Morgunblaðið - 23.03.1991, Page 4
4
MÖRGÚNBLAÐIÐ 'lAUGARDAGUr'23. MARZ 1991
Seljakirkja:
Krakkarnir söfnuðu
fyrir kirkjuklukkum
Klukknaturninn reistur fljótlega
PETUR Oli Gíslason, formaður nemendafélags Seljaskóla, afhjúpaði
þrjár kirkjuklukkur Seljakirkju í gær. Klukkurnar eru keýptar fyr-
ir fé sem nemendur skólans söfnuðu með áheitum í tengslum við
maraþonknattspyrnu og jólakortasölu. Um 500 börn voru viðstödd
afhjúpun kirkjuklukknanna. Turn hefur ekki verið byggður við kirkj-
una en að sögn Valgeirs Ástráðssonar, sóknarprests, verður hann
reistur fljótlega.
Valgeir sagði í samtali við Morg-
unblaðið að hugmyndin að söfnun-
inni hefði komið frá Hjalta Jónas-
syni, skólastjóra í Seljaskóla, við
vígslu kirkjunnar snemma árs 1987.
Söfnuninni hefði verið hrundið af
stað og krökkunum hefði með mikl-
um dugnaði og áhuga tekist að
safna fyrir klukkunum á tveimur
og hálfu ári. Hann sagði að þetta
framtak segði að minnsta kosti
tvennt. í fyrsta lagi að í krökkunum
væri mikill veigur og í öðru lagi
segði þetta töluvert um viðhorf
þeirra til kirkjunnar.
Hjalti Jónasson sagði að fyrsta
fjárframiagið hefði verið 80 þúsund
krónur úr mjólkursjóði og frá nem-
endum skólans. Nokkru seinna
hefðu nokkrir nemendur ákveðið
að efna til maraþonknattspyrnu en
í tengslum við hana var safnað á
milli 400 og 500 þúsund krónum í
formi áheita. Í hittifyrra voru svo
gefin út jólakort sem krakkamir
seldu. Fýrir jólakortin fékkst um
það bil ein milljón króna til klukkna-
kaupanna.
Pétur Óli, sem afhjúpaði klukk-
umar, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að skólafélögum hans hefði
fundist gaman að sjá árangur erfíð-
isins. Hann sagði líka að áletrun á
klukkunum, þar sem segir að þær
séu gjöf frá nemendum skólans,
hefði vakið sérstaka ánægju nem-
endanna.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þarna verða klukkurnar okkar —
krakkarnir virða fyrir sér líkan af
væntanlegum klukknaturni. Á inn-
felldu myndinni afhjúpar Pétur Óli
Gíslason klukkurnar.
VEÐUR
KL 16.151
VEÐURHORFUR í DAG, 23. MARZ
YFIRLIT í GÆR: Skammt fyrir austan land er hæðarhryggur, sem
þokast austur. Við suðvestur Grænland er 976 mb djúp lægð, sem
lireyfist norðaustur. Heldur hlýnar í veðri.
3PÁ: Suð- og suðvestan átt, víðast gola eða kaldi. Skúrir eða
slydduél sunnan og vestan lands, riging suðaustan lands fram eft-
ir degi en léttir til á Norðausturlandi. Hiti 3-7 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG: Suðvestan strekkingur með skúrum eða
éljum um suðvestanvert landið en léttskýjað á Norðaustur- og
Austurlandi. Hiti 0-5 stíg.
HORFUR Á MÁNUDAG: Hvöss sunnanátt og hlýtt. Rigning um
allt sunnan- og vestanvert landið en úrkomulítið norðaustanlands.
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
y Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Suld
OO Mistur
—Skafrenningur
F7 Þrumuveður
TAKN:
O - Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
s, Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að fsl. tíma
hitl veður
Akureyri 4 sk’yjað
Reykjavík 5 skýjað
Bergen 5 skýjað
Helslnki 3 rigning
Kaupmannahöfn 7 skýjað
Narssarssuaq 2 rigning
Nuuk +4 snjókoma
Osló 4 skýjað
Stokkhólmur 5 skýjað
Þórshöfn 4 skúr á síð.ktst.
Algarve 14 hálfskýjað
Amsterdam 9 léttskýjað
Barcelona 16 lettskýjað
Berlín 9 skýjað
Chlcago 22 þokumóða
Feneyjar 14 þokumóða
Frankfurt 10 alskýjað
Glasgow 8 léttskýjað
Hamborg 8 skýjað
Las Palmas vantar
London 3 skúrásið.klst
LosAngeles 14 heiðskírt
Lúxemborg 8 skýjað
Madríd 10 skýjað
Malaga 16 skýjað
Mallorca 17 alskýjað
Montreal +5 skýjað
NewYork 10 alskýjað
Orlando 28 heiðskírt
París 9 skýjað
Róm 17 skýjað
Vln 18 léttskýjað
Washlngton 17 þokumóða
Winnlpeg 9 léttskýjað
Veljum þá menn í stjórn-
ir sem þykja hæfastir
- segir stj órnarformaður LV
Stj órnarformaður Lífeyrissjóðs
verslunarmanna er ósammála því
sjónarmiði, sem kom fram hjá
Sigurði Helgasyni fráfarandi
stjórnarforrnanni Flugleiða, að
lífeýrissjóðir eigi ekki að skipa
eigin menn í stjórnir hlutafélaga
sem þeir eiga hlut í.
Lífeyrissjóður verslunarmanna er
næststærsti einstaki hluthafí í Flug-
leiðum og skipar fulltrúi sjóðsins
sæti í varastjóm félagsins. Guð-
mundur H. Garðarsson formaður
stjómar LV sagði að sjóðurinn hefði
keypt hlutabréf í fyrirtækjum allt
frá árinu 1970 og meðalávöxtun á
þeirri fjárfestingu, hefði verið rúm
16% árin 1980-90 á meðan meðal-
ávöxtun skuldabréfa lífeyrissjóðsins
hefði verið um 7%.
„Það hefur verið meginregla
stjórnar sjóðsins að velja þá menn
í stjórnir fyrirtækja sem sjóðurinn
er hluthafí í, sem að mati hennar
em hæfastir til að reka viðkomandi
fyrirtæki og í því sambandi er hægt
að benda á ávöxtun hlutabréf-
anna,“ sagði Guðmundur þegar
ummæli Sigurðar voru borin undir
hann.
Guðmundur sagðist telja það út
í hött að gefa sér það að menn
væru ekki jafnhæfír eða hæfari til
þátttöku í stjómum hvort sem þeir
væru tengdir félaginu eða ekki.
Hann sagðist heldur ekki kannast
við að lífeyrissjóðir í Bretlandi og
Bandaríkjunum skipuðu ekki menn
úr sínum röðum í stjómir hlutafé-
laga sem þeir ættu í.
ísafjörður:
Þrír hand-
teknir vegna
hassneyslu
LÖGREGLAN á ísafirði hand-
tók fyrir skömmu þrjá unga
menn, sem grunaðir voru um
hassneyslu. Tveir þeirra höfðu
í gær játað.
Mennirnir þrír em allir um
tvítugt. Þeir voru handteknir í
heimahúsi, gmnaðir um að hafa
neytt efnisins. Samkvæmt upp-
lýsingum lögreglunnar höfðu
tveir þeirra játað neysluna í gær
og hafði þeim verið sleppt úr
haldi.
Lögreglan varðist frétta af því
hvar mennirnir höfðu fengið efn-
ið eða hversu umfangsmikið
málið væri.
Tómatsósa
o g sinnep á
veggi
UNG kona hafði samband við
lögreglu í gærmorgun og til-
kynnti, að næsturgestir henn-
ar hefðu unnið mikil spjöll á
íbúð ömmu hennar, sem hún
hafði til umráða. Þegar Iög-
reglan kannaði málið kom í
Uós að eitt glas hafði brotnað,
en gestirnir höfðu atað tómats-
ósu og sinnepi um allt, auk
þess að grýta eggjum I veggi.
Konan sagði að henni hefði
litist ágætlega á gestina, þegar
hún bauð þeim heim af öldurhúsi
um núttina. Hún kvaðst hafa
verið ölvuð og sagði að gestir
hennar hefðu vísað henni út úr
stofu íbúðarinnar. Ekki gerði hún
sér grein fyrir því hvort hún hefði
verið sofandi þegar skemmdirnar
voru unnar, en um morguninn
sá hún að stofan var illa útleikin.
Henni óx í augum að þrífa stof-
una og skýra málavöxtu fyrir
ömmu sinni og leitaði því aðstoð-
ar lögreglu við að reyna að hafa
uppi á næturgestunum, sem ekki
tókst.
Beit dyra-
vörð
SAUTJÁN ára piltur var hand-
tekinn á skemmtistaðnum Yfir
strikið við Ármúla í fyrrinótt,
eftir að hann beit dyravörð.
Pilturinn var allmikið ölvaður
og var með óspektir. Dyraverðir
ætluðu að koma honum út af
staðnum, en hann brást illa við
og beit annan þeirra í þumalfing-
ur. Var þá kallað á aðstoð lög-
reglu, sem flutti piltinn í fanga-
geymslur.