Morgunblaðið - 16.07.1989, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 16.07.1989, Blaðsíða 39
M- MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 1989 C 39 Stund mllli stríða. Frá vinstri: Erlingur Gíslason, Am- ar Jónsson, Róbert Arnfinnsson, Helgi Skúlason, Rúrik Haraldsson (sitjandi), Jón Aðils, Flosi Ólafsson og Valdimar Lárusson. Carl Billich spilar lög úr Dýrunum í Hálsaskógi. Klemens Jónsson, Emilía Jónasdóttir og tvö börn fylgjast með. SÍMTALED... ER FIÐ KRISTJÁNÞORBJÖRNSSON,AÐALVARÐSSTJÓRA LÖGREGLUSTÖÐVARINNAR Á BLÖNDUÓSI Bankaðí radarvarana 95-24377 Lögreglan. — Já, góðan daginn. Góðan daginn. — Kristján Þorbjömsson? Ég er hann. — Jóhannes Kári Kristinsson heiti ég, blaðamaður á Morgun- blaðinu. Sæll. — Nú voru þið að taka öku- mann mótorhjóls um daginn á 197 kílómetra hraða. Hvernig er það, virka radarvararnir ekki þama fyrir norðan? Nei, .nei..., við höfum alveg ráð við þeim. Að vísu var hann ekki með radarvara þessi. — Nú segja þeir sem eiga slíka gripi að þeir virki ágætlega. Þeir virka náttúmlega, en það er hægt að mæla þannig að þeir komi að mjög litlum notum. — ... og þá er kannski búið að eyða miklum fjármunum til einsk- is? Já ... oft á tíðum. Það er ekk- ert óalgengt að þeir sitji og banki í radarvarann þegar við er- um búnir að stoppa þá ... halda að tækið sé bilað. - En hef- ur ekki verið talað um að setja lögbann á radarvara? Neiii þetta er allt í lagi, menn sem eru með þetta keyra bara hægar. .. þetta er sípípandi ... það verka á þetta fjarstýrðir hurðaopnarar, far- símar og margt fleira, svo þetta er ekki bara bundið við radarana. — Einmitt. Er algengt að þið náið mönnum á svona hraða? Nei, sem betur fer er það mjög óalgengt. — Hvað er gert við broti sem þessu? Það dugir engin sekt á svona, þetta fer mikiu lengra. — Er annars rólegt hjá ykkur á Blönduósi? Já, já, það er samt nóg að gera ... við emm til dæmis mikið í radarmælingum. Við tökum að jafnaði um fimmtíu til sextíu um helgar fyrir of hraðan akstur og svo nokkra í miðri viku ... en þetta er nær eingöngu bundið við sumartímann og mikið af þessu em ferðamenn. — Hvað takið þið annars stórt svæði? Við tökum frá Brú upp að Vatns- skarði. — Jæja, ég þakka þér kærlega fyrir spjallið. Sömuleið- is. — Bless- aður. Já, bless- aður. Frá Blönduósi. fc Sporhundur fann dreng eftir 11 tíma TVEGGJA ára drenturldai, frá Loranstöðinni á tjndist siAa'tliðinn tunnu-1 Snaefrllsnni. Drcngurinn fannst klukkan að vrrða þrjú aðfaranótt mánuda|t og var þá mikill mann- fjöldi farinn að leita hans, Komið var með sporhund frá Rrykjavfk og hjálpaði hundurinn mönnum að komatl á ilóð drrnr'ins. Drenctla l m keiilr Sa>n Það er niðdimm ágústnótt árið 19 en allir sem vettlingi geta valdið ( úti við, á göngu um hraunið við Gufun skálann rétt utan við Hellissand. Tvegj ára drengs er saknað frá þvf um miðj dag er hann var að leik ásamt fjóri snáðum sem ekki geta sagt til um fer hans nema benda með litlum fingmtr HVAR ERU ÞAU NÚ? „STRÁKURINN í GJÓTUNNT' Giftusamleg björgun eftir víðtæka leit úfíð og kaldranalegt hraunið. Tæplega tvö hundmð manns hafa tekið þátt í einni víðtækustu leit sem gerð hefur verið, leit- að er skipulega frá klukkan hálf sjö, frá Hellissandi að Skarðsvík og alllangt upp í hraunið. Flugvél frá Slysavamarfélaginu í Reykjavík hefur flogið yfír leitarsvæðið og á miðnætti er hætt skipulagðri leit en gerðar áætlanir um að herstjómin á Keflavíkurflugvelli sendi þyrilvængju síðar til þess að taka þátt í leitinni. Hópur fólks heldur áfram að leita. Spor- hundurinn Dúna frá Flugbjörgunarsveit- inni í Reykjavík, sérþjálfuð af Carlsen minkabana, er komin á svæðið um klukk- an hálf tvö um nóttina, þefar af nærfatn- aði drengsins en fer ekki langt frá Gufu- skálanum. Menn með ljóskastara og gjall- arhorn em árangurslaust búnir að kalla og ganga fram og til baka á þessum stað. Loks... eftir ellefu tíma og erfiða leit finnst drengurinn litli, sofandi ofan í illsjá- anlegri eins og hálfs metra djúpri gjótu í aðeins 60 metra fjarlægð frá Gufuskálan- um. Þetta er giftusamleg björgun, sá stutti hefði aldrei komist upp úr gjótunni af sjálfsdáðum. Þetta er Sævar Pétursson, sonur Péturs Péturssonar, símvirkja í Lor- anstöðinni, og Ingibjargar Kjartansdóttur. „Ég var bara að lúlla,“ sagði hann syfju- lega við leitarmenn. Fætur hans höfðu kólnað en hann var að öðm leyti hinn sprækasti. Í öllum dagblöðum var at- burðurinn forsíðufrétt og myndir af snáða í fangi móður sinnar prýddu frásagnir. „Það er ótrúlegt að hann skuli finnast eftir allan þennan tíma... Hraunið hér fyrir ofan og sjórinn fyrir neðan. Að vísu er allt girt og krakkarnir eiga ekki að komast þetta en krakkar komast nú allt“ er meðal annars haft eftir móður hans í Morgunblaðinu þann 28. ágúst 1962. Ári síðar gerði Ósvald Knudsen stutta leikna kvikmynd um leitina og var Sævar í aðal- hlutverki, aðeins þriggja ára að aldri, en þótti rétt að láta annan dreng leika atrið- ið ofan í gjótunni. Myndin var tvívegis sýnd í sjónvarpinu og einnig tók Slysa- varnarfélagið hana til sýninga til fræðslu fyrir ýmsa hópa. Og hvar er Sævar nú, 27 ámm eftir atburðinn á Snæfellsnesi? Hann er 29 ára gamali; starfar sem tannlæknir í Reykjavík en hann lauk prófí fyrir tveim- ur ámm. Sævar viðurkennir að allt um- stangið hafi markað spor í æsku hans. En man hann sjálfur eftir því þegar hann týndist? „Nei, ég man ekkert eftir þessu, ég var svo ungur. Þó rámar mig eitthvað í þegar við vorum að leika kvikmyndina, í gjallarhornið þegar kallað var á mig. Annars horfði ég á myndina þegar hún var sýnd og það sem ég man hlýtur að hafa myndast eftir það. Sjónvarpið var nýkomið og þar voru bara stór nöfn og merkilegt að komast í það. Nei, mér var aldrei strítt, ekki þannig, en menn minnt- ust á þetta fram á unglingsárin. „Strákur- inn í gjótunni" eða eitthvað í þá áttina var ég kallaður. Ég segi ekki nokkmm manni neitt en gömlu dagblöðin em til heima hjá mér og sonur minn eldri fékk að lesa þetta núna og finnst bráðskemmti- legt að ímynda sér mig lítinn." Sævar Pétursson, tannlæknir í Reykjavík. — Þú hefur væntanlega komið aftur á staðinn? „Já, já, ég hef farið þangað. Það var strax fyllt upp í gjótuna með gijóti en hún var mjög breið neðst, einskonar hell- ir. Að ofan var og er hún þakin grasi og opið aðeins um 30 sm á breidd. Ætli nokk- ur geti fundið hana nema ég og einn þeirra að vestan sem tók þátt í leitinni." Skömmu eftir hina víðtæku leit var stofnuð slysavarnardeild á Hellissandi og margt hefur breyst síðan. Sævar hefur ágæt samskipti við Slysavamarfélagið ef svo má að orði komast en hann er ferða- garpur mikill og fer oft inn á hálendið á sérútbúinni jeppabifreið. Þar mætir hann gjarnan björgunarsveitarmönnum við æf- ingar. Þá segist hann aðeins spila í einu happdrætti, happdrætti Slysavamarfé- lagsins. „i dag hef ég mikið álit á hundin- um. Hann fór aldrei lengra en rétt við veginn þar sem ég var. Menn héldu að hann væri ruglaður eftir flugið en hann vissi sitt og sem betur fer — fyrir mig að minnsta kosti," segir Sævar í spaugi. „Svona sporhundar eru nauðsynlegir í öllu leitarstarfí og ómissandi."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.