Morgunblaðið - 19.01.1988, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B
tfttmiHflfeife
STOFNAÐ 1913
14. tbl. 76. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 19. JANUAR 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bonn:
Búist við leiðtoga-
fiindi Nato í mars
Rætt verður um væntanlegan fiind
Reagans og Gorbatsjovs í Moskvu
Bonn. Reuter.
Fyrirhugað er, að forystu-
menn Atlantshafsbandalagsríkj-
anna komi saman til fiindar i
Brussel í Belgíu i fyrstu viku
marsmánaðar. Aðstoðarmaður
Helmuts Kohls, kanslara Vestur-
Þýskalands, skýrði svo frá í gær.
Á fundinum í Brussel verður
rætt um leiðtogafundinn í Moskvu,
sem líklega verður í maí eða júní,
en búist er við, að þá muni þeir
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti
og Míkhaíl Gorbatsjov, leiðtogi Sov-
étríkjanna, undirrita samning um
helmingsfækkun langdrægra kjarn-
orkueldflauga. Þegar þeir leiðtog-
amir hittust í Reykjavík olli það
óánægju meðal ýmissa leiðtoga
Vestur-Evrópuríkjanna, að ekki
skyldi vera haft samráð við þá um
fúndarefnið en í Reykjavík voru í
raun lögð drög að samningnum um
fækkun meðaldrægu eldflauganna.
Á Brusselfundinum verður einnig
rætt um Montebello-ákvörðun
Nato-ríkjanna frá 1983 um að end-
umýja skammdræg kjarnorkuvopn
en Vestur-Þjóðveijar vilja nú tengja
hana viðræðum bandalaganna um
hefðbundinn herafla. Bandaríkja-
stjóm vill hins vegar bíða með að
ræða skammdrægu vopnin þar til
Sovétménn hafa dregið úr yfirburð-
um sínum í hefðbundum vopnum
og liðsstyrk.
Þeir Kohl og Reagan munu ræð-
ast sérstaklega við um þetta mál
en ekki er enn ákveðið hvort það
verður í Brussel eða Bonn. Talsmað-
ur ítölsku ríkisstjórnarinnar sagði í
gær, að Brusselfundurinn gæti sýnt
fram á og eflt einingu Nato-ríkj-
anna fyrir leiðtogafundinn í
Moskvu.
Reuter
Herlögregla í Buenos Aires færir hér á brott liðsforingja í hernum sem stjórnaði aðgerðum er nokkr-
ir hermenn tóku innanlandsflugvöll í höfuðborginni á sitt vald til að sýna Aldo Rico uppreisnarmanni
stuðning.
Uppreisnarmenn í Arg-
entínu leggja niður vopn
Rimnns Airos. Rpnfpr
Buenos Aires. Reuter.
ALDO Rico uppreisnarmaður í
argentínska hernum gafst upp
síðdegis í gær án allra skilyrða.
Reuter
Begun yfírgefúr Sovétríkin
Sovéski gyðingurinn og andófsmaðurinn Josif Begun yfirgaf
Sovétríkin í gær eftir 17 ára baráttu við yfirvöld um brott-
fararleyfi. Hér sést hann á Moskvu-flugvelli ásamt sonardóttur
sinni. Hann hyggst nú setjast að í ísrael ásamt Qölskyldu sinni.
Á flugvellinum í Tel Aviv munu ráðherrar og þingmenn taka á
móti honum síðdegis í dag og hefiir honum verið búið heimili á
samyrkjubúi í nágrenni borgarinnar Haifa.
Fyrr um daginn hafði Raul Alf-
onsin forseti landsins hafiiað
tilboði uppreisnarmanna um upp-
gjöf með vissum skilyrðum.
Forsetinn sagði þá að Rico væri
að reyna að vinna tima. Hann
fyrirskipaði að hermenn sem
umkringdu uppreisnarmenn létu
kné fylgja kviði uns þeir gæfust
upp. Þegar tilkynning barst um
uppgjöf Ricos þakkaði forsetinn
hernum framgönguna.
Aldo Rico fyrrum ofursti í arg-
entínska hemum hefur verið eftir-
lýstur frá því á föstudag er hann
slapp úr stofufangelsi. Hans biðu
réttarhöld vegna uppreisnar sem
hann stóð fyrir um páskaleytið í
fyrra. Á laugardag fréttist til hans
skammt frá heimili sínu ásamt 250
harðsnúnum stuðningsmönnum í
herstöð í bænum Monte Caseros 620
km norður af höfuðborginni Buenos
Aires. Rico sagðist vera að beijast
fyrir „heiðri hersins" og krafðist
þess að yfirstjóm hersins yrði látin
sæta ábyrgðar vegna ófaranna í
Falklandseyjastríðinu árið 1982.
Einnig sakaði hann yfirstjómina um
að hafa ekki haldið hlífiskildi yfir
þeim herforingjum sem í tíð stjórnar
Alfonsins hafa verið ákærðir fyrir
mannréttindabrot á meðan herinn
réð ríkjum í Argentínu. Sjálfur er
hann frægur fyrir vasklega fram-
göngu í Falklandseyjastríðinu við
Breta.
'Alfonsin forseti boðaði til neyðar-
fundar í ríkisstjóminni um málið og
tiltækt herlið var sent á vettvang í
Monte Caseros. Hermenn hliðhollir
ríkisstjóminni umkringdu brátt liðs-
menn Ricos. Fregnir hafa borist af
því að skipst hafi verið á skotum
og að liðsmenn Ricos hafi sprengt
brú í loft upp til að tefja fyrir liðs-
flutningum stjórnarhersins.
Þtjátíu liðsforingjar tóku í gær
flugtum innanlandsflugvallar í höf-
uðborginni á sitt vald til að „sýna
Rico stuðning í verki“. Lögregla réði
skjótt niðurlögum liðsforingjanna.
Almenningur óttaðist í gær að
uppreisnin væri að breiðast út innan
hersins og orðrómur var á kreiki um
að Alfonsin hygðist setja neyðarlög
til að ráða betur við ástandið. í sam-
tali við Mitterand Frakklandsforseta
sagði Alfonsin að hann hefði fúll tök
á hemum og Rico hefði boðist til
að gefast upp.
Sovétmenn seilast til
áhrifa í Færeyjum
- segir foringi í danska hernum
Kaupraannahöfn, frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
SAMNINGUR milli Færeyinga og Sovétmanna um fiskveiðar og við-
gerðir á sovéskum fiskiskipum í höfh í Færeyjum hefiir vakið ugg
meðal starfsmanna Atlantshafsbandalagsins segir í grein í nýjasta
hefti timaritsins The Economist. í greininni er vitnað til heimilda-
manna innan bandalagsins sem eru þeirrar skoðunar að Sovétmenn
séu með samningnum að reyna að ná slíkri fótfestu í Færeyjum að
auðvelt væri fyrir þá á hættutímum að hernema eyjarnar.
í frétt dagblaðsins Berlingske Tid-
ende er einnig sagt frá því að oft
komi það fyrir að 300-400 Rússar
séu í landi í Færeyjum í einu og er
sú tala borin saman við fjölda starfs-
manna danska hersins í Færeyjum
en þeir eru um það bil 130. í viðtali
við blaðið segir H.Dalsgaard foringi
í danska hemum að ekki verði fram-
hjá því litið að Sovétmenn hyggist
koma undir sig fótunum í Norður-
Atlantshafi.
The Economist vitnar í Atla Dam
og segir hann engar áhyggjur hafa
af afleiðingum samningsins: „Við
myndum svo gjarna taka slíku kosta-
boði frá öðrum ríkjum," hefur
tímaritið eftir lögmanninum.
• •
Oryggisráð SÞ:
Bandaríkin
beita neit-
unarvaldi
Sameinuðu þjóðunum. Reuter.
Bandaríkin beittu neitunar-
valdi í gær til að koma i veg
fyrir að Öryggisráð Sarnein-
uðu þjóðanna samþykkti
harðorða ályktun gegn „end-
urteknum árásum Israela á
Iíbanskt landsvæði og öðrum
aðgerðum gegn íbúum þess“.
Tillagan var borin upp að
fi-umkvæði Líbana og hlaut
hún samþykki 13 ríkja en Bret-
ar sátu hjá.
Þetta var fjórða ályktunin sem
gagnrýnir ísraela sem borin er
upp á fundi Öryggisráðsins á ein-
um mánuði. Bandaríkin beittu
ekki neitunarvaldi gegn hinum
þremur. Þann 7. janúar krafðist
Líbanon þess að Öryggisráðið
ályktaði um hemaðaraðgerðir
Israela í landinu. Tveimur dögum
áður samþykkti ráðið að mælast
til þess að ísraelar hættu við að
vísa Palestínumönnum úr landi
sem sakaðir voru um óeirðir á her-
numdu svæðunum. Afgreiðslu
tillögu Líbana var frestað á með-
an ríki sem sæti eiga í Öryggisr-
áðinu reyndu að koma sér saman
um orðalag ályktunar en án ár-
angurs eins og fyrr segir.