Morgunblaðið - 08.11.1984, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1984
Steingrímur Hermannsson;
Þýða snöggar
hækkanir
„ÉG FAGNA út af fyrir sig því að
samningar náðust án verkfalla. Það
er stefnt að því að þeir geti orðið út
næsta ár, en ég tel að það sé rétt
orðað, sem haft var eftir einhverjum
samningamanninum, að þetta sé
hálfgert bitbein BSRB-samn-
inganna. Þeir settu línuna og það
var aldrei hægt að gera ráð fyrir að
þessir samningar yrðu öðruvísi,"
sagði Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra um kjarasamninga
ASÍ og VSI'.
Forsætisráðherra sagði að
ASÍ/VSÍ -samningarnir væru með
sömu göllum og BSRB-samn-
ingarnir, þ.e. að heildarhækkunin
væri meiri heldur en þjóðarbúið
stæði undir, en þar að auki kæmu
hækkanirnar langsamlega mest
fyrst í ASÍ/VSI-samningunum
sem skapaði strax mikla erfið-
leika, — snöggar kostnaðarhækk-
anir.
Hann var spurður, hvaða hækk-
anir kæmu fyrst. „Það hljóta að
Svavar Gestsson:
koma hækkanir launa til bænda í
kjölfarið og þá hækkar náttúrlega
landbúnaðarverðið 1. desember.
Þá hækkar útseld vinna í allri
byggingarvinnu og hjá verktökum
eflaust mjög fljótlega. Þegar er
farið að tala um að bækur hækki
og þetta eru allt hlutir sem ríkis-
stjórnin ræður ekki við.“
Steingrímur vildi ekki tjá sig
um fyrirhugaðar aðgerðir hins
opinbera i efnahagsmálum, en
sagðist myndu gera grein fyrir
þeim í stefnuræðu sinni, sem
væntanlega yrði flutt á Alþingi
annan fimmtudag. „Að mínu mati
þarf að gera ýmsa hluti, suma
smáa en aðra stærri, til að aðstoða
þá sem erfiðast eiga, ekki sízt með
að þola hækkun verðlags. Ég nefni
þar húsbyggjendur, ellilífeyris-
þega, örorkubótaþega, einstæða
foreldra. Það þarf að skoða þá
hluti alla, og það er verið að þvi,“
sagði hann að lokum.
Allmyndarlegar
kauphækkanir
„MIÐAÐ VIÐ það sem menn voru
að gera sér hugmyndir um fyrir
nokkrum mánuðum, þá held ég að
menn hafi náð allmyndarlegum
kauphækkunum. Spurningin er hins
vegar hvort ríkisstjórnin tekur til
baka árangur þessara samninga, eða
hvort gerð verður tilraun til þess að
varðveita kaupmátt þeirra," sagði
Svavar Gestsson, formaður Alþýðu-
bandalagsins, er hann var spurður
álits á nýgerðum kjarasamningum.
Svavar var spurður, hvort hann
teldi að kauphækkanir til bænda
og sjómanna kæmu í kjölfar þess-
ara samninga á vinnumarkaðin-
um. Hann svaraði: „Það liggur
auðvitað alveg í augum uppi, að
svona samningar hljóta að ganga
til launamanna hvar sem þeir eru.
Spurningin er hins vegar um það
að hve miklu leyti hægt er að
skapa forsendur til þess í atvinnu-
lífinu að það geti tekið á sig þessar
kauphækkanir með því að skera
niður þann kostnað, sem þeir eru
með fyrir utan kaup.“
— Segir sagan okkur ekki, að
það hljóti að koma til gengisfell-
inga í kjölfarið?
„Það er ekkert náttúrulögmál að
slíkt þurfi að gerast. Það fer auð-
vitað eftir því, hvernig að hlutun-
um er búið og það er ekki nokkur
vafi á því, að talsverður hluti at-
vinnugreina í þjónustu og verzlun
getur tekið þessar hækkanir á sig
og hefur í raun og veru greitt
talsvert umfram kauptaxta, jafn-
vel það sem samið var um og ívið
meira. Sjávarútvegurinn stendur
auðvitað öðru vísi og þar er fyrst
og fremst um að ræða hinn of-
boðslega fjármagnskostnað, sem
hefur hækkað í tíð þessarar ríkis-
stjórnar."
Nýja loftið, samkvæmt hugmyndurn hönnuðanna, Steinþórs Sigurðssonar og Daða Ágústssonar.
Breytingar á lofti og lýsingu Kjarvalsstaða
Á ÞESSU ári hefur verið unnið að
hönnun á nýju lofti og nýrri lýsingu
á Kjarvalsstöðum. Hefur stjórn
Kjarvalsstaða samþykkt tillögu
Stcinþórs Sigurðssonar, listmálara
og Daða Ágústssonar, Ijósahönnuð-
ar, um áðurnefnda breytingu og hef-
ur verið unnið að undirbúningi
breytinganna samkvæmt þeim tillög-
um.
Að sögn Stefáns Hermannsson-
ar, aðstoðarborgarverkfræðings,
er nú verið að afla tilboða í verkið
og til framkvæmda mun líklega
koma á næsta ári. Stefnt er að því
að undirbúningi að framkvæmd-
um Ijúki á þessu ári, en að sögn
Stefáns tafði nýafstaðið verkfall
nokkuð þær áætlanir. Búið er að
auglýsa eftir tilboðum í lýsingu og
efni í nýtt loft, en endanleg
ákvörðun um framkvæmdir liggur
ekki fyrir fyrr en eftir samþykkt
fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár.
Einar Hákonarson, formaður
stjórnar Kjarvalsstaða, sagði í
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins, að lengi hefðu verið uppi
raddir meðal listamanna um
breytingu á lýsingu í húsinu, og
hefði óánægja með lýsinguna ver-
ið almenn þeirra á meðal, allt frá
því húsið var opnað. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins mun
Hannes Kr. Davíðsson, arkitekt,
sem teiknaði Kjarvalsstaði, hafa
verið boðið á sínum tíma að gera
lagfæringar á loftinu, í samræmi
við óskir listamanna, en hann
hafði verið mótfallinn breytingum
á lofti og lýsingu hússins. Ekki
tókst að ná tali af Hannesi Kr.
Davíðssyni í gær vegna þessa
máls.
Gamla loftið, sem nú er fyrirhugað að breyta.
Horgunblaöið/Ól.K.M.
Farmgjöld íslensku skipafélaganna:
„Ástæða til að gera úttekt á stöðu
íslenskrar kaupskipaútgerðar“
- segir Ragnar Kjartansson, stjórnarformaður SÍK
UMRÆÐUR um há farmgjöld íslenskra skipafélaga hafa verið talsvert
áberandi í fjölmiðlum að undanförnu og hafa jafnvel borist inn í sali
Alþingis. Morgunblaðið sneri sér til Ragnars Kjartanssonar, stjórnarfor-
manns Hafskips hf„ sem jafnframt er formaður stjórnar Sambands
íslenskra kaupskipaútgerða og spurði hann álits, m.a. á könnun Sjó-
mannasambandsins, þar sem því er m.a. haldið fram, að farmgjöld
tslensku skipafélaganna séu þau hæstu í heimi.
„Sú umræða, sem fram hefur
farið um þessi mál á opinberum
vettvangi á undánförnum miss-
erum, hefur að öðru jöfnu verið
yfirborðskennd og lítt málefna-
leg og sem slík einkennst af lít-
illi þekkingu, eins og oft vill
verða,“ sagði Ragnar Kjartans-
son. *„Hins végar má segja, að
það sé eins með verslunarskip-
aútgerðina og velflesta þætti í
okkar þjóðfélagi, að þar má sitt-
hvað betur fara. íslenskt þjóðfé-
lag stendur 'nú frammi fyrir
meiri þrengingum og vanda og
oft áður. Táka þarf því til hendi
af atorku á sem flestum sviðum,
leita leiða til einföldunar og hag-
ræðingar.
Ég leyfi mér þó að fullyrða, að
fáar greinar íslensks atvinnulífs
hafi gengið I gegnum eins mikla
uppstokkun og hagræðingu og
fslenska verslunarskipaútgerðin
hefur'gert á undanförnum árum,
en betur má ef duga skal og er
svo t með þjóðfélagsþættina
flestá. <
Ég sé fulla ástæðu til málefna-
légrar úttektar á'stöðu islenskr-
ar kaupskipaútgerðar í ljósi
Ragnar Kjartansson stjórnarfor-
maður Hafskips og Sambands ís-
lenskra kaupskipaútgerða.
framsettra athugasemda. Sam-
band íslenskra kaupskipaút-
gerða ætti hæglega að geta kom-
ið á samstarfsnefnd skipafélaga,
verðlagsyfirvalda og hagsmuna-
samtaka, sem standi að slfkri út-
tekt. Ég vil þó taka það fram, að
ég hef enn ekki borið þessa
hugmynd undir stjórn Sam-
bands íslenskra kaupskipaút-
gerða, heldur nefni ég þetta hér
sem mína persónulegu skoðun.
Við verðum að hafa í huga, ef
við viljum fjalla um hlutina mál-
efnalega, að sérstaða fslenskrar
verslunarskipaútgerðar er mjög
margvisleg.í fyrsta Iagi má
nefna smæð íslenska þjóðfélags-
ins, svo sem tiltölulega lítil skip
með hárri áætlunartíðni og hag-
kvæirtni erlends stórskipa-
reksturs á því ekki við hér. I
þessu sambandi má nefna smæð
markaðar á íslandi, smáar óg
margar sendingar, litlar rekstr-
areiningar almennt og að jöfnu
lítil sérhæfing skipakosts og
fyrirtækja.
í öðru lagi má nefna legu
landsins og erfiðar siglingaleið-
ir, óhagkvæma olíunotkun,
hærri viðhaldskostnað og tíðari
vörutjón. Þá má einnig benda á
mikla landsþjónustu skipafélag-
anna, sem er næsta óþekkt er-
lendis. I fjórða lagi má minna á
áhrif óðaverðbólgu undanfar-
inna ára og mikið gengistap, þar
sem fjármögnun til fjárfestingar
er nær eingöngu í erlendum
gjaldmiðlum. og mikill hluti
rekstrarkostnaðar. Ýmis önnur
atriði má nefna, svo sem kostnað
lánsviðskipta, fjármagnskostnað
vegna taprekstrar fyrri verð-
lagssveltisára og sitthvað fleira.
Ég held hins vegar að rétt sé að
bíða með það og sjá hvort menn
taka nú því' tilboði, aö skipuð
verði samstarfsnefnd til að gera
úttekt á stöðu íslenskrar kaup-
skipaútgerðar;" sagði Ragnar
Kjartansson.