Morgunblaðið - 26.07.1986, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.07.1986, Blaðsíða 2
2__________________________________ Geir Zoega framkvæmdastj óri Krossaness: MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1986 ir. Þess vegna er okkur hagur í þvi, að sem mest veiðist sem fyrst á vertíðinni," sagði Geir Zoega, verksmiðjustjóri fiskimjölsverk- smiðjunnar í Krossanesi, í samtali við Morgunblaðið. Geir sagði, að nú væri verið að bræða loðnuna úr Súlunni og fískúr- gang. Það tæki um fjóra sólarhringa. Stjómendur verksmiðjunnar hefðu ekki hugleitt þann möguleika að hætta móttöku á loðnu, þótt þeim fyndist verðið hátt. Oddamaður og aðrir í yfímefnd verðlagsráðs sjávar- útvegsins hefðu átt að byggja verðákvörðunina á einhveijum raun- hæfum forsendum, ekki flugufregn- um um samninga við einstakar verksmiðjur. Raunhæft verð hlyti að byggjast á útreikningum á afkomu verksmiðjanna og útgerðarinnar miðað við rekstrarkostnað og afurða- verð. Þegar verð væri ekki ákveðið með þeim hætti, væri eins gott að hafa það fijálst. Hann væri í raun og vera hlynntur fijálsri samkeppni, þar sem eftirspum og framboð réði hráefnisverðinu. Væri rekstrarað- staða verksmiðja hér á landi sú sama og í nágrannalöndunum, til dæmis hvað varðaði verð á olíu og raf- magni, væm íslendingar fyllilega samkeppnisfærir við nágranna sína. INNLENT Evrópa opnuðmeð viðhöfn NÝR skemmtistaður, sem hlotið hefur nafnið Evrópa, var opnaður í gærkvöld að viðstöddu fjöl- menni. Evrópa er til húsa i Borgartúni 32, þar sem veitingastaðurinn Klúbburinn hefur verið um árabil. Breytingar hafa verið gerðar á öllum hæðum en mestar á 1. hæðinni. Eigendur eru Vilhjálmur Ástráðsson, Gunnar H. Arnason og Arne Vest Andersen. Evrópa er á ijórum hæðum og sagði Vilhjálmur Ástráðsson m.a. við opnunina að meiningin væri að höfða til sem flestra og reynt yrði að bjóða upp á ferskleika og fíöibreytta skemmtidagskrá. Boðið yrði m.a. upp á diskótek og lifandi tónlist. Hollenska söngtríóið „Sensation" og hljómsveitin Rikshaw skemmtu í gærkvöldi auk þess sem Módelsamtökin vom með tískusýningu. Þá er á fyrstu hæð hússins 12 fermetra siqár sem tengdur er móttökubúnaði fyrir gervihnattasendingar og því hægt að sýna bein- ar útsendingar frá evrópskum sjónvarpsstöðvum. Evrópa verður opin á fímmtudags-, föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöldum. Höfum ekki hugsað okkur að hætta móttöku á loðnu „VIÐ SÖMDUM um nokkuð hátt verð við útgerð Súlunnar, aðeins fyrir einn farm, en ætluðum okk- ur ekki að borga það út vertíðina. Ástæða þess er sú, að það er verk- smiðjum norðan lands mjög mikilvægt að lengja vinnslutím- ann með þvi að veiðar hefjist eins snemma við Jan-Mayen og unnt er. Við fáum ekkert af loðnunni eftir að hún er komin suður fyr- Ein frægasta myndin á sýning- unni er af eiginkonu málarans, Jacqueline. Picasso-sýning- unni að ljúka: Sýningar- gestir orðnir 11 þúsund SÝNINGUNNI á verkum spænska málarans Pablo Picasso á Kjarvalsstöðum lýkur um helg- ina. Sýningin var opnuð á Lista- hátíð í vor að viðstaddri ekkju málarans, Jacqueline Picasso, sem lánaði verkin á sýninguna úr sínu einkasafni. Alls em á sýningunni 54 málverk og ein jámmynd. Em hér á ferðinni meðal annars verk sem ekki hafa verið sýnd áður sem og fræg verk úr eigu málarans. Mikil aðsókn hefur verið á sýninguna og em sýn- ingargestir orðnir 11 þúsund. Borgarstarfsmenn fjarlægðu kantinn við bíiastæði Eika-grills: „Misskilningnr vegna þess að einhver var í sumarfríi“ segir Davíð Oddsson borgarstjóri KANTUR sem starfsmenn borgarinnar steyptu þvert yfir bílastæði Eika-grills á Lang- holtsvegi á fimmtudag er horfinn. Menn frá gatnamála- stjóra fjarlægðu hann í gær, og hreinsuðu burt steypuhrúgu sem þeir höfðu skilið eftir bak- við veitingastaðinn. „Þetta virðist hafa verið misskilningur rnilli manna, sennilega vegna þess að einhver var í sum- arfríi. Þeir réðust i fram- kvæmd sem enginn hafði gefið leyfi fyrir,“ sagði Davíð Odds- son borgarstjóri. Eins og kom fram í Morgun- blaðinu í gær samþykkti borgar- ráð á fundi sfnum 26. maí tillögu frá Borgarskipulagi um afnot veitingastaðarins af hluta Bráka- sunds. Aðspurður hvort Eika-grill mætti nú ganga frá bílastæðunum eins og um var rætt sagði Davíð: „Það er enginn vafi um ákvörðun borgarráðs. Hún gildir að sjálf- sögðu." Eiríkur Finnsson, eigandi Eika-grills, sagðist ánægður með þessi málalok. „Nú er kanturinn horfínn, og strax í næstu viku ætlum við að vinna að því að setja upp blómaker til að afmarka bíla- stæðin. Mér finnst þetta hafa verið leiðindamál." Skotar bjóða 700 krónum meira fyrir loðnulestina Tek ekki á móti loðnu á 1.900 krónur lestina, segir Aðalsteinn Jónsson á Eskifirði SKOZK fiskimjölsverksmiðja verð fyrir loðnu en hér hefur hefur nú boðið íslenzkum út- verið samþykkt. Verðið er enn- gerðarmönnum mun hærra fremur hærra en önnur lönd hafa boðið. Miðað við fituinni- hald loðnunnar nú, 20%, býður þessi verksmiðja um 2.600 krón- ur fyrir lestina, en hér fást nú rúmar 1.900 krónur fyrir svo feita loðnu. Aðalsteinn Jónsson, eigandi fiskimjölsverksmiðj- unnar á Eskifirði, segir verðið hér of hátt til að vinnsla borgi sig. Tilboðið frá Skotlandi breyti þar engu um og því telji hann réttast að hefja ekki vinnslu fyrr en verð hér hefur verið lækkað. Fyrirtækinu J. Marr og Son, sem meðal annars selur íslenzkan físk í Hull og Grimsby, hefur borizt telexskeyti frá fískimjöls- verksmiðjunni í Fraserburgh, þar sem boðnar eru 2.140 krónur fyr- ir hveija lest miðað við 12% fítu- innihald. Fyrir hvert 1% af fitu umfram 12% eru boðnar 61,20 krónur. Miðað við 20% fítuinnihald eins og mældist í fyrstu förmun- um, sem hér hefur verið landað, verður verðið því um 2.630 krón- ur. Ekki er minnzt á þurrefnisinni- hald í skeytinu. Baldvin Gíslason, starfsmaður J. Marr og Son, sagði í samtali við Morgunblaðið, að endanleg staðfesting hefði ekki fengist á þessu tilboði, en nokkrar útgerðir hér heima hefðu lýst áhuga sínum á þessu tilboði. Hann gat þess einnig að verð á gasolíulítra í Fras- erburgh væri 3,60 krónur, en hér á landi 7,60 og af þvi væri vissu- lega hagur. Baldvin sagði enn- fremur að tilboð hefði borizt frá fiskimjölsverksmiðju á Suðureyj- um, en það væri nokkru lægra og olíuverð þar væri hærra. Hann sagði að sú verksmiðja gæti tekið á móti 800 lesta förmum, en af- kastageta verksmiðjunnar í Fraserburgh væri óljós. Aðalsteinn Jónsson, eigandi fískimjölsverksmiðjunnar á Eski- fírði, sagði í samtali við Morgun- blaðið, að engin staðfesting hefði fengizt á skozka tilboðinu. Það breytti heldur engu um það, að hér væru 1.900 krónur fyrir lestina allt of hátt verð. Hann ætlaði sér ekki að vinna loðnu á því verði. Jón Kjartansson, skip hans, væri á miðunum og það myndi landa heima, þar sem löndun fyrir hann fengist ekki í Krossanesi og hann risti of djúpt fyrir höfnina í Fraser- burgh. Síðan yrði skipinu lagt og bræðsla að öðru leyti hæfíst ekki fyrr en verð lækkaði hér heima. Þetta þýddi líklega það, að vertíð- in frestaðist fram á haust hvort sem mönnum líkaði betur eða verr. Eigendur loðnuverksmiðja myndu fjalla um málið á laugardag og þar næðist vonandi samstaða. Aðspurður um það, hve mikið verksmiðjumar hér væru færar um að greiða, sagðist Aðalsteinn ekkert vilja segja. Sérstakir full- trúar hefðu verið valdir til að fjalla um verðlagninguna. Sjá greinargerð þjóðhags- stofnunar um ákvörðun loðnuverðs á bls. 31.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.