Morgunblaðið - 29.11.1984, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 29.11.1984, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1984 Tölvubók frá AB ALMENNA bókafélagið hefur gefið út bók um notkun og hagnýtingu tölva undir nafninu TÖLVIJBOK AB. Meginhluti hennar er upphaf- lega saminn fyrir tölvukennslu á vegum breska sjónvarpsins (BBC) af þremur sérfræðingum, þeim Robin Bradhear, Peter De Bono og Peter Laurie. Þýðandi er Björn Jónsson. 1 frétt frá AB segir, að við BBC-bókina hafi verið bætt 25 blaðsíðna viöauka sem heitir Notk- un tölva í íslensku atvinnulífi og hafi samiö hann þeir Gunnar Ingi- mundarson, Jón Sch. Thorsteins- son og Páll K. Pálsson. Auk þess er orðskýringakafli, þar sem merking hinna islensku nýyrða eru skýrð og tekið fram hvernig tilsvarandi orð er notað í ensku. Tölvubók AB er fyrst og fremst hugsuð sem hagnýt kennslubók og er gefin út í samráði og samvinnu við Stjórnunarfélag Islands, en einnig er unnt að nota hana við sjálfsnám, segir í frétt AB. íslenska þættinum er skipt í nokkra kafla sem heita: Tölvuvæð- ing atvinnulífs, Notkun tölva í sjávarútvegi (við fiskveiðar og fisk- vinnslu). Notkun tölva í iðnaði (við bókhald, framleiðslustýringu og framleiðslueftirlit). Tölvubók AB er 236 bls. að stærð, pappírskilja i allstóru broti. Fjöldi skýringamynda er í bókinni. Djúpiyoglu,: Saltað í rúml. 14 þús. tunnur Djúpavogi, 28. nÚTember. TÍÐARFAR hefur verið einstaklega gott á þessu hausti, varla hefur kom- ið frostnótt og ekki sést snjóföl. Hér hófst sfldarsöltun 14. október og var henni að mestu lokið snemma f nóv- ember. Var saltað í um 14.500 tunn- ur hjá Búlandstindi hf. Slátrun lauk síðari hluta októ- bermánaðar. Slátrað var nálægt 11.000 fjár og var meðalvigt dilka 14,1 kíló, sem er heldur betra en í fyrra. Sunnutindur var hér inni um helgina með um 82 tonn af fiski og er verið að vinna úr hon- um núna. Einnig er unnið við pæklun á síld og nokkuð við hús- byggingar. Fréttaritari COTT VECCRIP GÓÐ ENDING Hvort er mikilvægara griphæfni hjól- baröans eöa ending? Hvortveggja skiptir miklu og pess vegna eru báðir pessir eiginleikar í hámarki í Goodvear uitra Grip börðunum. Þetta eru hjólbarðar með sérstæðu munstri, sem gefur ótrúlega fast grip, jafnvel í bröttum brekkum. Þeir standa einstaklega vel á hálku og troða lausamjöll vel undir sig. S Munsturgerðin og hin sérstaka gúmmíblanda valda því að barðinn heldur eiginleikum sínum að fullu út allan endingartímann, sem er mjög langur. Munsturraufarnar eru þannig lagaðar, að þær hreinsast af sjálfu sér í snjó og krapi. Á auðum vegi eru Ultra Grip barðarnir mjúkir og hljóðlátir. Á Ultra Grip hefurðu öryggið með í förinni. Goodvear gerir enga málamiðlun, pegar um er að ræða umferðar- örvggi. — Öll hjólbarðaþjónusta fyrir fólksbfla og sendibfla — GOODfYEAR GEFUR 0'RÉTTA GRIPIÐ Morgunblaðiö/ívar Þórhallsaon Sjónvarpsskermurínn trónir 1 leyfisleysi á svölum eins húss sovézka sendiráósins. Skermurinn, sem Bandaríkjamenn sóttu um leyfi fyrír á húsi banda- ríska sendiráðsins við Laufásveg. Sjónvarpsskermur á sovézka sendiráðinu: Rússar hafa enn ekki sótt um leyfi fyrir skerminum SOVÉZKA sendiráðið hefur enn ekki sótt um leyfi fyrir sjónvarps- skermi, sem settur var upp á einni sendiráðsbyggingunni, Túngötu 9, í fyrra. Nýlega var Sovétmönnum tilkynnt að sækja yrði um leyfi fyrir skerminum, sem þeir settu upp í óleyfi og voru kærðir fyrir, en viðbrögð hafa engin orðið. Fram hafa komið tillögur um staðsetningu sjónvarpsskerms- ins, sem nemur merkjasendingar frá gervihnöttum. Bygginga- nefnd Reykjavíkur var ósátt við þá tillögu. íbúum f næsta ná- grenni var send tillagan og hafa engin mótmæli borizt. Komið hefur verið upp loft- netsskermi á húsi bandaríska sendiráðsins við Laufásveg til að nema sjónvarpsmerki frá sjón- varpsstöð varnarliðsins á Kefla- víkurflugvelli, og var leyfi veitt fyrir uppsetningu skermsins 9. áigúst. Jafnframt hefur verið settur upp loftnetsskermur á leiguhúsi sendiráðsins við Þingholtsstræti 34 án þess að leyfi væri fyrir uppsetr.ingunni, samkvæmt upp- lýsingum skrifstofu bygginga- fulltrúa. Skermurinn á leiguhúsi bandaríska sendiráðsins við Þingholtsstræti 4, sem ekki hefur verið veitt leyfi fyrir. Wterkurog k-/ hagkvæmur auglýsingamióill! Athvarf allslausra Slæm villa var í blaðinu í gær í fyrirsögn á þætti Árelíusar Ní- elssonar Við gluggann. Þar stóð Athvarf aldraðra en átti að vera Athvarf allslausra. Eru höfundur greinarinnar og lesendur beðnir velvirðingar á mistökunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.