Morgunblaðið - 02.06.1985, Blaðsíða 1
128 SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
122. tbl. 72. árg.____________________________________SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 1985_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Kosningar í Grikklandi:
Sósíalismi
eða markaðs-
hagkerfi
Aþenu, 1. júní. AP.
GRÍSKIR kjósendur ganga að
kjörborftinu á morgun, sunnudag,
og greiAa atkvæAi um þaA hvort
áfram skuli haldiA tilraunum meA
sósíalisma eAa hvort frjálst mark-
aAshagkerfi og náin samvinna viA
Vesturlönd skuli hafin til vegs á
ný.
Kosið er um 300 sæti á þjóð-
þinginu og eru frambjóðendur
2.500 frá 19 stjórnmálaflokkum.
Búist er við Sósíalistaflokkur
Andreasar Papandreous, for-
sætisráðherra, og Nýi lýðræðis-
flokkurinn, sem lýtur forystu
Constantine Mitsotakis, fái
mest fylgi. Skoðanakannanir að
undanförnu benda þó til þess að
hvorugur flokkurinn fái hreinan
Þessa mynd tók fréttaritari Morgunblaðsins á Höfn i Hornafirði, Haukur Sveinbjörnsson, um borð i humarbát, en humarveiði hófst fyrir
skömmu og hefur verið mjög góð. B-blað Morgunblaðsins i dag er helgað sjómannadeginum og er aflað fanga í það með viðtölum við sjómenn viðs
vegar á landinu.
Friður í Miðausturlöndum:
Papandreou Mistsotakis
meirihluta og er hugsanlegt að
Kommúnistaflokkur landsins,
sem er á „Moskvulínunni", kom-
ist í oddaaðstöðu á þinginu.
Kjósendur eru tæplega átta
milljónir og eru allir Grikkir 18
ára og eldri skyldugir til að
mæta á kjörstað að viðlögðum
sektum. Kjósendur, sem komnir
eru yfir sjötugt, hafa þó rétt til
að sitja heima.
1 þingkosningunum árið 1981
fékk Sósíalistaflokkurinn 174
þingmenn kjörna, Nýi lýðræðis-
flokkurinn 113 og Kommúnista-
flokkurinn 13 menn.
Hugmynd um alþjóða-
ráðstefnu vísað á bug
Wishington, 1. júní. AP. fc W
Wnshington. I. júní. AP.
GEORGE P. Shultz, utanrík-
isrádherra Bandaríkjanna,
kvaðst í dag vera reiðubúinn
til að eiga fund með sameig-
inlegri sendinefnd Palestínu-
manna og Jórdaníumanna ef
það mætti verða til að greiða
fyrir friðarsamningum í Mið-
austurlöndum. Hann vísaði
hins vegar á bug hugmynd-
inni um alþjóðaráðstefnu
með þátttöku Sovétmanna og
í sama streng tók í gær Yitzh-
ak Rabin, varnarmálaráð-
herra ísraels.
Á blaðamannafundi í dag
sagði Shultz, að hann væri
hlynntur því að ræða við full-
Bresku knattspymufélögin:
Álitshnekkir og mikill
fjármissir af leikbanni
London, 1. júní. AP.
FYRIR bresku knattspyrnufélögin, sem nú hafa verið úti-
lokuð frá Evrópuleikjum næsta keppnistímabil, er bannið
ekki aðeins mikill álitshnekkir heldur einnig alvarlegt,
fjárhagslegt áfall.
Bresku liðin hafa haft miklar
tekjur af Evrópuleikjunum og
kemur þar til aukin aðsókn,
greiðslur frá sjónvarpsstöðvum
og auglýsingar og það eru þessir
leikir, sem hafa gert þeim kleift
að ná endum saman og greiða
leikmönnum há laun. Banninu,
sem var ákveðið I gær vegna
harmleiksins í Brussel, hefur ver-
ið fagnað hjá EUFA, Knatt-
spyrnusambandi Evrópu, en
bresku félögin hafa hins vegar
brugðist illa við og sakað yfirvöld
um að gefast upp fyrir skrílnum.
Þótt félögin uni illa sfnum hlut
er ekki ólfklegt, að þau eigi eftir
að þakka breskum yfirvöldum og
stjórn knattspyrnumála fyrir að
verða fyrri til, þvf að nú þykir það
ekki eins sennilegt og áður, að
EUFA samþykki á fundi sínum 2.
júfí bann við leikjum breskra liða
f Evrópu en það hefði hugsanlega
getað staðið í þrjú ár.
Að þvf er fram kemur í bresku
blöðunum í dag munu lið eins og
LiverjX)ol, Manchester United,
Everton og Tottenham tapa allt
að hálfri milljón punda á banninu
og tapið er i raun ekki minna
fyrir smærri liðin. Hjá þeim hafa
tekjurnar af Evrópuleikjunum
lengi ráðið því hvort þau geta
keypt dýra og eftirsótta leik-
menn. John Smith, formaður Liv-
erpool-liðsins, sem ákvað strax og
upp á eigin spýtur að hætta þátt-
töku í Evrópuleikjunum, segir
hins vegar, að ekki hafi verið um
annað að ræða.
„Vissulega verðum við fyrir
gffurlegu fjártjóni en það skiptir
ekki máli þegar heiður þjóðarinn-
ar og æra eru í veði,“ sagði Tlann.
trúa Þjóðarráðs Palestínu-
manna ef þeir vildu taka þátt í
slíkum viðræðum „af góðum
hug“ og væru ekki félagar í
PLO, Frelsisfylkingu Palestínu-
manna. Hussein, Jórdaníukon-
ungur, lagði hins vegar til nú í
vikunni, þegar hann var gestur
Reagans, Bandaríkjaforseta, að
efnt yrði til alþjóðaráðstefnu
um frið í Miðausturlöndum með
þátttöku Sovétmanna, en Shultz
kvað hugmyndina fráleita. Fyrir
það fyrsta væru Sovétmenn
andvígir frumkvæði Husseins og
Yassers Arafat, leiðtoga PLO,
og hefðu auk þess ekki stjórn-
málasamband við ísrael.
Yitzhak Rabin, varnarmála-
ráðherra ísraels, var sama sinn-
is og Shultz í viðtali, sem birtist
við hann í gær í franska blaðinu
„Le Monde". Sagði Rabin, að
fulltrúar stórveldanna myndu
aðeins deila sín á milli á friðar-
ráðstefnu af þessu tagi og ekk-
ert yrði úr samningum.
Shultz sagði í dag, að merki-
leg væri sú yfirlýsing PLO, að
samtökin væru ekki andvíg
ályktun Sameinuðu þjóðanna
um tilverurétt Ísraelsríkis en
meira þyrfti þó til. „Yfirlýsingin
verður að vera formleg og skrif-
leg til að Bandaríkjastjórn geti
tekið á henni fullt mark,“ sagði
Shultz.