Morgunblaðið - 19.05.1984, Blaðsíða 37
Minning.
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MAÍ 1984
37
Björn Björnsson
frá Svínadal
Fæddur 6. desember 1887.
Dáinn 14. maí 1984.
Björn Björnsson frá Svínadal
lést í Borgarspítalanum eftir
nokkurra mánaða rúmlegu þann
14. maí sl.
Björn fæddist í Svínadal í
Skaftártungu, sonur Valgerðar
Ólafsdóttur og Björns Eiríksson-
ar. Árið 1916 kvæntist Björn eftir-
lifandi konu sinni, Snjófríði
Jónsdöttur frá Kerlingadal, og
varð þeim tveggja barna auðið,
þeirra Sigurbjargar Ragnheiðar,
sem hefur búið flest árin í Vík í
sambýli við foreldra sína, og Jónu,
gift Ólafi Jónssyni frá Skála.
í dag er Björn borinn til grafar
á heimaslóð sinni Vík í Mýrdal þar
sem hann ásamt Snjófríði hefur
búið síðan 1919. Það ár þurftu þau
að flýja frá Svartanúpi, undan af-
leiðingum Kötlugoss, yfir Mýr-
dalssand til Víkur. Þá var ekkert
viðlagasjóðskerfi eða slíkt upp á
að hlaupa, menn urðu að bjargast
við aðstæður sem í dag þættu ekki
fýsilegar eða boðlegar. Þeir sem
þekktu Björn vita að verklagni
hans og útsjónarsemi komu að
góðum notum á þessum tíma. Sá
sem þessar línur ritar kynntist
Birni 1959. Ég tel það gæfu að
hafa kynnst jafn heilsteyptum,
heiðarlegum og glaðværum manni
og Björn var. Ennfremur er mér
minnisstæð verklagni hans við
skeifusmíði og áhugi á kartöflu-
rækt, þar var ekkert hér um bil á
ferðinni, natni var honum í blóð
borin.
Frásagnarbragð Björns var
þekkt og var unun að hlusta á
hann segja frá lífi og starfi fyrri
ára í Skaftafellssýslu. Björn var
einn af þeim mönnum sem var
trúr yfir litlu og gat gert lífið þess
Steinvör Símonar-
dóttir Minning
Fædd 30. marz 1900
Dáin 13. maí 1984
Þann 13. maí síðastliðinn lést í
Sjúkrahúsi Keflavíkur eftir erfiða
sjúkdómslegu okkar eiskulega föð-
ursystir Steinvör Símonardóttir
frá Austurkoti, Vatnsleysuströnd.
Hún var fædd á bænum Götu í
Holtahreppi, dóttir hjónanna
Gróu Guðmundsdóttur ljósmóður
og Símonar Símonarsonar er þar
bjuggu. Eignuðust þau hjón sjö
börn er upp komust. Af þeim lifa
nú systirin Þórdís og bræðurnir
Brynjólfur, Guðmundur og Rafn.
Einnig átti hún einn hálfbróður,
sem látinn er fyrir nokkrum árum
Steina, eins og hún var oftast
kölluð, eignaðist tvo syni, Aðal-
stein og Guðberg Sigursteinssyni,
einnig ólust upp hjá henni óskar
Guðmundsson og Olafur Herjólfs-
son.
Nú, þegar komið er að leiðarlok-
um, streyma fram í huga okkar
ótal minningar frá liðnum árum
og viljum við systkinin frá Aust-
urkoti þakka Steinu fyrir það sem
hún var okkur í gegnum árin.
Minningin um elskulega frænku
lifir í hjörtum okkar.
Sonum hennar og fjölskyldum
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn-
ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið-
vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn-
ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess
skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort
ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð-
um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð
og með góðu línubili.
þeirra sendum við einlægar sam-
úðarkveðjur.
Far þú i friði
friður guðs þig blessi
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem.)
Guð blessi minningu góðrar
konu. Fyrir hönd okkar systkin-
anna.
Brvndís Kafnsdóttir
virði að það hefði gildi og lífsfyll-
ingu. Okkar fámenna þjóðfélag
mætti eiga sem flesta slíka syni
með þeim lífsvilja að láta ætíð
gott af sér leiða, þau voru kynni
mín af Birni Björnssyni þau tutt-
ugu og fimm ár sem við áttum
samleið.
Þegar Björn er nú kvaddur með
þakklátum huga af okkar vinum
og samferðamönnum eru um leið
Snjófríði konu hans og ástvinum
öllum færðar hugheilar samúð-
arkveðjur.
Með orðum Davíðs frá Fagra-
skógi kveð ég minn kæra vin:
„Höndin, sem hamrinum lyftir,
er hafin af innri þörf,
af líknsamri lund, sem þráir
að létta annarra störf.
Sá fagri framtíðardraumur
er faiinn í verkunum hans,
að óbornir njóti orku
hins ókunna verkamanns."
Guðmundur Þorsteinsson
Kawasaki
kr. 118.000 Kr. 225.000
kr. 225.000 kr. 39.000
SVERRIR ÞÓRODDSSON
Sími 91-82377