Morgunblaðið - 05.07.1990, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1990
27
Hljómsveitin Stjórnin
aftur á Hótel Islandi
HLJÓMSVEITIN Stjórnin er gestum Hótels íslands að góðu kunn
og ætlar nú loksins að láta sjá sig þar aftur og leika fóstudaginn
6. júlí.
Þetta verður í eina skiptið sem
Stjórnin leikur í Reykjavík i sumar
og verður 18 ára aldurstakmark
þetta kvöld á Hótel íslandi.
Eftir góðan árangur í Júgó-
slavíu þann 5. maí sl. hefur hljóm-
sveitin þeyst um landið þvert og
endilangt og leikið á tónleikum og
dansleikjum í bland.
Laugardaginn 7. júlí leikur
Stjórnin á tónleikum í Njálsbúð
og mun ríkissjónvarpið verða í för
með sveitinni þar sem unnið er
að sjónvarpsþætti um hljómsveit-
ina.
Um Eitt lag enn er það að segja
að unnið er að þýskri útgáfu á
laginu og sitja þau Grétar og Sigga
sveitt yfir þýsku lesefni þessa dag-
ana.
Hljómsveitin Stjórnin.
Kjarvalsstaðir:
Höggmyndalist
Á Kjarvalsstöðum stendur yfir
í öllu húsinu yfirlitssýning á
íslenskri höggmyndalist fram til
ársins 1950.
Á sýningunni eru verk eftir Einar
Jónsson, Asmund Sveinsson, Sigur-
jón Ólafsson, Gunnfríði Jónsdóttur,
Guðmund frá Miðdal, Ríkharð Jóns-
son, Magnús Á. Árnason, Nínu Sæ-
mundsson og Martein Guðmundsson.
Sýningin er framlag Kjai-valsstaða
til Listahátíðar 1990 og er þetta
síðasta sýningarhelgin.
Kjarvalsstaðir eru opnir daglega
frá klukkan 11-18 og er veitingabúð-
in opin á sama tíma.
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
4. júli.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hœsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verfl verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 95,00 20,00 63,56 7,667 487.922
Ýsa 121,00 40,00 82,32 2,194 180.603
Karfi 32,50 16,00 20,10 1,255 25.248
Ufsi 20,00 20,00 20,00 0,699 13.980
Steinbítur 58,00 26,00 29,30 1,631 47.782
Langa 20,00 19,00 19,50 0,413 8.073
Lúða 330,00 240,00 259,08 0,092 23.835
Koli 50,00 50,00 50,00 0,523 26.150
Smáþorskur 20,00 20,00 20,00 0,522 10.440
Smáufsi 10,00 10,00 10,00 1,418 14.180
Keila 19,00 19,00 19,00 0,045 855
Gellur 305,00 205,00 289,38 0,096 27.780
Skötuselur 255,00 255,00 255,00 0,008 2.040"
Skötuselur 165,00 165,00 165,00 0,013 2.145
Blandaður 19,00 19,00 19,00 0,048 912
Þorskur st. 93,00 93,00 93,00 0,187 17.391
Samtals 52,86 16,822 889.336
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA.hf.
Þorskur 95,00 50,00 70,54 9,351 653.597
Ýsa 96,00 45,00 64,66 2,439 157.701
Karfi 24,00 10,00 11,82 10,494 123.999
Steinbítur 60,00 15,00 35,28 1,207 42.583
Hlýri 35,00 35,00 35,00 0,327 11.445
Langa 35,00 30,00 31,63 0,267 8.445
Lúða 400,00 30,00 180,75 0,214 38.680
Sólkoli 60,00 60,00 60,00 0,031 1.860
Keila 27,00 10,00 25,69 3,739 96.095
Grálúða 30,00 30,00 30,00 0,401 12.030
Skata 63,00 63,00 63,00 0,145 • 9.135
Skötuselur 395,00 395,00 395,00 0,039 15.405
Ufsi 42,00 9,00 21,04 6,334 133.242
Undirmál 20,00 20,00 20,00 0,090 1.800
Samtals 37,40 35,079 1.312.017
Á morgun verður selt u.þ.b. 1 tonn af humfri af Ósk.
FISKVERÐ Á UPPBOÐSMÖRKUÐUM - YTRA
I GÁMASÖLUR í Bretlandi 4. júlí.
Hæsta verð Lægsta verð Meðalverð Magn Heildar-
(kr.) (kr.) (kr.) - (lestir) verð (kr.)
Þorskur 118,62 57,17
Ufsi 97,89 89,32
Karfi 103,61 51,45
ÞÝSKALAND 4.júlí.
Þorskur 161,59 112,78
Ýsa 158,22 122,88
Ufsi 63,96 43,76
Karfi 95,94 85,84
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Fjöldi tiginua gesta var við athöfnina.
1 M 1 • - -j
JK iií: 'v“v í. ' ‘ . |
f! a rerufnm tt a wrrr fuub^
yni'ifr « WfHfF™nj|r
: I 'j£. ' mShÉHHf'
Keflavíkurflugvöllur:
Yfirmannaskipti hjá flotastöðinni
Keflavtk.
James I. Munsterman, hinn nýi yfirmaður flotastöðvarinnar, til
vinstri, og eiginkona hans Valerie og fráfarandi yfirmaður, Richard
E. Gollsby, skera fyrstu sneiðina af tertu sem boðin var af þessu tilefni.
YFIRMANNASKIPTI urðu hjá
fiotastöð varnarliðsins við há-
tíðlega athöfn sl. fostudag. Þá tók
James I. Munsterman kafteinn
við starfi yfirmanns flotastöðvar-
innar af Richard E. Goolsby kaf-
teini sem gegnt hafði því starfi
frá því í júlí 1988.
Flotastöðin á Keflavíkurflugvelli
er sú deild varnarliðsins sem sér
um rekstur þjónustu við aðrar deild-
ir liðsins og er yfirmaður stöðvar-
innar nokkurs konar bæjarstjóri
varnarliðsins, en þar starfa um
1.100 íslendingar, auk mörghundr-
uð 'starfsmanna verktakafyrir-
tækja.
James I. Munsterman kafteinn
er frá Lombard í Illinois-fylki. Hann
lauk prófi í viðskiptafræði í Lewis
College í Lockport í sama fylki.
Hann varð liðsforingi í flotanum
1968 og lauk námi í flugi 1969. Á
ferli sínum hefur Munsterman
starfað víða um heim, oftast á veg-
um eftirlitsflugsVeita flotans. Vet-
urinn 1985 var hann aðstoðaryfir-
maður 40. eftirlitsflugsveitar flot-
ans og dvaldi þá á Keflavíkurflug-
velli og varð síðan yfirmaður sveit-
arinnar að lokinni 6 mánaða dvöl á
íslandi. Á undanförnum árum hefur
Munsterman gegnt ýmsum emb-
ættum sem lúta að gagnkafbáta-
hernaði og þróun hans. Eiginkona
hans er Valerie frá Evanston í 111-
inois. Þrjár dætur þeirra hjóna,
Jennifer, Erin og Heather, dvelja í
foreldrahúsum á Keflavíkurílug-
velli, en tveir synir, Michael og
Eric, eru í Bandaríkjunum.
Riehard E. Goolsby fráfarandi
yfirmaður heldur til Norfolk í Virg-
iníu þar sem liann mun taka við
starfi yfirmanns þeirrar deildar flot-
ans sem annast þjálfun í gagnkaf-
bátahernaði. Fjöldi tiginna gesta
var við athönina. Ávörp fluttu
Thomas F. Hall varaaðmíráll og
Charles E. Cobb jr. sendiherra
Bandaríkjanna á íslandi og hljóm-
sveit úr flotanum frá Memphis í
Tennessee lék þjóðsöngva íslands
og Bandaríkjanna.
-BB
■ VATNSLITAMYNDIR af
íslensku landslagi eftir David
White eru tii sýnis í skólahúsinu
við Hótel Eddu, Nesja. Síðasti
sýningardagur er í dag og er
opið frá klukkan 14-22.
Skoðanakönnun um viðhorf til Evrópumála:
56% telur aukið samstarf við
Evrópuþjóðir bæta lífskjör
56% íslendinga telur að aukið sainstarf við þjóður Vestur Evrópu
muni bæta lífskjör í landinu. 7% telja að lífskjör inuni rýrna en 38%
áhrifin verða lítil. Þetta er ein af niðurstööum skoðanakönnunar sem
Félagsvísindastofnun Iláskólans hefur gert fyrir Samstarfshóp atvinn-
ulífsins ugj evrópska samvinnu, og gerð er grein fyrir í nýju frétta-
bréfi Félags íslenskra iðnrekenda.
73% svarenda telja að íslenskt
efnahagslíf hafi gott af auknu sam-
starfi við þjóðir V—Evrópu, 11% telja
að áhrifin verði neikvæð. Þá eru 58%
hlynntir því að evrópsk fyrirtæki
geti tekið þátt í íslenskum atvinnu-
rekstri, 32% eru andvígir en 11%
óákveðnir.
- 47% þeirra sem þátt tóku í könn-
uninni telja að aukin þátttaka í sam-
starfi Vestur-Evrópuþjóða muni efla
íslenska menningu og menntir. 44%
telja áhrifin verða lítil en 9% telja
aukið samstarf munu veikja íslenska
menningu og menntir.
Spurningu um hvort æskilegt sé
að ríkisborgurum frá V—Evrópu sé
gert auðveldara að flytjast búferlum
og starfa hér gegn því að íslending-
um sé auðveldað að búa og starfa í
löndum V—Evrópu svöruðu 54,1%
þannig að þetta væri æskilegt, 32,8%
töldu þetta óæskulegt en 13,1% voru
óákveðnir.
Þá töldu 55% aðspurðra að það
hefði lítil áhrif á stjórnarfar hériend-
is að ísland tæki aukinn þátt í sam-
starfi V-Evrópuþjóða en 35% töldu
slíka þróun mundu bæta stjórnarfar
hérlendis en 10% töldu stjórnarfarið
bíða skaða af auknu samstarfi.
Áður hefur í Morgunblaðinu verið
gerð grein fyrir nokkrum niðurstöð-
um þessarar könnunar, svo sem þeim
að þorri svarenda, um 86%, taldi
ekki koma til greina að veita EB-rikj-
utn aðgang að íslenskum fiskimiðum
gegn aðgangi að mörkuðum; fylgj-
endur EB-aðildar eru fleiri en and-
stæðingar og að þeim sem eru óá-
kveðnir í afstöðu til málsins fer fækk-
andi.
Könnunin náði til 1500 manna
slembiúrtaks úr þjóðskrá. Svör bár-
ust frá um 70% þátttakenda.
Leiðrétting
í frétt Morgunblaðsins af þeim
atburði í Núpsvötnum þegar tveir
menn festu jeppa sinn í ánni st.
föstudagskvöld var því haldið fram
að mennirnir væru félagar í Hjálp-
areveit skáta í Kópavogi. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Hjálpar-
sveitinni er það ekki rétt og leiðrétt-
ist það hér með.