Morgunblaðið - 26.07.1984, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 26.07.1984, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 1984 41 Drottning 5391 frá Stykkishólmi stóó efst af hryssum sex vetra og eldri, knapi er Einar Öder Magnússon. um það hverjir eru bestu knapar á stórum mótum, þar sem saman er komið úrval reiðmanna og sýnist sjálfsagt sitt hverjum. Að sjálf- sögðu ber fyrst að minnast á Hös- kuld á Hofsstöðum sem að þessu sinni hlaut skeifu Félags tamn- ingamanna og er það vel við hæfi því Höskuldur á að baki langan feril sem tamningamaður auk þess sem hann hefur sýnt fjölda gæð- inga og kynbótahrossa í gegnum tíðina. Var Höskuldur rfðandi þarna á mótinu þrátt fyrir að hann sé á 92. aldursári. Af yngrikynslóðarmönnum ber fyrst að nefna Reyni Aðalsteins- son sem þarna sannaði getu sína svo um munaði. Árangurinn i gæðingakeppninni frábær, auk þess sem hann var með urmul kynbótahrossa úr eigin ræktun sem er óðum að skila árangri. Annár ungur knapi var þarna áberandi, Einar öder Magnússon frá Selfossi, en hann var við tamn- ingar á Snæfellsnesi i vetur. Skil- aði hann hlutverki sínu frábær- lega vel, var með efstu hryssuna í sex vetra flokki, Drottningu frá Stykkishólmi, einn hest í úrslitum i B-flokki, efstu fjögurra vetra hryssuna, auk þess sem hann keppti á fleiri hrossum. Einnig afkvæmi undan honum sem ná yf- ir 8,10 i meðaleinkunn, en það eru mörkin á heiðursverðlaunum. Á þessum nýafstöðnu fjórðungs- mótum voru hross undan ófeigi nokkuð áberandi. Á fjórðungsmót- inu fyrir austan átti hann efstu hross f sex vetra flokki stóðhesta og hryssna. Máni sem var sýndur með afkvæmum er undan ófeigi. Efstu hross í A- og B-flokki gæð- inga á Kaldármelum eru bæði undan Ófeigi, efsta hryssan í sex vetra flokki er undan ófeigi og svona mætti lengi telja en ljóst er að stjarna ófeigs er nú tekin að risa á nýjan leik. Fátækleg sýning einstakra stóðhesta Aðeins fjórir stóðhestar voru sýndir sem einstaklingar að þessu sinni, einn átta vetra og þrir fjög- urra vetra. Þessi elsti, Elgur 965 frá Hólum, er nokkuð umdeildur hestur, nú i eigu fimm bænda f Borgarfirðinum. Fékk hann tvær einkunnir upp á 9,0, fyrir vilja og skeið, fyrir fegurð i reið fær hann 8,0 og aðrar hæfileikaeinkunnir hljóða upp á 7,5. Fyrir byggingu fær hann góða einkunn ef undan eru skilin tvö atriði. Fyrir sam- Hvöt 5549 frá SigmundarstMum hafnaðl (öðru aæti f flokki elatu hryssanna, knapi og jafnframt eigandl er Reynir Aðalsteinsson. mætti nefna Högna Högnason, sem var efstur i eldri flokki ungl- inga, er þar greinilega á ferðinni bráðefnilegur reiðmaður. Ófeigs þáttur Hrafnssonar Á flestum fjórðungsmótum er það oft þannig að afkvæmi ein- hvers eins stóðhests er meira áberandi en afkvæmi annarra. Vinsældir og álit á ófeigi 818 frá Hvanneyri fóru heldur dvínandi eftir Landsmótið 1982, þar sem hann náði því ekki að komast i heiðursverðlaun á því móti. Fram- an af voru þeir gjarnan bornir saman ófeigur og Hrafn 802 eftir að þeir skipuðu efstu sætin á Landsmótinu 1974 ( sex vetra flokki stóðhesta. Siðan má segja að Hrafn hafi náð drjúgu forskoti ’82 þegar hann hlaut heiðursverð- launin sem frægt er orðið. Eftir fjórðungsmótin tvö, sem haldin voru i sumar, má segja að vegur ófeigs fari vaxandi á nýjan leik og ekki ósennilegt að hann verði næsti stóðhestur sem fer í heið- ursverðlaun. Reyndar eru til tólf ræmi fær hann aðeins 7,0 og fyrir háls og herðar fær hann 7,5. Aðal- einkunn hljóðar upp á 7,98 og greinilegt að ekki á að hjeypa hon- um (fyrstu verðlaun sem einstakl- ing svo þeir fimmmenningar verða að einbeita sér að þvi að fá góðar hryssur undir hann svo takast megi þegar fram liða stundir að fá á hann góðan afkvæmadóm. Ungu hestarnir virkuðu ágætlega á mann. Sá efsti, Gustur 1003 frá Stykkishólmi, undirstrikaði nú fyrstu verðlaunadóminn sem hann fékk i vor og stendur hann vel undir þeirri einkunn sem hann fékk, 8,04. Annar varð Fákur 1006 frá Eskiholti, með 7,91. Þetta er efnilegur reiðhestur, þótt hann hafi fengið full háa samræmis- einkunn, 8,0, þvi hesturinn er of fótastuttur til að bera þessa ein- kunn. í þriðja sæti varð Drifandi frá Hrapps8töðum bróðir klár- hrossanna sem efst stóðu i B-flokki. Það er einkum tvennt sem dregur hann niður i einkunn, i fyrsta lagi er hann skeiðlaus og svo er hann full stuttur. Að öðru leyti er þetta mjög geðslegur hest- ur, fasmikill klárhestur með tölti. Aukaferð til Parísar Kvennaferð með Henríettu 00 Rósamundu í fararbroddi „Hið fullkomna frí fyrir konur“ er kjörorð kvenna- ferðar til Parísar, sem farin er á vegum Samvinnuferöa- Landsýnar undir fararstjórn Henríettu og Rósamundu, eða þeim Helgu Thorberg og Eddu Björgvinsdóttur. Nú þegar er uppselt í tvær slíkar kvennaferðir og ákveðið hef- ur verið að efna til aukaferð- ar þann 25. ágúst næstkom- andi. Þetta kemur fram í frétt frá Samvinnuferðum-Landsýn, þar sem ennfremur segir: „I París ætla þær m.a. að fara i tyrkneskt kvennabað, horfa á Eiffel- turninn úr götuhæð, skoða sögu- frægar byggingar, söfn, skraut- garða og sæta stráka, bera að ofan og i stuttbuxum. Svo verður auðvitað kíkt á skemmtistaði. En fyrst og fremst ætla þær Henrí- etta og Rósamunda og ferðafé- lagarnir að hlæja saman, kjafta saman, borða saman og skoða og skemmta sér saman. Nú þegar er uppselt í ferðirnar tvær sem í upphafi voru fyrir- hugaðar. Hressar konur á öllum aldri og allstaðar að af landinu tóku því heldur betur við sér og fylltu ferðirnar á örfáum dögum. Því verður farin aukaferð 25. ág- úst — Henrietta og Rósamundu til mikillar gleði. Þeim finnst svo skratti gaman að Parísarlífinu." Að slá í gegn í fyrsta höggi plotur Siguröur Sverrisson Dúkkulísurnar Dúkkulísurnar Skífan Það hefur dregist úr hömlu að fjalla um hina mjög svo ágætu plötu Dúkkulísanna, sem kom út fyrir nokkrum vikum, en hér skal það loks gert. Til að bæta upp biðina er rétt að vinda sér beint að kjarna málsins: Þessi frumraun Dúkkulisanna er ótrúlega góð og sannast sagna miklu betri en mig óraði nokkru sinni. Vissi ég þó vel hvað i þess- um tátum bjó. Til hamingju Eig- ilsstaðameyjar. Svo stúlkurnar séu enn frekar ausnar lofi er ég þeirrar skoðun- ar að þessi plata sé einhver besta frumraun islenskrar poppsveitar um langt skeið. Lögin, sem eru sex að tölu, eru hvert öðru betra og hafa enda flest hver hljómað ótæpilega á öldum ljósvakans undanfarnar vikur. Þótt Pamela hafi þar náði mestri hylli finnst mér Töff vera best. Tónlist Dúkkulisanna er popp- að rokk en afar kraftmikið. Að- all sveitarinnar er snjall gitar- leikur Grétu Sigurjónsdóttur. Gítarsóló hennar eru hvert öðru snoturra. Svipaða sögu er að segja um hljómborðsleikinn. Hann er smekklegur og fellur vel að lögunum. Rythmadúettinn, bassi og trommur, er afar sann- færandi og drífur tónlistina áfram. Það er helst að Guðbjörg trommari ofnoti tvöfalda „bassatrommubitið" þótt óneit- anlega gefi það tónlistinni aukið „trukk". Söngur Erlu er ( finu lagi þótt rödd hennar sé stund- um dálitið hvell. Stelpurnar fimm i Dúkkulis- unum eru aðeins 18 ára þær elstu og eiga vissulega framtið- ina fyrir sér (þreyttur „frasi“ þetta). Ef rétt er haldið á spilun- um ætti næsta plata Dúkkulis- anna að geta orðið enn betri en þessi. Ekki má þó flana að neinu. Dúkkulísurnar hafa þegar skráð nafn sitt stóru letri í íslenskri rokksögu. Kannski þær eigi eftir að komast á titilblað hennar? Það fær tíminn einn skorið úr um en þessar fimm frisku stelp- ur frá Egilsstöðum hafa burði til mikki meiri afreka. —' i' ■ » BREAK- DANS- KEPPNI í VIÐEY UM VERSLUNARMANNAHELGINA Þeir sem ætla að taka þátt í breakdanskeppni á Viðeyjarhátíð tilkynni sig í síma 66-72-06 alla daga milli kl. 13-17, til n.k. þriðjudags. 1. verðlaun: Ferð til New York á vegum adidas o# VIÐEYJARHÁTÍÐ ’84 €
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.