Morgunblaðið - 05.07.1984, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ1984
37
Aðalsteinn Péturs-
son á Mel - Minning
í dag fer fram frá Akranes-
kirkju útför Aðalsteins Pétursson-
ar er bjó á Mel í Hraunhreppi í
rúm 50 ár.
Aðalsteinn var fæddur 6. októ-
ber 1899 að Saurum i Hraun-
hreppi. Foreldrar hans voru hjón-
in Pétur Runólfsson, dáinn 1935 og
Guðrún S. Guðmundsdóttir, er
lést 1979 á 101. aldursári. Aðal-
steinn átti heima i Hraunhreppi
alla tíð að undanskyldu einu ári er
hann bjó á Akranesi ásamt heit-
konu sinni Ólöfu Gunnlaugsdótt-
ur, er hann missti eftir skamma
sambúð.
Árið 1972 fór hann ásamt móður
sinni á Dvalarheimili aldraðra og
var þar til kallið kom. Þar naut
hann frábærrar umönnunar for-
stöðukonu er hann mat mikils, og
annars starfsfólks sem á allan
hátt gerði honum allt til geðs.
„Lækkar lífdaga sól, löng er orð-
in min ferð. Fauk í faranda skjól,
fegin hvíldinni verð.“ Þessi sálmur
Herdísar skáldkonu kom mér í
hug er ég lít yfir ævi þessa sak-
lausa og hreinlynda vinar mins.
Aðalsteinn starfaði i sláturhúsinu
í Borgarnesi öll haust í um 50 ár
og var hann talinn sérstaklega
duglegur og flinkur við sitt starf,
tveggja manna maki. Hann kom i
heimsókn 1933 og eftir það fórum
við þrír bræður, Geirlaugur og
Árni Þór og siðast undirritaður i
kaupavinnu að Mel. Einnig þeir
Kári og Hörður synir Geirlaugs.
Það hefur oft verið sagt að þau
börn fari mikils á mis sem ekki fá
að dveljast á góðum sveitaheimil-
um og eru það orð að sönnu. Kynni
af slíku afbragðs fólki og Mels-
fólkinu hafa mótað mig á ýmsan
hátt sem ég get aldrei endurgold-
ið. Alli á Mel eins og hann var
kallaður var óþreytandi við að
fræða mig um allt sem við kom
sveitabúskapnum. Hann var mik-
ill dýravinur. Sérstaklega hafði
hann mikið dálæti á hestum, var
afbragðs tamningamaður og átti
alltaf góða hesta og fór vel með
þá. Smiður var hann góður og átti
smiðju í túninu á Mel. Þar smíðaði
hann skeifur og fleiri hluti fyrir
búskapinn. Þó Alli ætti ekki kost á
langri skólagöngu frekar en aðrir
á þeim tíroa er hann var að alast
upp, skömmu eftir síðustu alda-
mót, var hann margfróður og víð-
lesinn, og talaði mjög rétt mál og
kjarnmikið.
Engan mann hefi ég þekkt sem
kunni þvílíkt kynstur af vísum og
ljóðum, einkum hafði hann mikið
yndi af rímum. íslendingasögum-
ar las hann á hverjum vetri og
kunni þar sumar utanbókar i höf-
uðatriðum. Hann hafði einstakt
minni og var oft til hans leitað í
sambandi við ættir og sérstaklega
fjármörk en af þeim kunni hann
ótrúlega mikið af.
Ekki get ég endað þessi fátæk-
legu línur um minn trygga vin Að-
alstein án þess að minnast á
ljúfmennið Guðmund, bróður
hans, og heiðurskonuna Guðrúnu,
móður hans. Ég hygg að vand-
fundnara sé betra og einlægara
samband en var þar á milli.
Guðrún var vel af guði gerð,
bæði andlega og likamlega og
þótti glæsileg og höfðingleg kona
á yngri árum. Hún var verklagin
og vinnusöm, hafði góða skipu-
lagshæfileika og einkenndist
heimili hennar af snyrtimennsku
og hagsýni, jafnt utandyra sem
innan. Guðmundur sonur hennar
var búfræðingur að mennt og kom
í hans hlut að stjórna búinu og sjá
um rekstur þess. Raunar voru
bræðurnir þar báðir að verki,
samvinnuþýðir og samhentir, og
því styrkar stoðir móður sinnar í
öllu er að heimilinu laut. Guð-
mundur sá meira um kýrnar en
AUi hugsaði um kindurnar og átti
sérstaklega fallegt fé.
Ég sendi Maríu móðursystur
Aðalsteins innilegar samúðar-
kveðjur en hún dvelur hjá dóttur
sinni í Reykjavík í hárri elli, en vel
hress andlega og líkamlega.
Starfsfólki Dvalarheimilisins í
Borgarnesi færi ég hugheilar
þakkir fyrir góða umönnun alla
tíð og gestrisni. Ég þakka af heil-
um hug fyrir að hafa verið hjá
þessu góða fólki. Ég veit að ég get
aldrei þakkað það sem skyldi,
þeirra vináttu og trygglyndi við
okkur bræður og fjölskyldur
okkar. Vinur minn fari í friði, guð
blessi minningu hans.
Guð minn, gefðu þinn frið
gleddu og blessaðu þá,
sem að lögðu mér lið.
Ljósið kveiktu mér hjá“
Hallgrímur Árnason
Lára Ó Jónas-
dóttir — Minning
Fædd 12. júní 1921.
Dáin 1. júlí 1984.
Nú ertu heimsins laus úr leik
því lokið stríði er.
Ég veit þú hugi allra átt
sem eitthvað kynntust þér.
En kærleiksgeislar krýna þig
við kvöldsins sólarlag
og barni sínu er moldin mild,
við minnumst þess í dag.
(Elías Þórarinsson, Vestfirsk ljóð.)
1. júlí síðastliðinn, þegar sólin
skein sem skærast um landið allt,
lést í Landakotsspítala mágkona
mín, Lára. Það kom mér ekki svo á
óvart því veikindin högðu dregið
svo úr lífsþrótti hennar nú á síð-
ustu mánuðum. Vitað var að
hverju stefndi, engu að síður var
andlát hennar mér þungbær frétt
því þar fór einstök og góð kona.
Láru er ég búin að þekkja síðan
Matti bróðir minn kom með hana
á heimili foreldra minna. Mér hef-
ur alltaf fundist að hún hafi tekið
einhverju ástfóstri við mig. Frá
því fyrst við settumst báðar að
fyrir sunnan, við hjónin í Hafnar-
firði og þau í Reykjavík, hefur
alltaf verið mikið samband á milli
fjölskyldnanna, ekki síst þegar
börnin voru lítil. En aldrei liðu
margir dagar milli þess að við töl-
uðum saman i síma þó heimsóknir
hvor til annarrar hafi ekki orðið
eins tíðar hin síðari ár og áður
var. Það hefur því verið mér erfitt
að sjá þrótt hennar dvína dag frá
degi, en aldrei kvartaði hún, ekki í
eitt einasta skipti. Lára var bara
svona, hún bar ekki tilfinningar
sínar á torg.
Lára og Matti áttu ekki barna-
láni að fagna. Sex börn misstu
þau, öll stuttu eftir fæðingu. Get-
ur hver og einn ímyndað sér hvað
það hefur verið þeim mikil raun.
Einn dreng eignuðust þau: Einar;
og var hann sem gefur að skilja
mjög kær móður sinni og gerði
hún allt fyrir hann sem f hennar
valdi stóð. Einari þótti mjög vænt
um móður sína og nú hefur hann
mikið misst. Það skarð verður
aldrei fyllt. Það var aðdáunarvert
að sjá hvernig hann annaðist móð-
ur sína í veikindum hennar. Það
má segja að hann hafi staðið við
sjúkrabeð hennar frá því fyrsta og
þar til yfir lauk.
Lára mátti ekkert aumt vita. Ef
eitthvað var að hjá okkur systrun-
um þá var hún alltaf komin að
vera okkur stoð og styrkur. Ég
gleymi aldrei þegar ég var nýkom-
in heim með litla dóttur mína af
fæðingardeildinni. Barnið var
veikt og ég hafði áhyggjur af
þessu. Þá hringdi ég í Láru og hún
sagði: „Vertu bara róleg, ég kem
til þín og verð hjá þér í nótt.“ Og
það gerði hún og var það mér mik-
ill styrkur og ekki fór hún fyrr en
barnið var komið á spítala. Böddu
systur minni var hún líka sem
besta móðir, ekki síst núna fyrir
nokkrum mánuðum, er hún missti
ungan son sinn í bílslysi. Hún var
þá orðin veikari en margan grun-
aði, en á hverjum degi fór hún til
Böddu, stundum tvisvar á dag og
gekk upp á fjórðu hæð með hvíld-
um. Svona var Lára.
Já, við munum öll sakna hennar
mikið, en mestur er söknuðurinn
hjá eiginmanni, syni, tengdadótt-
ur og barnabörnum.
Elsku Matti, Einar, Lella, Gísli,
Lára litla og Matti Pétur, við Gísli
og börnin okkar sendum innilegar
samúðarkveðjur til ykkar allra og
biðjum góðan Guð að styrkja ykk-
ur og styðja í sorg ykkar. Einnig
sendum við samúðarkveðjur til
systkina Láru: Steinunnar, Línu
og Sigurðar.
Ég kveð mágkonu mína Láru og
óska henni Guðs blessunar og er
ég viss um og trúi því að þeir sem
farnir eru á undan okkur hafi
staðið á strönd hinna nýju heim-
kynna hennar með útbreiddan
faðminn og tekið á móti henni.
Far þú í friði
friður Guðs þig blessi
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Blessuð sé minning Láru mág-
konu minnar.
Jóna Einarsdóttir og fjölskylda.
Leiðrétting
í MINNINGARGREIN um Ludvik
Á. Norgulen í blaðinu á þriðjudag
féll niður föðurnafn tengdaföður
hins látna. Kona Ludviks, Þórunn
Ólafs<)óttir, er dóttir Ólafs ólafs-
sonar er var skipstjóri hér í
Reykjavík.
t
Innilegar þakkir tll allra sem sýnt hafa okkur samúö og vinarhug
við andlát og útför móöur mlnnar, ömmu okkar og systur,
GUOBJARGAR JÓELSDÓTTUR,
Snorrabraut 71.
Ásta ögmundadóttir,
Tómas Bónó,
Patricia Bónó,
Kristján Jóslsson,
Gréta Jóelsdóttir,
Bargþóra Jóalsdóttir.
Lokað vegna jarðarfarar
Skrifstofa Norræna félagsins verður lokuö í dag,
fimmtudag, frá kl. 12 á hádegi, vegna jaröarfarar
HJÁLMARS ÓLAFSSONAR.
Norræna félagið.
NY3A tVOTWELIN
FRAMLEIDD SÉRSTAKLEGA
FYRIR ÍSLAND
Ný og vönduð þvottavél fyrir þig.
♦ Tekur 5 kg af þurrum þvotti.
♦ Tengist við heitt og kalt vatn.
♦ Sérstakursparnaðarrofi.
♦ 400 eða 800 snúninga vinduhraði.
♦ 18 mismunandi þvottakerfi.
♦ íslenskar merkingar á vélinni.
♦ Sérhver vél er rafeindaprófuð.
♦ Verðið er aðeins: 15.400 kr.
15.400:
R
ÁRMÚLA-EIÐISTORGI-SIMI: 91-686117