Morgunblaðið - 21.04.1990, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 21.04.1990, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRIL 1990 11 Nemendasamband MA heldur vorfagnað ÁRLEGUR vorfagnaður Nemendasambands menntaskólans á Akur- eyri verður haldinn í Vetrarbrautinni, Þórscafé, þann 4. maí næst- komandi. Hefst fagnaðurinn með borðhaldi klukkan 20 og lýkur á dansi við undirleik hljómsveitar Ingimars Eydal. BÚNAÐARBANKI íslands tók til starfa 1. júlí 1930 og fagnar því 60 ára starfsafmæli á þessu ári. Á hálfrar aldar afmælinu fyrir 10 árum var stofnunar bankans minnst með umtalsverðu átaki til styrktar skógrækt og annarri landrækt á íslandi. Búnaðar- bankinn hefur leitast við að stykja þá starfsemi af fremsta megni á undanförnum árum og mun leggja sitt af mörkum í til- efni afmælisins. Stjórn bankans ákvað að fagna tímamótum að þessu sinni með ein- hveijum þeim hætti, sem tengdist jafnt mannrækt og landrækt. Einn þáttur mannræktarátaks gæti verið að kynna almenningi íslenska myndlist, sem gamalgróin stofnun hefur eignast á langri leið. Því var þess farið á leit við stjórn og fram- kvæmdastjóra Kjarvalsstaða, að bankinn fengi nokkra daga til um- ráða í þessum tilgangi á afmælisár- inu. Fyrsti vísir að myndlistarsafni bankans varð til þegat' hann flutti úr Arnarhvoli í Austurstræti 9 og síðar í nýbyggt hús í Austurstræti 5 árið 1947. Þá var nýr afgreiðslu- salur bankans skreyttur stóru olíu- málverki Jóns Engilberts og nýtískulegum vírmyndum Sigurjóns Olafssonar. Upp frá því hefur bank- inn sett sér það mark að prýða húsakynni sín verkum íslenskra listamanna starfsfólki og viðskipta- vinum til yndisauka. Upphafsmenn þessa safns í bankanum voru þeir Hilmar Stefánsson bankastjóri og Haukur Þorleifsson aðalbókari og síðustu áratugina hefur svo Stefán Hilmarsson bankastjóri haft veg og vanda af málverkakaupunum. Viðskiptavinir og öðrum velunn- urum bankans er boðið að vera við opnun sýningarinnar í dag, laugar- daginn 21. apríl, kl. 16.00. Þá mun formaður bankaráðs, Guðni Ágústs- son, flytja ávarp og félagar úr ís- lensku óperunni syngja nokkur lög. Sýningin verður opin kl. 11-18 frá 22. apríl til 6. maí og eru allir vel- komnir. {Fréftiltilkynning) Ræðumaður kvöldsins verður Flosi Ólafsson leikari, stúdent 1954 og veislustjóri verður Kristín Sig- fúsdóttir kennari við M.A., stúdent 1975. Reynir Jónasson leiðir fjölda- sögn. Miðar verða seldir hjá Ey- mundsson frá föstudeginum 27. apríl til miðvikudagsins 2. maí. Einnig verður hægt að panta miða hjá Dóru Pálsdóttur og Láru Alex- andersdóttur, en símanúmer þeirra er að finna í símaskrá yfir höfuð- borgarsvæðið. í núverandi stjórn NEMA eru Dóra Pálsdóttir, formaður, Tómas Guðmundsson og Stefán Yngvi Finnbogason, ritarar, Bárður Tryggvason, gjaldkeri, Sverrir Kristinsson og Lára Alexanders- dóttir, meðstjórnendur. í varastjórn eru Þráinn Þorvaldsson, Siguijón Guðfinsson, Inga Sólnes og Guð- mundur Arnaldsson. Afmælisárgangar frá MA und- irbúa nú hátíð, sem haldin verður í íþróttahöllinni á Akureyri þann 16. júní nk. i frétt frá afmælisár- göngunum segir, að markmiðið með MA-hátíðinni sé að sem flestir norð- anmenn hittist og rifji upp gömul kynni. Vænst er góðri þátttöku af- fnælisárganga og ekki síður ann- arra norðanstúdenta og velunnara skólans. Orverur til land- bóta - Athugasemd eflir Jakob K. Kristjánsson 10. apríl sl. birtist í Morgunblaðinu fréttagrein undir heitinu „Unnið að framleiðslu á rótarsveppi til tijá- og lúpínuræktar11. Uppistaðan í grein- inni var viðtal við mig og Jón Lofts- son skógræktarstjóra. Það sem eftir mér er haft er flest mjög óná- kvæmt, auk fjölda af villum og rugl- ingi. Því óska ég eftir að fá eftirfar- andi athugasemd birta: Kveikjan að þessari grein er viðtal sem birtist í DV fyrir nokkru við Jón Gunnar Ottósson, forstöðumann Rannsóknastöðvar Skógræktar ríkis- ins að Mógilsá, þar sem hann full- yrti að svepprótarsmit væri gagns- laust fyrir skógrækt. Þessu eru starfsmenn Iðntæknistofnunar (ITI) algerlega ósammála og hafa af því spunnist deilur, sem ég ætla ekki að fara nánar út í hér. í Morgunblaðs- greininni er sagt, og haft éftir mér, að Rannsóknastofnun landbúnaðar- ins hafi átt aðild að framleiðslu á svepprótarsmiti því sem deilt er um. Þetta er ekki rétt, RaLa hefur ekki komið þar nærri. Þessu er síðan blandað saman við tvö önnur óskyld verkefni, annað er lúpínuverkefni RaLa og Landgræðslunnar (ekki Skógræktarinnar eins og sagt vatj, þar sem ITI var ekki formlegur að- ili. Hitt er nýtt verkefni „Örverur til landbóta", sem gerð hefur verið áætlun um, en er ekki farið af stað. Eg harma það að RaLa skuli hafa þarna verið blandað í deilumál, sem þeir eiga enga aðild að. Ég vil taka það fram að ég fékk ekki að sjá þetta viðtal áður en það var birt, eins og mér hafði þó verið lofað. Það er meginástæðan fyrir þessum villum og reyndar fleirum, sem ég hirði ekki að elta ólar við. Ilöfundur er deildarstjóri Líftæknideildar Iðntæknistofnunar. Karlakórinn Fóstbræður. FOSTBRÆÐUR ________Tónlist____________ Jón Ásgeirsson Karlakórinn Fóstbræður lauk sínu 74. starfsári með vortónleik- um í Langholtskirkju sl. fimmtu- dag. Tónleikarnir hófust með syrpu íslenskra þjóðlaga í radd- setningu Emils Thoroddsen. Emil var vel fær tónsmiður og eru radd- setningar þessar faglega vel unn- ar. Tveir kórfélagar, Eiríkur Tryggvason og Valdimar Örnólfs- son, sungu einsöng í tveimur lag- anna og stóðu sig með prýði. Búðarvísurnar eftir Emil voru næsta viðfangsefni kórsins, þetta lag er meðal vinsælustu kórlaga Emils. Undirleik í þessum lögum annaðist Lára Rafnsdóttir, sem hún útfærði sérlega skemmtilega í Búðarvísunum. Þijú næstu lögin voru gamlir kunningjar; Spinn, spinn, Þú komst í hlaðið og Um sumardag en í því lagi söng Þor- geir Andrésson einsöng. Eitt verk var frumflutt á þess- um tónleikum og stakk það nokk- uð í stúf við önnur verkefni tón- leikanna, en það er tónverk eftir söngstjórann Ragnar Björnsson við kvæði eftir Steingerði Guð- mundsdóttur. Kvæðið er ort um altaristöflu Nínu Tryggvadóttur í Skálholti. Ragnar byggir verkið að mestu upp af tveimur tónhug- myndum, stækkandi hljómklösum og fijálslega unnu „ostinato" stefi, sem barnakór söng. Þar voru að verki 13 börn úr skólakór Garðabæjar. Hjalti Guðmundsson flutti nokkra einsöngstóna. Verkið hefst á síhækkandi hljómklösum, sem mynda eins- konar A-kafla verksins. B-kaflinn er unninn úr stuttu steffrymi sem barnakórinn. söng mjög vel. Eftir stuttan miliikafla, þar sem sungn- ir eru kyrrstæðir hljómar með vaxandi styrk við orðið náð, sem má skilja sem ákall, heyrast aftur hljómklasar, en nú ofan frá og niður. Saman við þá skarast stef- brot barnakórsins (B-kaflinn). Verkinu lýkur svo á hækkandi hljómklösum og það endar með því að há- og lágraddir skiptast á að syngja niðurlag klasanna. Verlrið samdi Ragnar 1973 en á þeim árum var mikið um alls konar tilraunir í hljómskipan. Verkið er feikna erfitt í flutningi og útheimtir sterkar andstæður í styrk og var flutningur þessa sér- kennilega verks góður, sérstak- lega barnanna, sem sungu af ör- yggi og mjög fallega. Kvartett og oktett sungu nokk- ur lög og meðal annars Litli fugl, eftir Sigfús Halldórsson. Eftir nokkur sænsk lög, en í einu þeirra söng Jóhann Smári Sævarsson einsöng, lauk tónleikunum með fimm lögum eftir Gylfa Þ. Gísla- son, í raddsetningu Jóns Þórarins- sonar. Þar sungu einsöng Erna Guðmundsdóttir og Þorgeir Andr- ésson en auk þess kórfélagarnir Björn Emilsson, Aðalsteinn Guð- laugsson og Skúli Möller. Lög Gylfa eru vinsæl, sérstaklega Ég leitaði blárra blóma, sem Andrés Guðmundsson söng mjög vel. Undirleikari var Lára Rafnsdóttir og stjórnandi, eins og fyrr grein- ir, Ragnar Björnsson. Kórinn var nokkuð misjafn, einkum er varð- aði tónstöðu háraddanna en þar á móti mátti oft heyra mjög góðan söng, einkum í „gömlu lögunum" og í verki Ragnars, sem er mjög erfitt í flutningi. Búnaðarbanki íslands 60 ára: Afinælissýning á mynd- list úr safiii bankans Stjórn og varastjórn nemendasambands Menntaskólans á Akureyri. í efri röð frá vinstri eru Inga Sólnes, Þráinn Þorvaldsson, Sigurjón Guðfinsson og Lára Alexandersdóttir. í neðri röð eru Sverrir Krist- insson, Stefán Yngvi Finnbogason, Dóra Pálsdóttir og Bárður Tryggvason. Á inyndina vantar Tómas Guðmundsson og Guðmund Arnaldsson. Nýjar perur 20% afsláttur á 20 tíma kortum Þetta gildir sem afsláttarmiði Blessuð sólin skín og skín skært i ljósabekknum. Hjá Sunnu verðið þið sæt og fín og sæl á sólarbekknum. Sólbaðsstofan Sunna Laufásvegi 17, sími 25280. AÐALFUNDLJR Aöalfunclur Verslunarbanka íslands hf. verður haldinn í Súlnasal Hótels Sögu laugardaginn 28. apríl 1990 og hefst kl. 13.30. Dagskrá: 1. Aðalfundarstörf samkvæmt 33. grein samþykkta félagsins 2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa- 3- Tillaga að nýjum samþykktum fyrir félagið. 4. Önnur mál löglega fram borin. Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins verða afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra í afgreiðslu útibús íslandsbanka, Bankastræti 5, miðvikudaginn 25. apríl, fimmtudaginn 26. apríl og föstudaginn 27. apríl kl. 9:15 til 16.00 alla dagana. Verslunarbanki íslands hf. VeRSLUNRRÐRNKINN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.