Morgunblaðið - 17.10.1987, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1987
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir FREDERICK KEMPE
Kenneth Adelman ráðgjafi Reagans í afvopnunarmálum:
Mikilvægi afvopnun-
ar viðræðna ofmetið
Kenneth Adelman hafði vonað að í stöðu sinni sem forstöðumað-
ur bandarísku afvopnunarstofnunarinnar myndi hann geta haft
áhrif á það sem hann kallar „ótímabæran áhuga Vesturlanda á
afvopnun". Hann viðurkennir nú, þegar hann hverfur úr starfi
sínu hjá stofnuninni, að honum
Adelman er ánægður með að
stjóm Ronalds Reagans hef-
ur tekið þátt í að semja um
skipulagða útrýmingu kjamorku-
vopna í Evrópu, samningur sem
hann telur einhvem þann merki-
legasta sem gerður hefur verið
við Sovétmenn. Þrátt fyrir
ánægju sína með árangur af af-
vopnunarviðræðum stórveldanna
telur Adelman að almenningur,
Qölmiðlar og margir háttsettir
yfirmenn í Bandaríkjunum mis-
skilji þýðingu afvopnunar.
Almennt er farið að líta á af-
vopnunarviðræður sem friðar-
samninga en það er alrangur
skilningur á slíkum viðræðum.
„Ég hélt að við gætum minnk-
að mikilvægi afvopnunar í augum
heimsins, en því miður tókst það
ekki,“ segir Adelman. „Almenn-
ingur, fjölmiðlar og bandarískir
þingmenn halda enn að afvopnun
þýði frið. Það er alrangt, þetta
eru tveir gjörólíkir hlutir." Adel-
man óttast að aðrir áhrifaþættir
í kapphlaupinu milli austurs og
vestur gleymist þegar einblínt er
um of á afvopnunarmálin. Stjóm
Reagans hefiir margsinnis bent
á að vera Sovétmanna í Afganist-
an og mannréttindabrot í Sov-
étríkjunum segi meira um eðli
Sovétstjómarinnar en vilji þeirra
til að íjarlægja kjamorkuvopn
geri.
Signr yfir
Sovétmönnum
Það er hagur Reagans forseta
að sem mest sé gert úr samningn-
um við Sovétmenn um útrýmingu
skammdrægu og meðaldrægu
flauganna í Evrópu. Með þessum
samningi hafa Sovétmenn gefíð
meira eftir en nokkru sinni fyrr,
þannig að forsetinn getur leyft
sér að tala um sigur sinn yfir
Kreml. En margir af stuðnings-
mönnum Reagans segja að
stjómin, eins og stjómir fyrri
ára, hafí fallið í þá gildru að
nota of mikinn tíma, fé og fyrir-
höfn í afvopnunarviðræður, á
meðan hægt hefði verið að fjalla
um fjölda annarra ekki síður
mikilvægra mála. Stuðnings-
menn Reagans óttast að þessi
einbeiting að afvopnunarmálum
þjóni vel þeim tilgangi Gorbac-
hevs að koma inn þeirri hugmynd
hjá bandaríska þinginu og al-
menningi, að samskipti stórveld-
anna séu að færast í betra horf.
„Afvopnunarviðræðumar
svæfa ekki bara almenning, held-
ur sofnar þú sjálfur líka á verðin-
hafi mistekist.
Kenneth Adelman
um,“ segir Dimitri Simes fulltrúi
Camegie-friðarsamtakanna.
Hann heldur áfram, „þungamiðja
í samskiptum stórveldanna er
ekki samvinna heldur sam-
keppni. Ef menn telja afvopnun-
arviðræður vera forgangsverk-
eftii í samskiptum stórveldanna
þá hafa þeir misskilið mikilvægi
þeirra."
Útilokað að ræða ann-
að en afvopnun
Fyrr á þessu ári ráðlagði Adel-
man nýráðnum öryggisráðgjafa
Bandaríkjaforseta, Frank
Carlucci, að eyða ekki meira en
einum þriðja hluta af tíma sínum
í afvopnunarmál. Carlucci kvart-
ar nú við samstarfsmenn sína
vegna þess £ið helmingur tíma
hans fari í afvopnunarmálin með-
an hundruð annarra mála bíði
umfjöllunar. Ein aðalástæða þess
hversu miklum tíma er eytt í
afvopnunarmál er sú að ráðu-
neytin, þá sérstaklega vamar-
málaráðuneytið og utanríkis-
ráðuneytið, eru ekki sammála um
afgreiðslu afvopnunarmála. Iðu-
lega hefur þurft að fá úrskurð
forsetans um ágreiningsefni milli
ráðuneytanna. Adelman segir að
fjórum sinnum hafí þurft að kalla
forsetann til fundar til að ræða
hlutverk flugvéla sem bera kjam-
orkuvopn í tengslum við sam-
komulagið um meðaldrægu
eldflaugamar í Evrópu. í ljós kom
að flugvélamar komu samkomu-
laginu ekkert við. „í sex mánuði
snérist líf mitt um þetta eitt,“
segir Adelman, „við eyddum
meiri tíma í að ræða þessar flug-
vélar en við höfum eytt í að tala
um framtíð flotans.“
Önnur ástæða þess að svo
miklum tíma er varið í afvopnun-
arviðræður er sú að Sovétmenn
em ófáanlegir til að ræða við
Bandaríkjamenn um önnur mál-
efni svo sem mannréttindamál
eða trúmál. Þó Bandaríkin styðji
skæmliða í Afganistan sem beij-
ast gegn her Sovétmanna hafa
þau ekkert í skiptum fyrir brott-
flutning sovétskra hermanna frá
Afganistan. í umræðum um af-
vopnun telja fulltrúar stórveld-
anna sig standa jafnfætis hvor
öðmm.
Fólk ofmetur afvopn-
unarviðræðurnar
Að sögn Adelmans er það
meiri hagur fýrir Sovétríkin að
samskipti stórveldanna tveggja
beinist eingöngu að afvopnun.
„Það gerir þá að jafningjum okk-
ar. Og þeir vinna traust almenn-
ings sem í gegnum fjölmiðla fær
þá hugmynd að Sovétríkin séu
friðarsinnuð," segir hann. Hann
bendir einnig á að í umræðum
um kjamorkuvopn séu Sovétríkin
að semja á sterkari grandvelli
vegna yfírburða í hefðbundnum
vígbúnaði.
Þó stjóm Reagans hafí ekki
orðið til þess að breyta áliti
heimsins á mikilvægi afvopnun-
arviðræðna hefur henni að
minnsta kosti tekist að innleiða
meira raunsæi hjá almenningi.
„Almenningur telur ennþá að
mikilvægt sé að afvopnunar-
samningar séu undirritaðir milli
stórveldanna," segir fyrmm ör-
yggisráðgjafi stjómarinnar,
Stephen Sestanovich, „en ég held
að fólki sé nú loksins orðið ljóst
að mikilvægi slíkra samninga er
ekki slíkt að friður í heiminum
sé háður því að leiðtogar stór-
veldanna skrifí undir samkomu-
lag. Slík móðursýki er úr
sögunni." Sestanovich segir að
Bandaríkjamenn hafí ekki bara
áttað sig á því að eftir sex ára
tímabil án afvopnunarsáttmála
er ekki hafín styrjöld milli stór-
veldanna, heldur einnig hinu að
Sovétmenn virðast hegða sér
betur nú en áður. Hann heldur
því fram að einbeitingin að af-
vopnunarmálum sé áróðursað-
ferð forsetans til að sýna hvers
hann er megnugur, og hversu vel
honum tekst að ráða fram úr
erfiðum málum.
Fyrirsjáanlegt er að áhugi
ráðamanna og almennings á af-
vopnunarmálum mun enn vaxa,
allt þar til leiðtogamir, Reagan
og Gorbachev, hafa komið sér
saman um nýjan fund.
Höfundur er blaðamaður hjá
The Wall Street Joumal
Afmæliskveðja:
Guðrún H.K.
Sigurðardóttir
Mig langar til að senda tengda-
móður minni og kærri vinkonu,
Guðrúnu Helgu Kristínu Sigurðar-
dóttur, kveðju á 85 ára afmæli
hennar í dag, 17. október.
Það er ótrúlegt að þessi fallega
kona með hrafnsvarta hárið og
unglegu hreyfíngamar skuli vera
orðin 85 ára, en það er staðreynd
eigi að síður.
Allt er jákvætt í fari Guðrúnar.
Hún er umburðarlynd, skapgóð og
hjálpsöm. Myndarskapurinn á allan
hátt er alveg einstakur og allir í
þessari stóm fjölskyldu eiga fallega
hluti, heklaða eða pijónaða, sem
hún hefur unnið af frábærri vand-
virkni og nákvæmni.
Engri manneskju á ég meira að
þakka þau 40 ár, sem við höfum
þekkst og aldrei hefur fallið skuggi
á vináttu okkar. Hún hefur verið
bamabömum sínum einhver besta
amma, sem hugsast getur, enda
elska þau hana öll og virða.
Guðrún hefur ekki farið varhluta
af sorgum og andstreymi í lífínu.
Tveir synir hennar fómst, rétt fyrir
jólin 1959, þegar þeir reyndu að
bjarga báti sínum á Hofsósi í ofsa-
veðri og eiginmann sinn, Friðrik
Jónsson, útgerðarmann, missti hún
í maímánuði 1978. Þeir feðgar vom
öllum harmdauði, sem þá þekktu.
Hin sterka trú hennar og jákvætt
viðhorf til lífs og dauða, hjálpaði
henni í þessum raunum. Friðrik
tengdafaðir minn var einstakur
maður. Dugnaðurinn og snerpan
og hinn einstaki „húmor" gleymist
engum, sem hann þekktu.
Tengdamóðir mín býr ein í sínu
litla fallega húsi á Hofsósi og er
aldeilis ekki á þvi að fara á elliheim-
ili. Ég vona að hún eigi eftir að búa
þar mörg ár enn, taki á móti gest-
um, lesi góðar bækur og haldi áfram
með sínar fögm hannyrðir.
Elsku Guðrún mín. Ég ætla ekki
að skrifa ævisögu, aðeins að senda
þér hjartanlegar afmæliskveðjur og
þakkir. Ég vona að þú eigir eftir
mörg góð ár í viðbót við þessi 85
og ég efast ekki um að þú verðir
alltaf jafn ung í anda, jákvæð og
skemmtileg.
Lifðu heil!
Þín tengdadóttir og vinkona,
Morgunblaðið/Sveinn J. Þórðarson
Fjölmenni var við setningu Grunnskóla Barðastrandarhrepps.
Barðaströnd:
Grunnskólinn sett-
ur með messu
Barðaströnd.
GRUNNSKÓLI Barðastrandar-
hrepps var settur 14. september.
Séra Þórarinn Þór prófastur
setti skólann með messu og voru
um 70 manns við setninguna.
í skólanum em 30 böm í fyrsta
til áttunda bekk og er mikill áhugi
á að hafa níunda bekk næsta vet-
ur. Skólabömum fjölgaði um þriðj-
ung frá því í fyrra. Auk skólastjóra
em tvær heilar stöður auk stunda-
kennara. Sú nýbreytni verður tekin
upp í vetur að valgreinar verða fyr-
ir elstu bekkina.
Skólastjóri er Torfí Steinsson.
- S.J.Þ.
Orstutt athugasemd
í Morgunblaðinu laugardaginn
10. október birtist grein eftir Svan-
hildi Halldórsdóttur, sem heitir:
Askorun til Ríkisútvarpsins sjón-
varps, og fjallar um þær hugmyndir
sem komið hafa fram, um að gera
kvikmynd um Þingvelli.
Innlend dagskrárgerðardeild,
sem undirritaður veitir forstöðu,
sótti um fjármagn til að gera slíka
mynd til Menningarsjóðs útvarps-
stöðva þann 9. desember 1986.
Sjóðurinn virðist því miður hafa átt
erfítt um vik frá því hann tók til
starfa og afgreitt færri mál en von-
ast var til. Innlend dagskrárgerðar-
deild hefur beðið eftir afgreiðslu
þessarar umsóknar og því ekki ver-
ið ráðist í gerð Þingvallamyndar
frarn að þessu. í áætlun fyrir næsta
ár hefur innlend dagskrárgerðar-
deild hins vegar áætlað að gera
slíka mynd, hvað sem úthlutun
líður. Myndin um Þingvelli verður
því gerð næsta sumar, en útboð
vegna hennar mun birtast nú á
haustmánuðum.
Virðingarfyllst,
Hrafn Gunnlaugsson,
dagskrárstjóri.