Morgunblaðið - 09.11.1989, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐH) FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1989
Dúkrista og þurrkrít
Aðalheiður Valgeirsdóttir
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
í Ásmundarsal opnaði. ung
myndlistarkona, Aðalheiður Val-
geirsdóttir, sýningu á dúkristum
og þurrkrítarmyndum um sl.
helgi.
Þetta mun vera fyrsta einka-
sýning Aðalheiðar, en áður hefur
hún tekið þátt í nokkrum samsýn-
ingum heima og erlendis. Uppi-
staðan á sýningunni eru dúkris-
turnar, sem eru ekki einasta
stærstar og fyrirferðarmestar
heldúr ótvírætt listrænastar. í
þeim kemur fram viss grafísk
kennd fyrir miðlinum og mögu-
leikum hans og hvernig hægt sé
að lífga upp sáraeinföld form og
fá þau til að lifa sínu eigin lífi.
Dúkristan er alveg sérstakur
miðill innan grafík-tækninnar,
með sín sérkenni og möguleika.
Hér er tréristan skyldust, en mun
harðari undir skurðaijárninu og
erfiðari viðfangs. En möguleikar
■dúkristunnar eru engu að síður
fjölþættir,, enda hafa margir
heimsþekktir listamenn unnið í
henni og náð eftirminnilegum ár-
angri, m.a. sjálfur Picasso.
Það er tvennt, sem er áberandi
á þessari sýningu, og það er í hve
fáum og einhæfum formum Aðal-
heiður vinnur, sem kemur niður á
þurrkrítarmyndum hennar, sem
eins og verða eftir í listræna flug-
inu. I öllu falli virka þær hálf
líflausar innan um dúkristurnar,
sem aftur á móti iða af innra lífi.
Undraðist ég, hve gerandinn náði
hér miklu úr litlu og vafalítið eru
slík vinnubrögð einmitt ein megin-
undirstaða allrar mikillar listar.
Dúkristurnar eru óhlutlægar,
en þó mjög lífrænar, sem einmitt
gefur þeim gildi, en Aðalheiður
getur einnig náð prýðilegum ár-
angri í hlutlægum formum, svo
sem litlu myndirnar sýna og vafal-
ítið gæti hún nálgast meiri fjöl-
breytni í formum og hrist upp í
hugarfluginu með því áð leita
meira til náttúrunnar.
En hvað sem öðru líður telst
þetta eftirtektarverð frumraun.
Austræn áhrif
List og hönnun
BragiÁsgeirsson
í vestari gangi Kjarvalsstaða
sýnir Kristín Isleifsdóttir allnokk-
ur leirlistarverk.
Kristín er skóluð í Japan og eru
japönsk áhrif eðlilega ennþá
greinileg í munum hennar, en hún
er þó smám saman að móta eigin
viðhorf í samræmi við persónu-
leika sinn.
Maður sér strax á hinum öguðu
verkum Kistínar, að hún hefur
notið strangrar og nákvæmrar
leiðsagnar í anda japanskrar
nútímahefðar í hönnun og mótun
leirmuna.
Handbragðið er óaðfinnanlegt
og einkum vakti athygli mína hin
mjúka og skynræna áferð-mun-
anna svo og látlaus og fagur gler-
ungur.
Einfaldleikinn og látleysið er
aðal þessara leirmuna og þeir eru
heilmikið augnayndi þeim, sem
teljast hafa þroskað formkennd
sína.
Listakonan forðast allar skreyt-
ingar, en dregur í þess stað fram
eiginleika forma og áferðar til
hins ýtrasta.
Inntakið í verkum hennar eru
nokkuf þemu, sem hún nefnir
„Kafbátar", „Hjálmar" og „Varð-
menn“.
Hún hefur stillt varðmönnunum
upp í langri röð, svo sem vera
ber, og er þetta skemmtilegur lið-
ur í uppsetningunni, sem er hin
vandaðasta.
Hér er á engan hátt leitast við
að skapa hluti, sem ganga í augun
á fólki, því að sjálft skreytigildið
er í lágmarki og munirnir frekar
líkastir sjálfstæðum rýmisverk-
um.
Hugmyndin að varðmönnunum
er kannski sótt í kínverskan fom-
leifauppgröft fyrir nokkrum
árum, er í ljós kom ótölulegur
fjöldi varðmanna í fullri líkams-
stærð, en getur þó allt eins verið
af japönskum uppruna.
Þetta er sýning, sem vinnur á
við hvetja nýja heimsókn, þótt hún
láti kannski lítið yfir sér í fyrstu.
★ Snyrtívörubúðinni, Laugavegi 76,
fimmtudaginn 9. nóvember kl. 13-18.
★ Bylgjunni, Hamraborg, Kópavogi,
föstudaginn 10. nóvember kl. 13-18.
SIEMENS
■
■
Fjölhœft telefaxtœki!
Siemens HF 2303
16 stiga gráskali.
Sjálfvirkt endurval.
Símaskrá.
Sjálfvirkur skjala-
matari f. 30 bls.
Valskífa á tæki.
Skammval og
hraðval.
Klukkustýrð
sending.
Stafaskjár.
Pappírshnífur.
Verð: 131.340 kr.
Bjóðum einnig fyrirferðarlítið skrifborðs-
tæki, Siemens HF 2301, á 83.475 kr.
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
■
TVÆR VANDAÐAR OG EIGULEGAR BÆKUR
LÝÐRÆÐISLEG
FÉLAGSSTÖRF
eftir dr. Hannes Jónsson, fv. sendiherra
Lýðræðisleg félagsstörf
2. útgáfa 1989. Heilsteypt og yfirgripsmikil
handbók fyrir alla þá, sem taka vilja ábyrgan
þátt í félagsstarfi og ná árangri í fundarstörfum
og mælsku. Bókin fjallar á hlutlausan, hagnýtan
og fræðilegan hátt um alla þætti félags- og
fundarstafa, fundi og fundarstjórn, félags- og
forystustörf, mælsku, rökræður, lýðræðisskipu-
lagið og samhengi félagslífsins. Auk þess eru
í henni margar fróðlegar teikningar af hentugu
fyrirkomulagi í fundarsal smærri og stærri
funda. I bókinni eru verkefni og dagskrár til
þjálfunar á 10 málfundum. Hægt er að fá með
henni snældur með 10 stuttum kennsluerindum
höfundar, sem sniðin eru eftir verkefnaskrá
æfingafundanna. Hentug bók fyrir málfundar-
stafsemi allra félaga, flokka og skóla.
304 bls. í Skírnisbroti.
ftiá'lnoJtwmi tlf vtfrrn ityp,
ti\h <ft. Haϒt*
Islensk sjálfstæðis-
og utanríkismál
Vönduð og stórfróðleg bók um mikilvægustu
málefni ríkisins og stöðu þess í ríkjasamfélagi
heims. Veitir innsýn í sjálfstæðis-, utanríkis- og
öryggismál þjóðríkisins, konungríkisins og lýð-
veldisins eins og þau tengjast samskiptum okk-
ar við önnur ríki. Kemur þar fram margt, sem
ekki hefur verið á vitorði almennings. Bókin er
árangur 35 ára starfsreynslu höfundar í utanrík-
isþjónustunni og fjölþættrar menntunar hans
innan félagsvísinda og þjóðaréttar. Prýdd yfir
70 myndum, senn tengjast textanum.
Á erindi til allra íslendinga, eldri sem yngri. 336
bls. í stóru broti.
Bókasafn Félagsmálastofnunarlnnar,
Pósthólf 9168 -109 Reykjavík - síml 75352.