Morgunblaðið - 28.05.1988, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 28.05.1988, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988 B 5 i Snerting (1960) Stóll (1963) Kubba-skúlptúr (1979) af því. Giinther Uecker er einn virtasti myndlistarmaður í Vestur-Þýskalandi og nýtur viðurkenningar víða um heim. Ferill hans er all-sérstæður. Hann er fæddur árið 1930 í Austur- Þýskalandi og ólst þar upp. Þar hlaut hann sína fyrstu listmenntun en flutt- ist síðan til Diisseldorf þar sem hann býr nú. Hann hefur fyrir löngu getið sér orð í hinum aiþjóðlega listheimi — hefur farið ótroðnar slóðir og mætt andbyr eins og gengur frá þeim sem ekki vilja víkja frá hinu hefðbundna tjáningarformi myndlistar. í mikilli bók sem gefin var út um hann bæði austan hafs og vestan árið 1986 eru birtar myndir af fjölmörgum verkum hans og rakinn ferillinn. Þar kemur m.a. fram að Giinther Uecker hefur orðið frægastur fyrir lágmyndir sem hann sýndi fyrst árið 1954. Þetta eru myndir þar sem yfír- borðið er þakið hvítum nöglum, en þær eru unnar á þann hátt að flötur- inn gefur margvíslegar vísbendingar. Í þessari bók kemur einnig fram hve listamenn í Þýskalandi eftir- stríðsáranna áttu erfitt uppdráttar hugmjmdafræðilega séð. Þeir stóðu í raun í hálfgerðu tómarúmi. Myndlist- armenn fyrri kynslóða voru fáir eftir. Þeir sem höfðu gerst handbendi nas- ista voru ekki til eftirbreytni. Hinir höfðu ýmist flúið land, fallið, eða lent í útrýmingarbúðum. Það var því erfíð- leikum bundið fyrir unga myndlistar- menn á þessum árum að ná tangar- haldi á þýskri myndlistarhefð og byggja á henni. Menn kærðu sig held- ur ekki um það — vildu heldur finna nýjar leiðir — strika fortíðina út. í þeirra hópi var Giinther Uecker. Nasisminn var auðvitað sú skelfmg sem menn þurftu að gleyma. Giinther Uecker haltaðist á fyrstu árum eftir heimsstyijöldina að hugmyndafræði marxista, en gerðist síðan fráhverfur öllum póítískum kennisetningum og forðast að ánetjast nokkrum „isma“ og tískusveiflum listaheimsins. Hann hefur það meginviðhorf að fara eigin leiðir og skeyta ekki um hvort þær mælist illa fýrir eða ei. Þessi afstaða og einlægni hans gagnvart listagyðj- unni hefur gefíð verkum hans dýpra innihald og aukið gildi, segir í fyrr- nefndri bók. Gunther Uecker hefur vissulega reynt víða fyrir sér að því er varðar tjáningartækni, en frumleikinn og innlifunin er alltaf þungamiðjan. I stuttu spjalli var hann beðinn að gera svolitla grein fyrir sjálfum sér og hvað hafí legið að baki því að hann valdi þessar nýju leiðir. Hann sagði skýringarinnar ef til vill að leita til þess að andrúmsloftið í Þýskalandi fyrir stríð og í A-Þýska- landi líka eftir stríðið hefði einkennst mjög af áróðri — og jafnvel til þess ætlast að hann birtist ekki hvað síst í verkum listamanna. Það hafí hann ekki getað sætt sig við. Slíkt gæfi listaverkum ekki þá dýpt sem þurfi tii túlkunar þeirra andlegu auðæva sem maðurinn býr yfir. Áróður og kennisetningar geti aldrei rúmað þau. Hann telur það hlutverk listamannsins að kafa djúpt í raunveruleika manns- andans — á sama hátt og munkar einbeita sér að í klaustrum — og eyða til þess ævi sinni. Listamaðurinn eigi síðan að opinbera öðrum reynslu sína myndrænt. Myndlist eigi menn ekki að tileinka sér eins og upplýsingar í kennslubók. Hún á að vera hliðstæða við hið talaða orð — en ekki það sama — og hana á að tileinka sér sjónrænt Orvar (1960) til að geta skilið fjölbreytni fyrirbæra með skilningarvitunum öllum. „Þegar ég fór að leita að nýjum leiðum til listtúlkunar fór ég líka að efast um að í myndlist væri það ein- hver skylda að notast við liti, léreft, stein eða leir. Ég vildi fitja upp á ein- hverju nýju — tjá mig með hjálp ein- hvers sem fólk þekkti úr sínu daglega lífí — búa til nýtt myndmál. Ég vildi líka snúa baki við óþörfum viðteknum venjum og hugsunarhætti — finna nýjan veruleika — sjónrænan veru- leika sem kemur ekki almenningi ókunnuglega fyrir. Þessi hugsun bjó m.a. að baki naglamyndanna". „Jú, það er svo, að mörgum fínnst þessar naglamyndir á einhvem hátt ógnvekjandi. En heimur listamanns- ins er það líka í vissum skilningi. Hann býr ekki í sama heimi og áhorf- andinn, sem virðir fyrir sér verkið, en hann hefur opinberað innri hug sinn og tilfinningar svo aðrir geti séð. Það getur verið hættuleg iðja.“ í samtalinu kom í ljós að Gunther Uecker er einn í hópi 18 myndlistar- manna víðs vegar að úr heiminum sem beðnir hafa verið um að búa til mynd- verk fyrr Ólympíuleikana í S-Kóreu, sem eru á næsta leiti. Tilgangur kór- eskra stjómvalda með þessu var sá að reyna að tengja listir og íþróttir á einhvem hátt. Giinther Uecker á þar mikið verk sem er 6 metrar á hæð og 5'/2 metri í þvermál og er ein- hvers konar óður til móður jarðar. „Hnífaskúlptúr", segir hann og rissar það upp fyrir blaðamann. Verkinu á að koma fyrir á útivistarsvæði við keppnissundlaugina. Það sem er annars næst á dagskrá hjá þessum lítilláta og viðræðugóða listamanni er gríðarmikil yfírlitssýn- ing á verkum hans í einu stærsta lista- safni Moskvu-borgar, Nýja Tretj- akov-safninu. Hann segir að í kjölfar „glasnost" hafí nokkmm vestrænum listamönnum verið boðið að sýna verk sín í Rússlandi. Þama er um að ræða sýningarsvæði sem nær yfir 4000 m2 og hefur hann fengið lánuð verk sín viða úr listasöfnum fyrir þessa sýn- ingu. Hún verður opnuð þ. 16. sept- ember næstkomandi. Þeir sem á eftir honum koma á sama stað með sýning- ar eru Rausehenberg og Francis Bac- on sem listunnendur munu kannast við. Sú staðreynd að Gunther Uecker hefur verið boðið fyrstum listamanna frá Vestur-Evrópu tii að sýna verk sín í Moskvu nægir út af fyrir sig til að sýna að hér er enginn meðalmaður á ferð. H.V. Gapastokkur ólæsis (1981)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.