrirgreiðsla við
skóla aukist á undanförnum árum.
Héraðsbókasafnið er í Safna-
húsinu í Borgarnesi ásamt skjala-
safni, byggðasafni, náttúrugripa-
safni og listasafni. Unnið hefur
verið að undirbúningi byggingar
nýs safnahúss og er hönnunar-
vinnu nú lokið að mestu. f skýrslu
bygginga- og samráðsnefndar
safnahúss segir m.a.: „Bygging
safnahúss mun taka langan tíma,
og í ljósi þess, að söfnin búa nú
þegar við of lítið húsrými og hafa
þess vegna enga vaxtarmöguleika
er brýnt að hefja byggingarfram-
kvæmdir hið fyrsta, enda er al-
kunna, að hálfnað er verk þá hafið
er.“
— HBj.