Morgunblaðið - 04.12.1988, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 04.12.1988, Blaðsíða 6
6 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1988 .................. .......... ■ ■■■■ ■ i ■—'V G dld RAs TaF #r eftir Kristínu Morju Baldursdóttur myndir Ragnar Axelsson HEIMURINN ER oft hörmung ein og þvískóp guð nokkra menn sem hugsa abstrakt til að mýkja skap okkar og sanna eigin sköpunarmátt. Einn þeirra, sem reynir hiklaust að færa sólina úr stað í listaverkum sínum, liggur nú á Borgarspítaianum þar sem honum ber að hvílast. En eitthvað hefur Jón Gunnar Árnason myndhöggvari heyrt illa í skapara sínum því hann setti upp vinnustofu á stofnuninni og mundi ekki alveg eftir veikindum sínum nema þegar þau vitjuðu hans óvæg. Og sennilega hefur hann alveg gengið fram af hinum almáttuga þegar hann fékk sér gulan garðstól og góðan bar í vinnustof una og bauð gestum sínum huggulega upp á veitingar meðan þeir virtu fyrir sér líkan af listaverki sem glóir þegar vinkona Jóns, sólin, sendir því bros. etta eru galdrastafir,“ segir Jón Gunnar þegar ég horfi á listaverkið sem síðar á eftir að margfalda stærð sína og standa við aðalinngang Borgarspít- alans. „Er spítali ekki galdrastofnun?“ bætir hann við og hendir af sér sloppnum sem hann hafði gengið í inn eftir göngunum frá sjúkrastofu sinni. Stendur svo í hvítri skyrtu, grænum hermannabuxum og ökklaháum reimuðum skóm, opnar barinn sinn og segir: „Má bjóða þér viský elsk- an mín? Ég lagði það á mig að hætta að drekka eins og mér þykir það gam- an, en var svo ekkert að þessu því brennivín hefur engin áhrif á fram- gang sjúkdómsins." — Jón Gunnar, mér var sagt að það væri dekrað við þig hérna af því þú værir svo mikill karakter? Eru konumar voða góðar við þig? „Já mjög góðar. I þessi tvö ár sem ég hef gengið hér út og inn hef ég aðeins kynnst frábæru fólki. En hér er aldrei gert upp á milli manna. En það eru margir sem sjá ekki hversu yndislegt fólk þetta er, en ég er með fullum sönsum og sé það. Ég helli til dæmis sjálfur upp á könnuna héma, og þá býð ég þeim oft í kaffí til mín hérna inni á vinnustofu. Ég er orðinn eins og ein af mublunum hérna,“ segir hann og brosir. „En ég er skapmaður og læt ekki einhverja lækna tala við mig í þriðju persónu, og ef mér líkar ekki við blóðsugurnar sem taka úr mér blóðið, þá rek ég þær bara út. Ég sagði nú svona við konuna í eldhúsinu: Er ég ósköp frekur elsk- an mín? 0g þá sagði hún: Jón minn, það er tvennt ólíkt að vera frekur eða ákveðinn.“ Sólin Dulúð umlykur galdrastafina hans Jóns Gunnars. í miðjum hringlaga brunni stend- ur hár þríforkur með nokkrum minni í kringum sig, og í stéttina kringum bmnninn er greypt munst- ur sem samskonar fígúmr standa upp úr. „Munstrið er græðandi galdratákn“, segir Jón sem hefur stúderað þetta að sögn. Hann geng- ur í kringum líkanið og bendir mér einnig á myndir á veggjunum sem hann hefur tekið af líkaninu í eðli- legu umhverfi. „Þríforkur er sóltákn hvar sem er í heiminum og sóltákn er í öllum galdri. Ég elska sólina. Hún er guð, hugsunin og lífgjafi allra og alls.“ — Hefðirðu viljað búa annars staðar þar sem sólin er meiri? Hann segir stutt: „Nei. Það er hvergi sterkari sól en hér þegar bjart er.“ Jón Gunnar hefur verið viðloð- andi sjúkrahúsið síðustu tvö árin og er í stöðugri meðferð vegna blóð- krabba. Eftir að hann veiktist var honum falið að gera tillögu að úti- verki við aðalinngang spítalans. Inn við endann á ófullgerðri álmu á sjö- undu hæð hefur hann vinnustofu sína, og á öllum veggjum álmunnar er hluti af verkinu, eins og Jón seg- ir, skissur og myndir frá ýmsum sjónarhomum. Við stöndum við gluggann og horfum niður á planið þar sem skúlptúramir koma til með að standa í framtíðinni. „Þetta pláss hefur verið afskipt í mörg ár,“ seg- ir Jón Gunnar. „En næsta skrefið er að teikna allt verkið upp í rétta stærð, og síðan tekur við tveggja mánaða framkvæmd við smíðina. Það verður spegilslípað stál í verk- inu þannig að endurkast sólarinnar myndast allt í kringum það og send- ir geisla inn um glugga sjúkrahúss- ins. Hvaðan kemur þessi geisli? mun fólk spyija undrandi og skima upp í skýjaðan himin. En peningavaldið á eftir að gefa grænt ljós á þetta,“ bætir hann við og sest í garðstólinn sinn. Egóið Þegar menn eru veikir hafa þeir yfirleitt ekki rænu á miklu öðru, en það er annað uppi á teningnum hjá Jóni Gunnari, sem vinnur eins berserkur þegar hann er hress, þótt hann segist nú helst vilja vera laus við að vera þarna. „Ég hef farið illa með skrokkinn á mér, listin hefur alltaf haft forgang, verið númer eitt. En það eru ekki allir sem hafa áhuga á éinhveiju. Vinna bara, horfa á sjónvarpið og vaska upp.“ Svo hækkar hann röddina: „En ég hef ekkert verið að streða til að skilja einhvern andskotann eftir mig sem mölur og ryð fær eytt.“ En Jón Gunnar Ámason mun nú samt skilja ýmislegt eftir sig fyrir utan dæturnar þijár, sem hann seg- ir hafa verið stoðir sínar og stytt- ur, því stórfengleg umhverfislista- verk hans prýða marga staði og söfn borgarinnar. Og einn okkar fremsti listamaður er fyrrverandi meistari í vélvirkjun, sem hann segir hafa komið sér að ótrúlegum notum gegnum tíðina, og stofnaði hann á sínum tíma fyrir- tæki sem tók að sér ýmis verk, m.a. að smíða gráturnar í Bessa- staðakirkju. En sú vinna gerði hann ekki hamingjusaman. „Ég varð að gera það upp við mig hvort ég ætlaði að hugsa um egóið eða lifa eftir þeim lögmálum sem tröllríða íslendingum, safna, græða, eignast meira, lifa heil- brigðu löglegu lífi, búa til kjarna- fjölskyldu. Eg kastaði öllu frá mér og fór að vinna fyrir sjálfan mig og umhverfið." Hann fór til Lundúna til að nema list sína, og kenndi síðar við lista- skólann þar, svo og Listaakademí- una í Kaupmannahöfn. — Fékkstu ekkert samviskubit

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.