Morgunblaðið - 30.07.1985, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 1985
Kista Sigurðar Greipssonar borin úr Skálholtskirkju. Frá vinstri: Bjarni Sigurósson, Þórir Sigurðsson, Greipur
Sigurðsson, Karl Bjarnason, Már Sigurðsson og Sigurður H. Greipsson.
Útför Sigurðar Greipssonar
ÚTFÖR Sigurðar Greipssonar í
Haukadal var gerð frá Skálholti
síðastliðinn laugardag að við-
stöddu fjölmenni. Sr. Guðmundur
Óli Ólafsson í Skálholti jarðsöng
og Sr. Eiríkur J. Eiriksson flutti
ræðu. Kór Skálholtskirkju söng og
Einar Markússon flutti frumsamið
orgelverk eftir Eirík Bjarnason frá
Hveragerði. íþróttafólk frá Ung-
mennafélagi Skarphéðins stóð
heiðursvörð við athöfnina í Skál-
holtskirkju.
Jarðsett var i Haukadalsk-
irkju og sá Sr. Guðmundur óli
Ólafsson Skálholtsprestur um
athöfnina þar. Að athöfninni
lokinni var boðið til kaffisams-
ætis í Aratungu.
Líkamsárás á Hlemmi:
Enn er leitað að
árásarmanninum
UNGUR maður, sem handtekinn var
á laugardagsmorguninn, grunaður
um að hafa ráðist með fólskulegum
hætti að vanfærri konu á Hlemm-
torgi nóttina áður, var látinn laus
um helgina. Vitni bar, að hann hefði
verið í tilteknu húsi um nóttina og
ekki farið þaðan.
Eins og skýrt var frá í blaðinu á
sunnudaginn fannst konan liggj-
andi og blæðandi á Hlemmi
snemma á laugardagsmorguninn.
Hafði komið að henni maður um
nóttina og viljað fá heim með sér,
en er konan neitaði því sparkaði
hann í kvið hennar. Hún gat gefið
lýsingu á manninum, og var ungur
maður handtekinn síðar þann
sama morgun. Sá hefur hvað eftir
annað gerst sekur um grófar lík-
amsárásir.
Konan var flutt í sjúkrahús, en
hún mun nú vera að ná sér og er
ekki talið að fóstrið hafi beðið
skaða af árásinni.
Árásarmannsins er enn leitað.
Rannsóknaskattur Kfeiliðjunnar:
Ótvírætt að féð ber
að greiða í ríkissjóð
— segir fjármálaráðherra
„ÉG VEIT ekkert um málið annað en það sem ég heyrði í fréttum fyrir
nokkrum dögum og forsvarsmaður Kísiliðjunnar staðfesti í samtali við mig,
að hann hefði fengið þau boð frá iðnaðarráðherra að veita fé til rannsókna
við Mývatn án þess að féð færi í gegnum ríkissjóð. Ég gat ekki annað en bent
honum á, að samkvæmt framleiðsluleyfinu, sem Sverrir stóð sjálfur að, á féð
að renna í ríkissjóð,“ sagði Albert Guðmundsson fjármálaráðherra í samtaii
við Morgunblaðið í gær, um þá ráðstöfun iðnaðarráðherra, Sverris Her-
mannssonar, að fela Kísiliöjunni að hefja strax greiðslu á fé, sem Kísiliðj-
unni ber að greiða til rannsókna „á áhrifum efnistökunnar á dýralíf og
gróður við Mývatn", eins og segir samningi ríkisins við Kísiliðjuna um
áframhaldandi námaleyfi til næstu 15 ára.
13 punda bleikja
veiddist í Mývatni
Róbert B. Antonsson, fram-
kvæmdastjóri Kísiliðjunnar, sagði
blaðamanni Morgunblaðsins að
það væri ótvírætt samkvæmt
Miðfjörður:
Heyskap
víða lokið
SUAarbakka. 29. júll.
Í SÍÐUSTU viku voru tveir ágætis
þurrkdagar hér í Miðfirði og var þá
mikið hirt inn af heyjum. Á nokkrum
bæjum er slætti lokið og búið að hirða
og alls staðar vel á veg komið.
Grasspretta er í góðu meðallagi.
Hey munu verða með mesta móti þar
sem fyrningar voru miklar á síðasta
vori. Ekki er enn vitað um fóðurgildi
en líklegt að það verði í hærra lagi.
Sennilega mun það vera einsdæmi
hér að heyskap sé lokið í júlilok, svo
viða sem nú er raun á, en sláttur
byrjaði yfirleitt um mánaðamótin
júní/júlí.
Benedikt
Suðlæg átt með
„ vætu sunnanlands
- GERT er ráð fyrir suðlægri átt
næstu tvo til þrjá daga. Væta
* verður sunnanlands og vestan, en
Ukléga þurrt á Norður- og Austur-
landi. Hitastig verður 10 til 15
gráður, en heldur hlýrra á Norð-
austurlandi.
samningnum, að rannsóknaféð
ætti að renna í rikissjóð, sem síð-
an ætti að ráðstafa fénu.
„Kísiliðjan hefur hingað til
greitt einn dollara á hvert fram-
leitt tonn í ríkissjóð, eða sem svar-
ar rúmri milljón króna á ári, sem
á að verja til rannsókna á lifríki
Mývatns," sagði Róbert. „En þetta
fé hefur hins vegar sokkið í ríkis-
hítina fram til þessa án þess að
miklar rannsóknir hafi farið fram.
í nýja námaleyfinu er gert ráð
fyrir viðbótargjaldi sem i raun
tvöfaldar þennan skatt sem Kísil-
iðjan greiðir til rannsókna. Við-
bótargjaldið á að reiknast frá 1.
júni síðastliðnum, og þvi er Kísil-
iðjan í sjálfu sér ekki skuldbundin
til að hefja greiðslur á því fyrr en
í lok ágúst, vegna 60 daga gjald-
frests sem við höfum. En við höf-
um fallist á að greiða eitthvað
fyrirfram svo rannsóknir megi
hefjast hið allra fyrsta," sagði
Róbert.
Mývmlnæveit, 29. Júlí. AP.
LEIFUR Hallgrímsson I Vogum
veiddi 13 punda bleikju og aðra
minni í net í syðriflóa Mývatns.
Á meðfylgjandi mynd heldur
hann á veiðinni og er minni bleikj-
an af þeirri stærð er nú veiðist
mest í Mývatni. Undanfarið hefur
silungsveiðin í Mývatni verið mjög
góð.
Kristján
Ekkja Picassos valdi Kjarvalssal:
Merkasti myndlistarvid-
burður í sögu Listahátíðar
— segir Salvör Nordal framkvæmdastjóri
„ÞETTA er stórkostlegt tækfæri
og án efa merkasti myndlistarvið-
burður í sögu Listahátíðar," sagði
Salvör Nordal, framkvæmdastjóri
Listahátíðar í Reykjavík, um fyrir-
hugaða sýningu á verkum Pablos
Picasso, en sýningin verður opnuð
um leið og Listahátíð ’86, hinn 31.
maí næstkomandi. Jacqueline Pic-
asso, ekkja listamannsins, kom til
íslands á laugardag til að kanna
aðstæður hér og valdi hún sýning-
unni stað í Kjarvalssal Kjarvals-
ataða.
Salvör Nordal sagði að
Jacqueline Picasso myndi sjálf
velja verkin á sýninguna og
stjórna uppsetningu þeirra. Ekki
væri endanlega ákveðið hversu
margar myndir yrðu á sýning-
unni né vitaö um heildarverð-
mæti þeirra listaverka sem
hingað koma. Salvör sagði að hér
væri um að ræða afar kostnað-
arsama sýningu, fyrst og fremst
vegna trygginga á verkunum,
gæslu þeirra og flutnings. Sagði
hún að unnið væri að lausn
þeirra mála.
Það var fyrir milligöngu ís-
lenska listamannsins Erró að
Jacqueline Picasso ákvað að
kanna aðstæður hér og sagði
Salvör að ef ekki hefði notið
sambanda hans í listalífi París-
arborgar hefði aldrei getað orðið
af sýningu þessari.
Jacqueline Picasso skoðar aðstöðuna á Kjarvalsstöðum. Með henni á
myndinni eru Hrafn Gunnlaugsson, formaður stjórnar Listahátfðar, og
Alfreð Guðmundsson, forstöðumaður Kjarvalsstaða.