Morgunblaðið - 26.10.1989, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 26.10.1989, Blaðsíða 43
(Í8ei gagOTHO MORGUNBLAÐIÐ IÞRÓTTIR FÍMMTUÖAGUR 26! Bktöber lMiOI 43 KÖRFUBOLTI Enn einn þjálfari til ÍBK Keflvíkingar, sem höfðu á mánudaginn ráðið til sín Bandaríkjamanninn Kenny Matt- hews, hafa nú hætt við það og hafa fundið nýjan leikmann í hans stað. Matthews sem lék með félags- liði í Chile hafði ekki fengið leyfi þaðan til að leika á íslandi og vildu Keflvíkingar ekki bíða eftir því og leituðu annað. Nú hafa Keflvíkingar ákveðið að fá Bandaríkjamanninn Sandy And- erson til íslands, en hann er 23 ára blökkumaður 1,98 sentimetrar á hæð og lék á Möltu síðasta keppn- istímabil. Gunnar Jóhannsson, formaður körfuknattieiksdeildar ÍBK, sagði að þeir hefðu ekki getað beðið eftir leyfi frá Chile fyrir Matt- hews og þvi ákveðið að fá Anderson. „Við vitum ekki mikið um Ander- son, en hann kemur hingað tii reynslu til að byija með. Ef okkur líst vel á hann og hann passar inn í liðið munum við ráða hann sem þjálfara," sagði Gunnar. Anderson kemur til landsins á morgun, föstudajg, og mun væntan- lega leika með IBK gegn Njarðvík á sunnudaginn. URSLIT EM U-21 árs landsliða 4. riðill: Vestur-Þýskaland — ísland..........1:1 (Bode 58. mín.) - (Baldur Bjamason 6. mín.) Áhorfendun 1.500. Staðan V-Þýskaland 6 4 2 0 10:2 10 ísland 6 2 3 1 11:7 7 Finnland 5 113 3:11 3 Holland 5 0 2 3 4: 8 2 ■Leikur eftinHolland - Finníand 14. nóv. Handknattleikur 2. deild karia: Breiðablik — Ármann..............19:18 ÍBK —Valurb.................... 19:14 3. deild UBK b — Reynir Sandgerði.........26:21 England Deildarbikarimi, 3. umferð: Ai-senal — Liverpool...............1:0 Aston Villa — West. Ham............0:0 Derby — Sheffield Wednesday........2:1 Saunders 2 (víti 87., 90.) - David Hirst (víti 85.) Áhorfendur 18.000. Exeter — Blackpool.................3:0 Manchester City — Norwich..........3:1 White, Bishop, Clive Allen - Robert Fleck. Manchester United — Tottenham......0:3 Middlesbrough — Wimbledon..........1:1 Gibson - Slaven. Áhorfendur 13.000. Newcastle — W.B.A..................0:1 Oldham — Scarborough...............7:0 Q.P.R. — Coventry................ 1:2 Wright - Downs, Drinkell. Áhorfendur 9.000 Skotland Úrvalsdeiid: Hibemian — Aberdeen................0:3 St Mimin — Rangers.................0:2 KNATTSPYRNA EVROPUKEPPNI U-21 „Krístinn maður að mínu skapi“ - sagði Teitur Þórðarson, þjálfari Brann Teitur Þórðarson, þjálfari norska liðsins Brann, var á meðal áhorfenda í Saarbrúcken í gærkvöldi. „íslenska liðið lék mjög vel gegn Hollendingum, en nú lék það gegn sterkara en ekki eins skemmtilegu liði og stóð sig enn betur. Þjóðverjarnir eru sterk- ir og grimmir og það er erfítt að leika gegn þeim, en jöfnunarmark þeirra var hálfgert sjálfsmark. Ég vildi taka marga úr íslenska liðinu með mér til Brann, en ég geri ráð fyrir að tala við tvo þeirra, Eyjólf Sverrisson og Kristin R. Jónsson. Ég)íef trú á að fleiri lið 'séu á eftir Eyjólfi og Stuttgart hlýtur að vera hans fyrsta val, ef það býðst. Kristinn er maður að mínu skapi — leikmaður eins og ég hef verið að sækjast eftir. Hins vegar verður ekki gengið frá neinum málum hér,“ sagði Teitur. Kristinn R. Jónsson. Sann- gjarnt jafn- tefli ÍSLAND og Vestur-Þýskaland gerðu 1:1 jafntefli í Evrópu- keppni U-21 landsliða í gær- kvöldi og voru úrslitin sann- gjörn miðað við gang leiksins sem fram fór í Saarbrúcken. MT Islenska liðið byijaði mun betur og þegar á sjöttu mínútu gerði Baldur Bjarnason gott mark eftir sendingu frá Rúnari Kristinssyni. Gestimir tvíefldust við markið og réðu áfram gangi leiks- ins, en fyrsta um- talsverða sókn heimamanna varð ekki að veruleika fyrr en eftir 25 mínútna.leik. Þjóð- veijarnir voru aðgangsharðari út hálfleikinn, en þýsku atvinnumenn- imir, sem allir leika með liðum í Bundesligunni, áttu hins vegar ekki svar við snilldarleik Ólafs Gott- skálkssonar í marki íslands og það var fyrst og fremst Ólafí að þakka að íslenska liðið var yfir í hléi. Eyjólfur Sverrisson fékk gullið tækifæri til að auka forystuna á 52. mínútu, en knötturinn fór hárfínt framhjá. Skömmu síðar fékk Bode, leikmaður Werder Bremen, knöttinn, þar sem hann var einn og óvaldaður inni í víta- teig íslands, og hann átti ekki í erfiðleikum með að skora. Leikurinn var mjög harður og grófur á köflum — minnti einna Frá Knut Hánsche ÍSaarbrucken Ólafur Gottskálksson gærkvöldi. markvörður, var besti leikmaður íslenska liðsins í helst á viðureign í 3. deild í Þýska- landi — og þurfti að fara með tvo meidda leikmenn heimamanna á sjúkrahús. Tveir Þjóðveijar og þrír íslensku leikmannanna fengu að sjá gula spjaldið; Eyjólfur og Ólafur Þórðarson fyrir grófan leik og Þor- steinn fyrir mótmæli. Ólafur Gottskálksson var bestur í liði íslands, en Kristinn R. Jónsson og Þorsteinn Halldórsson stóðu sig einnig mjög vel. íslensku strákarnir börðust vel. Varnarleikur liðsins var góður og sóknimar oft vel útfærð- ar, en bilið á milii varnar og sóknar var stundum of mikið. Lið íslands: Ólafur Gottskálksson, Kristinn R. Jónsson, Ólafur Kristjánsson, Steinar Adolfsson, Einar Páll Tómasson, Rúnar Krist- insson (Heimir Guðjónsson vm. á 85.), Ólafur Þórðarson, Þorsteinn Halldórsson, Haraldur Ingólfsson, Eyjólfur Sverrisson, Baldur Bjamason (Kjartan Einarsson vm. á 72.). KNATTSPYRNA / ENGLAND Smith hetja Arsenal Liverpool lék varnarleik á Highbury og mátti þola tap, 1:0 ALAN Smith var hetja Arsenal á Highbury í gærkvöldi, þar sem Arsenal sló Liverpool út úr ensku deildarbikarkeppn- inni, 1:0. Smith, sem kom inn á sem vara- maður fyrir Martin Hayes á 14. mín., skoraði sigurmark Arse- nal með skalla á 80. mín., eftir að Niall Quinn. FraB'ob Leikurinn hófst ekki Hennessy á réttum tíma þar t Englandi sem geysilegur fjöldi áhorfenda var fyrir utan Highbury. Uppselt var á leikinn - 48 þús. áhorfendur. Kenny Dalglish, framkvæmda- stjóri Liverpool, ákvað að leika varnarleik á Highbury - freistaði þess að fá annan leik til Anfíeld Road. Hann tefidi fram fimm varn- armönnum. Meiðsli settu svip á Li- verpool-liðið. Gary Gillespie og Alan Hansen eru meiddir og Steve Nicol féll á læknisskoðun rétt fyrir leik- inn. Sænski landsliðsmaðurinn Glenn Hysen var í Póllandi. Dalgl- ish setti Peter Beardsley á vara- mannabekkinn, en setti hann síðan inn á átta mín. fyrir leikslok, en það dugði ekki. Tottenham varð fyrir áfalli á Old Trafford á 15. mín. þegar Terry Fenwick, fyrirliði Tottenham, fót- brotnaði á vinstri fæti eftir samstuð við Mark Hughes. Leikmenn Tott- enham léku það ekki á sig fá og Gary Lineker skoraði, 0:1, á 20. mín. eftir sendingu frá varamannin- um Paul Moran. Stax á annari mín. seinni hálfleiksins bætti Vinny Samways öðru marki við, 0:2. Marakkómaðurinn Nayim skoraði þriðja mark Tottenham, 0:2. 45.749 áhorfendur sáu leikinn. Frankie Bunn, miðheiji Oldham, skoraði fímm mörk í fyrri hálfleik gegn Scarborough. Hann bætti sjötta markinu við. Þetta er mesta markaskor hjá leikmanni í 29 ára sögu deildarbikarkeppnininar. Andy Ritchie skoraði sjöunda markið, 7:0. Sagt eftir. leikinn: „Sigur liðs- heildar- innar U KARFA KR úr leik KR-ingar töpuðu síðari leik sínum gegn Orthez, 102:75, í 2. umferð Evrópukeppninnar í Pou Orthez í Frakklandi í gærkvöldi. KR er þar með úr leik í keppninni þar sem fyrri leikurinn tapaðist 97:78. KR-ingar héldu í við franska lið- ið fyrsti 15 mínútur leiksins er stað- an var 31:28 fyrir Orthez. Síðan náðu Frakkarnir undirtökunum og höfðu yfir í hálfleik, 49:35 og juku síðan forskotið jafnt og þétt enda sat fyrri leikurinn í KR-ingum. Stigahæstir KR-inga voru Kovto- úm sem gerði 20 stig, Jonathan Bow 16, Axel Nikulásson 15, Matt- hías Einarsson 11, Páll Kolbeinsson 6 og Birgir Mikaelsson 4. - sagði Guðni Kjart- ansson, þjáifari Guðni Kjartansson, þjálfari íslenska liðsins, var ánægður með leikinn og úrslitin. „Strákarnir spiluðu allir vel og eftir svona leik er ekki hægt að taka neinn fram yfir annan. Það voru allir samtaka í því að reyna að sigra, en við get- um vel sætt okkur við jafntefli gegn einni sterkustu knattspymuþjóð heims og það voru sanngjörn úr- slit.“ Ólafur Gottskálksson: „Ég er ánægður með minn hlut. Við lágum undir mikilli pressu í seinni hluta fyrri hálfleiks og ég hafði nóg að gera í markinu, en tókst að veija það sem þurfti. í seinni hálfleik reyndi ekki eins mik- ið á mig — þetta voru aðallega út- hlaup og smá reddingar.“ Ólafur Þórðarson: „Það er ekki hægt annað en vera* ánægður, en við vorum óheppnir að missa þetta niður í jafntefli. Leikur okkar var vel útfærður og baráttan var góð.“ Eyjólfur Sverrisson: „Þetta er áfangi út af fyrir sig. Þjóðveijarnir vældu eftir 1:1 jafn- teflið heima og kenndu slæmum velli um. Nú var leikið við toppað- stæður, en úrslitin hin sömu!“ Snilldarverk VISE-GRIP er samheiti fjölhæf- ustu handverkfæra sem smíðuð hafa verið. VISE-GRIP lástangir koma í stað fjölmargra verkfæra. Með VISE-GRIP getur þú hert, losað, dregið, klippt, klemmt, sveigt, beygt, rétt og gripið. Varist eftirlíkingar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.