Morgunblaðið - 22.01.1985, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.01.1985, Blaðsíða 1
56 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI STOFNAÐ 1913 17. tbl. 72. árg. ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsins „Svartur dagur hjá Scargill“: Nær 2000 námamenn sneru aftur til vinnu Lundúnum, 21. juuar. AP. „SVARTUR dagur hjá Arthur Scargill,“ sögðu fyrirsagnir blaða í Bretlandi dag, en þá hurfu 1774 kolanámamenn aftur til vinnu og hefur annar eins fjöldi ekki snúið baki við verkfallinu á einum og sama deginum síðan það hófst fyrir um 10 mánuöum. Talsmaður breska kolanáma- sambandsins sagði í dag að með þessu nýja vinnuafli væru nú 75.000 námaverkamenn sem ynnu í trássi við verkfallið, en kolanáma- menn í Bretlandi töldu 189.000 er verkfallið hófst. Vikurit sem er málsvari verkalýðsfélags kola- námamanna segir allar tölur sem opinberar eru um fjölda vinnandi Víetnamar sækja að Rauðu khmerunum námamanna falsaðar, sigur í verk- faliinu sé f raun á næsta leiti. Málgagnið sagði jafnframt, að viðhorf verkalýðsfélagsins væru svo gersamlega fótum troðin í fjöl- miðlum í Bretlandi, að áróðurs- meistarar nasista i Þýskalandi á sínum tíma hefðu ekki getað gert betur. Könnum sem gerð var á veg- um háskólans í Stirling í Skotlandi gaf þó hið þveröfuga til kynna, þar kom fram, að Arthur Scargill leið- togi verkalýðsféiagsins og hans menn hefðu fengið þrefalt meiri tíma og rúm í öllum fjölmiðlum en þeir sem fyrir kolanámasamband- inu standa. Símamynd AP. Ronald Reagan með hönd á biblíu, sver embættiseiðinn. Á móti honum er Warren Burger forseti hæstaréttar og á milli þeirra Nancy Reagan, eiginkona forsetans. Aranyaprathet, Thailandi. 21. janúar. AP. FJÖLMENNAR hersveitir Víetnama hafa nú komið sér fyrir skammt frá búðum Rauöu khmeranna við Phnom Malai í Kambódíu og hófust bardagar um búðirnar í dag. Var hart barist, en fátt um greinargóðar fregnir af átaka- svæðinu. Rauðu khmerarnir hófu skyndiárásir á Víetnama nokkru áður en þeir höfðu komið sér fyrir, til þess að þreyta þá og seinka aðgerðum þeirra. Bar það lítinn árangur og er flestra mál að búðanna við Phnom Malai muni bíða sömu örlög og búða khmera norðar við landamæri Kamb- ódíu og Thailands, en búðirnar sem eru alls sex talsins, hafa fallið í hend- ur Víetnama. Talsmenn thailenska hersins sögðu að um 500 skæruliðar Rauðu khmeranna hefðu ráðist á herstöð Víetnama í frumskógunum skammt frá Phnom Malai og fellt marga VI- etnama, en liðsauki Víetnama hefði stökkt árásarliðinu á flótta. Óljóst er hve margir skæruliðar berjast gegn Víetnömum, en þeir tilheyra þremur fylkingum. Þeir eru hins vegar taldir berjast gegn um 160.000 hermönnum Víetnama. Reagan sór embættiseiðinn: Heitir samkomulagi við Sovétrí kin um afvopnun Wftshinxton. 21. janúnr. AP. JL RONALD Reagan Bandarikjaforseti sór á sunnudaginn embættiseiðinn öðru sinni og hóf í dag annað kjör- tímabil sitt. Hann lagði hönd á biblíu og hafði embættiseiðinn eftir Warren Burger, forseta hæstaréttar. Athöfn mánudagsins var haldin innan dyra gagnstætt hefð, þar sem kuldi var mikill í Washington eins og viðast annars staðar í Bandaríkjunum. Reagan bélt síðan ræðu í dag í tilefni af upphafi hins nýja kjörtímabils og var innihald ræðunnar mjög á þann veg sem reiknað hafði verið með. Hann lagði mikla áherslu á öll helstu baráttumál sín og lagði mikla áherslu á að þau yrðu tekin glímutökum á kjörtímabilinu og leidd farsællega til lykta. „Það eru mörg fjöll framundan sem þarf að klífa, en við munum klífa þau og búa til ný Bandaríki, þjóð á uppleið," sagði Reagan f ræðu sinni. Um kjarnorkuvopnin sagði Reagan: „Vegna hvers ein- asta mannsbarns í öllum krókum og kimum jarðarinnar, munu Bandaríkjamenn beita sér fyrir al- gerri eyðingu allra kjarnorku- vopna.“ Reagan hét því að Bandaríkin myndu ná samningum við Sovét- ríkin í kjarnorkuvopnamálum og einnig hét hann því að haldið yrði áfram á sömu braut í rannsóknum á kjarnorkuvarnarkerfi í geimnum. Þá sagði forsetinn, að Bandarfkin væru, undir stjórn sinni, að verða á ný stolt þjóð, efnahagur væri að batna og gildismat að lagast. Hundruð þúsunda manna höfðu ætlað sér að taka þátt í hátíðar- höldum i Washington i tilefni dagsins, skrúðgöngur og fleira voru á döfinni. En frostið var um 30 stig og Reagan fór að ráðum ráðgjafa sinna og aflýsti dýrðinni. Stjórn- andi barnahljómsveitar einnar sem átti að leika þjóðsönginn sagði að börnin hefðu verið miður sín vegna frestunarinnar, en hins bæri að geta, að er börnin æfðu sig á sunnudeginum frusu horn og lúðr- ar við hendur þeirra. Sjá nánar frétt á blaðsíðu 22. Gary Hart í Moskvu: Sovétmenn ekki sáttfúsir Mottkvu. 21. janúur. AP. GARY Hart, öld- Mannskæður norðangarri gengur yfir Bandaríkin — Metkuldi í 57 borgum New York og víAar, 21. janúar. AP. MIKIÐ norðanstórviðri gekk yfir Bandaríkin og Kanada um helgina og fram á mánudag og hafi verið kalt á þessum slóðum áður var þó víða metkuldi að þessu sinni. 42 dauðsföll mátti rekja beint eða óbeint til veðursins ■ tíu ríkjum og í rúmlega 50 borgum var um metkulda að ræða. Kaldast var umhverfis vötnin miklu sem teygja sig bæði inn í Kanada og Bandaríkin. Þar var kuldinn þar sem vinds gætti um 65 gráður, en raun- frost var heldur minna. Þessum mikla kulda og norðan- átt fylgdi allmikil snjókoma þannig að samgöngur gengu afar treglega víða um Bandaríkin og óhöpp mátti rekja til hinna lélegu akstursskilyrða. Kalt var í Chicago, 33 stiga gaddur í logni, og var það met, en í alls rúmlega 50 borgum mældist metkuldi. Má nefna Beckley í Virginfu, þar sem kuldinn var þó aðeins mínus sex gráður. Það var hins vegar 8 stig- um meiri kuldi en hefur nokkru sinni mælst þar. I Charleston í Suður-Karólínu var 11 stiga frost, í Atlanta í Georgíu 19 stiga frost. Er norðar dró fór kólnandi. Metkuldi var meðal annars vfða f Ohio, Georgíu, Alabama, Tenn- essee, Vestur-Virginiu, Pennsylv- aníu, Mississippi, Kentucky og víðar. Hinn 71 árs gamli William Foggitt, sem oft hefur skákað veðurstofunni með spám sfnum í Bretlandi, gekk fram fyrir skjöldu og spáði hlýnandi veðri á næstu dögum. Veðurstofan þar í landi spáir ekki framhaldi á hláku þeirri sem var á sunnudag- inn og náði til vestustu hluta Vestur-Evrópu að Noregi undan- skildum. Foggitt byggir spár sín- ar á atferli dýranna, moldvarpa og fugla, og einnig á dagbókum fjölskyldunnar sem ná til ársins 1831. Hefur Foggitt reynst ótrú- lega sannspár oft og tiðum á sama tíma og veðurfræðingar hafa roðnað, en þeir hafa samt afgreitt spáspeki hans sem „heppni og tilviljanir". Enn er afar kalt i mestallri Evrópu. I Belgíu bættist áttunda fórnarlambið við er áttræður maður króknaði á heimili sínu og kuldinn bætti fjórum við lista látinna í Hollandi, er brostin gasleiðsla olli sprengingu f íbúð- arhúsi f bænum Woerden. Fjög- urra manna fjölskylda lét lífið. f Júgóslaviu fundust tvær ungar systur svo illa á sig komnar á víðavangi, að taka varð báða fæt- ur af þeim báðum. Kuldar ná víð- ar, í norðurhéruðum Indlands geysa mestu kuldar sem verið hafa svo árum skiptir, einkum þó í Bihar, einu af fátækustu rikjum landsins. 412 manns hafa látist, flestir f Bihar. ungadeildarþing- maður sem keppti að útnefningu sem forsetaframbjóð- andi Demókrata- flokksins í fyrra, var á ferðalagi um Sovétríkin um helgina. Hann ræddi við ýmsa ráðamenn, meðal annara Andrei Gromyko utanríkis- ráðhcrra. Hart sagði að ekkert í máli sovésku ráðamannanna benti til þess að þeir yrðu á nokkurn hátt sveigjanlegri í þeim afvopnunarvið- ræðum sem fram undan eru við Bandaríkin. Hart sagðist hafa lagt ýmsar hugmyndir sínar fyrir hina sov- ésku ráðamenn, meðal annars þá að annað risaveldanna lýsti yfir einhliða ætlun að hætta fram- leiðslu kjarnorkuvopna og rann- sókna á varnarkerfum í geimnum, og biði hinu að fylgjast að. Sagði Hart Gromyko og aðra sem hann ræddi við ekki hafa tekið i þessa hugmynd né aðrar sem hann lagði fram og það hefði læðst að sér sú sannfæring að Sovétmenn væru við sama heygarðshornið og fyrr, þeir ætluðu ekki að koma til móts, ætluðu ekki að vera sveigjanlegir, þvert á móti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.