Morgunblaðið - 07.10.1989, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.10.1989, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B/LESBOK STOFNAÐ 1913 228. tbl. 77. árg. LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1989 Prentsmiðja Morgunblaðsins Míkhaíl Gorbatsjov forseti Sovétríkjaniia á 40 ára afinæli Þýska alþýðulýðveldisins: Vandamálin verða leyst í A-Berlín en ekki í Moskvu IMíkhaíl Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, heilsar Erich Honecker, flokksleiðtoga í Austur-Þýskalandi. Auk leið- toga ríkja Varsjárbandalagsins eru meðal hátíðargesta á 40 ára afinæli Austur-Þýskalands Daniel Ortega, forseti Nic- aragua, Yasser Arafat, leiðtogi Frelsissamtaka Palestínu, og Yao Yilin, aðstoðarforsætisráð- herra Kína. Hersveitir kommúnistaflokksins segja þolinmæði sína vegna sífellds andófs „gagnbyltingarsinna“ á þrotum Austur-Berlín. Reuter. MÍKHAÍL Gorbatsjov forseti Sovétríkjanna sagði í ræðu í Austur- Berlín í gær að Austur-Þjóðverjar yrðu sjálfír að gera upp við sig hvort breytingar ættu sér stað. „Vandamálin verða leyst í Austur- Berlín en ekki í Moskvu. Austur-Þýskaland er sjálfstætt ríki,“ sagði Sovétleiðtoginn en hann er í Austur-Þýskalandi í tilefhi þess að í dag eru 40 ár síðan Þýska alþýðulýðveldið var stofhað. Austur- þýskar sjálfboðaliðahersveitir, sem heyra undir kommúnistaflokkinn (Kampfgruppen), sendu frá sér viðvörun til umbótasinna í landinu í gær. Tilkynning birtist í dagblaðinu Leipziger Volkszeitung þar sem sagði að vikuleg mótmæli í Leipzig yrðu ekki liðin öllu lengur. „Við erum reiðubúnir til að verja árangur okkar og stöðva þessa gagn- byltingarsinna fyrir fullt og allt. Ef nauðsyn krefur verður það gert með vopn í hendi.“ Síðdegis í gær hélt Gorbatjsov ræðu í Lýðveldishöllinni í í Austur- Berlín. Þar hvatti hann stjórnvöld til að hefja viðræður við alla þjóð- félagshópa um stjórnmálalegar og efnahagslegar umbætur. Hann sagði að ekkert ríki kæmist hjá því að laga sig að breytingum sem nú ættu sér stað í heiminum. Fyrr um daginn hafði Gorbatsjov lagt blóm- sveig á leiði óþekkta hermannsins í Austur-Berlín. - Nokkur þúsund ungmenni, aðallega félagar í æsku- lýðssamtökum austur-þýska komm- únistaflokksins, fylgdust með at- höfninni. Nokkrir hrópuðu: „Gorbi, Gorbi, við ætlum að vera,“ til að sýna að þeir ætluðu ekki að fylgja fordæmi tugþúsunda landa sinna og flýja land. Gorbatsjov brosti föð- urlega til ungmennanna og sagði: „Ekki örvænta, verið þolinmóð og haldið áfram að vinna að upp- byggingu sósíalismans." Viðvörun hersveita kommúnista- flokksins birtist daginn eftir að fjöl- menn mótmæli áttu sér stað í Leipz- ig. 10.000 manns söfnuðust þar saman á fimmtudag og kröfðust umbóta. Á miðvikudagskvöld var hersveitunum sigað á andófsmenn í Dresden með þeim afleiðingum að 90 manns voru fluttir á sjúkra- hús. Reuter Ungverjaland: Ráðamenn deila um hvort 100.000 ungmenni gengu eftir götum A-Berlínar í gær til að fagna afinæli A-Þýskalands. Flugrán í Búrma: • • Ollum gísl- ummi sleppt U-Tapao, Tælandi. Reuter. OLLUM gíslum um borð í búrmískri farþegaþotu af gerð- inni Fokker F-28 var sleppt í gærkvöldi. Tveir stúdentar rændu þotunni í innanlandsflugi í Búrma í gær og neyddu flug- mennina að fljúga til Tælands. Flugvélin var í innanlandsflugi frá Mergui til Rangoon. Hermenn úr víkingasveitum tælenska hersins umkringdu hana við komuna til U-Tapao, sem er skammt suður af Bangkok. Eftir átta stundir gáfust ræningjarnir upp og höfðu þá sleppt öllum gíslunum, 85 að tölu. leggja eigi flokkinn niður Búdapest. Reuter. LEIÐTOGI stjórnarflokks kommúnista í Ungverjalandi, Rezso Nyers, hvatti til þess í setningarræðu á aukaflokksþingi í gær að flokkurinn yrði lagður niður. Stofiia þyrfti nýja tegund sósíalista- flokks sem ekki yrði beint framhald þess gamla og hefði ekki kommúnisma á stefnuskránni. Tveir af helstu forystumönnum flokksins, Miklos Nemeth forsæt- isráðherra og Imre Pozsgay, líklegur forseti landsins, styðja til- lögu Nyers en hinn fjórði, Karoly Grosz, sem hratt umbótastefnunni af stað er hann tók við flokks- forystu af Janos Kadar, varar við kollsteypunni. Auknar líkur eru nú taldar á klofningi stjórnar- flokksins. Margir flokksmenn telja nú að of langt hafi verið gengið í breyt- ingaátt en stjórnvöld hafa tekið upp stóraukinn einkarekstur og ferðafrelsi til útlanda. Einnig hafa þau heitið fijálsum forsetakosn- ingum í vetur og þingkosningum á næsta ári þar sem stjórnarand- stöðuöfl keppi á jafnréttisgrund- velli við stjórnarliða. Er búist við að harðlínumenn snúist til varnar á þinginu, sem stendur í þijá daga, og stjórni Grosz þeirri baráttu. Hann gagnrýndi í gær „ofstækis- menn“ sem ekki vildu vinna með öðrum flokksfélögum og sagði jafnframt að rangt væri að segja skilið við hugsjónir kommúnis- mans þótt framkvæmd stefnunnar áður fyrr væri gagnrýnd. Reuter Miklos Nemeth, forsætisráðherra Ungverjalands (t.v.), og Karoly Grosz, aðalritari kommúnistaflokksins, greiða atkvæði á flokks- þinginu í gær. Þeir eru ekki sammála um hver skuli vera framtíð flokksins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.