Morgunblaðið - 08.11.1984, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1984
63
Víkingar ættu aö vera öruggir
áfram í Evrópukeppninni
Frá Halli Hallssyni, Maöamanni
MorgunMaðsina i Noregi.
Bikarmeistarar Víkings sigrudu
norska liöið Fjellhammer, 26:20, í
fyrri Evrópuleik liðanna í Osló í
gærkvöldi. Þar með eiga Víkingar
góða möguleika á að komast í
aðra umlerö keppninnar en síðari
leíkurinn fer fram í kvöld. Það var
fyrst og fremst leikur átján ára
stórefnilegs unglings sem skóp
sigur Víkings í gærkvöldi — Sig-
geirs Magnússonar. Þessi ungi
leikmaöur, sem tók að sér aö fylla
skarð Þorbergs Aðalsteinssonar,
skoraði fimm glæsíleg mörk með
þrumuskotum og átti auk þess
snjallar línusendingar sem gáfu
• mörk. Ný stjarna kom fram á
sjónarsviðið í íslenskum hand-
knattleik.
Mikil taugaspenna einkenndi
leik beggja liða í gærkvöldi. Norð-
menn skoruöu fyrsta markið og
jafnt var á öllum tölum upp í 3:3.
Þá hins vegar náöu Víkingar mjög
góöum leikkafla, Viggó Sigurös-
son, meö þrjú mörk, og Guömund-
ur Guömundsson voru mennirnir á
bak viö þaö aö Víkingur haföi 10:4
er 24 mín. voru liönar af f.h. Þeir
léku mjög vel, skoruöu hvor um sig
þrjú mörk og Karl Þráinsson tvö.
En greinilegt er aö Víkingar eru
ekki komnir í næga leikæfingu og
gjalda þess enn aö íslandsmótiö er
enn ekki hafið, því Fjellhammer
Fjellhammer
— Víkingur
20:26
náöi aö minnka muninn í 11:9 fyrir
leikhlé.
Fjellhammer náöi aö jafna met-
in, 15:15, fljótlega í síöari hálfleik,
en þá var komiö aö Siggeiri aö
sýna snilldartakta. Hann skoraöi
hvert markiö á fætur ööru meö
glæsilegum langskotum og átti
auk þess snjallar línusendingar
sem gáfu mörk. Víkingar sigu fram
úr á nýjan leik — skoruðu þrjú
mörk í röö, komust í 18:15 og
21:16 er 20 min. voru liðnar af síö-
ari hálfleik.
Víkingar höföu þá mikla yfir-
buröi, spiluöu sterkan varnarleik
og á línunni skoraöi Hilmar Sigur-
gíslason mikilvæg mörk. Lokatölur
uröu 26:20 — öruggur og glæsi-
iegur sigur í höfn.
Þetta var fyrst og fremst sigur
liösheildarinnar. Víkingsliöiö var
mjög jafnt og áberandi betur agað
en norska liöiö. Siggeir Magnús-
son, Viggó Sigurösson og Hilmar
Sigurgíslason skoruöu fimm mörk
hver, Guömundur Guömundsson
Ný stórskytta í sviösljósiö:
„Ákaflega tauga-
óstyrkur í upphafi“
„ÉG VAR ákaflega taugaóstyrkur
í byrjun — átti þá misheppnuð
skot, en sem betur fer lagaðist
þetta er á leikinn leið,“ sagði Sig-
geir Magnússon, hinn átján ára
gamli leikmaöur Víkings sem í
gærkvöldi lék sinn fyrsta Evrópu-
leik og sló eftirminnilega í gegn.
Þar er á ferðinni mikiö efni.
„Ég átti von á sterkari varnarleik
af hálfu Norömanna og eins betri
markvörslu — í sannleika sagt var
ég svolítiö hissa þegar skot min
rötuöu rétta leiö í netiö. Við töldum
í upphafi aö vænlegast yröi aö
skjóta uppi á landsliösmarkvörð-
inn Rune Svendsen og ég geröi
þaö í upphafi, en síðan skaut ég
niöur í gólfiö og rétta leiö rataöi
knötturinn.
Þetta er stórkostlega byrjun og
hún kom mér mjög á óvart og eyk-
ur bjartsýni á framtíöina, en maö-
urinn á bak viö þetta er þjálfari
minn, Bogdan Kowalzcyk. Hann
hefur kennt mér allt sem ég kann,"
sagöi Siggeir Magnússon.
„Aöeins hálfleikur nú“
„ÞAD ER aðeins hálfleikur í við-
ureign okkar viö Fjellhammer. En
þaö er vissulega gott aö eiga sex
mörk til góða,“ sagöi Viggó Sig-
urðsson í samtali viö Mbl. eftir
leikínn í gærkvöldi.
„Getum kom-
ist áfram“
„VIÐ NÁDUM okkur aldrei á strik
— lékum óagað og því fór sem
fór,“ sagði Kare Ohrvik, marka-
hæsti leikmaður norska liðsins, í
samtali viö Mbl. eftir leikinn.
„En viö erum staöráönir í aö
komast áfram. Víkingsliöiö er gott,
skyndisóknir þeirra voru ávallt
hættulegar, línuspilið gott, Hilmar
Sigurgíslason er stórhættulegur
linumaöur og meginstyrkur Vik-
ingsliösins er hve jafnir leikmenn
voru og hve agaö þeir lóku,“ sagöi
hann.
„Þeir eru sviþaöir aö styrkleika
og ég átti von á en engu aö síður
tel óg aö viö eigum aö geta sigraö
þetta liö og komist áfram," sagði
Kare Ohrvik.
„Viö áttum þokkalegan síöari
hálfleik en vorum mistækir í þeim
fyrri. Þaö var stórkostlegt aö sjá til
Siggeirs. Hann lék sinn fyrsta Evr-
ópuleik og kom upp á réttum tíma.
í sannleika sagt átti ég ekki von á
því þar sem þetta var hans fyrsti
stórleikur en ég veit aö hann er til
alls líklegur. íslenskur handknatt-
leikur hefur eignast nýja stór-
skyttu.
Hvaö sjálfan mig varöar þá er óg
ekki ánægöur meö eigin frammi-
stööu. Ég átti slakan dag og get
gert miklu betur," sagöi Viggó Sig-
urðsson.
Páll í Færeyjum
PÁLL Guðlaugsson, sem lék um
tíma með Þór, Akureyri, í 1. deild-
inni í knattspyrnu í sumar, er nú í
Færeyjum í viðræðum við for-
ráðamenn 2. deildarliös. Félagið
vill fá hann sem þjálfara, en þaö
missti naumlega af 1. deildarsæti
í sumar. Páll lék um skeið með
félagínu Gðtu í Færeyjum og varð
m.a. færeyskur meistari með liö-
inu.
„Smeykur
við seinni
Karl Þráinsson átti mjög góðan leik í gærköldi.
og Steinar Birgisson skoruöu fjög-
ur mörk hvor, Karl Þráinsson skor-
aði tvö mörk og Einar Jóhannes-
son eitt.
Markhæsti leikmaður norska
liösins var landliösmaöurinn Kare
Ohrvik — skoraöi sex mörk og
Roger Mathiesen og Sten Östher
skoruöu fjögur mörk hvor.
Dómarar í leiknum voru danskir,
Henrik Jörgensen og Per Morten-
sen.
Ieikinn“
„ÉG TEL alls ekki að viö séum
komnir þó viö höfum náö sex
marka forystu. íslensk liö hafa oft
náð sex marka forystu í leikjum
sínum og misst hana niður. Þetta
er aöeins fyrri hálfleikur,“ sagöi
Guðmundur Guðmundsson, fyrir-
liði Víkings, i samtali viö blm.
Mbl. í gærkvöldi.
„í sannleika sagt er óg smeykur
viö leikinn á morgun en viö erum
staðráðnir í aö standa okkur vel.
Viö veröum aö hafa i huga aö
Norömenn hafa allt aö vinna —
engu aö tapa," sagöi Guömundur
Guömundsson. „Leikur okkar var
misjafn í kvöld. Okkur gekk vel
framan af fyrri hálfleik. Viö komust
í 10:4 en þá geröist þaö eins og
gerist svo oft hjá íslenskum liöum
— viö áttum ótímabær skot og
þeir fengu hraöaupphlaup og náöu
aö minnka muninn. En þetta gekk
vel í síðari hálfleik. Þá small allt
saman, Siggeir átti þá snilldarleik,
svo og Karl Þráinsson og Hilmar
Sigurgíslason. Þegar þeir náöu aö
minnka muninn og jafna í síöari
hálfleik þá náöum viö aö þjappa
okkur saman, náöum góöri baráttu
og sterkum varnarleik og Norö-
menn áttu ekkert svar við því,“
I sagöi Guömundur fyrirliði.
GóÓar vebwvörur ________
XftKSÐ EFnR'-
^ Yhj, sendinq
Qott verd
ATH.
Við í BLAZER leggjum
áherslu á góó snið,
lítió magn og góða
þjónustu.
Líttu inn,vió erum á
Hverfisgötu 34 meó það
nýjasta frá Evrópu.
□
□
________ □
QaUabuxwiCJ n Q
7akkafpi □
TISKUVERSLJUN HVERFISGOTU 34 s. 621331
r
I