Morgunblaðið - 23.07.1985, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.07.1985, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ1985 Starfsmannahús bandaríska sendiráðsins: Skotið úr hagla- byssu inn í fbúð Lögreglan leitar byssumannsins Lið lögreglu fór á vettvang í Þingholtsstræti og þrátt fyrir víðtæka leit, tókst byssumannsins. MorrunbladiA/Júlíus lögreglu ekki að hafa hendur í hári SKOTIÐ var úr haglabyssu inn um glugga á starfsmannabústað bandaríska sendiráðsins að Þingholtsstræti 34. Skotmaðurinn er ófundinn. Laust eftir klukkan fimm að morgni sunnudags- ins tilkynnti starfsfólk bandaríska sendiráðsins, að skotið hefði verið úr haglabyssu inn um eld- húsglugga. Höglin dreifðust í loft eldhússins. Enginn var í eldhúsinu þegar atburðurinn átti sér stað, en fólk í næsta herbergi. Skömmu áður en atburðurinn átti sér stað, bankaði ölvaður maður — Islendingur að því er talið — upp á og spurði eftir fólki en var ekki hleypt inn í bústaðinn. Maðurinn hvarf á braut, en með öllu er óljóst hvort hann var að verki. Lögreglu var tilkynnt um mann með byssu á Miklatúni á sunnudag. Við eftirgrennslan reynd- ist maðurinn ekki viðriðinn atburðinn við bústað sendiráðsins. Rannsóknarlögregla ríkisins rann- sakar atburðinn. Skákþing Norðurlanda í Gjövik: Helgi og Jóhann jafnir og efstir (■jövik í Noregi, 22. júlí. Frá Áskeli Erni Kárasyni, frétUmanni MorgunblaAsins. HELGI Ólafsson og Jóhann Hjartarson eru efstii og jafnir með SVi vinning að loknum 7 umferðum á Skákþingi Norðurlanda. Þeir hafa báðir teflt af miklum krafti á mótinu og ættu að öllu eðlilegu að vera með trygga forystu í mótinu, en norska undrabarniö Agdestein hefur staðið sig frábærlega vel og getur náð þeim eða komist upp fyrir þá því hann er með 4Vi vinning og biðskák úr 7. umferð. Næstir eru Helmers með 4Vi vinning og Yrjöla og Curt Hansen með 4 vinninga. I 5. umferð sem tefld var á laug- ardag urðu úrslit þessi: Helgi- Westerinen 1-0, Helmers-Jóhann 'á-'A, Agdestein-Scussler 1-0, C. Hansen-Wiedenkeller 0-1, Yrjöla- Maki ‘A-*A, Öst-Hansen-Jens Chr. Hansen 1-0. Helgi vann finnska stórmeistarann á einkar skemmti- legan hátt í stuttri skák en Helgi hefur ekki áður unnið stórmeist- ara á jafn skjótan hátt. Jóhann varði mjög erfiða skák gegn Helmers en tókst með nákvæmri vörn að bjarga sér í jafntefli. Úrslit í 6. umferð urðu þessi: Helgi-Helmers 'h-'h, Jóhann- Yrjöla 1-0, Wiedenkeller-Agde- stein 0-1, Maki-C.Hansen 0-1, Scussler-Öst-Hansen 1-0, Wester- inen-Jens Chr. Hansen 'h-'h. Skák Jóhanns við Yrjöle var skák 6. um- ferðarinnar. Hún var mjög tvísýn og spennandi og virtist um tíma sem Finninn væri að ná mátsókn en þrátt fyrir mikið tímahrak tókst Jóhanni að finna leið til gagnsóknar og endaði með því að máta Finnann, áhorfendum til mikillar skemmtunar. 7. umferðin var síðan í dag og urðu úrslit þessi: Yrjöla-Helgi 0-1, C.Hansen-Jóhann 'h-'h, Jens Chr. Hansen-Scussler 0-1, Helmers- Westerinen 1-0. f bið fóru skákir Agdestein-Maki og Öst-Hansen- Wiedenkeller. Jóhann tefldi stíft til jafnteflis með svörtu gegn Curt Hansen og náði því án mikillar fyrirhafnar. Helgi vann Yrjöla að því er virtist fyrirhafnarlítið með svörtu mönnunum. Það er athyglisvert að Jóhann og Helgi hafa fengið alla sína vinninga á móti sömu andstæðing- unum, þeir hafa báðir unnið Finn- ana þrjá og Wiedenkeller. f 8. um- ferð sem tefld er á þriðjudag teflir Jóhann við Agdestein og hefur hvítt og Helgi við Curt Hansen. Að 5 umferðum loknum í meist- araflokki er Áskell örn Kárason í 5. sæti með 3 'h' vinning, 'h vinn- ingi á eftir efstu mönnum. Þröstur Árnason er með 3 vinninga. Hann er langyngsti skákmaðurinn í meistaraflokki, aðeins 12 ára, og hefur árangur hans vakið athygli. Jóhannes Ágústsson og Tómas Björnsson eru með 1 vinning hvor. Jón Þór Bergþórsson er framar- lega í opna flokknum með 3 'h vinning, Magnús Sigurjónsson hefur 2 vinninga og Einar Óskarsson l'h. Búnaðar- bankinn hækkar Opinbera verðlagskerfíð hefur reynst þeim vel — segir Kristján Ragnarsson um afstöðu fiskkaupenda gegn frjálsu loðnuverði „Mér finnst það mjög einkennilegt ef verksmiðjurnar telja að fulltrúi hins opinbera, oddamaður í yfirnefnd, eigi að vera gæslumaður þess að þeir borgi ekki of mikið fyrir loðn- una, af því þeir treysta ekki sjálfum sér til þess,“ sagði Kristján Ragnarsson, formaður Landssambands íslenskra út- Nýjar lána- reglur LÍN staðfestar Menntamálaráðherra staðfesti í síðustu viku nýjar úthlutunarreglur fyrir Lánasjóð ísl. námsmanna. Gilda reglurnar fyrir næsta lánstímabil sjóðsins, en þær eru í meginatriðum óbreyttar og gera m.a. ráð fyrir að sami háttur verði hafður á lánveitingum til fyrsta árs nema, þ.e. að þeir hljóti lán með hankavíxlum. Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráðherra sagði í til- efni af staðfestingunni, að nýju reglurnar gerðu. ekki ráð fyrir neinum meiriháttar breytingum. Hún sagði ennfremur, að á næsta lánstímabili fengju nemendur lán í fyrsta sinn sem svaraði til hundrað prósent reiknaðrar fjár- þarfar. „Þannig að þeir hafa aldr- ei verið eins vel settir," sagði ráðherrann. vegsmanna, er borin voru undir hann ummæli Jóns Reynis Magnússonar, framkvæmda- stjóra Sfldarverksmiðja ríkisins, í Morgunblaðinu á sunnudag, þess efnis að ekki bæri að gefa loðnuverð frjálst. í viðtali viö Fiskifréttir segist Kristján vera hlynntur frjálsu loðnuverði. „Þessi viðbrögð koma mér mjög á óvart. Ég hef skilið það svo að fiskkaupendur hafi verið fylgj- andi frjálsri verðlagningu og að hún yrði ekki bundin i jafn fastar skorður og verið hefur, en laga- breyting sem gerir frjálsa verð- lagningu mögulega var gerð að ósk okkar og fiskkaupenda. Áð mínu mati hentar best að gera tilraun með frjálsa verðlagningu í sambandi við loðnuveiðarnar. Þar eru tengsl milli útgerðar og vinnslu hvað minnst og ætti því að geta myndast eðlilegt verð með hliðsjón af framboði og eftir- spurn. Við erum heldur ekki háð- ir ákvörðunum fiskkaupenda um hvað þeir vilja borga, því við get- um selt loðnuna úr landi, ef við fáum ekki viðunandi verð fyrir hana hér. Allt myndi þetta leita jafnvægis og verða vísir að frjáls- ari verðmyndun," sagði Kristján ennfremur. Kristján sagði að í samþykkt sem samtök fiskvinnslunnar af- hentu ríkisstjórninni í fyrri viku væri þess óskað, að heimildir verðlagsráðs sjávarúlvegsins til að ákveða að fiskverð skuli frjálst, verði rýmkaðar og að til þess þurfi einungis meirihluta, en um það þurfi ekki að vera alls- herjarsamkomulag, eins og nú væri kveðið á um. Það skjóti því mjög skökku við ef fiskkaupendur verði mótfallnir frjálsu loðnu- verði og hefði hið opinbera verð- lagskerfi greinilega reynst þeim svo vel, að þeir vildu frekar eiga verðið undir því, en undir eigin ákvörðunum. Kristján sagði að ákvarðanir um hvenær loðnan væri veidd ættu að vera á valdi útgerðar- mannanna. „Ég tel ekki að það eigi að hafa vit fyrir mönnum um það. Menn fá úthlutað aflakvóta og þeir eiga að meta það sjálfir hvar og hvenær þeir vilja veiða hann. Ef útgerðarmenn telja hag- kvæmt að veiða loðnuna við Jan Meyen, þá eiga þeir að mega gera það. Hvorki ég né Jón Reynir eig- um að ákveða það fyrir þá. Eg harma því þessi viðbrögð og vona að fiskkaupendur hafi séð að sér þegar við setjumst að samninga- borðinu á miðvikudaginn og fjöll- um um loðnuverðið," sagði Kristján að lokum. vexti BÚNAÐARBANKINN hækkaði vexti í gær. „Við erum að aðlaga vexti að öðrum bönkum og verð- bólgunni eins og hún er í dag,“ sagði Kristján Gunnarsson, for- stöðumaður hagdeildar Búnaðar- bankans í samtali við Morgunblað- ið. Vextir á hinni svokölluðu „gullbók" Búnaðarbankans hækk- uðu um 2% — í 33%. Vextir á þriggja mánaða sparisjóðsbók hækka úr 23% í 25% af sex mán- aða bók úr 26'h%í 28% og 18 mán- aða bók úr 35% í 36% Víxilvextir Búnaðarbankans hækka úr 28% í 30% og við- skiptavíxlar bera nú 31% vexti. Vextir af almennum skuldabréf- um hækka í 32% úr 30'h% og af viðskiptaskuldabréfum eru vext- ir 33'á%. Búnaðarbankinn sótti um meiri hækkun af viðskipta- skuldabréfum, en Seðlabankinn heimilaði aðeins 'h% hækkun. 80 % heilsugæslulækna láta af störfum 11. ágúst „Allir læknar sem starfa á heilsugæslustöðvum og hafa sagt upp störf- um frá og með 11. ágúst næstkomandi líta á uppsagnirnar sem stóra ákvörðun varðandi sína hagi en ekki nein látalæti í kjarabaráttunni," sagði Gunnar Ingi Gunnarsson, formaður kjararáðs heilsugæslulækna, þegar blaðamaður spurði um hvernig miðaði f kjarabaráttu heilsugæslu- lækna á heilsugæslustöðvum um allt land. „Uppsagnirnar eiga sér langan aðdraganda og má segja að heilsugæslulæknar hafi verið neyddir til að segja upp störf- um,“ sagði Gunnar. Ekki hefur verið rætt við lækna frá því í vor þegar kjaradómur birti niður- stöður sínar og að öllu óbreyttu munu 80% heilsugæslulækna á landinu láta af störfum 11. ágúst. Læknar á heilsugæslustöðvum eru opinberir starfsmenn ýmist skipaðir eða settir af heilbrigð- isráðherra og hafa staðið í samningum við fjármálaráð- herra fyrir hönd ríkissjóðs varð- andi kjaramál. Kröfur heilsugæslulækna eru þær sömu og voru áður en kjara- dómur féll og sagði Gunnar að það væri samkomulagsatriði hvaða breytingar þyrftu að koma til ef læknar hættu við uppsagnimar. Meðal þess sem krafist er, eru ýmis atriði varð- andi atvinnuöryggi, gæsluvakta- greiðslur, lögvernduð lág- markshvíld og frí. Stjórn Læknafélags Islands hefur sent bréf til ráðherra og vakið athygli á ástandinu og að sögn Gunnars eru læknar tilbún- ir til viðræðna við fjármálaráðu- neytið verði þess farið á leit við þá.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.